Tíminn - 23.07.1963, Blaðsíða 1
benzin eda diesel
ÖVER
jjEKLA.
162. tbl. — Þriðjudagur 23. júli 1963 — 47. árg.
„Allt, sem lyftir Skálholti í
raun, lyftir þjóðinni", mœlti
biskupinn, herra Sigurbjörn Ein
arsson, í þakkarorðutn, er hann
flutti, er Bjami Benediktsson,
kirkjumálaráðherra hafði af-
hent þjóðkirkjunni Skálholts-
stað. í ræðu sinni gat biskup
þess, að er Gissur biskup ís-
leifsson gaf Skálholtsland heil-
agri Péturskirkju í Skálholti,
fylgdi gjöf hans það ákvæði, að
þar skyldi ávallt biskupsstóll
vera. Sagði biskup, að þessi um
imæli hefðu um nokkurt skeið
þótt fjarstœð raunhæfum veru
leika, en nú væri svo komið að
þetta væri ekki lengur óraim-
hæf hugmynd, þótt vera mætti
álitamál og umræðuefni enn
um sinn, hvort og hvernig fram
kvæma skuli.
Vígsluathöfnin og afhending
staðarins var látlaus, en áhrifa
mikil og falleg athöfn. Mikill
mannfjöldi var viðstaddur há-
tíðahöldin að Skálholti á sunnu
daginn, þrátt fyrir kalsaveður
og er talið, að 5—6000 manns
hafi sótt hátíðahöldin, þegar
flest var. Sólin brauzt fratn úr
skýjaþykkninu í þann mund, er
prósessía biskupa og presta
gekk í kirkju. Myndina tók
ljósmyndari Tímans, GE, er
endi prósessíunnar kom að
kirkjutröppunum. Á henni sjást
vígsluvottamir, sem vom er-
lendu biskuparnir fimm; vígslu
biskupar Skálholts og Hóla, og
dr. Valdimar Eylands. Síðastur
fór biskupinn, herra Sigurbjörn
Einarsson, klædur forkunnar-
fagurri skykkju.
Sjá bls. 7,8 og 9
MIKLIR HEYSKAÐAR AF ROKINU Á SUÐURLANDI
SUMIR MISSTU
YFIR100 HESTA
PE-Hvolsvelli, 23. júlí.
Mlklir heyskaðar urðu í Flióts-
hlíðinni og undir Eyjafjöllum í rok
inu um helgina ,sem kom óvænt.
Fauk hey, bæði laust og úr göltum
og munu sumlr bændur hafa misst
á annað hundrað hesta af heyl.
Rokið skall á um miðnættið á
sunnudagsnóttinni Margir bændur
áttu flatt hey, sem farið var að
þoma, og því laust fyrir. Til dæmis
hafði Sigurður á Barkarstöðum
slegið stóra spildu á laugardaginn
og áætlar, að á henni hafi verið
um 300 hestar. Úr því telur hann
að hafi fokið um helmingur, og
skúr, er kom seinni partinn í gær,
hafi bjargað því, að ekki fór allt.
Þá fauk einnig víða hey úr gölt
um og munu frá 50 hestum og upp
að hundrað hafa tapazt á allmörg
um bæjum, bæði í Fljótshlíðinni
og undir Eyjafjöllum.
Það var ekki fyr en í gærkvöldi,
sem veðrið gekk niður. Áttin var
austlæg eða norðaustlæg, en þær
áttir eru sem kunnugt er mjög
slæmar hér um slóir.
Margir bændur hér um slóðir
em mjög gramir yfir því, að veðri
þessu var ekki spáð fyr en það var
að skella á og vom menn því mjög
T0GARAR FARNIR AD
KOMAMEDFULLFERMI
MB-Reykjavík, 23 júlí.
Afli hefur verið ágætur hjá
togurunum á heimamiðum að und-
anförnu, og hafa þeir komið með
fullfermi inn nú um helgina. Síð-
ustu viku var landað hér 1430
tonnum af karfa, sem er óvenju
mikið.
Nú um helgina kom Skúli Magn-
ússon með rúmlega þrjú hundruð
tonn, og var þeim landað í gær
í dag og kvöld var unnið við lönd-
un úr Hvalfellinu og Jóni Þor-
lákssyni, en bæði þau skip munu
vera með fullfermi, eða sem næst
300 tonn. Á morgun er Sigurður
svo væntanlegur inn með mikinn
afla, senniiega um eða yfir 400
tonn.
Afli þessi er allur fenginn á
heimamiðum, eða við Austur-
Grænland.
Þá hafa borizt fregnir af, að
Þorsteinn Ingólfsson, sem verið
hefur við veiðar við Vestur-Græn-
land, sé lagður af stað heimleiðis
með fullfermi.
Segja má, að afli togaranna hafi
verið þokkalegur i vor og sumar,
og virðist hann enn vera að auk-
ast, eftir þessum nýjustu fréttum
að dæma
óviðbúnir, en miklu magni hefði
mátt bjarga, ef bændur hefðu reikn
að með því.
Skarðið
nærri
dfært
FB-Reykjavík, 22. júlí.
í kvöld bárust þær fréttir ti'
Siglufjarðar, að aurskriður hefði
fallið á Siglufjarðarveginn o;
myndi þurfa að fara og hreinss
hann.
í nótt sem leið byrjaði að hríð£
í fjöllin og snjóaði þar enn urr
kvöldmatarleytið í kvöld. Á Siglu
firði sjálfurn var ausandi rigning
og þar hafði verið ofsarok í allar
gærdag. Búizt var við því, að kólr
aði veðrið, svo nokkru næmi
mundi þegar fara að hríða, því úr
hellið var svo mikið.
Þrjátíu skip lágu inni á Siglu
firði, og munu skipsmenn hafs
farið velbirgir af áfengi um borf
í borgun hræddir um að lögreglar
imyndi grípa til þess ráðs að loka
útsölu áfengisverzlunarinnar, ein:
og gert var. í seinustu landlegu
en það hefur ekki verið gert enn
enda skipin ekki svo mörg í höfr
inni.
BÖLL OG
/ r
BIO ALLAN
DAGINN
FB-Reykjavík, 22. júlí.
Engin síldveiði var síðast liðinn
sólarhring. Fyrir austan var austan
stormur og vondur sjór, og öll
skip inni. Á Seyðisfirði lágu á ann
að hundrað norsk síldveiðiskip inni
auk fjölmargra íslenzkra skpa. Þar
var mest um að vera í samkomu-
húsinu og annað hvort böll eða
bíósýningar nær því allan sólar-
hringinn.
Ekkert útlit er fyrir veiði í nótt.
Engin síldveiði var heldur við
Eyjar um helgina, enda veður
vont.