Alþýðublaðið - 15.08.1942, Blaðsíða 6
s
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Laugardagur 15. ágúst 1942.
íshafsvigstððvarnar.
Framh. af 5 s.íðu.
slíkir í Barentsburg) undir norð
urljósum í frosti að Iþví að ná
upp kolum, sem flutt voru til
Murmansk, þegar ísa leysti á
vorin. Skammt frá ‘voru norskir
námumenn, sem grófu kol úr
iðrum jarðar, til þess að flytja
til Skandinavíu. Fyrir stríð
voru flutt út frá Spitzíbergen ár-
lea 780.000 tonn af ko'lum, sem
flutt voru til Murmansk, Pet-
samo, Hammerfest, Tromsö og
Narvik.
Petsamo er eina Tshafshöfn
Finnlands. Þar er klettótt
strönd, sem Golfstraumurinn
leikur um og þar er íslaust ár-
ið um kring. Koparnámurnar
þar eru jafn auðugar og kopar-
námurnar í Rio Tinto á Spáni,
og samkvæmt fréttum ‘hafa þær
verið virkjaðar aftur af þýzk-
um verkfræðingum, en í rúss-
nesk-finnska stríðinu 1939—’40
eyðilögðu Finnar alla virkjun-
ina. Petsamo hefir verið kölluð
.„bakdyr Þjóðverja“. Höfnin er
tengd með íshafsbrautinni við
Rovanienni, en Iþaðan liggur
járnibrautin til Torneo á finnsk-
sænsku landamærumnn við
Helsingjabotn. Auistan megin
flóans liggur járntoraut ti'l Hels
inki og Leningrad og vestan
megin til Stokkhólms, Gauta-
foorgar og Malmö, en þaðan er
ferja til Danmerkur. Höfn hins
þrönga Petsamofjarðar er til-
valin 'bækistöð fyrir kaftoáta og
smærri herskip og ihefir því
mikla þýðingu fyrir óvinina í
tilraunum þeirra til að loka leið
inni til Murmansk og Archang
el, og auðvelt er að gera loft-
árásir á hafnarmannvirkin í
Murmansk. Bjarmi miðnætursól
arinnar gerir það kleift að gera
árásir á skipalestir á hvaða
tiíma sólarhringsins sem er á
sumrin.
Á eyju nokkurri um 180 míl-
ur vestur af Petsamo liggur
Hammerfest. Þay voru lýsisverk
smiðjur, sem Bretar eyðilögðu,
svo að Þjóðverjar hefðu þeirra
engin not. Og þó að höfnin sé
ekki merkileg, er hægt að hafa
þar toækistöð fyrir smærri her-
skip. Þar er ennfremur mjög
auðvelt að toyggja flugvelli.
Narvik er þýðingarmesta ís-
hafshöfn Noregs. Fáar hafnir í
Norður-Evrópu hafa betri skil-
yrði til flotatoækistöðvar, og
hún hefir mikla hernaðarlega
þýðingu með tilliti til Bretlands
eyja og siglinga um íshafið, og
þangað má flytja allar birgðir
með nútíma rafmagnsjárnbraut
gegnum Svíþjlóð frá toalltisku
höfnunum. Og vel getur verið,
að hinar löngu nætur síðastlið-
ins vetrar hafi Þjóðverjum tek-
izt að flytja þaðan sænskt járn
til heimahafna sinna þrátt fyr
ir árvekni brezka flotans. Skip
með járn sigldu venjulega frá
Narvík á veturná, þegar höfn-
in í Lulea var ísi lögð. Járnið
fcemur úr „Járnfjöllum“ Sví-
þjóðar, sem gnæfa bak við iþorp-
ið Kiruna, sem er 100 enskar
mílur fyrir norðan heimskauts-
toaug. Vegna árása Breta og
hafnbannsins er nú ekki hægt
að flytja járn um Narvik, en
þar er mjög heppilegt að hafa
herskip og þaðan er hægt að
gera árásir á skipalestir.
Þannig eru Íshafsvígstöðvarn
ar í Evrópu.
HVAÐ SEGJA HIN BLÖÐIN
Framh. af 4. síðu.
Fálkinn, sem kom út í gær,
gerir rithátt blaðanna að um-
talsefni í eftirtektarverðri grein
í skraddaraþankadálki sínum.
Þar segir:
„Síðustu árin virðist hafa orðið
nokkur umbót í gömlu íslenzku
Váli'difæðamáli. Flestum hugsandi
mönnum var orðið það hryggðar-
efnij. hversu munnsöfnuður blaða-
manna þeirra, sem fást við stjórn-
mál, svo og stjórnmálamannanna
sjálfra, var orðinn ósamboðinn
mönnum, sem vilja láta virða
sjálfa sig og sem þykjast bera
virðingu fyrir þjóð sinni og menn-
ingu hennar. Og hverjir þykjast
ekki gera það?
Þenhan tíma, sem „þjóðstjórnin“
sáluga sat við völd, varð talsverð
breyting til bóta á þessu. Flokk-
unum skildist — og um leið blöð-
um þeirra — að það væri leið til
að deila um mál, án þess að skvetta
sauri og ata auri, og að það væri
jafnvel affarasælla, að ræða lands-
mál að siðaðra manna hætti og
tefla fremur fram rökum en per-
sónulegum hnjóðsyrðum, lítilsvirð-
'ingum og rógi og ósannindum. Það
var að komast hér á eins konar
,,borgfriður“ og miklum meirihluta
þjóðarinnar var þetta mikið á-
nægjuefni. Vitanlega var til minni
hluti í þessu máli sem öðrum, því
að í öllum flokkum eru til menn á
því stigi, að þeim „þykir enginn
matur í“ því, sem eigi hefir að
geyma fólsyrði og jnannskemming-
ar.
En Adam var ekki lengi í Para-
dís og nú mun áður áminnstum
minnihluta vera skemmt, því að nú
er aftur upp tekið hið gamla orð-
bragð, og sýnir það, að þjóðin
hefir ekkert lært og vill ekkert
læra í þessu efni. Síðan „þjóð-
stjórnarflokkarnir1,1 svonefndu
gliðnuðu í sundur, fyrst í vetur, og
svo fyrir fullt og allt um síðast-
liðna krossmessu, hefir brenni-
steinsregn hinnar íslenzku prúð-
mennsku í riti dunið yfir þjóðina.
Það má að vísu til sanns vegar
færa, að nú hafa verið kosningar
og eiga énn eftir að verða kosning-
ar innan skamms, og munu sumir
vilja afsaka það, sem nú er að ger-
ast, með kosningahitanum. í kosn-
ingahitanum verður allt að leyfast,
segja menn. En það ber líka að
líta á hitt, að einmitt núna er verið
að ganga endanlega frá fullveldis-
skipun landsins. Og nú geta ís-
lendingar ekki lengur skotið sér
undir það, að þeir séu ekki ábyrgir
orða sinna. Það er sannarlega ekki
til mikils mælzt, að þjóðin sjálf,
og þá fyrst og fremst þeir, sem
hafa gerzt forystumenn hennar í
ræðu og riti, séu sér svo mikillar
ábyrgðartilfinningar meðvitandi,
að þeir reyni að ástunda prúð-
mennsku og sýna 'alþjóð, að ef ís-
lendingar eiga að verða raunveru-
lega sjálfstæð þjóð, þá verða þeir
að verða siðmennt þjóð.“
Ó Þórarinn, ó Einar, ó Sigfús!
Það er erfitt að vera „siðmennt-
uð þjóð“. Annars mynduð þið
riú ekki bíða dóms fyrir ósæmi-
legt orðbragð um forseta sam-
einaðs þings.
Trúlofunarhringar,
tækifærlsgjafir,
í góðu úrvali.
Sent gegn póstkröfu.
Guðm. Andrésson
gullsmiður.
Laugavegi 50. — Sími 3769.
Hisiæðisvandræðin.
5. Eins og ég hefi áður tekið
fram, jþá eru eflaust ýms
vandkvæði á því, að ráðstaf
anir iþær, sem ég hefi nefnt,
séu framkvæmanlegar Iþað
fljótt, að þær geti komið að
gagni til úrbóta á hausti
komanda. Er iþá aðeins eitt
ráð eftir, og þó að það geti
talizt Ihart aðgöngu, virðist
það samt það eina, sem til
greina getur komið, ef fjöldi
fólks á að toafa þak yfir höf
uðið þegar vetrar. Ráðið er,
að taka stóríbúðirnar, sem
oft eru aðeins notaðar af
einni eða tveimur persón-
um, og láta toúsviltum í té
toluta af þeim. í mörgum til-
fellum er þetta framkvæman
legt, þar eð sumstaðar ihátt-
ar svo til, að það er í sjáifu
sér óhæfa eins og nú er á-
statt, að láta t. d. eldri konu
Ihafa til umráða 10—18 toer-
foergi, eða einum eldri manni
toeilt toús með 14 henbergj-
um. Margir munu segja, að
þetta séu, ef af yrði, hrein-
ustu þvingunarráðstafanir,
sem jafna mætti til þræla-
halds miðaldanna eða ein-
hvers enn þá verra. En at-
hugum nú málið.
Væru það verri þrælatök, að
taka íbúðir af fólki, eða hluta
þeirra, sem ekkert toafa með
þær að gera, heldur en að leyfa
óvelkomnum leigutökum setu í
ábúðum, sem toúseigendur telja
sig þurfa að not-a? Ef tala ætti
um þrælatök í þessu samfoandi,
iþá væri það helzt á þann veg,
að þeir, sem ábyrgðina hafa á
ástandinu eins og það er, hafi
faneppt þjóðina í fjötra. Þeir
ráðherrar eða sá ráðherra, sem
átti frumkvæðið að innfflutn-
ingsbanninu á byggingavörum,
toefir ef til vill í fórum sínum
einn spotta af þeim, þó að folað-
ið Tíminn toafi viljað afsaka
þann verknað og talið slikar ráð
stafanir nauðsynlegar og sjálf-
eagðar, þá telja sumir Ihinna hús
villtu þó toafa legið nær, að
foanna fólki að auka kyn sitt,
gifta sig og komast á legg, svo
hægt hefði verið að koma í veg
fyrir fólksaukningu í landinu,
svo þeir, sem þó eru þar ffyrir
hefðu haft húsaskjiól, því án
þess telja þeir lífinu ekki lif-
andi.
HANNES Á HORNINU
(Frh. af 5. síðu.)
„NEI, STOPP! Hér duga engin
kosningaloforð og svik, við heimt-
um fullkomna sorphreinsun eins og
hjá siðuðum mönnum, með nú-
tímatækjum og vinnubrögðum, og
svo, að sorpið sé ekki lengur látið
í útjaðra bæjarins og óþverranum
af því, svo sem flugum, rottum og
reyk þannig aftur veitt inn yfir'
bæinn öllum fjölda af bæjarbúum
til armæðu og óþæginda og enginn
veit hvenær gæti orðið öllum bæj-
arbúum stórhættulegt, ekki sízt á
þeim tímum, sem nú standa yfir.“
BIFREIÐUNUM fjölgar nú mjög
hér í bænum. Umferðin bér þess
merki. Ég lá einn daginn í eina
klukkustund á Arnarhóli — og þó
ótrúlegt sé þá fóru um Hverfisgöt-
una á þessum eina tíma 143 bif-
reiðar, gamlar og nýjar, fólks-
flutninga og vöruflutninga. Um-
ferðin hefir aldrei verið eins við-
sjárverð og nú og þurfa fótgang-
andi menn sannarlega að gæta
sín. Á þriðjudaginn fékk ég eftir-
farandi bréf frá ,,Vegfaranda“;,;Ég
skrifa þér um eftirfarandi til að
sýna þér fram á, að það eru fleiri
en drukknir bifreiðarstjórar, sem
umferðarreglurnar brjóta. Ýmsir
betri borgarar bæjarins, sem aka
um strætin í einkabifreiðum sín-
um, gera sér ekki mikla rellu út
af þeim.“
„Á SUNNUDAGSKVÖLDIÐ var
kl. liðlega 8 var ég ásamt þremur
kunningjum mínum á leið út á
íþróttavöll til að horfa á kappleik-
inn milli Vals og K.R. Þegar við
komum á hornið, þar sem sveigt
er inn á Suðurgötu hjá Herkastal-
anum, kemur bifreið akandi á móti
okkur með miklum hraða, var um
það þil helmingur hennar uppi á
gangstéttinni, sem þarna er mjög
mjó. Við sluppum naumlega við
að verða kramdir undir bifreið-
inni og hrökkluðumst til baka
fyrir hornið.“
„HAFÐI ÖKUGARPURINN grip
ið til þessa snjallræðis til að kom-
ast fram fyrir annan, sem ók rétt
við hlið hans. Hinn ráðsnjalli
kappakstursmaður hafði samt ekki
komizt nægilega langt fram fyrir
hinn löghlýðna keppinaut sinn til
að geta beygt hiklaust fyrir horn-
ið. Lentu nú þarna þrír bílar í
einni þvögu og þrjú höfuð gægð-
ust út og tóku að munnhöggvast.
Okkur flaug strax í hug, að sá,
sem ,,gangstéttarbílnum“ stjórn-
aði, hlyti að vera einhver ófyrir-
leitinn vandræðagepill, sem hnupl-
að hefði farartækinu og væri nú á
flótta undan réttvísinni.“
„EN ÞEGAR ég nálgaðist af
forvitni, fékk ég að vita hver
hann var, þessi holdugi gleraugna-
skrýddi ökugarpur, - sem hafði
næstum sent okkur inn í eilífðina.
Það var enginn „venjulegur róni“.
Það var mikill bifreiðaeigandi,
þaulvanur að aka, en þykist víst
mega leyfa sér meira en við hin-
ir, sem verðum að nota okkar tvo
til að komast áfram.“
„HVAÐ Á NÚ, Hannes minn, að
gera við svona karla? Þó ekki
hlytizt slys af þarna var það aðeins
hreinni og beinni tilviljun að
þakka. Hvaða tryggingu höfum við
fótgangandi menn fyrir að halda
lífi og limum? Hver ábyrgist að
ekki fari öðruvísi síðar, ef ekið er
með óleyfilegum hraða, rakleitt
eftir gangstéttinni, nærri hættu-
legu horni?“
Hannes á horninu.
mx
nitOSðLllinmill ARNI JÖNHON. HIRIKIR s
SveVnpokarnir
komnir
aftur
Grettisgötu 57.
AUGLÝSEÐ í Alþýðublaðinu.
Snap-on
stjörnulyklar
og allskonar
áhöld til
bílaviðgerða
frá þekktustu verksmiðju
í Bandaríkjunum.
EINK AUMBOÐSMENN:
S0isli Hallðórsson b. l\
Sími 4477. S
m
3137m?
:l >1
StCMISIMS
,Þormóður‘
hleður í dag til Patreksfjarð
ar, Tálknafjarðar, Bíldudals,
Þingeyrar, Flateyrar, Súg-
andafjarðar, iBolungiarvikur
og ísafjarðar. — Flutningi
veitt móttaka fram til há-
degis í dag.
hleður á mánudag n. k. til
Vestmannaeyja. — Flutningi
veitt móttaka til faádegis
samdægurs.
hleður á naánudag n. k. til
Sands, Stykkistoólms og Búð-
ardals. — Flutningi veitt
móttaka til toádegis sama dag.
Vörumóttaka á auglýstum
tíma er í öllum tilfellum
undir því komin að rúm
leyfi.
Nnnnhorpur
Nora-
Magasln