Alþýðublaðið - 09.04.1943, Qupperneq 3
*
íí'ösluéagur 9. aprfl X94f.
ALÞYMJBLADIÐ
I
-1
Baráttan við kafbátana.
•>
S
\
V
Á
$
s
s
<,
■S
s
‘S
\
\
5
A
s
s
*
s
\
s
$
\
\
s
s
s
s
s
s
V
s
s
s
s
s
s
V
s
s
s
Mynd þessi var tekin í vetur á Atlantshafinu, og sjást að baki
skipinu, sem er amerískt fylgdarherskip, miklar vatnssúlur,
sem myndazt hafa, þegar skipið varpaði djúpsprengjum að
þýzkum kafbátum, sem réðust á skipalestina, sem herskipið
var í fylgd með.
1. her Breta hefir nú hafið
sókn í Norðiu>Tunis.
Og er nú 50 km frá Tanisfeorg.
Hann hefir náð öllum þeim stöðvum,
sem áætiað var að ná í fyrstu lotu.
¥el heppnað gagnáhlaup
Rússa við Iyum.
London í gærkveldi.
RÚ^SAR hafa að undan-
förnu hrundið öll'um árás-
um Þjóðverja við Izyum, þar
sem Rússar hafa á valdi sínu
stöðvar á vesturbakka Donetz-
fljótsins.
í gær gerðu Rússar vel heppn
uðar gagnárásir á þessum slóð-
um og bættu mjög afstöðu sína.
3000 Þjóðverjar hafa fallið að
undanförnu í átökunum við Iz-
yum.
En ekki er búizt við að Þjóð-
verjar muni hætta á'rásum sín-
um á þessum vígstöðvum, því
rússneskir flugmenn hafa orðið
þess varir, að Þjóðverjar hafa
þar mikinn liðssafnað.
Á Kubanvígstöðvunum hrekja
Rússar Þjóðverja úr æ fleiri
stöðvum, þrátt fyrir mikla ó-
færð, því enn er mjög blautt um
á þessum vígstöðvum og verða
rússnesku hermennirnir oft og
tíðum að vaða vatnssvelginn
upp í mitti þegar þeir gera árás-
ir sínar.
Japanir missa 36 flug-
féiar við Guadalkaial.
JAPANIR misstu 36 flugvélar
í árásum, sem þeir reyndu
að gera á ameríksk skip í nánd
við Guadalkanal.
Bandaríkjamenn misstu að-
eins 7 flugvélar sjálfir.
Fluglið Bandaríkjamanna hef
ir haldið áfram loftárásum sín-
um á ýmsar stöðvar Japana á
Suðvestur-Kyrrahafinu og hafa
m. á. gert loftárásir á stöðvar
þeirra á St. Isabella-ey.
l'lí millj. hiusta á brezka
átvarpiö í Dýzkalandi.
fk LL-SNARPAR umræður
urðu í dag um stcuýsemi
brezka útvarpsins (B.B.C.).
Nokkrir þingmenn gagnrýndu
starfsemí þess.
Brendel Bracken forstjóri
þess, sem er þingmaður, varð
fyrir svörum og kvað brezka út-
varpið hafa verið eitt bezta
vopn Breta í stríðinu gegn mönd
ulveldunum. _ \
Hann kváð mikinn fjölda ,
fólks í hernumdu löndunum
hlusta á Evrópu-fréttasendingar
brezka útvarpsins. Fréttir, sem
lesnar væru í brezka útvarpinu,
væru að jafnaði komnar eftir 3
klukkustundir til íbúanna í her-
numdu löndunum. Hann kvað
ítölsku fréttasendingu brezka
útvarpsins hafa haft mikil áhrif
á ítalíu.
í Þýzkalandi sjálfu hlustaði
um IV2 milljón manns á þýzku
fréttasendingu brezka útvarps-
ins og væru fréttir þess ekki
meira en eina viku að berast um
allt Þýzkaland frá manni til
manns.
Bolivla segir möndolveld
nnnm strið ð hendnr.
LONDON í gærkv.
ÞING Boliviu í Suður-Ame-
ríku hefir samþykkt stríðs-
yfirlýsingu á hendur möndul-
veldunum og falið stjórn sinni
að gera nauðsynlegar hernaðar-
ráðstafanir í samræmi við þessa
stríðsyfirlýsingu.
New York. — Frá því um
síðustu áramót hafa Bandaríkja
menn lileypt af stokkunum alls
391 kaupskipi.
Ameríksk fljúgandi virki hafa
í s. 1. viku skotið niður 60 þýzk-
ar orrustuflugvélar í tveimur á-
rásum, sem þær gerðu á megin-
landið, á Renaultverksmiðjurn-
ar við París, er þær skutu niður
46, og hinar í árás á verksmiðj-
ur við Rotterdam.
Herlr Mositgomerys og Pattoos
reka flétta Rommels.
LONDON í gærkvöldi.
. HERINN brezki, sem er undir stjórn Andersons hers-
• höfðingja hóf sókn í morgun við veginn milli Beja og
Mejez el Bab og sótti fram í gær um 7 km.
í herstjórnartilkynningu Eisenhowers í dag segir að 1.
herinn hafi tekið allar þær stöðvar af Þjóðverjum, sem gert
var ráð fyrir að hann tæki í fyrstu lotu.
í fréttum fréttaritara segir að land sé mjög fjalllent, þar
sem 1. herinn sækir fram og sé sumstaðar ógerlegt að koma
við skriðdrekum eða öðrum vélknúnum farartækjum og
hafi 1. herinn m. a. notað múlasna til flutninga á þessum
slóðum þegar hann undirbjó árás sína.
í fréttum frá Algier í kvöld var sagt að 1. herinn brezki
væri nú aðeins 50 km fyrir vestan Tunisboorg og hefði hann
tekið all marga fanga í gær.
1. herinn sækir fram á 16
km. breiðri víglínu og veita
flugvélar Bandamanna honum
mikinn stuðning í sókninni með
loftárásum á andstæðingana.
8. OG 5. HERINN REKA
FLÓTTA ROMMELS
Eins og kunnugt er hefir 8.
her Montgomery’s og 5. her
Pattons náð saman. Gerðist
það kl. 3 í gær um 40 km. suð-
austur af Gafsa.
Reka nú þessir tveir herir
flótta Rommels norður sléttuna
í áttina til Sfax.
Margir fangar voru teknir í
gær. Afstaða Rommels er nú all
erfið, þar sem hann verður nú
að verjast á bersvæði við öflug-
ar hersveitir andstæðinganna,
og er ekki búizt við að hann
geti látið staðar numið að þessu
sinni fyrr en við Sousse.
Blöð í Bandaríkjunum ljúka
miklu lofsorði á 8. herinn
brezka og Montgomery herfor-
ingja hans og segja að Mont-
gomery og her. hans hafi ávalt
framkvæmt það verkefni, sem
honum hafi verið falið, og eru
blöðin nú mjög bjartsýn um
horfurnar í Tunis og segja að
brátt muni draga þar til úrslita.
250 FLUGVÉLAR Á 3 DÖGUM
Flugvélar Bandamanna voru
að venju athafnasamar í gær
bæði yfir vígstöðvunum og að
baki þeim. Loftárásir voru gerð-
ar á Napoli á ítalíu, Messina á
Sikiley og Sfax í Tunis.
Bandamenn eyðilögðu í gær
40 flugvélar fyrir möndulveld-
unum í Tunis og hafa þá á 3
undanförnum dögum eyðilagt
250 flugvélar fyrir möndulveld-
unum.
Melbourne. — MacArthur
hefir tilkynnt, að enn hafi verið
gerðar smá-árásir á stöðvar Jap-
ana við Lae á Nýju-Guineu.
Mun nú vera all illa komið fyrir
Japönum á þessum slóðum, þar
eð birgðir þeirrá eru nær gengn-
ar til þurrðar, en illa hefir þeim
gengið að koma skipum til Lae
vegna hinna hörðu árása flug-
véla bandamanna.
New York. — Normandie
verður komið á réttan kjöl í
sumar, sagði Knox flotamála-
Hitler og Musso-
lini á fundi í
Brennerskarði?
LONDON í gærkvöldi.
I ÓSTAÐFESTUM frétt-
* um frá Sviss er sagt að
þeir Hitler og Mussolini séu
lú á fundi í Brennerskarði.
Þykir þessi frétt ekki ósenni-
leg, þar sem vitað er að all
mikið hefur verið um að
rera hjá stjórnmálamönn-
um á Ítalíu nú að undan-
íörnu, þar sem ítalir telja
ng vera komna í fremstu
t'íglínu eftir að Bandamenn
liófu sókn sína í Túnis.
Kíuverskt herlið
DjáKað í iBdlandi.
London í gærkveldi.
KÍNVERSKT herlið er nú
þjálfað í Indlandi. Hlut-
verk þessa herliðs er að taka
þátt í sókn gegn Japönum.
í þessu sambandi er vakin at-
hygli á því, að hernaðaraðgerð-
ir Bandamanna að undanförnu
í Burma beri að líta frekar á
sem varnarbaráttu eða könnun-
arhernað áður en hafin verður
öflug sókn á hendur Japönum
þar.
Talið er að hinn kínverski
her, sem þjálfaður er í Indlandi,
eigi að taka þátt í hinni vænt-
anlegu sókn Bandamanna í
Burma.
Litlar breytingar hafa orðið á
vígstöðvunum í Burma. Japönsk
herdeild, sem tókst að sækja
nokkuð fram, var hrakin aftur
til fyrri stöðva sinna.
ráðherra í gær.
Eins og menn muna, kviknaði
í skipinu í fyrrasumar, en nú er
unnið af kappi að björgunar-
starfi.
Gordell floll boðið
til Bretlands.
London í gærkveldi.
JL' DEN utanríkisráðherra hélt
■"“** ræðu í brezka þinginu %
dag og minntist á ferð sína til
Bandaríkjanna og Kanada, sem
hann taldi þýðingarmestu ferð,
sem hann hafi nokkru sinni far-
ið í erindum Bretlands. Eden
upplýsti að hann hafi fyrir
hönd brezku stjómarinnar boð-
ið Cordell Hull utanríkisráð-
herra til Bretlands í sumar.
Eden sagði, að hann hefði
rætt bæði stjórnmál, hernaðar-
mál og friðarmálefnin við leið-
toga Bandaríkjanna óg hafi þeir
haft sömu sjónarmið í þeim
málefnum í öllum aðalatriðum.
Eden kvað fuílt samkomulag
hafa náðzt um afstöðu Breta og
Bandgríkjamanna til málefna
Frakka.
Eden gat um þann mikla þátt,
sem Kanada tæki í stríðinu með
Bretlandi og Bandamönnum.
Hersveitir frá Kanada eru ný-
komnar til Bretlands. Voru það
bæði stórskotalið og fótgöngu-
liðsdeildir.
„Aðalbækistöð" Hitlers
et ekki á anstnrvig-
stöðvnnm, heldnr I
Bercktesgaden.
LQNDON í gærkv.
SÆNSKA- blaðið „Göteborgs
Handéls- og Sjöfarts-
tidning segir, eftir rannsókn
á mynd, sém var tekin af þeim
Hitler og Boris Bulgaríukon-
ungi nýlega, að viðræður þeirra
hafi farið fram í Berchtesgaden,
en ekki í aðalbækistöð foringj-
ans á austurvígstöðvunum.
Brezka útvarpið bætir við
þessar upplýsingar sænska
blaðsins, að það sé margt sem
bendir til þess, að aðalbækistöð
Hitlers sé í Berchtesgaden, en
ekki á austurvígstöðvunum hjá
hinum þýzku hermönnum, þó að
Ilitler þykist ávallt dvelja á
austurvígstöðvunum og megi
engu öðru vera að sinna.
„Tigtis“-nýiastl skrið-
dreki Þjððverja.
1h| JÓÐVERJAR birtu í gær í
fyrsta. sinn lýsingu á hin-
um stóru skriðdrekum sínum,
sem þeir hafa gefið nafnið
„Tigris“ og hafa m. a. verið not-
aðir í Tunis.
Skriðdrekar þessir eru 7 m. á
lengd og 3 m. á breidd. Þeir geta
farið 100 km. fram og til baka
án þess að bæta á sig benzíni.
Þeir geta einnig flutt með sér,
ef á þarf að halda, 600 lítra af
benzíni. Aðalvopn þeirra er ein
stór fallbyssa, langhleypa, og
hafa þeir reynzt mjög hættuleg-
ir smærri skriðdrekum. Þá eru
þessir skriðdrekar sagðir svo vel
vopnaðir, að þeir geta farið
hindrunarlaust yfir jarð-
sprengju svæði sér að skaðlausu.