Tíminn - 27.08.1963, Blaðsíða 3
Myndirnar hér tU liliðar eru
úr myitdasafni Scotland Yard,
en lögreglan lýsir eftir þessum
mönnum í sambandi viff lestar-
ránið mikla, sem enn er óupp-
lýst, þrátt fyrir gífurlega um-
fangsmlkla leit a3 ræningjun-
um. Það er grunur lögreglunn
ar, ajf með handtöku þessara
þriggja manna komizt hún yfir
upplýsingar, sem leitt geti til
handtöku ræningjanha sjálfra,
en ekki hefur lögreglan vlljað
segja um, hvort hún telji menn
þessa þrjá beina hluttakendur
í ráninu.
Menntrnir eru talið frá vinstri
James E. Whlte, 43 ára gamall,
Charles Frederick W'ilson, 31
árs og Bruce Richard Reynolds,
41 ára gamall.
I-
LOKAÐIR
Allar horfur á
Þegar myndin hér að ofan
var tekin, var enn langt I land
um öjörgun þremenninganna,
en fjöldi manns fylgdist með
aðgerðunum, sem kostuðu
mikla þrautseigju og þolln-
mæði. Meðal þögulla áhorfenda
var þessi kona, sem þarna held-
ur á 8 mánaða gömlum syni.
Henni er líka málið skylt, því
liún bíður í örvæntingu eftir
fréttuin af manni sínum, Louis
Bova, sem innilokaður er f hllð
argangi námanna og ekkert hef
ur heyrzt til í marga daga og
telja björgunarmenn liann með-
vitundarlausan.
Kortiff er af afstöðu hinna
innilokuðu manna, eins og
menn gera sér hana í hugar-
lund. Á kortinu sést rörið, sem
gerir björgunarmönnum mögu
legt að hafa samband við þá
Framh á bls. 15.
björgun I
NTB-Hazleton, 26. ágúst
Björgunarmennirnir, sem unn
ið hafa baki brotnu síðustu
daga við að grafa göng niður
til tveggja námaverkamanna,
sem lokuðust inni í nálnu við
Hazleton í Pensylvaniu fyrir 15
dögum, ásamt félaga sínum,
sem nú er óttazt, að sé látinn,
voru bjartsýnir á, að takast
mætti að komast niður tll mann
anna í nótt og bjarga þeim úr
prisundinni.
Eins og áðúr hefur verið skýrt
frá í fréttum lokuðust mennirn
ir þrír inni, er námugöng
hrundu saman. Tveir þeirra,
Throne og Fellini lokuðust inni
í aðalgöngunum, en í hliðar-
gang skammt frá þeim lokaðist
útgönguleiðih fyrir félaga
þeirra, Bovén, sem ekkert hef-
ur heyrzt í í marga daga.
f morgun hafði björgunar-
mönnunum tekizt með hjálp
öflugs bors as bora 45 cm. víð
göng 80 metra niður í jörðina
og eru þá eftir um 14 metrar til
félaganna tveggja, sem sjálfir
hafa klifrað rúma 6 metra upp
Framh. á 15. síðu.
Bova
b1aBaður
nótt!
'ellini
F, Thrrone
Segja herinn ekki bera
á helgispjöllum
NTB-SAIGON, 26. ágúst.
■jf HINN NÝSKIPAÐI sendiherra Bandaríkjanna f SuSur. Vietnam, Henry Cabot Lodge,
heimsóttl Ngo Dlnh Diem, forseta, tvisvar í dag og flutti honum meðal annars sér-
stakan boSskap Kennedys, forseta, þar sem segir, að Bandaríkin líti mjög alvarlegum
augum á aðgerðir stjórnar hans gegn Búddatrúarmönnuni I landinu.
-fc ENN ERU MÖRG HUNDRUÐ munka, nunna og stúdenta í fangelsum stjórnarinnar
og herma fréttir, að margtr hinna handteknu hafi farið í hungurverkfall. Frá Singa-
pore berast þær fréttir, að stjórnin hafi látið handtaka í gær a. m. k. 2000 stúdenta,
sem mótmæltu aðför stjórnarherjanna gegn Búddatrúarfélki.
-jf BÚiZT ER VID, að margir af meðlimum stjórnar Diems muni segja af sér á næstunmi
að fordæmi utanríkisráðherrans og mótmæla þannig aðgerðum Díems. Meðal þeirra,
sem nefndir eru, er varaforsetinn, Nguyen Ngo Tho. — Enn er útgöngubann víða f
landinu og hefur lögreglan skipun um að skjóta hvern þann, sem ekki hlýðnast því.
^ SAGT VAR opinberlega frá því í Wasþington í dag, að yfirstjórn hers Suður-Vietnam
hafi ekki lagt á ráðin um árás hermanna á hof Búddatrúarmanna í síðustu viku, en
sú árás kostaði nokkur mannslif. Sagði talsmaður utanríkisráðuneytisins, að sam-
kvæmt þeim upplýsingum, sem honum hefðu borizt benti allt tll þess, að lögreglan,
studd af nokkrum öryggissveitum, hefðl framkvæmt og staðið fyrir þessum hrotta-
legu aðgerðum. N
* EFRI MYNDIN hér til hliðar er af forseta Suður-Viefnam, NGO DINH DIEM, sem
falið hefur bróður sínum aðgerðirnar gegn Búddatrúarmönnum, en neðri myndin er
af mágkonu forsetans, frú NHU, sem aflað hefur sér mikilla óvinsælda með afstöðu
sinni til trúarbragðadeilunnar og baráttu Búddatrúarfólksins.
SÍÐUSTU FRÉTTIR
Orðrómur er á kreiki um, að
bróðir DIEMS, forseta, sem stjórnað
hefur að mestu aðgerðunum gegn
Búddatrúarmönnum, rækilega studd-
ur af hinni herskáu konu sinni, mun
brátt taka alla stjórn í landinu í
sínar hendur. Orðrómur þessi fékk
í gærkveldi byr undir báða vængi.
er byrjað var að taka niður myndlr
af Diem forsefa í fjölda opinberra
bygginga og setja myndir af bróð-
urnum, NGO DINH NHU, f staðlnn.
SEI’NT í gærkvöldi lýsti talsmaður
sendiráðs Suður-Vietnams i Wash-
ington því yflr, að aiilr starfsmenn
sendíráðsins, sem notið hafa úr-
lendisréttar, hafi sagt upp starfl
sínu i mótmælaskyni við aðgerðirn-
ar gegn Búddatrúarmönnum i heima
landi þeirra.
\
T í M 1 N N, þriðjudagurinn 27. ágúst 1963. —
3