Tíminn - 26.10.1963, Page 14

Tíminn - 26.10.1963, Page 14
ÞRIDJA RÍKID WILLIAM L. SHIRER þess að leita að svarinu við þessu. Svo framariesu, ssm hann gat séð, var víst að Pólverjar myndu ekki láta undan hótunum Hitlers og myndu berjast, ef inn í land þeirra yrði ráðizt, en að hernað- arlega og stjórnmálalega væri að- staða þeirra ekki góð. Flugher þeirra var úreltur, landherinn ó- þjáll, hernaðarleg aðstaða þeirra — umkringdra Þjóðverjum á þrjár hliðar — nær því vonlaus. Þar að auki gerði það árás af hálfu Breta og Frakka mjög svo erfiða, að varnir Þýzkalands í vestri höfðu mikið verið styrktar. Og að lokum var augljóst, að hinir þráu pólsku „ofurstar" myndu sættast á að taka við hjálp Rússa, jafnvel þótt Þjóðverjar væru komnir að hliðum Varsjár. Atburðirnir gerðust nú fljótt. Beck ofursti undirritaði 6. apríl samkomulag við Stóra-Bretland í Lundúnum þar sem hinu einhliða brezka ioforði var breytt í mikil- vægan samning um gagnkvæma aðstoð. Tilkynnt var, að varanleg- ur samningur yrði undirritaður eins fljótt og nákvæmari atriði hans hefðu verið gerð. Næsta dag, 7. apríl, sendi Musso lini sveitir sínar inn í Albaníu og bætti við sig hernámi litla fjalla- ríkisins Abessiníu. Þannig fékk hann stökkpall til þess að kom- ast af inn í Grikkland og Júgó- slavíu og vegna spennunnar, sem ríkti í Evrópu, varð þetta til þess að smáríkin, sem dirfðust að standa gegn Öxlinum, fóru að skjálfa enn þá meir en áður. Eins og ljóst verður af skjölum þýzka utanríkisráðuneytisins, var þetta gert með algjöru samþykki Þýzka- lands, sem hafði verið látið vita, áður en þetta gerðist. Frakkland og Bretland komu með sinn mót- leik 13. apríl, er þeir hétu Grikk- landi og Rúmeníu aðstoð. Flokk- arnir voru farnir að fylkja sér. Um miðjan apríl ko;n Göring til Rómar og Ribbentrop til mikillar gremju átti hann tvo langa fundi með Mussolini, 15. og 16. apríl. Þeir samþykktu, að þeir „þörfn- uðust tveggja til þriggja" ára til þess að undirbúa „almenn átök“, en Göring lýsti því yfir, að styrj- öldin brytist út fyrr „væri aðstaða Öxulsins mjög sterk“ og „gæti hann borið sigur úr býtum í átök- um við alla andstæðinga, sem lík- legir voru.“ Minnzt var á beiðni, sem borizt hafði til Rómar og Berlínar 15. apríl frá Roosevelt forseta. Musso- lini hafði fyrst neitað að taka við henni, að því er Ciano sagði, og Göring tilkynnti, að hún væri ekki þessi virði, að henni yrði svarað. Mussolini áleit hana „afleiðingu af lömun í æsku“, en skoðun Gör- ings var sú, að „Roosevel't þjáðist af andlegum sjúkdómi, sem væri að byrja“. í skeyti forsetans til Hitlers og Mussolinis hafði hann varpað fram hreinskilnislegri spurningu: „Eruð þér reiðubúnir til þess að leggja fram staðfestingu á því, að herir yðar muni ekki fara inn á land eftirfarandi sjálfstæðra þjóða? Á eftir hafði fylgt listi yfir þrjá- tíu og eitt ríki, þar á meðal Pól- l'and, Eystrasaltsríkin, Rússland, Danmörku, Holland, Belgíu, Frakk land og Bretland. Forsetinn vonað- ist til þess að hægt yrði að heita því, að ekki yrði gerð árás á þessi riki „í tíu ár að minnsta kosti“ i eða „tuttugu og fimm ár, ef við . þorum að horfa svo langt fram“. í Ef þessu yrði heitið, lofaði hann þátttöku Bandaríkjanna í „viðræð- um“ allra þjóða um að létta af heiminum „þeirri bölvuðu byrði, sem fylgdi hervæðingunni" og til þess að opna leiðir til alþjóðlegrar verzlunar. „Þér hafið hvað eftir annað staðhæft“, minnti hann Hitler á, „að þér og þýzka þjóðin hafi enga löngun til þess að fara út í styrj- öld. Ef þetta er satt, þá er ekki þörf á, að til styrjaldar komi.“’ í ljósi þess, sem nú er vitað, virðist þetta barnaleg bæn, en for- foringjanum fannst hún nægilega óþægileg til þess að láta það frétt- ast, að hann myndi svara henni — ekki beint, hel'dur í ræðu, sem flutt var á sérstökum fundi, sem boðað hafði verið til í Reichstag, 28. apríl. Á meðan, eins og fram kemur í skjölum þýzka utanríkisráðuneytis ins, sendi stjórnin í Wilhelm- strasse skeyti, 17. apríl, þar sem lagðar yoru fram tvær spurning- ar við þau ríki, sem Roosevelt nefndi, að Póllándi, Rússlandi, Bretlandi og Frakklandi undan- skildum. Fannst þeim að yfir þeim vofðu á nokkurn hátt ógnanir af hálfu Þýzkalands? Höfðu þau veitt Roosevelt leyfi til þess að bera fram þessa uppástungu? „Við efumst ekki um það,“ sagði Ribbentrop í skeytum til sendifull- trúa sinna í viðkomandi löndum, „að báðum spurningunum verður svarað neitandi, en samt sem áður af sérstökum ástæðum, viljum við fá áreiðanleg svör þegar í stað.“ Hinar „sérstöku ástæður“ áttu eftir að koma í ljós, þegar Hitler hélt ræðuna 28. apríl. Utanríkisráðuneytið gat gert skýrslu handa foringjanum 22. apríl um, að flest landanna, þar á meðal Júgóslavía, Belgía, Dan- mörk, Noregur, Holland og Lux- emburg „hafa svarað báðúm spurn ingunum neitandi“ — en þetta svar átti brátt eftir að sýna, hversu sakleysislegum augum stjórnir þessara landa litu Þriðja ríkið. Frá Rúmeníu kom hins veg- ar napurt svar svohljóðandi, að „Stjórn Ríkisins hefði sjálf að- stöðu til þess að vita, hvort land- inu stæði ógnun af ríkinu.“ Litla Lettland inni við Eystrasalt skildi ekki fyrst eftir hvaða svari var óskað, en utanríkisráðuneytið beindi því fljótlega á rétta braut. Weizsácker hringdi til sendiherra síns í Ríga 18. apríl. — til þess að segja honum, að okkur hafi ekki verið fært að 215 skilja svar utanríkisráðherra Lett- lands við spurningunni um skeyti Roosevelts. Á meðan nær því allar stjórnirnar hafa svarað, og auð- vitað neitandi, fjallaði Munters um þennan hlægilega ameríska á- róður sem spurningu, sem hann þurfti að ráðgast um við meðráð- herra sína. Svari Munters ekki þegar í stað, og segi „nei“, mynd- um við verða að bæta Lettlandi við þau ríki, sem fúslega hefðu gerzt vilorðsmenn herra Roosevelts. Ég sagði, að ég gerði ráð fyrir, að orð í þessum dúr af vörum Herr von Kotze (þýzka sendiherrans) ' myndu vera nægileg til þess að fá fram hið augljósa svar frá honum. Það var það líka. Svar Hitlers til Roosevelts Svörin voru kröftugt vopn fyrir Hitler, og hann notfærði sér þau á meistaralegan hátt, þegar hann hellti sér út í ræðu sína í Reichs- tag. þennan fallega vordag, 28. apríl 1939. Ég held að þetta hafi verið lengsta opinbera ræðan, sem hann nokkru sinni flutti, en það tók meira en tvær klukkustundir að flytja hana. Á margan hátt, sérstaklega hvað snerti áköllunar- máttinn, sem hún hafði fyrir Þjóð- verja og aðra vini Nazista-Þýzka- lands erlendis, þá var þetta ef til vill snilldarlegasta ræða, sem hann nokkru sinni hélt, vissulega sú bezta, sem höfundurinn heyrði nokkru sinni frá honum. Hún náði hærra en hann átti nokkru sinni eftir að ná aftur hvað viðvék mælsku, slægð, kaldhæðni, háði og undirferli. Og þrátt fyrir það, að ræðan væri undirbúin fyrir Þjóðverja til' þess að hlusta á þá, var henni ekki aðeins útvarpað um allar þýzkar útvarpsstöðvar heldur einnig hundruð annarra stöðva um allan heim. í Bandaríkjunum var henni útvarpað um allar helztu fara til borgarinnar til þess að ala barn sitt, og raunar til hvers konar læknisfræ^ilegrar umönn- unar, alveg á sama hátt og hún fór til Denver eða San Francisco til þess að kaupa sér skó og kjóla, og pantaði blússur og nærföt frá Chi- cago og New York. Hún gat fengið jafn fallega og góða hluti hjá Anderson’s í Berilo, en þeir höfðu ekki þá yfirborðsfágun, sem stór- borgöarstimpillinn veitir. Hún hafði farið til austurríkjanna til að afla sérunenntunar. Hún hafði búið verðandi heimili þeirra hús- gögnum, sem hún hafði pantað eftir verðlistum frá austurríkjun- um. Hugmyndir sínar sótti hún í blöð og tímarit, sem gefin voru út í austurríkjunum. Hún mundi vilja hljóta umönn- un stórborgarlækna. Og þó að hún ætti heimili sitt í vesturríkjunum, beið hún þess með óþolinmæði, að vesturríkin yrðu í öllum smáatrið- um jafn ..merkiieg" og austur- ríkin. Að öllum líkindum hafði hún tekiö Phil, af því að hann var frá austurrikjunum, og í hennar aug- um var hann enn laugaður í ljóma þeirra. Hafði hún ef til vill í huga að fá hann til að flytja til austur- ríkjanna? Og' þá jafnvel fljótlega? Rannsakandi augnaráð Phils hvíldi stöðugt á baki verðandi eig- inkonu hans. Marynelle var góð á skíðum, eins og hún var raunar i öllu, sem hún spreytti sig á. Dugleg, lagleg nútímakona, en alveg laus við lif- ándi áhugamál og skoðanir. Vissu- lega las hún mikið, en aðallega metsölubækurnar. Hún var vel séð af klíkunni, þar sem hún beitti töfrum sínum á báða bóga og lífg- aði upp á hópinn með lífsfjöri sínu. Hún var snjöll og skemmti- leg í viðræðum. En sá, sem ekki féll Marynelle í geð samkvæmt yfirborðskenndu mati hennar, varð að gera sér að góðu kuldalegt við- i mót. Gat Phil kvænzt stúlku vegna lífsfjörs hennar, vegna áhuga hennar og hæfni í íþróttum, vegna borgaralegra skoðana hennar á réttu og röngu, og um leið von- azt til að finna samúð og skilning hjá þessari sömu stúlku? Hann mundi ekki finna þessa eiginleika hjá Marynelle. Marynelle kafaði ekki til botns í neinu máli. Hún hafði ástríðufullan áhuga á borg- aralegu umtali, og hún lét ekkert slíkt fram hjá sér fara, en skyn- samlegar rökræður leiddi hún hjá sér. Þær voru henni ekki meira virði en síðasta metsöluplatan, sem hún var orðin leið á. Þessi fallega stúlka í dökkbláu fötunum með fölgulu slæðuna, sem á þessu augnabliki leit út eins og desembersíða á almanaki, var nákvæmlega eins og húsið, sem þau Phil ætluðu að búa í. Hún hafði að engu gert hugmyndir hans um lítið múrsteinshús með bjálkaþaki. Heimili þeirra var svo nýtízkulegt sem hugsazt gat. Stein- steypt hús í fölgrænum lit,' klætt rauðviði. Smart, flott, nýtízkulegt. 1 Að innan var allt í stíl, glugga- tjöld í sama lit og loftið, eldhús- gólfið lagt flísum í sama lit og eldhúsborðið og gluggakarm- arnir og hvað það nú var. Flott? — jú, vissulega, en . . Ef til vill gæti þetta orðið þægi- legt heimili, en- hann bjóst naum- ast við því. Ekki frekar en hann bjóst ekki við, að það yrði þægi- legt að búa með Marynelle. Allir sögðu, að húsið væri dásamlegt. j — Það er alveg eins og þú, elsk- an!, sögðu vinir Marynelle við hana. Engar bókahillur voru í húsinu. ÁSTIR LÆKNISINS ELIZABETH SEIFERT Einn veggurinn var útbúinn, sem geymslurúm undir bækur Phils. Eitt herbergið í kjallaranum var helgað íþróttunum. Hurðin að j búningsherberginu var eins og hálfmáni í laginu. Allt var þetta mjög sniðugt, en Phil hafði gam- aldags hugmyndir, sem hann hafði að vísu ekki rætt sérstaklega við i Marynelle, um það, hvernig hann vildi hafa heimili sitt. Hann hafði I hugsað sér stað, sem mundi færa honum hvíld og endurnæringu, stað, sem væri í algjörri mótsetn- ingu við þann heim, sem umlukti starf hans og daglega önn. Hvað var þetta, sem hann var að leggja út í? Hvernig í ósköpun- um hafði þetta allt gerzt, án þess að hann beinlinis gæfi því gaum? Gerði hann í rauninni rétt í því að kvænast þessari stúlku? Með festu og framheldni mundi honum takast að gera henni skiljanlegar þær kröfur, sem starf hans á sjúkrahúsinu gerði til hans með Véttu. En þess utan mundi hann verða að helga líf sitt Marynelle, það var honum Ijóst nú. Var það þetta, sem hann vildi? Og hvað var það, sem hafði komið honum til að velja Marynelle? Átján annasamir mánuðir voru liðnir, síðan Phil kom til Berilo. Hann hafði áður reynt víða fyrir sér, en að lokum fengið augastað á Berry og Chappell. Hann kom til okkar í júlí, og í október ákvað hann að ílengjast þar og kaupa hluta í stofnuninni. Staðurinn veitti honum tækifæri, og hann fullnæðgi þeim kröfum, sem til hans voru gerðar þar. Ákvörðun hans var öllum á- nægjuefni. Hann var einmitt sá maður, sem litli hópurinn okkar þarfnaðist. Og Phil kunni vel við sig í Berilo, hann kunni að meta hreinleika umhverfisins, fegurð fjallanna, uppgang bæjarins. Hann hló stundum að sérkennilegu hátt- erni íbúanna og okkar sjálfra á sjúkrahúsinu, en það var góðlát- legt gaman. Hann vissi, að hann vann þarft og gott verk meðal fólks, sem vert 1 var að kynnast. Og hann varð einn af klíkunni, áður en langt leið. Öllum líkaði vel við hann. Hvað aldur snerti, vorum við í klíkunni öll í kringum þrítugt, mörg okkar þegar gift. Samkomu- lagið var gott, þó að raunar hvert; tækifæri væri gripið, sem gafst til að slúðra svolítið um náung- ann. Hvað, sem því leið, var Phil kærkominn meðlimur. Karlmenn-1 irnir urðu þegar vinir hans, og1 konurnar hrifust allar af honumj giftar sem ógiftar. En Marynelle bar sigur út být- um. Hvernig og hvers vegna, veit ég ekki Satt að segja hef ég bara ekki nægilegt hugmyndaflug til að ímynda mér aðferðir stúlku eins og Marynelle. Phil hafði að sjálfsögðu skýring- ar á reiðum höndum. Marynelle var alltaf svo alúðleg við mig, sagði hann einfaldlega. En alúð hennar gat vissulega snúizt í eins konar miskunnarleysi. Ég minnist þess, þegar við ætluðum öll að aka til Pendleton eina helgi. — Ég ek auðvitað með Phil, sagði Marynelle með festu. Og svo varð — þau óku í bifreið Phils, aðeins tvö. Ég var með troð- inn bíl, og eins var með hina, sem áttu bíla. En Marynelle og Phil voru aðeins tvö, og þegar við kom- um til baka til Merilo, var trúlof- unin ákveðin. Ef til vill hefur tunglskinið, sem laugaði fjalla- tindana svo fagurlega, átt ein- favern þátt í þeirri ákvörðun. Ef til vill var líka Marynelle Ijúf í fangi. Hvað sem því leið, var nú trúlofunin orðin staðreynd. Mary- nelle og Phil ætluðu að gifta sig um jólin, þau ætluðu að kaupa eitt af nýju húsunum . . . Phil og Marynelle höfðu nú snú- ið við og voru á leið heim að veit- ingahúsinu aftur. Marynelle var stöðugt á undan. Um leið og Phil renndi sér í slóð hennar, gagntók hann æ meir undrunin yfir því, að hann skyldi vera trúlofaður þess- ari stúlku Ég býst við, að undrun hans hafi allan tímann verið jafn mikil og okkar hinna yfir þessari trúlof- un. Og nú, viku fyrir brúðkaup þeirra, var hann enn að velta því fyrir sér, hvers vegna hann hafði valið Marynelle en ekki einhverja aðra. Það hefði alveg eins getað verið einhver hinna. Það hefði al- veg eins getað verið Min . . . Hann hló upphátt að hugsun sinni, um leið og hann renndi sér upp að hlið Marynelle. 14 T í M I N N, laugardaginn 26. október 1963.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.