Alþýðublaðið - 17.05.1942, Síða 6
6 ___________ __________________ÆLt>Ý'0lld-A0l0________________ ____Sanj>iMtagm:-17. maí ' 1942.
\
~ "" Um baráttu frjálsra Norðmanna
frð fiarðjrrbjnráðBDaDt bæjarins.
Þeir sem hafa leigugarða frá bænum og pantað
hafa áburð í garða sína, vitji hans sem fyrst.
Sveltið ekki jurtimar. Notið nægan áburð. Það
eru hyggindi sem í hag koma.
Daglega afgreiddur á Vegamótastíg frá kl.
9 fyrir miðdag til kl. 10 eftir miðdag. Fólk er
ámynt að hafa með sér strigapoka undir
áburðinn.
Gfsli Asgeirsson á
Tiikpning frð Dags
brán.
Frh. af 2. síðu.
brún hefir hingað til haldið fast
við þessa samþykkt, og hefir 1,
hyggju að haida fast við hana
einnig í framtíðinni.
Að lokum viljum við beina
þessum orðum til aðkomu-
verkamanna:
Verkamannafélagið Dags-
brún hefir starfað í þrjátíu og
sex ár að því að bæta kjör og
auka réttindi reykvíkskra
verkamanna.
Það hefir kostað brautryðj-
endur félagsins og þúsundir
annarra verkamanna áratuga
baráttu og fórnir að ná kjörum
þeim, sem einnig þiþ njótið nú
á sviði launa og annarra hlunn-
inda.
Hefði Dagsbrún ekki verið
til, mynduð þið ekki bera úr
býtum það.. sem þið gerið nú í
krafti langvinnrar baráttu
hennar.
Verkamenn Reykjavíkur
hafa ekki talið eftir sér að
greiða félagsgjöld sín, ár eftir
ár og áratug eftir áratug —
einnig á hörmungatímum at-
vinnuleysisins. •
Þeir hafá séð í þessum ár-
gjöldum eina helztu stoð þeirra
samtaka, er berðust fyrir hags-
munum þeirra og héldi uppi
rétti þeirra.
Við erum þess fullvissir, að
þið munið, méð rólegri íhugun,
verða okkur fullkomlega sam-
mála og skilja til hlítar sameig-
inlega hagsmuni ykkar og reyk-
víkskra verkamanna.
í trausti þess væntum við, að
sambúð félags okkar og ykkar
verði áfram í anda bróðurlegs
samstarfs allra verkamanna.
Reykjavík, 15. maí 1942.
Stjórn Vmf. ..Dagsbrún“.
13 ára ganall
listmálari.
____ 9
IGÆR var stillt út í sýning-
arglugga verzlunar Jóns l
Björeissonar & Co. í Banka- |
stræti nokkrum málverkum og
teikningum eftir 13 ára gamlan
dreng, Pétur Sigurðsson að
nafni.
Vöktu þessi listaverk furðu
og aðdáun hinna fjölda mörgu,
sem staðnæmdust við gluggan
til að skoða þau.
Alftamýri áttræðnr.
GÍSLI ÁSGEIRSSON hrepp-
stjóri á Álftamýri í Arn-
arfirði varð áttræður í gær. Það
finnst mörgum kunnugum ótrú-
legt, að Gísli sé kominn á þann
aldur. Hann er ótrúlega ungleg-
ur, fríður sýnum, viðbragðs-
fljótur og gegnir öllum störfuip
til s'jós og lands. Það er ætterni
þeirra Arnfirðinga að eldast
vel. Faðir Gísla, Ásgeir Jóns-
son, Ásgeirssonar prests á
Rafnseyri, dó á tíræðisaldri og
hélf heyrn og sjón og starfs-
kröftum fram um nírætt. At-
vinnuhættir við Arnarfjörð
voru hreinasta íþróttalíf, sel-
veiðar, hvalveiðar, sjósókn og
landbúnaður og kynið var gott
og náði mestum þroska þar sem
var Jón Sigurðsson forseti. Því
munu Arnfirðingar hafa verið
taldir göldróttir, að þeir voru
öðrum fremri. Gísli Ásgeirsson
hefir lengst af verið skipstjóri
og bóndi. Hann kunni bæði að
stjórna skipi og mönnum. Hann
varð snemma oddviti sinnar
sveitar og er enn hreppsstjóri.
Gísli nýtur jafnt virðingar sem
vinsælda allra þeirra, sem hon-
um hafa kynnzt. Hinum átt-
ræða heiðursmanni bárust víða
að þákkir og kveðjur á afmæl-
inu.
Sðgnr barnanna
ARNASAGAN, Don Quix-
óte, sem birzt hefir hér i
blaéinu undanfarið. er nú á
enda.
En það var stuttur útdráttur
úr hinu heimsfræga skáldverki
Spánverjans Cervantes, og sag-
an þar endursögð fyrir börnin.
í útdrætti þessum er að vísu
afar fljótt yfir sögu farið, en þó
ætti hann að nægja til þess að
kynna íslenzkum börnum hinar
ógleymanlegu persónur í skáld-
sögu Cervantes, draumóraridd-
aranp Don Quixóte og hinn góð-
látlega og einfalda fylgdarsvein
hans, Sankó.
Fyrst um sinn verða barna-
sögurnar á 8. síðunni fremur
stuttar sögur, sem endast í viku
til hálfan mánuð hver um sig.
Birtast þær undir yfirfyrirsögn-
inni „Sögur barnanna“. Verða
þær um ýmis konar efni, þar
verða dýrasögur, álfa- og trölla-
sögur, ævintýri o. fl.
Framh. af 5 s.íðu.
Flugmenn vorir eru útskrif-
aðir frá sínum eigin æfingaskól-
um í Toronto, og herskipafloti
vor er kæákomin viðbót við
herskipaflota Bandamanna.
Bæði sjómenn vorir, flug-
menn vorir og landhermenn
taka þátt í hernaðaraðgerðum
Bandamanna af miklum bar-
, dagahug.
En í oss öllum er sameigin-
legur vilji til þess að vinna aft-
ur land vort, og norska æskan
— menn og konur hætta lifinu
til þess að komast úr Noregi
og sameinast löndum sínum f
baráttunni.
Þar eð endurheimt Noregs
krefur nákvæma samvinnu
landshers, flota og flughers
vors og herstyrks Bandamanna,
hefir fyrir nokkrum mánuðum
verið skipaður yfirforingi yfir
allan her Norðmanna. Þar með
hefir skapazt eining í stjórn-
inni, sem mun samstilla krafta
hi-nna einstöku jjreina hersins,
þannig, að samvinnan og árás-
arstyrkurinn verði sem mestur.
Það er vitað mál, að umboðs-
stjórnin hefir líka haft mjög
erfitt mál til úrlausnar.
Bæði ftríðið sjálft, svo og
hinar miklu siglingar vorar hafa
valdið því, að vér höfum víða
orðið að stofna ræðismanna- og
sendiherraembætti.
Vegna stríðsins höfum vér
einnig orðið að skipuleggja upp-
lýsinga- og útbreiðslustarfsemi.
Niðurrifsstörf nazista skapa
þjóðfélagsleg vandamál, sem
vér verðum að leysa.
Enn fremur minnum vér á
öryggi og þjálfun hinna hug-
prúðu sjómanna vorra. Það hafa
verið* stofnaðir vélstjóraskólar,
stýrimannaskólar og loftskeyta-
skólar.
Flutningar til Noregs, — þeg-
ar landið er orðið frjálst aftur
— og endurnýjun skipaflotans
eru líka vandamál, sem stjórn-
in býr sig undir að leysa.
Áformað er í stór.um dráttum,
að útvega vörur, sem hægt er
,að skipa um borð um leið og
kringumstæður leyfa — bæði
matvörur og hráefni, fyrst og
fremst til matar og flota.
Og frjálsir Norðmenn hafa
auðvitað tekið öflugan * þátt. í
undirbúningi flutninga til hinna
ýmsu hernumdu , landa, ásamt
Bandamönnum.
• Með tilliti til viðreisnarinnar
í Noregi að stríðinu loknu hefir
mikið undirbúningsstarf þegar
verið unnið. Enn fremur verður
að gera gaumgæfilega áætlun
um endurskipulagningu á pen-
ingamálurn Noregs og fjármál-
um svo og öllu avinnulífi lands-
ins.
Hin ameríkska þjóð veit, hve
glæsilega afstöðu íbúamir í
Noregi hafa tekið gagnvart
harðstjórn nazista.
Þið hafið áreiðanlega öll frétt
um mótmæli hins hugrakka
hæstaréttar Noregs gegn því er
réttarfarshugmyndir vorar voru
svívirtar, um hina karlmann-
♦
Vonar Alþýðublaðið, að þær
verði ekki síður vinsælar hjá
yngri lesendunum en Don
Quixóte var.
prestastéttarinnar alhrar og
norsku kennarstéttarinnar og
um hina ákveðnu og þjóðiegu
afstöðu hinna mörgu félags-
heilda.
Stoltir og hugrakkir berjast
þeir heima vopnlausri baráttu
til þess að vernda sál Noregs.
Á öllum sviðum bæði and-
lega og efnalega sýna Norð-
menn og sarnna, að Noregúr
gefst aldrei upp.
Norðmenn fagna því og eru
þakklátir fyrir að eiga öfluga
og góða vini í veröldinni, sem
berjast fyrir sama málefni og
þeir treysta og leggja alla á-
herzlu á', að, Noregur fái líka
frelsi sitt aftur.“
„Allt fyrir Soreg“
Framh. af 4. síðu.
og undirrituð af konunginum
og forsætisráðherranum, eftir
brottförina frá Noregi, stóð
meðal annars þetta:
„. . . . Vamarsveitir vorar,
sem hafa barizt af hugrekki og
hreysti í 2 mánuði, vantar
nauðsynleg hergögn, sérstak-
lega skotfæri og orustuflugvél-
ar, og þær geta ekki fengið
það. Áframhaldandi barátta
myndi aðeins þýða algera
eyðileggingu þeirra héraða,
sem enn eru frjáls. Því að
Þjóðverjar þyrma ekki fremur,
í styrjaldarrekstri sínum, frið-
sömum bæjum og byggðum en
hernaðarstöðvum varnarsveit-
anna. Yfirstjórn hersins hefir
því ráðlagt konungi og ríkis-
stjóm að hætta baráttunni inn-
anlands, fyrst um sinn. Og kon-
ungur og ríkisstjórn hafa talið
það skyldu sína að fylgja þessu
ráði. En konungur og rík-
isstjórn hætta .ekki þar fyrir
baráttunni fyrir því, að end-
urheimta frelsi Noregs og
sjálfstæði. Þvert á móti —
þau munu halda baráttunni
áfram, utan Noregs. — Kon-
ungur Noregs ög ríkisstjórn
munu á þessum styrjaldartím-
um vera hinir frjálsu tals-
menn fyrir þjóðernislegum
kröfum norsku þjóðarinnar. —
Þessi hugsun mun einkenna
allt vort starf — vér vitum, að
hún er í samræmi við skoðanir
allra, sem verða eftir heima.
Hún felst í orðunum:
Lifi Noregur! — Allt fyrir
Noreg!
Og svo yfirgáfum við föður-
land okkar 7. júní 1940. Það
var regnþrungið kvöld, er við
gengum um borð í brezka beiti-
skipið “Devonshire“ og mörg
sorgbitin augu störðu til strand-
arinnar og fjailanna, sem lágu
sveipuð regnþokurmi. Það voru
ekki *aörg orð sögð. En þessi
spuraing var efst í huga allra:
„Hvenær fáum við aítur að
sjá þetta fagra land okkar?“
En í hugum hvers ainasta
manns kom upp fastur ásetn-
ingur: Að halda áfram að beita
öllum kröftum í baráttunni fyr-
ir málstað Noregs, fyrir frelsi
Noregs, að berjast „to the bitt-
er end,“ fyrir hicj hjartkæra
föðurland.
Hákon konungur valdi sér
kjörorðið: Allt fyrir Noreg, ár-
ið 1905, þegar hann var valinn
konungur Noregs. En nú hefir
það miklu fremur en nokkru
sinni fyr orðið að kjörorði allra
sannra Norðmanna. Hin vold-
uga, en hljóðláta baráttusveit
heima í Noregi sér þessi þrjú
orð kpnungsins skráð eldletri
fyrir sér ætíð og alltaf. Þessi
þrjú orð skora á alla Norðmenn
um heim allan, til sjós og til
lands, að leggja allt fram fyrir
hið ástkæra, stríðandi föður-
land.
Við vitum ekki hvenær dagur
frelsisins rennur upp. En við
erum öll sannfærð um að hann
kemur. Og öll norska þjóðin
bíður eftir þeim degi, þegar
Hákon konungur getur aftur
staðið á svölum konungshallar-
innar í Osló og tekið þar á móti
fögnuði þjöðarinnar og þakk-
læti fyrir það, að hann, sem
hið sterka og mikla sameining-
artákn þjóðarinnar, hefir stað-
ið í broddi fylkingar á þessum
þungbæru tímum, þakklæti fyr-
ir það, að hann hefir ásamt
þjóðinni gert
„ALLT FYRIR NOREG.“ _
Sigvard Andreas Friid.
Skemmið ekki sínra-
lÍBir setuliðsins.
©rðsemdlsBff til gras-
feýlaeigerada frá
setuliðinn.
Frá stjom setuliðs
Bandamanna hefir A’l-
þýðublaðinu borizt eftir-
farandi:
'J þegar gras er farið að
gróa á engjum og túnum
og ræktun byrjuð, viljum vér
leiða athygli manna að því, að
símaleiðslur geta falizt í gras-
inu og verið rofnar af vangá
þegar það er slegið. Banda-
ríkjaherinn hefir gert allt,
sem hugsanlegt var til að kom-
ast hjá því að leggja leiðslur
yfir tún eða engjar. Leiðslur,
sem áður lágu yfir graslendi,
hafa verið rifnar upp og lagðar
annarsstaðar, þar sem þær
komu bændum eigi að sök. Því
fremur ættu bændur að leggj-
ast á eitt með okkur og forðast
að skerða leiðslurnar. En þar
sem leiðslurnar eru þannig lagð-
ar, að þær eru landbúnaðar-
störfum til verulegrar .tálmunar
ættu menn að tilkynna það
„Civil Affairs“ — deild Banda-
ríkjahersins, sem mun gera ráð-
stafanir til^þess að úr því verði
bætt.
Ættu allir að hafa hugfast, að
það er hlutverk varðmannanna,
auk annars, að aðgæta og verjá
slíkar leiðslur. Er því áríðandi
að óbreyttir borgarar forðist að
snerta eða skerða þær á nokk-
urn hátt.
Helgi P. Epriem
hefir verið skipaður aðalræðis-
niaður íslands í New York{ Fór
skipunin fram á ríkisráðsfundi í
fyrrpdag.
Sölukörn,
sem ætla að selja Noregsmerkin
i dag, eru beðin að koma í Iðn-
skólann fyrir hádegi og helzt sem
fyrst.
legu framkömu biskupanna og