Tíminn - 29.08.1963, Blaðsíða 5
iiiiXvsyií ÍÞ hU fnii
tpkarriR
RITSTJÓRI HALLUR SIMONARSON
..Kalt stríð” á leikvelli
Tvö nöfn. — Boston
Celtics og Los Angeles
Lakers. Meira þarf ekki að
segja til að mönnum detti
ekki óðar í hug kalt stríð
magnað hita tveggja eld-
heitra andstæðinga. Celtics
frá Boston og Lakers frá
Los Angeles, þetta eru nöfn
in á hátoppi bandarísks
körfuknattleiks í dag og
þessi tvö lið hafa löngum
eldað grátt silfur sín á milli.
Ekki leikur nokkur vafi á
því, að leikmenn þessara
tveggja bandarísku körfu-
knattleiksliða, teljast til
þess bezta, sem gerist í
heiminum í dag. Allir eru
leikmennirnir atvinnumenn
og fólk flykkist að langar
leiðir til að geta horft á
sniliingana. Og það er eng-
in furða. Nöfn eins og Bob
Cousy og Bill Russel hjá
Celtics og Elgin Baylor frá
Lakers hafa töframátt —
sem sumir kannski ekki
skilja — en allir |>ó finna.
Hvað skeður svo, þegar þessi
fví> afbragðsgóðu lið, Boston
eeilics og Lós Angel'es Lakers
mætast á leikvelli? Við skulum
reyna að bregða upp svipmynd.
Við leitum ekki langt aftur í
tímann og sviðið er síðasta NBA-
keppni (atvinnumannakeppnin).
Það var einni klukkustund fyrir
fyrsta leiik þessara aðila, að Bob
Cousy kom inn í búningsklefann
hjá Celtics í Cobo Arena íþrótta-
höllinni i Detroit. í annarri hend
inni hétt hann á blaðinu Boston
Traveler. Hann fór úr jakkanum
og settist við borðið. Hann var
mjög þögull og þegar hann
breiddi úr blaðinu, blasti við stór
fyrirsögn: — Lakers ekki hrædd
ir við Celtics. Cousy hagræddi
sér í stólnum og byrjaði að lesa.
Bill Russel, Frank Ramsey og
Tom Sanders komu til hans og
urðu mjög forviða, þegar þeir
sáu þessa skelfilegu fyrirsögn.
Aílir þögðu, þangað til að Sand-
ers hnippti í Russel og sagði: —
Þetta er ágætt, þá höfum við
Boston Celtics og Los Angeles Lakers eni beztu
licl Bandaríkjanna í körfuknattleik í dag. Og þa$
er jafnan háS mikil barátta, begar þau mætast.
eitthvað að gera á eftir. Cousy
sagði ekkert á meðan hann
klæddi sig í búninginn, en síðan
byrjaði hann að blása í lófana.
í 13 ár hafði hann verið aðal-
maður Celtics og í þessi 13 ár
hefur það verið hans eina afþrey
1 •' j
andi íþróttatöskum sínum — og
aliir voru þeir í góðu skapi. Þeir
komu langt að. Sumir frá stöðum
eins og Brooklyn, Caben Créek
í West Virginia og Gary í Indiana.
Þrátt fyrir mismunandi uppruna
áttu þeir allir eitt sameiginlegt
Félagarnir Bob Cousy, Biil Russel, Frank Ramsey og Tom Sanders
voru ekki sérlega hrifnir af blaðaskrifunum fyrir leikinn við Lakers
í Detroit.
ing að blása í lófa, þegar hann
hefur haft áhyggjur af einhverj-
um leik. Og flest allir leikir
Celtics gegn Lakers valda því,
að Cousy byrjar að blása í lófana.
Skömmu eftir að þetta átti sér
stað í búningsherbergi Celtics,
komu leikmenn Lakers gangandi
inn í búningsklefa sinn, sveifl-
— Þeir eru mjög áhugasamir og
lífsglaðir.
KALDA STRÍÐIÐ Á
LHIKVELLINUM
Celtics og Lakers eru í raun-
inni mjög ólík, þótt styrkleikinn
sé nokkurn veginn sá sami. Leik-
menn Celtics, gamlir og reyndir
UngHngakepptsitt i frjálsum
bendir til bjartari daga
í blaðinu í gær var skýrt frá ár-
angri í einstökum greinum á fyrri
degi ungllngakeppni Frjáls-
íþróttp.sambandsins, sem haldin
var um síðustu helgi á Laugardals
vellinum í Reykjavík og tókst mjög
vel. Keppnin gaf ótvírætt til kynna
að bjartir dagar í íslenzkum frjáls-
iþróttum eru framunda.n. — Sigur
vegar síðari daginn urðu sem hér
segir:
Kúluvarp sveina: Erl. Vald. ÍR
13,23, Langstökk sveina, Haukur
— Frá síðari degi keppninnar s. I. sunnudag
íngibergss HSÞ 6,39, 400 m hlaup
sveina, Haukur Ingibergss. HSÞ
55.6. 200 m hlaup stúlkna, Sigríð-
ur Sigurðard ÍR 23,6. Hástökk
stúlkna, Guðrún Óskarsdóttir HSK
140. Spjótkast stúlkna, Elísabet
Brant, IR 33,10, 400 m hlaup
drengja, ólafur Guðmundsson KR
52,4. 110 m. grind. drengja, Þorv.
Benediktsson HSS 15,5. Langstökk
drengja, Óiafur Guðmundsson KR
6,34. Spjótkast drengja
Guðmundísen, KR 39,81, 400 m
lilaup unglinga Valur Guðm.sson
KR 53,5, Kringlukast unglinga, Sig-
urþór Hjörieifsson HSÞ 40.02.
Spjótkast unglinga, Kjartan Guð-
jónsson KR 58.40. Kúluvarp ungl-
inga Kjartan Guðjónss. KR 13.51.
Langstökk unglinga, Kjartan Guð
jonsson KR 6.44, Þrístökk ungl-
mga, Siguvður Sveinsson HSK«
og svo gott sem ósigrandi í mörg
ár. Og þeim geðjast ekki allt of
vej að hinum ungu og ófyrir-
leitnu Lakers frá Los Angeles,
sem eru nógu góðir til að vinna
ólíklegustu l'ið. Og það þarf kann
ske ekki að taka það fram, að
Los Angeles-búum geðjast heldur
ekki að gömlu Boston-kempunum.
— Þetta er kalt stríð. Það er
ómögulegt að sjá fyrir um úrslit
þegar þessi tvö Uð mætast og all
ir áhorfendur eru sammála um,
að leikirnir séu trygging fyrir
góðum körfuknattleik.
f síðasta leik liðanna á keppn-
istímabiHnu 1962, var ánægjan
Celtics að vinna. Þegar leikmenn
imir gengu inn á völlinn var á-
berandi að mörgum olnbogaskot-
um var beint að Bill Russel og
hann gat varla gengið þegar
hann loksins komst inn á leik-
vanginn. Þetta espaði svo leik-
menn Celtics, að þeir hétu að
vinna, þó ekki væri nema aðeins
Russels vegna. Og aumingja
Russel lá ekki á liði sínu og Bost
Ibúarnir unnu með tólf stiga
mun, 133:121.
En snúum okkur að leiknum í
Cobo Arena, kvöldið, sem liðin
mættu í fyrsta skipti í síðustu
keppni. Það var löngu uppselt á
leikinn og áhorfendur voru um
ellefu þúsund talsins, sem er
mesti fjöldi, sem horft hefur á
leik í Detroit. Hinn kunni leik-
maður Wilt Chamberlain hefui
séð hvern einasta leik liðanna
frá því að hann gerðist atvinnu-
maður og hann segir að þetta sóu
einu leikirnir í keppninni, sem
hann vill ekki láta fara fram hjá
sér.
Varla hafði leikurinn byrjað,
þegar Elgin Baylor gaf Tom Hein
sohn olnbogaskot í magann. —
Þetta var meira í gamni en al-
vöru. Venjulega taka leikmenn
svona atvik ekki alvarlega, en
þetta hafði slæm áhrif á Tom
og hann notaði hvert tækifæri
sem hann gat tH að koma höggi
á Baylor síðar í leiknum. — Celt
ics komst strax yfir í fyrri hálf-
leiknum og áhorfendur hrópuðu
sífellt til Lakers:: — Þið getið
ekkert án Jerry Wests. Jerry
West, aðalslkipuleggjari liðsins
og annar bezti skotmaður þess
hafði meiðzt illilega í hnéi rétt
fyrir leikinn og varð eftir heima
í Los Angeles.
Bob Cousy var mjög einbeittur
í öllum leiknum og vann alltaf
jafn vel. Og í leiknum kom það
oft fyrir að hann kastaði boltan-
um yfir endilangan völlinn, en
það hefur hann sárasjaldan eða
ÓlafurK aldrei gert. Síðast í fyrri hálf-
leiknum þeytti hann boltanum
fram til Russels, sem stóð und-
ir körfunni hjá Lakers og þurfti
ekki einu sinni að stökkva upp
til að koma knettinum í körfuna.
Stuttu síðar tók Celtics tíma, en
þjálfarinn Red Auerback, sem á
sinn sérstaka hátt á í sífelldu
Bob Cousy. — Aldurinn hefur
færzt yfir þennan snjalla leik.
mann. Hann hefur nú ákveðið
að leggja skóna á hilluna. Kenn-
edy Bandaríkjaforseti heiðraði
hann nýlega með veglegri gjöf.
Cousy hafði sanlnarlega unnið til
þess.
köldu stríði við þjálfara Lakers,
Fred Schaus, átti ekki neitt van-
talað við leikmenn sína. Og á-
fram hélt leikurinn. Cousy hélt
áfram sínum hnitmiðuðu lang-
sendingum fram völlinn, en þeg-
ar komið var fram í síðari hálf-
leikinn tóku hné hans að bila.
Hann kallaði til þjálfarans og
bað hann að taka sig út af — ég
get ekki meira. En Red Auerb-
ach svaraði honum ekki. Hann
varð að vera inn á. Og Cousy
þraukaði það sem eftir var og
Boston Celtics sigraði með 120
stigum gegn 98 Lakers. — Þessi
leikur, sagði Cousy hróðugur, er
örugglega minn langbezti á keppn
istímabilinu. Við hefðum unnið
þótt Jerry West hefði verið með
þeim — við vorum í stuði. Og
Cousy hélt áfram: — Bara að við
þyrftum ekki að mæta þeim
annað kvöld aftur, því þetta var
sigur, sem er þess virði að geyma
vel í huga sér og minnast. — En
Cousy gat ekki orðið að ósk sinni,
leikur Celtics og Lakers var
löngu ákveðinn fyrirfram strax
kvöldið eftir í Boston Garden.
LEIKURINN í BOSTON
GARDEN.
Það var uppselt í Boston Gard-
en höllina kvöldið eftir og heima
menn voru að sjálfsögðu í mikl-
um meirihluta. Eftir að Celtics
Framhald S 13. sfðu
T f M I N N, fimmtudagurinn 29, ágúst 1963. —