Alþýðublaðið - 15.08.1942, Page 2
i ALÞYÐUBLAÐIÐ________ Laugardagur 15. ágúst 1942..
_______________________________________________I
Claessen neitaði samningsnpp-
hasti Dagshrnnar!
AlþýSublaðinu Ibarst seint í gær-
t, kveldi eftirfarandi tilkynning frá
stjúrn Dagsbrúnar.
ÞANN 13. ágúst s. 1. bað hr. Eggert Claessen, fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitendafélags íslands, um
viðtal við stjórn Dagsbrúnar varðandi nýjan kaupsamn-
*«■; Jog. Síðdegi^sm|^^^^|óru viðræður fram milli stjórnar
beggja félaganna. Niðurstaða þcssarar viðræðna varð sú,
að stjóm Vinnuveitendafélagsins óskaði eftir því, að stjórn
Dagsbrúnar legði fram uppkast að nýjum samningi.
Snemma í gær var hr. Claessen afhent samningsupp-
kast Dagsbrúnar. En kl/6 síðdegis gaf hr. Claessen stjórn
Dagsbrúnar það svar símleiðis, að Vinnuveitendafélagið
gengi ekki að samningsuppkastinu.
Stjórn Dagsbrúnar vill taka það fram, að hún hefir
í allt sirniar unnið að samningsuppkasti þessu með það
fyrir augum að rétta hlut meðlima félagsins, en einnig í
því skyni að skapa skilyrði til þess að tryggja vinnufrið í
landinu svo að hægt væri að einbeita kröftum verkalýðs-
ins að nauðsynlegustu atvinnuvegunum og landvarna-
vinmmni.“
25 próseit kanphækkii
gengin í gildi á Aknreyri.
Hjá verkamönnuin, verkakonum, tré-
smiðum og márurum.
T GÆR varð samkomulag milli stjórnar Verkaiýðsféíags
Akureyrar og atvinnurekenda um 25% hækkun á öll-
um töxtum meðlima Verkalýðsfélagsins, bæði karla og
kvenna Jafnframt hafa trésmiðir hækkað taxta sína um
25% og múrarar um hið sama, Bílstjórar eiga aðeins eftir
að ákveða taxta sinn.
Samkomulagið ihilli Verkalýðsfélagsins og atvinnu-
rekenda er gert til óákveðins tíma.
Hðrð átðk viðaðra mnræðn
nm kjðrdæmabreytinouna.
Örvinglaðar tilraunir Framsóknar, til að
tefja máíið á síðustu stundu:
■ »'
Umræðan stóú lengi dags i gær
..................
FRAMSÓKNARMENN eru enn ekki af baki dottnir við
að tefja framgang kjördæmabreytingarinnar og gera
nú örvinglaðar tilraunir til að stöðva það. Stjómarskrár-
breytingin var til annarrar umræðu í neðri deild í gær og
urðu langar umræður og snarpar á köflum.
Kaupbreytingin gildir frá og
með deginum í dag og er kaup
verkafólksins því nú eins og
hér segir:
Karlmenn: í dagvinnu: kr.
3,44 og eftirvinnu kr. 4,81. í
skipavinnu á daginn: kr. 3,77
og í eftirvinnu kr. 5,38. í kola-
og sements vinnu á daginn:
kr. 4.12 og í eftirvinnu kr.
5,73. í helgidagavinnu verður
kaupið kr. 6,86 um tímann. —
Kvenfólk: Almenn dagvinna
kr. 2,07 og eftirvinna kr. 2,99.
Helgidagavinna kvenna verður
greidd með kr. 4,01.
Auk þessa greiða atvinnu-
rekendur fyrir kaffitíma, eins
og áður.
Samningaumleitanir hafa
staðið yfir undanfama daga
milli stjómar Verkalýðsfélags-
ins og atvinnurekenda. Var
fundur haldinn fyrir fáum dög
um í félaginu til að ræða þessi
mál. Ríkti þar fullkomin ein-
drægni og voru allir sammála
um nauðsyn þess, að fá kaupið
hækkað. Eftirfarandi ályktun
var samþykkt í einu hljóði:
„Fundur Verkalýðsfélags
Akureyrar haldinn 7. ágúst ’42
telur sjálfsagt, að kauptaxti fé
lagsins hækki til samræmis við
þær kauphækkanir, sem orðið
hafa víða á landinu, og felur
stjórn félagsins að leita sam-
komulags við stjórn Vinnuveit
endafélags Akureyrar um
hækkun kauptaxtans í sam-
ræmi við það.“
Á þessum sama fundi var á-
kveðið að stofna styrktar- og
menningarsjóð fyrir félagið. í
skipulagsskrá fyrir sjóðinn
sem samþykkt var á fundinum
segir meðal annars:
1. gr. Tilgangur sjóðsins er
að veita þeim félagsmönnum
styrk sem verða fyrir slysum
þann tíma, sem þeir fá ekki úr
Slysatrygginígu ríkisins. Enn-
fremur að styrkja efnilega
unga menn, konur og karla,
sem verið hafa í félaginu minst
5 ár, til náms í einhverri
þeirri námsgrein, sem veitir
fræðslu um verkalýðsmál, svo
sem félagsfræði og fleira.
2. gr. Stofnfé sjóðsins er það
fé, sem var í sjúkrasjóði fé-
lagsins, þegar starfsemi hans
hætti, kr. 2,200.00 ásamt eftir-
stöðvum af hagnaði af síldar-
söltun félagsins, kr. 1300.00,
eða samtals kr. 3.500.00.
3. gr. Árlegar tekjur sjóðsins
eru vextir af innistæðu hans,
svo og annað fé, sem sjóðnum
kann að áskotnast, og félagið
ákveður að renna skuli til sjóðs
ins, svo sem ágóði af sam-
(Frh. á 7. síðu.)
Réttindi í sjnkrasam-
lögim bnndin fið
1000 kr. meira en
áður.
• ■ I . V
Álií allsberjarnefndar Ed.
ALLSHERJARNEFND efri
deildar hefir nú skilað
áliti um frumvarp til laga um
breytingar á alþýdutrygginga-
lögunum. í allsherjarnefnd eru
þeir Sigurjón Á. Ólafsson, Bj.
Ben. og Herm. Jónasson. Nefnd
in leggur til, að frumvarpið
verði samþykkt, en Sigurjón
Á. Ólafsson ritar þó undir
álitið með fyrirvara.
í nefndarálitinu segir:
„Frv. þetta er um samþykkt
á bráðabirgðalögum, sem sett
voru 30. júní s.l. og voru sam-
hljóða frv. Með frv. er hækk-
að um 1000 kr. mark það, sem
full réttindi í sjúkrasamlögum
eru bundin við, og er það gert
vegna þess, að í 24. gr. alþýðu
tryggingalaganna er miðað við
skattskyldar tekjur, en með
skattalagabreytingunni á síð-
asta þingi var hætt að leyfa
frádrátt á greiddum skatti og
útsvari við ákvörðun skatt-
skyldra tekna. Nefndin er sam
mála um að mæla með frv. og
telja þó sumir nefndarmenn
æskilegt að gera frekari breyt-
ingar á þessu fyrirmæli al-
þýðutryggingalaganna, og rit-
ar einn nefndarmanna undir á-
litið með fyrirvara af þessum
sökum.“
Tivoli stðdeuta bvrj-
ar kl. 4 á morgun.
E INS og áður hefir verið
skýrt frá hér í blaðinu,
hafa stúdentar ákveðið að
gangast fyrir ópinberum
skemmtunum í Hljómskála-
garðinum til ágóða fyrir nýja
Stúdentagarðinn. Fyrirtæki
þetta kalia þeir „Tivoli“.
Skemmtanirnar hefjast á
morgun, sunnud. 16. ág. kl. 4 e.
h. og lýkur sunnudaginn 23.
þ. m. kl. 11,30 að kvöldi. —
Sunnudagana báða hefst hún kl.
4 en virku dagana hefst hún kl.
7 og alla dagana lýkur henni
kl. 11.30.
Skemmtisvæðið verður afgirt
og verða seld aðgöngumerki að
því dag hvern á 2 krónur. Á
skemmtisvæðinu verður eftir-
farandi til afþreyingar:
Upplýstur danspallur með
dansundirleik, sem útvarpað
verður með hátalara og kostar
hver dans 0.25 fr. parið.
“Kabaret”-tjald þar sem að
galdramaður sýnir listir sínar,
havaiiskur kór syngur með und-
irspili á þarlend hljóðfæri. Ung
frú Sif Þórs og dansnautur
hennar dansa í gervi „Pjerrots“
og „Harlekins,“ frú Hallbjörg
Bjarnadóttir og óperusöngvari
Pétur Jónsson syngja, félagarn-
ir Ágúst Bjarnason og Jakob
Hafstein taka lagið og Alfreð
Andrésson og Lárus Ingólfsson
skemmta með gamanvísum.
Þá verður stórt veitingatjald
Frh. á 7. síðu.
Framsögumaður meirihluta
stjórnarskrárnefndar, Ásgeir
Ásgeirsson, tók fyrstur til máls,
og lagði til að frumvarpið yrði
samþykkt óbreytt. Hann kvað
málið hafa verið þrautrætt á
þinginu í vetur, meðal annars í
útvarpsumræðum. Þá hefði það
um langt skeið verið rætt í öll-
um stjórnmálablöðum. Síðan
hefði það enn verið rætt á öll-
um framboðsfundum um land
allt, og dómur þjóðarinnar
hefði hefði, að lokinni þeirri
viðureign, orðið sá, að um
fjörutíu þúsund kjósendur
hefðu lýst sig samþykka kjör-
dæmabreytingunni, en aðeins
sextán þúsund verið henni mót
fallin. Meiri hlutinn liti því
Lögreglustjóri sagði í sam
tati við Alþýðublaðið í gær,
að þegar væri farinn að sjást
árangur af þeirri ákvörðun
hans og annarra, sem hafa
með þessi mál að gera. Marg-
ir biðu ekki eftir því að vik-
an hæfist heldur fóru strax
að hreinsa til í kringum hús
sín.
Alþýðublaðið hafði í gær tal
af Pétri Kristinssyni lögreglu-
þjóni, en hann starfar að hrein
lætis- og heilbrigðismálunum.
Hann sagði:
„Við leggjum fyrst og fremst
áherzlu á það, að húsalóðir
séu hreinsaðar, sem allra bezt.
í því sambandi höfum við leit-
að til sorphreinsunar bæjarins
og farið fram á aðstoð þeirra,
sem starfa að henni um brott-
flutning á minni háttar sorpi,
sem safnast saman. Verður sú
aðstoð látin í té.
/
Það er nauðsynlegt, að fólk
gæti þess vel að ganga sem
bezt frá sorpílátunum og kring
um þau. Þar sem svo hagar til,
svo. á, að þetta væri útkljáð
mál, og bæri að hraða sam-
þykkt þess.
Sveinbjörn Högnason flutti
langloku, sem var uppsuða úr
ræðum hans á síðasta þingi um
þetta mál. Stagaðist hann á því
að þeir þrír flokkar, sem að
kjördæmabreytingunni stæðu,
væru með þessu að efla sér-
réttindi sín! Málaði hann það
með mjög dökkum litum, hvern
ig framtíðin yrði, ef kjördæma.
breytingin yrði, samþykkt, —
Framsókn mundi ekki fást til-
að bera ábyrgð á stjórn lands-
ins, skipin yrðu af okkur tek-
in, og við mundum missa
stjórnina í hendur útlending-
Frh. á 7. síðu.
að timbur og jám og þess hátt-
ar er á lóðunum, munum við
fara fram á, að undir það verði
byggður pallur, svo að hægt sé
qð hreinsa kringum það. Yfir-
leitt verður að gæta þess, að
slíkir hlaðar séu ekki gróðrar-
stía fyrir rottur, en þeir eru það
oft. í kringum slíka hlaða þarf
að sópa vel og vandlega. Þá
verða öll tóftarbrot og grjót-
garðar að hverfa. Þetta er
venjulega einn versti þrándur í
götu rottuútrýmingarinnar. —
Þá má fólk ekki setja annað í
sorpílát sín en það sem er sorp.
Grjót, torfusnepla og slíkt má
ekki setja í — ílátin.
Heilbrigðislögreglan og heil-
brigðisfulltrúi munu fara um
vissar götur bæjarins meðan
vikan stendur og líta eftir hlut-
unum. Muji blöðunum sagt áður
hvaða götur verður farið um
næsta dag. Lögreglan mun og
taka þakksamlega á móti upp-
lýsingum um það, hvar illa er
gengið um. Slíkar kvartanir
mun lögreglan síðan rannsaka
sjálf.“
Hreinlætisvikan í Reykja-
vík byrjar á morgnn.
Heilbrigöislögrefilaii mun balda
vappi efirliti mm alláai to.
Margir era þegar byrjaðir að hreiasa.
----♦'
HREINLÆTISVIKAN byrjar, á morgun hér í bænum.
Ríður nú á því að almenningur hirði í kringum hús
sín, sem allra bezí. í fyrsta lagi til þess að auka hreinlætið
í bænum og í öðru lagi til þess að komast hjá því að lög-
reglan Iáti hreinsa til á kostnað húseigandanna.