Tíminn - 29.08.1963, Blaðsíða 1

Tíminn - 29.08.1963, Blaðsíða 1
NTB-Leeds, 28. ágúst. Skurðlæknar við sjúkrahús eitt f Leedis í Norður-Englandi hafa framkvæmt óvenjulega, en vel heppnaða skurðaðgerð. Tókst þeim að flytja hjartaloku úr látn. um manni yfir í 38 ára gamla konu, Vio'let Scott að nafni. Uppskurðurinn tók 12 klukku- stundir og varð að stöðva hjartað í 3 klukkustundir á meðan aðgerð- in stóð yfir. Um 20 skurðlæknar frá Bandaríkjunum, Ítalíu og Tyrk landi stóðu að aðgerðinni. Strax að uppskurði loknum var tilkynnt frá sjúkrahúsinu, að líð- an konunnar væri góð, en um að- gerðina vissi þá aðeins takmark- aður hópur manna, því að opin- berar fréttir bárust ekki af þessu einstæða afreki fyrr en í dag, viku eftir uppskurðinn. Hjarta Scott starfar nú eðlilega og kennir hún sér einskis meins. Vonast læknar til, að hún verði útskrifuð af sjúkrahúsinu einhvern næstu daga. NÓG SÍLD , ■ ;t . ■!_■ IH-Seyó'Sfirði, 28. ágúst Ágæt síldveiði var í dag austur af Langanesi og munu nú mörg skip vena á lelð inn með góðan afla. Þetfca er millisíld og fer nær eingöngu í bræðslu. Um hádegið í dag var flotinn aðallega á tveimur svæðum. Annar hópurinn var um 70 mílur NA af Gletting, en hinn um 50 mílur þar suður af. Um hádegisbilið voru skip í nyrðri hópnum farin að kasta. f kvöld var vitað, að allmörg skip voru komin með góða veiði. Sum voru komin með fullfermi og urðu að sleppa einhverju af síld, sum munu hafa sprengt næt- urnar. Sigurður Bjarnason var á leið inn með síld í kvöld, en ekki er mér kunnugt um magnið. Sigur- páll var kominn með 1500 mál og Helga RE með 1300 mál. Flest skipin fara sennilega inn tll Vopnafjarðar og hingað. Síldin er millisíld og mun lítið sem ekk- ert af henni söltunarhæft. Veður var í kvöld mjög sæm>- legt upp við landið, en úti var ekki gott veður. Síðast liðinn sólarhring var nokk Pramh. á 15. síðu. MED NÝRRIAÐFERÐ? MB-Reykjavík, 28. ágúst Undanfarið hafa veriS gerS ar mánaSarlegar mælingar á magni uppleystra efna í jökulám, er koma undan Mýr dalsjökli, og er ætlunin aS halda þeim mælingum áfram. Gera menn sér vonir um, aS ut frá þessum mælingum verði unnt aS sjá Kötlugos fyrir meS nokkrum fyrirvara en þau gos eru eins og kunn- ugt er mjög hættuleg vegna jökulhlaupa, er þeim eru samfara. Frá þessu er skýrt í JÖKLI, hinu myndarlega ársriti Jöklarannsókn- arfélagsins, sem nú er komið út. Guðmundur E. Sigvaldason hefur haft þessar rannsóknir með hönd- um og gert um upphaf þeirra greinargóða skýrslu, sem birtast mun í heild í næsta hefti JÖKULS. Blaðið átti í dag tal við Guð- mund og innti hann nánar eftir þessum rannsóknum. — Þessar rannsóknir hófust ár- ið 1962, en voru tiltölulega strjálar það ár, en nú hefur Vísindasjóður veitt dálitla fjárhæð til þeirra og nú undanfarið hafa verið tekin sýnishorn mánaðarlega úr Jökulsá á Sólheimasandi, Múlakvisl og Skálm. Rannsóknir þessar fara fram á vegum Jarðfræðideildar Iðn aðardeildar Atvinnudeildar Há- skóla íslands. — Annars má segja, að þessar rannsóknir eigi sér nokkurn að- draganda. Svo er mál með vexti, að nokkrum vikum fyrir síðasta Öskjugos komu upp nokkrir hver- ir í nánd við eldstöðvarnar, og okkur tókst að ná í vikuleg sýn- ishorn úr þeim og mæla þurrefna innihald, eða magn uppleystra efna í hveravatninu, og fylgjast með breytingum, sem á þeim urðu. Þar eð þessir hverir voru óum- deilanlega í nánu sambandi við eftirfarandi gos, öðluðumst við þarna dýrmæta reynslu og þetta ýtti mjög undir það, að við á- kváðum að freista gæfunnar í Mýrdalsjökulsánum — Magn uppleystra efna í þess um jökulám hefur mjög lítið breytzt, síðan mælingarnar hófust, og breytingarnar eru innan eðli- legra skekkjutakmarka. Magnið er álíka í öllum ánum, nema hvað brennisteinsvetnið er áberandi mest í Jökulsá á Sólheimasandi, eins og þeir munu vita, er yfir hana hafa farið, enda er annað nafn árinnar „Fúlilækur” einmitt dregið af því. í henni er inni- hald brennisteinsvetnisins 2mg/ lítra. Annars er magn uppleystra efna í þessum ám miklu meira en í öðrum jökulám, sem mældar hafa verið og munar þar allt að helmingi. Bendir þetta til, að allt að því helmingur uppleystra efna í afrennslisvatni frá Mýrdalsjökli sé kominn frá hveraútstreymi und ir jöklinum. Mestur er munurinn á magni bíkarbónats, en það sem eftir er dreifist á súlfið og alkall- málma. Framh. á 15. sfðu. FB-Reykjavík, 28. ágúst. Á morgun verður skorið ntður allt fé frá bænum Skálpastöðum f Lundareykjadal, en þar kom upp giarnaveiki í desember í vetur. Fénu verður slátrað í Borgiarnesl. Garnaveiki hefur ekki komið fyrr upp í Borgarfjarðarsýslu, en hún hefur hins vegar verið á nokkr um bæjum í Mýrarsýslu, og þykir líklegt, að þaðan hafi hún borizt á einhvern hátt, sem þó er ekki kunnur, en garnaveikibakterían getur borizt með heyi og ýmsum vörum. Veikin kom fyrst upp á Skálpa- stöðum í desember s. 1. og var hún smátt og smátt að finnast í fleiri og fleiri kindum þar á bænum. í sumar var tekið upp það ráð, að setja allar kindurnar af bænum í girðingu sem sett var upp um Skálpastaðaland til að koma í veg fyrir að veikin breiddist út, en hún hefur eins og fyrr segir, ekki verið í Borgarfjarðarsýslu fyrr en nú. Féð verður skorið niður í Borg- arnesi á morgun og á föstudaginn og er hér um að ræða 200 fullorð- iS auk lamba. DÆLA UPPIÞR0TTA- VELLI Á SIGLUFIRÐI! KH-Reykjavík, 28. ágúst Framkvæmdirnar hafa ekki staðnað á Siglufirði, þó að síldin hafi brugðizt bæjar- búum í sumar. Þar hefur nú verið unnið í allt sumar við að dæla upp flugvelli, og nú er sanddæiuskipið nýbyrjað að dæ!a upp í fyrirhugað íþróttasvæði, sem á að verða í f jarðarbotninum vestan megin- Iþróttasvæði þetta verður með miklum glæsibrag. Er þar fyrir- hugaður grasvöllur, handbolta völlur og malarvöllur. auk ann- arra íþróttamannvirkja. og áhort endapalla. Enn þá liggja engar áætlanir fyrir um, hve mikið fé muni þurfa til að reisa þetta mikla mannvirki, en teikningar liggja fyrir. — Þetta er eiginlega hálfgert uppi í skýjunum enn þá, sagði fréttaritari blaðsins á Siglufirði í dag, en byrjunarframkvæmdir eru alla vega hafnar, og Siglfirð ingar binda miklar vonir yið þetta mannvirki. Sanddæluskip- ið mun að líkindum vinna þarna dálitið fram í september, en verk inu er ekki þar með lokið. það þarf að dæla miklu þarna upp Hið fyrirhugaða tþróttasvæði er inni i fjarðarbotnj vestan megin á svokölluðum Leirum Þar er mikið mýrlendi og þarf að hækka landið mikið til þessa mannvirkis. Engin von er til að ljúka þvi verki í sumar. Einnig verður að leggja vegarspotta að svæðinu, þegar þar að kemur Siglufjarðarbær stendur alger- lega st.raum af öllum kostnaði í sambandi við þessar framkvæmd ir Ómögaægt er að segja, hvenær þeria glæsilega íþróttasvæði verð ur fullgert og tilbúið til notkun- ar. Sanddæluskip flugmálastjóm- arinnar byrjaði snemma í júní- mánuði a? dæla upp í nýja flug- oraut á Siglufirði og hefur unn- ið að þ"í síðan, þanga^ til í síð- ustu riku að þrotið var fé það. sem veitt var til Siglufjarðar- flugvallar í ár, og var þá búið að dæla upp i tæpa 300 metra. Haldið v erður áfram að dæla upp i flugbrautina næsta sumar, og á að reyna að fullgera 600 metra braut fyru' næsta haust. Nýja flugbrautin verður á sömu slóðum og sú gamla, sem er raunai algjör neyðarflug- braut, >mr lögð þar, sem ódýrast var að leggja hana. enda eigin- lega onothæf nema fyrir elns hreyfils flugvélar. Nýja brautin er nær sjónum. Hún er teiknuð 1300 m'itra löng, byrjar á Ráeyri og liggur i átt að Hóli, og er sandinum dælt upp í bugtlna milli Ráeyrar og Hólslands. Flugmaiastjórn keypti sand- dæluskip fyrir um 15 árum, en í Framhald 4 15. sflfn. raen

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.