Alþýðublaðið - 09.04.1942, Síða 6
^LÞÝ&UBLAÐiÐ
Sðknm fftiitwiar á ian-
heimtamOnnam s]á kola«
verzlanirnar I Reykjvík sér
ekki fiært aSI selja kol ððru-
vfsi en gegn staðgreföslva.
&olamagn nndir 250 kg.
verðar ekki keyrt heim til
kaupenda, nema greiðsla
hafii fiariO firam áðnr.
Kanpendnr að kolum yfiir
250kg.eru vinsamlega beðn
ir að hafia greiðsiufé hand*
bært, svo tafiir keyrslu*
ír
manna verðl sem mlnstar.
Kolaverzlanirnar i Beykjavík.
Vantar serkamenn
mórara og 1 matsvcin að Kaldaðarnesi.
r - l
Jéss Gautl
' Sími 1792.
Gunnar BJarnason
Suðurgötu 5.
Skaatafiélag Reykpvlkur
heldur skemmtifund í Oddfellowhúsinu í kvöld
9. apríl kl. 9.
Sýndar verða skautaskuggamyndir og kvik-
mynd í. S. í. Dansað til kl. 1. — Öllum íþrótta-
mönnum heimill aðgangur. — Aðgöngumiðar
seldir í Bókaverzl. Sigf. Eymundssonar og
verzl. Sigríðar Helgadóttur.
Tveir karlmenn eða karimaður og
stúlka
vön við að hirða og mjalta kýr, geta fengið atvinnu við
Vífilsstaðabúið um lengri tíma.
Upplýsingar hjá ráðsmanninum og skrifstofu
ríkisspítalana.
Iffiám tolla á byflflingareíBi...
Frh. af 4. síðu.
mennt er kölluð fölsk kaupgeta.
Þykir því rétt að athuga nokk-
uð, hvort framangreindir tekju-
stofnar ríkissjóðs og ákvörðun
þeirra getur haft nokkur áhrif
á þessa auknu kaupgetu og þá
hvers konar.
Það er yfirlýst stefna stjórn-
málaflokkanna á alþingi, að þær
tekjur, sem ríkissjóður kann að
fá fram yfir það, sem hann
þarfnast til nauðsynlegra út-
gjalda, skuli annað tveggja nota
til þess að vinna gegn dýrtíðinni
(þ. e. verðbæta vissar vöruteg-
undir) eða leggjast í sárstakan
sjóð til notkunar síðar, að
styrjöldinni lokinni, ef búast má
við verðhruni. Þar sem gera
verður ráð fyrir því, að auknum
tekjum ríkissjóðs af ýmsum fyr-
irtækjum hans verði ráðstafað
eins og að framan greinir, geta
þær á engan ihátt orðið til þess
að auka kaupgetuna, en yrðu
vitanlega til þess, að ágóðinn
rynni til einstakra manna eða
félaga. Hækkun beinu skattanna
á hátekjum, þ. e. hækkun tekju-
skatts og stríðsgróðaskatts, mun
tvímælalaust ná þessu tvennu,
fyrsta: auka tekjur ríkissjóðs
stórlega, — annar mikill hluti
hátollanna yrðí tekinn úr um-
ferð og bundinn í sérstökum
dýrtíðarsjóði. Hækkun tollanna
hefir alveg þveröfug áhrif. Með
þeim aðférðum, sem nú tíðkast
um álagningu. er verzlunar-
hagnaður einnig tekinn af toll-
um svo sem öðrum kostnaði.
Tollahækkun skapar því meiri
gróða hinna ýmsu milliliða og
eykur kaupgetuna. Nú kann ein-
hver að segja, að ef sú leið verð-
ur farin, að taka háa skatta af
hátekjum, verði útkoman sú
sama. Svo er þó alls ekki. í
fyrsta lagi er ekki hægt að gera
ráð fyrir, að nokkru sinni verði
gengið svo langt í skattaálögum,
að allur gróði verði tekinn, og
hlýtur því alltaf eitthvað að
verða eftir í umferð af álagn-
ingu á háa tolla.
í öðru lagi hefir aukin
peningavelta ávallt í för með
sér nokkra áukna kaupgetu. Það
er þess vegna óumdeilanlega
rétt, að tollalækkanir eru óbrigð
ult vopn í baráttunni gegn dýr-
tíðinni. Er því jafnaugljóst og
víst, að hækkaðir tollar valda
aukinni dýrtíð. Þess vegna verð-
ur að vænta þess, að þessu tolla-
lækkunarfrumvarpi verði tekið
með velvild og skilningi af
þeim, sem í raun og veru vilja
eitthvað gera til þess að hamla
gegn si'vaxandi dýrtíð.
Eins og áður getur í greinar-
gerð þessari, er lagt til, að bygg-
ingarefni verði tollfrjálst. Geysi
mikil þörf er nú á byggingu
nýrra húsa. Hitt er vitað, að allt
efni, sem til þarf, hefir hækkað
mjög í verði, auk hins gífurlega
flutningskostnaðar, sem hefir
margfaldazt síðan styrjöldin
hófst. Niðurfelling tolla ætti að
hafa allveruleg áíhrif til lækk-
unar, þar sem óeðlilega hár toll-
ur er nú á þessum vörum.
Þá er lagt til, að felldur verði
niður tollur af lyfjum og lyfja-
vörum. Sú tollalækkun mundi
að mestu koma sjúkrasamlögun-
um til góða, en flest þeira eiga
í vök að verjast fjárhagslega,
þrátt fyrir síhækkandi iðgjöld.
Allir munu nú sammála um, að
tilgangi sínum geta þau því að-
eins náð, að þau verði fjárhags-
lega sjálfstæð.
Lagt er til, að felldur verði
niður tollur á efni til skógerðar
| og á tilbúnum skófatnaði. Sá
! tbllur er mjög tilfinnanlegur,
enda verðlag á skófatnaði úr
hófi fram. Flm. hafa ekki lagt
til, að felldur yrði niður tollur á
vefnaðarvöum, þar sem þeir líta
svo á, áð meginhluti 'þeirra komi
undir sérákvæði 18. gr. laga um
tollskrá, en sá tollur er eigi
mjög tilfinnanlegur.
Lagt er til, að verðtollur á
nýjum ávöxtum og Iþurrkuðum
verði lækkaður úr 30% í 8%.
Allir vita, hversu gengið hefir
með sölu hinna nýju ávaxta, er
komu hingað fyrir skemmstu.
Vegna dýrleika, sem verðtollur-
inn á sinn mikla þátt í, hefir fá-
tækt fólk alls ekki efni' á að
kaupa þessa hollu og nauðsyn-
legu vöru handa börnum sínum.
Loks er lagt til, að felldur
verði niður tollur af smíðajárni
og öðru því, sem með þarf til
viðgerðar skipa og ýmiss konsr
þungaiðnaðar. Þykir sjálfsagt,
að þessi iðnaður fái slíka íviln-
un, þar sem slíkar viðgerðir,
framkvæmdar erlendis, eru ó-
tollaðar. méð öllu.
í 2. gr. er lagt til, að verð-
tollur verði innheimtur einung-
is af andvirði varanna kominna
í skip á útflutningshöfn, én ekki
af flutn'ingsgjaldi og vátrygging-
ariðgjaldi. Ekki er þó ætlazt til,
að þetta verði föst regla, heldur
gildi aðeins um ákveðinn tíma,
eða til 1. júlí 1943. Kæmi þá að
sjálfsögðu í gildi að nýju heim-
ild laganna um áð innheimta
ekki verðtoll af hækkun farm-
gjalda af styrjaldarástæðum, en
með því heimildarákvæði hefir
löggjafinn viðurkennt, að rétt
sé, þegar sérstaklega stendur á,
að víkja frá hinni almennu
reglu laganna, að innheimta toll
af cif-verði varanna, þ. e. verði
þeirra kominna á ákvörðunar-
stað.“
Efilr finsmía síríis-
Frh. af 5. síðu.
að þýzki herinn i hefir nú haft
veturinn í Rússlandi af án þess,
að verða fyrir nokkru úrslita-
áfalli.
Um þýðingu tímans fyrir ó-
friðaraðilana skal það aðeins
endurtekið, sem hér var sagt
fyrir hálfu ári: Tíminn er í
sjálfu sér með hvorugum ófrið-
araðilanum. Tíminn er hlutlaus.
En í reyndinni verður hann með
þeim, sem betur kann að færa
sér hann í nyt. Og úr því verður
framtíðin að skera.
*
Að endingu skal aðeins
minnzt lauslega á það, hvort lík-
legt sé, að ísland verði ófriðar-
svæði á komandi sumri. Hafið
umhvérfis ísland er fyrir löngu
orðið það. En hvað landið sjálft
snertir, verður að gera greinar-
mun á loftárásum og tilraun til
innrásar.
Fimmtudagur 9. apríl 1942.
ÍLoftárásir eru vel hugsanleg-
ar, ef það, sem upp úr þeim
hefðist, teldist þess virði, að það
gæti vegið upp áhættuna fyrir
árásárflugvéíarnar. En vitan-
lega telst því meira upp úr loft-
árásum að hafa, sem meira hef-
ir verið lagt í viðbúnað til vam-
ar. Það gæti því vel komið til
þess, að einstöku sprengjum
yrði varpað hér niður, en varla
hins vegar til stöðugra, meiri-
háttar loftárása. Svipað er að
segja um möguleikann á innrás
I sjálfu sér væri innrás vel fram
kvæmahleg. ’ Tölúverður f jöídi
herflutningaflugvéla gæti sett
nægilega mikið lið á land til
þess að hertaka t. d. einhvern af
Austfjörðunum. Og Austfirðir
eru ekki lengra frá Bergen en
Narvík frá Suður-Noregi. Og þó
var vorið 1940 á að gizka 3000
manna þýzkum her, sem var
inniluktur í Narvík, séð fyrir
öllu, sem hann þurfti, loftleiðis
frá Suður-Noregi. En milli
'Norður-Noregs þá og íslands nú
er einn munur: Þá hafði Eng-
land enga flugvélabækistöð
nægilega nærri bardagasvæðinu
En hér yrði það nú alveg öfugt.
Það yrði þvi mjög erfitt fyrir
þýzkt innrásarlið að halda þeim
firði, sem því hefði tekizt að ná
á sitt vald, og gera hann að kaf-
bátabækistöð (en það væri vit-
anlega aðaltilgangurinn.) En inn
rás sjóliðs er að sjálfsögðu ó-
hugsanleg meðan England og
Bandaríkin eru ráðandi á At-
lantshafi. Um stóra hættu á inn-
rásartilraun hér, virðist varla
geta verið að ræða. En þrátt fyr-
ir það, er alltaf rétt, að hafa all-
an viðbúnað, sem hægt er, til
þess að mæta slíkri tilraun, og
vera ekki of öruggur um sig.
HANNES Á HORNINU
(Frh. af 5. síðu.)
á skyldusparnað í því sambandi.
En mér er spurn: Hverjar eru
þessar miklu tekjur állra fas-t-
launamanna nú? Sama kaupið og
áður plús verðlagsuppbót, sem
bæði mér og fjöldamörgum, sem
ég hefi átt tal við, finnst að bæti
ekki dýrtíðina nærri því áð fullu.
HVAÐ hafa þessir menn til að
leggja til hliðar nú frekar en áður?
Ekkert. Verri afkoma heldur en
nokkurn tíma áður; aðeins fleiri
krónur milli handanna, sem eru
sárlítils virði. Samá er að segja um
allan fjöldann af verkamönnum, t.
d. allir bæjarverkamenn, sama
kaup og áður plús verðlagsupp-
bót, en þeir, sem hafa meiri tekj-
ur, verða að leggja á sig óstjórn-
lega langa vinnu, 14—15 stundir á
sólarhring og alla sunnudaga, en
þetta geta menn því aðeins til
lengdar, að vinnan sé létt.“
ÞAÐ VAR ÓLAFER THORS,
sem öllu lofaði um breytingu á
vísitölunni til bóta fyrir launa-
stéttimar. Þau loforð eru svikin
ein. Ef nokkuð verður gert til að
breyta útreikningnum, þá mun
það stefna að því að breyta henní
til tjóns fyrir launþega og hrópa
síðan að dýrtíðin sé að minnka!
Hannes á horninu.
Helgafell
Undirritaður óskar að ger-
ast áskrifandi að Helgafelli.
Nafn: .............
Heimili .........
Sendum gegn póstkröfu
um allt land.