Tíminn - 26.10.1963, Page 16
Laugardagur 26. okt. 1963
232. tbl. 47. árg.
LAIIN EFTIR STARFSMAH
A STJÓRNARFUNDI BSRB
hinn 21. þ. m. var m. a. rætt
um skipan starfsmanna í launa
flokka, og nauðsynlegan undir
búning fyrir næstu heiTdar-
kiarasamninga, að lokum var
samþykkt svofelld
Þar sem stjórn BSRB telur
æskilegt, að við undirbúning
næstu heildarkjarasamninga
opinberra starfsmanna verði
unnt að beita starfsmati eftir
fullkomnustu erlendum fyrir-
mvndum samþykkir hún að
snúa sér til fjArmálaráðherra
með tilmæli um, að ríkisstjóm
in sendi fulltrúa tilnefnda af
BSRB og ríkisstjórninni til ná-
grannalandanna til þess að
kynna sér framkvæmd á starfs
mati þar.
Nýja kompaníið
brann til grunna
IH-Seyðisfirði, 25. okt.
Klukkan 20 mínútur fyrir 2
í nótt Tétu brunalúðrarnir til
sín heyra hér á Seyðisfirði, og
hafði þa komið upp eldur í öðru
af tveimur Vatsnes-húsunum,
Nýja kompaníinu, eins og húsið
var kallað. Þar geymdu 8 bátar
veiðarfæ.ri sín, en húsið brann
til kaldra kola, og varð engu
bjargað, sem í því var.
Fyrir þremur árum keypti
Fisksölufélagið hús þetta af
Árna Jónssyni og var húsið gert
upp, m. a. settar í það nýjar
raflagnir Ekkert eldstæði er í
húsinu, og eldsupptök ókunn.
Húsið hafði verið hólfað sund
ur og gátu 6 bátar haft veiðar-
færi sín niðri en tveir uppi.
Trygging veiðarfæranna var
lág. T. d. var allt ótryggt, sem
tilheyrði bátunum Sæunni og
Stíganda, og sömuleiðis veiðar-
færaleifar Sæbjargar, sem
sprakk a Seyðisfirði í sumar.
Trygging bátsins Ving, sem
þarna hafði veiðarfæri sín var
lág, en trygging Andvara var
hins vegar góð og einnig trygg
ing Gullvers. Það var lán í
óláni að Svanur og Auðbjörg
fóru í róður klukkan 10 í gær-
kvöldi, og áttu ekkert af veið-
arfærum sínum í húsinu. Höfðu
þeir farið út með heila setn-
ingu, en hina setninguna áttu
þeir beitta í frystihúsinu.
Eldurinn varð þegar svo
magnaðui, að við ekkert var
ráðið. Varð slökkviliðið að láta
sér nægja að verja Gamla
kompaniið, sem stendur í að-
eins 5 metra fjarlægð, og tókst
því að koma í veg fyrir að eld-
urinn næði þangað, enda var
blankalogn. Máttu menn þakka
fyrir, að ekki hafði kviknað í
kvöldið áður, en þá var ofsa-
rok á Seyðisfirði, og hefði ekki
verið við neitt ráðið.
Nýja kompaníis-húsið sjálft
v ar lágt tryggt.
MYNDIN SÝNIR haus blaSs-
Ins, sem íslenzk-amerfskl klúbb
urlnn gefur út f SuSur-Kall-
fornfu, undlr stjórn GuSnýjar
M. Þorvaldsson. ASelns nafn
blaSslns er á fslenzku.
L«l( Erlkio* Dlicovcrcd Amðrlca, 1000 A.D,
<í
MBaaaB&a
I
ISLENZKT BLAD UT-
BREITT í KALIF0RNÍU
GB-Reykjavík, 25. okt.
„Félagsblaðið“ nefnist blað,
sem var að berast mér { hend-
ur. Einkennilegast við það
finnst mér, að blaðið, sem rit-
að er á ensku, skuli bera þetta
nafn, sem ég held að sé úti-
lokað, að enskumælandi menn
geti lesið úr heiti þess, en það
skiptir ekki höfuðmáli.
Lesendur Tímans rekur
máske minni til að hafa séð
ÆMdÆÉkM,
að í sumar er leið, birtist ein-
mitt stutt viðstl við stofnanda
þess og útgefanda, Guðnýju M.
Þorvaldson, sem hingað kom í
heimsókn með stóra hópnum
Vestur-íslendinga, sem var hér
á þjóðhátíðinni í sumar. Guð-
ný. sem er nærri áttræð að
aldri, er fædd og uppalin f fs-
lendingabyggðunum í Norður-
Dakota, en hefur verið búsett
í Los Angeles í mörg ár, ekkja
eftir Blöm Stigsson Þorvalds-
son, sem lézt fyrir sjö árum.
Blaðið ritar Guðný á ensku ekki
vegna þess, að hún ráði ekki
við íslenzkuna, því að hana tal-
ar hún og skrifar fullum fetum.
Heldur er ástæðan sú, þegar
hún hóf útgáfu blaðsins, ætlaði
hún, að fleiri gætu lesið það
en þeir, sem skilja íslenzku.
Þannig hefur blaðið náð tals-
verðri útbreiðslu i Kaliforníu.
í því birtast aðallega fréttir frá
mmmu^mmmmmmmmm
GOÐAR
HITA f
FB-Reykjavík, 25. október.
SÍÐUSTU dagana hefur ver-
18 unniS að því að bora eftir
heitu vatni á bakka Urriða-
vatns austur á Héraði. Holan
er nú orðin 40 metra djúp, og
hiti vatnsins hefur mælzt 22
stig.
Eins og skýrt var frá hér i
blaðinu var gerð tilraun með
að bora eftir heitu vatni úti í
Urriðavatni, 80 metra undan
landi. Þar var boruð 116 metra
HORFUR MEÐ
URRIÐAVATNI
djúp hola og reyndist vatnið,
sem úr. henni kom 59 stiga
heitt. Að því loknu var borinn
fluttur á land, og settur niður
sex metra frá vatnsbakkanum.
Holan á bakkanum er orðin
40 metra djúp, og þegar vatns
hitinn var mældur reyndist
hann vera 22 stig, en mæling-
in var gerð á meðan á borun-
inni stóð, svo vatnið mun vera
nokkuð heitara i raun og veru,
því köldu vatni er stöðugt dælt
niður í holuna til þess að kæla
borinn. Óvíst er, hversu djúpt
verður borað á þessum stað,
að þessu sinni.
í sambandi við hita vatnsins,
sem kom upp úr holunni á Urr-
iðavatnsbotni má geta þess, að
á Ólafsfirði er hitaveita, og
vatnið i henni er aðeins 53
stiga heitt, og að sögn Jóns
Jónssonar jarðfræðings, er því
ekki frágangssök að nota þetta
vatn til einhvers, þó að það sé
ekki heitara en þetta.
Vaktmaður bariim
KJ-Reykjavík, 25. okt.
Um miðnætti í nótt var ráðist á
vaktmann um borð í Reykjafossi
þar sem hann var við störf sín
um borð í skipinu sem liggur í
Reykjavíkurhöfn.
Guðmundur Guðmundsson heit-
ir maðurinn sem fyrir þessari
fruntalegu árás varð, til heimilis
að Barmahlíð 18.
Guðmundur var fluttur á Slysa-
varðstofuna til aðgerðar, og það-
an á sjúkrahús. Líðan hans var
eftir atvikum góð i dag, þrátt fyr-
ir illa útreið.
Rannsóknarlögreglan vinnur nú
að rannsókn málsins, og er einn
maður í gæzluvarðhaldi sem grun-
aður er um verknaðinn.
VIGTARMALIÐ TIL SAKSOKNARA
FB-Reykjavík, 25. okt.
Frumrannsókn er nú lokið í
öðru af tveimur undirvigtarmálun
um og hafa Saksóknara rík. borizt
gögnin í málinu frá Verðlagsdómi.
Er hér um að ræða fyrirtækið
Magnús Th. Blöndal h.f., Vonar-
stræti 4 i Reykjavík, sem kært hef
ur verið fyrir að vanvega vörur.
Lögreglurannsókn í máli áður,-
nefnds fyrirtækis hefur farið fram
í Verðlagsdómi, og fyrir nokkrum
dögum sendi Gunnlaugur Briem
dómari dómsins gögnin til saksókn
ara, en sagði i dag, að ekkert væri
Framhald á 15. sfðu.
8 vðtn mæld
HF-Reykjavík, 25. okt.
í sumar var dýpt átta vatna
mæld á vegum raforkumálaskrif-
stofunnar, en um framkvæmdir
sá Sigurjón Rist. Við þetta eru
nötaðar bergmálsmælingar og botn
vatnanna kortlagður.
Á Vesturlandi voru þessi þrjú
vötn mæld: Langavatn í Mýrar-
sýslu, mesta dýpi 37 metrar, Baul-
árvallavatn á Snæfellsnesi, dýpst
47 metrar, og Hraunsfjarðarvatn
á Snæfellsnesi, sem er dýpst 84
metrar. Fimm vötn voru mæld á
Norðurlandi, þ. e. Höfðavatn í
Skagafirði, dýpst 6 metrar, Ljósa-
vatn í Ljósavatnsskarði, dýpst 36
metrar, Eilífsvötn, i námundi við
Dettifoss, dýpst 14 metrar, Urriða
vatn á Fljótsdalshéraði, dýpst 11
metrar, og Öskjuvatn, sem er
dýpst 220 metrar, eins og Tíminn
hefur áður skýrt frá.
VERKFALI VERZLUNARMANNA
JK-Reykjavík, 25. okt.
Á hádegi í dag boðaði stjórn
Verzlunarmannaféiags Reykjavík-
ur verkfall frá og með mánudeg-
inum 4. nóvember, hafi ekki sam-
izt fyrir þann tíma. Sáttafundur-
inn, sem hófst i gærkveldi, stóð
fram til klukkan hálfþrjú, en ekki
náðist samkomulag. Annar fundur
hefur verið boðaður á mánudag-
inn kemur, réttri viku fyrir verk-
fall.
NIÐURSKURBURINN HAFINN
ar blaðið hafði tal af honum um
6 leytið í dag, var búið að slátra
hátt í 1000 fjár, en engin merki
höfðu enn fundizt um sýkingu.
Niðurskurðinum verður skipt á
milli hreppanna, svo að hann
komi jafnt niður. Verður Hörðu-
dalshreppur því síðast búinn, að-
eins helming fjárins slátrað nú,
en hinum helmingnum síðast.
KH-Reykjavík, 25. okt.
f gær hófst í Borgarnesi niður-
skurður á sauðfé úr Hörðudals-
hreppi, einum hinna þriggja
hreppa Dalasýslu, þar sem allt
sauðfé verður skorið niður í haust.
Guðmundur Gíslason, læknir á
Keldum, hefur með höndum yfir-
umsjón með rannsókn fjárins. Þeg
2 STÆRSTU KRANAR
VIO HÚFNINAI RIFI
HF-Reykjavfk, 25. okt.
Hafnarframkvæmdir eru nú
hafnar að Rifi á Hellissandi og
hafa tveir stærstu kranar Vitamála
stjórnarinnar verið fengnir að
láni, annar 100 tonna, sem notað-
ur er við uppgröftinn og hinn 60
tonna, sem notaður er til þess að
reka niður þilin Mánafoss hefur
nýlega komið til Hellissands með
tæp 400 tonn af stáli, en það verð
ur notað í þilin. sem klæða munu
svæði um 160 metrar að lengd.
Hafnargerðin hefur gengið vel
fram að þessu og ef allt fer að
óskum, er gert ráð fyrir að henni
verði lokið seinni hluta næsta árs.
Tvímenmngskeppni F.U.F í bridge
Tyrsta keppnin á vegum FUF i lega kl. fe 4llir áhugamenn um
Reykjavík r.efst með tvimennings hridge eru velkomnir. Þátttöku-
kcppni n k. mánudagskvöld í listi liggur trammi í Tjarnargötu
Tjainargötu 26 og hefst stundvis- 26, sími 1-55-64. . _ _s,