Tíminn - 23.11.1963, Síða 3
Þeir harma þennan atburð
Tíminn sneri sér til formanna stjórnmálaflokka landsins í kvöld og spurði þá hvað þeir vildu segja um hinn hörmulega atburð, er John F.
Kennedy, Bandaríkjaforseti, var myrtur í gær í Dallas í Texas í Bandaríkjunum. Svör þeirra fara hér á eftir. Einnig er birt hér samúðarskeyti
forseta íslands, er hann sendi Lyndon B. Johnson, forseta Bandaríkjanna í gær.
Ásgeir Ásgeirsson, sem staddur
er í London a3 lokinni opin-
berri heimsókn til Bretlands,
sendi í kvöld Lyndon B. John-
son, íorseta Bandaríkjanna,
samúðarkveðju vegna fráfalls
Kennedy Bandaríkjaforseta og
bað hann votta frú Kennedy og
bandarísku þjóðinni dýpstu
hluttekningu.
Guðmundur í. Guðmundsson,
utanrikisráðherra, sem er með
forsetanum, hefur einnig sent
Dean Rusk, utanríkisráðherra
Bandaríkjnnna, samúðarkveðju
vegna hins skyndilega fráfalls
Kennedy forseta.
BJARNI BENEDIKTSSON,
forsætisráðherra og formaður
Sjálfstæðisflokksins: Mér varð
vissulcga orðvant, þegar ég
heyrði um hið hryllilega og
hörmulega morð Kennedys
Bandaríkjaforseta, sem var
glæsimenni í blóma lífsins. Að
öllum líkindum mun hann
liljóta mesta frægð fyrir það,
sem senniiega hefur kostað
hann lífið, baráttuna fyrir jafn-
rétti svarira manna og hvítra.
Kennedy var mikill baráttu-
maður og mannasættari, enda
er hans saknað um alla heims-
byggðina, á fslandi ekki síður
en annars staðar í heiminum,
og íslenzka þjóðin sameinast
um að votta konu hans, fjöl-
skyldu og allri bandarísku þjóð-
inni innilcga samúð sína.
EYSTEINN JÓNSSÖN, for-
maður Framsóknarflokksins:
Þetta skelíilega morð er hræði-
legt áfall, ekki aðeins fyrir þá
nánustu og bandaríska þjóð,
heldur einnig fyrir allan heim-
inn, því að allir þeir, sem
stefna vilja að friði og framför-
um í sambúð manna, væntu
stórra afrcka af Kennedy for-
seta, enda hafði Iiann þegar
ótrúlega miklu góðu til Ieiðar
komið á stuttri starfsævi. —
Skjótt skipast veður í lofti, sem
nú má reyna, og ómögulegt að
sjá fyrir afleiðingar þessa
hörmulega reiðarslags. En við
verðum að vona að minningin
uin Kennedy forseta, sem lét
lífið í baráttunni fyrir mann-
réttindum og friðsamlegri sam-
Framhald á 15. síðu.
EMiL JONSSON, formaður
Alþýðuflokksins: Ég tel þetta
vera einn hinn hryggilegasta
atburð, sem mér hefur borizt
til eyrna i.m langt skeið. Sjálf-
sagt er það allra skoðun, að
Kennedy, Bandaríkjaforseti,
hafi verið með allra mestu
stjórnmálaniönnum, sem nú eru
uppi, og aö hann hafi haft full-
kominn skiíning á Iýðræðislegu
stjórnarfaii. Áreiðanlega hefur
hann gtrt mest til þess, allra
manna, að litað fólk og þjóðir,
hverjar sem þær voru, mættu
Iifa sem frjálsir menn og jafn
réttháir öðrum. Án þess nokkur
möguleiki sé á því fyrir mig
að dæma um þennan atburð,
mun hann eflaust standa í sam-
bandi við þessa afstöðu hans.
HANNIBAL VALDIMARSSON
formaður Alþýðubandalagsins:
Mér hefur aldrei komið nein
frétt meir á óvari en sú frétt
að Kennedy Bandaríkjaforseti
hafi verið myrtur. Ég er harmi
lostinn yfir þessum ógnarglæp,
sem framinn hefur verið. Og ég
óttast að þetta kunni að hafa
áhrif til hins verra um frið-
vænlegar horfur í heiminum.
En ég vona að maður komi í
manns stað, en það er styrkur
lýðræðisins að tryggja slíkt- —
Ég dáist að dirfsku Kennedys
Bandaríkiaforseta og pólitísku
hugrekki, sem mér fannst al-
veg sérstaklega koma fram í
viðhoríi hans til litaðra og of-
sóttra kynþátta.
FOLK GRÆTUR A GOTUM UTI
* FRÉTTARITARI Tímans í
St. Paul, Minnesota, Jón H.
Magnússon, hringdi um mið-
nætti og skýrði frá því, að þjóð-
arsorg ríkíi um gjörvöll Banda-
ríkin vegna morðs Kennedy
Bandarikjaforseta. — Útvarps-
stöðvar útvörpuðu einungis
sálmalögum og sorgartónlist, en
sjónvarpið sýndi stöðugt rás at-
burða 1 Dallas og Washington.
Öll starfsemi lagðist niður. —
Verzlunum var lokað, kvik-
myndasýningum aflýst og einn-
ig tónleikum, hnefaleikakeppn-
um og öllum mannþingum yfir-
Ieitt. Fólk stóð hnípið á götum
úti og víða sást fólk grátandi
Meðan stóð á sjónvarpssend-
ingum frá Dallas sást allt í einu
hvar maður hallaði sér upp að
umferðarskilti og grét. Og mörg
fleiri dæmi sjást um hina al-
geru þjóðarsorg, sem hér ríkir.
Öllum skólum var lokað þegar
fréttist uin morðið.
Skýrt hcfur verið frá því, að
Jackie Kennedy ætli sjálf að
segja börnum sínum lát Kenn-
edy föður þeirra, en hún kom
með flugvél til Andrews-flug-
vallar klukkan átta í kvöld eft-
ir ísl. tíma. Kom hún þangað
með flugvél forsetans, en lík
Kennedys forseta var einnig
flutt með vélinni. Með forseta-
frúnni voru Lyndon B. Johnson,
kona hans og Bobby Kennedy,
dómsmálaráðherra. Á Andrew-
1 velli til að taka á móti vélinni
voru hclztu leiðtogar þingsins,
ráðhenar þeir, sem voru í borg
inni en um eitt þúsund her-
menn stóðu heiðursvörð á vell-
inum. Þegar Lyndon B. John-
son steig út úr vélinni flutti
hann stutta ræðu, og sagði á
þá leið, að þetta væru sorgar-
tímar fyrir alla þjóðina og
erfiðleikastund í lífi sínu. Síðan
sagði hane orðrétt: „I will do
my best, that’s all I can do. I
ask for your help and God’s“.
Kennedy sltur f heiðursvagninum viS hliS Conaíly n’kisstjóra örfáum sekúndum áSur en skofiS re!3 af, grunlaus um atbu'-öi næstu sekúndna
Kista Kennedys var síðan
borin út i sjúkrabíl og fylgdi
Jackie Kcnnedy henni eftir og
settist hjá kistunni inni i bíln-
um. Hún bar sig stillilega en
var mjög föl og stríðir sorgar-
drættir á fríðu andliti hennar-
Kennedy verður lagður á lík-
börur í Hvíta húsinu í dag. —
Mun fjölskylda hans kveðia
hann par klukkan níu, eftir
bandarískum tíma, klukkan
ellefu munu ráðherrar ganga
fram hjá líkbörunum og klukk-
an eitt þingmenn og ýmsir að-
stoðarmenn hans, fulltrúar
flokkanna og sendimenn er-
lendra ríkja. Á sunnudag verð-
ur líkið flutt í sjálft þinghúsið,
en þar verður það fram til há-
degis á mánudag. Ákveðið hef-
ur verið að jarðarförin fari
fram í Boston.
T í M I N N, laugardaginn 23. nóvember 1963.
3