Tíminn - 28.08.1963, Síða 3
NTB.Washington, 27. ágúst.
í dag streymdu f jölmennir her-
flokkar inn í Washington á sama
tíma og fólk, bæði hvítt og svart,
dreif að úr cllum áttum til þess
að taka þátt í frelsisgöngunni
míklu, sem hefst á morgun, en
þátttakendur hennar vilja undir-
strika kröfurnar um jafnrétti
svartra manna og hvftra í Banda
ríkjunum. Búizt er við, að um
100,000 manns muni taka þátt i
þessari einstæðu mótmælagöngu,
en um 40.000 hermenn munu vera
á verði á þeim stöðum, þar sem
helzt er óttazt, að til óeirða komi.
Lögreglan var í dag vongóð um,
að allt gæ'ti farið friðsamlega
fram en hættir þó ekki á neitt,
því að ekki þarf mikið út af að
bera til þess að allt farl f bál
og brand, þegar svo margt fólk
er saman komið.
Foringjar blökkumanna hafa
hvatf fólk til að sína stillingu og
drengskap. Um 2000 svartir lög-
reglumenn munu koma á eigin
kostnað til Washingtoin frá New
York ti| þess að aðstoða hvfta
starfsbræður sína. Einnig mun
fjölmennt slökkvilið vera til stað
Pramhald á 15 síðu
BANNFÆRO
NTB-Lundúnum, 27. ágúst.
Samband brezkra leikara lýsti
því yfir f dag, að það hefði neitað
hinni frægu gleðikonu Chrisfin’e
Keeler um leyfl til að leika í
mynd um Profumo-hneykslið svo-
nefnda, vegna þess, að slfkt hefði
komið illu orði á leikarasamband
Ið og kvikmyndaiðnaðinn. Eins og
áður hefur verið skýrt frá, verð-
ur myndirt tekin f Kaupmanna-
höfn og leikur Yvonne Bucking-
ham aðalhlútverkið.
LEYNIÞING
NTB-Pula, 27. ágúst.
Krustjoff, forsætisráðherra
Sové'trikjanna og Tító, Júgóslavfu
forseti, áttu í dag viðræður á eyj
unnl Brioni í Adriahaffinu. í
skýrslu, sem gefin var út í dag
um fund þennan segir, að þeir
félagar hafi orðið ásáttir um flest
mfkilvægustu alþjóðamálin og
hefði mikill vinskapur ríkt á fund
inum. Annars er talið, að skýrsla
þessi nefni aðeins fátt eitt af því,
sem þeim fór á milli, enda fund-
ur þeirra kallaður leynifundur í
fré'ttaskeytum.
NY STJORN
NTB-Osló, 27. ágúst.
Nú virðist Ijóst, að hin nýja
borgaralega stjórn f Noregi, sem
tók formlega við völdum í dag,
muni hafa starfsfrið a.m.k. næstu
þrjár vikurnar, en eins og kunn-
ugt er, lýsti foringi Sósíalistíska
þjóðarflokksins, Finn Gustavsen,
þvf yfir, við umræðurnar um van
trausttillöguna á stjórn Gerhard
sen, að hann og flokkur hans
myndu beita sér að alefli fyrir
falli stjórnar John Lyngs, sem nú
er forsætisráðherra.
L0FT LÆVI BLANDIÐ I
HUE í SUÐUR-VIETNAM
NTB-SAIGON, 27 ÁGÚST.
FRÁ FÆÐINGARBÆ DIEMS, forseta SuSur-Vietnam, HUE,
í norður hluta landsins bárust bær fréttir í kvöld, að ástandið
þar væri mjög alvariegt og þyrfti ekki nema lítinn neista til
að tendra þar stórt bál, því að mikil ójga væri meðal Búddatrú-
arfólks í borginni og nágrenni. — í dag var hins vegar allt
með kyrrum kjörum í Saigpn.
Eins og kunnugt er, urðu óeirð-
irnar hvað mestar í Hue á dögun-
um, og sitja nú flestir forystumenn
Búddatrúarfólksins bak við lás og
slá, þannig, að yfirvöld segjast
vona, að ekki geti komið til neinna
samræmdra mótmælaaðgerða þar
; borg.
Nýjustu íréttir herma, að um 3
þúsund stúdentar sitji nú í fangels
um stjórnarinnar, en um 900 munk
ar séu hafðir í haldi. í dag sam-
þykkti 5tjórn Cambodiu einróma
að slíta st.iórnmálasambandi við
Suður-Vietnam til að mótmæla að-
förum stjórnarinnar þar í landi.
Vu Van Mau, sem sagði af sér
embætti ulanríkisráðherra Suður-
Vietnam a dögunum, var í dag
handtekinn, er hann hugðist leggja
af stag í lnna fyrirhuguð'u píla-
grímsferð sína til Indlands, en
hann haíði látið krúnuraka sig að
hætti Búdda-trúarmanna til að
mótmæla stefnu stjórnar sinnar í
'rúmálunum.
í dag fóru um 200 stúdentar frá
Suður-Víetnam, sem stunda nám
í París, í sólarhrings hungurverk-
fall til þess að mótmæla aðgerð-
um stjórnarinnar í heimalandi
þeirra.
Stjórn Suöur-Vietnam hefur bor
ízt fjöldi crðsendinga frá stjórn-
um víða um heim,'þar sem látin
er í ljós \on um, að lausn finn-
ist á trúilokkadeilunni á friðsam-
iegan hátt.
Verjandi Helanders
talinn harðsnúinn
NTB-Stokkhólmi, 27. ágúst.
„ÉG LEYNI ENGU", sagði
Segelbarg, dósent, þegar verj-
andi Heianders fyrrverandi
biskups. Nils Malmström, bar
það á vitnið, að það vildi auð-
sjáanlega ekki gefa réttinum
upplýsingar um mikilvæg atr-
iði í sambandi við þátt þess í
Helandermálinu.
Eins og kunnugt er leggur Malm
ström mikla áherzlu á yfirheyrslur
yfir Segelberg og hefur jafnvel
látið að þvi liggja, að það hefði
verið hann sjálfur, sem dreifði níg1
bréfunum en ekki Helander. Hins
vegar hefur Segelberg brugðizt
illa við snöggum og nærgöngulum
spurningum verjandans og oft
hlaupizt á bak við heimild sína til
að neita að svara spurningum verj
andans. Tilgangurinn með hinum
mklu yfirbeyrslum yfir Segelberg
er auðsjáanlega sá, að vekja tor-
tryggni í garð Segelbergs, en það
var raunar hann, sem kom þessu
flókna máli af stað með afhend-
ingu níðbréfanna í hendur lögregl
unnar með kröfu um rannsókn.
Leggur verjandinn ýmsar snörur
fyrir Segelberg, sem yfirleitt svar
ar spurningum öllum óljóst. Hins
vegar fer vitnið ekki leynt með
andstöðu sína gegn Helander og
reynir rerjandinn að gera mat úr
þeirri afstöðú.
Þykir Malmström verjandi mjög
harður í horn að taka í máli þessu.
Snemma í gærmorgun var unn
IS óvenjulegt björgunarafrek í
Hazleton í Pennsylvaníu, er tveirn
námumönnum, Throne 00 Fellini,
var bjargað upp á yfirborð jarð-
ar, eftir að hafa dúsað innilokaðir
I námugöngum 100 metra undir
yfirborðinu í 14 daga. Louis Bova,
félagl þeirra, er enn innilokaður
í hliðargöngunum og ekkert hef-
ur heyrzt frá honum í heila viku
Eins og Tíminn skýrði frá i
gær rikti mikill spenningur á
björgunarsvæðinu í fyrrakvöld.
því að borinp mikli átti þá aðeins
nokkra metrg eftir að mönnunum
tveim, en síðasti spölurinn var
erfiðastur, því @ð engu mátti
muna, að göngin hryndu saman,
er þau opnuðust. Göngin, sem
hinn mikli bor gerði voru um 45
cm í þvermál og var ætiunin að
draga þá félaga upp í stáltunnu.
Það var ekki unnt, en notað var
sérstakt reipi, sem reyndist fuil-
komlega. Throne, sem er 28 ára
gamall, var dreginn upp á undan
V
Hann var dálítið óstyrkur á fót.
unum og var þegar fluttur á
sjúkrahús.
Strax á eftir var Feilini hífður
upp, en hann er 58 ára gamall.
Sagðist hann hafa átt erfitt með
að halda félaga sinum vakandi
síðustu klnkkustundirnar. Þeim
félögum báðum var fagnað inni.
lega af fjölda manns, en nokkuð
skyggði á gleðina, að ekki er vit
að um afdrif þriðja mannsins.
Bova, se;: lokaðist af í hliðar-
gangi. Mun haldið áfram björgun
artilraununum, ef ske kynni. a?
hann lifði enn.
Mágur Felllni, John Martini,
fékk nú loks tíma til snæðings
eftir erfiða nótt, en hann starfaði
að björguninni. Leynir sér ekki
að þungu fargi er af honum létt
eftir hina undursamlegu björgun.
T [ M I N N, miðvikudagurinn 28. ágúst 1963.
3