Alþýðublaðið - 09.04.1943, Síða 6
6
ALÞVÐUBL‘JMD
Fösiudagar 9. apríi 1943.
TILSÖLU
^ ,
V • \
$ Stórt steínhós og tveggja hæða timburhús við eina s
5 aðalgötu bæjarins. ;í steinhúsinu er laust húsnæði, •
^ mjög hentugt fyrir verzlun, veitingar Jog fl. Enn- $
S fremur mun rúmgóð 3ja herbergja íbúð losnaísum- s
§ ar. Nánari upplýsingar gefur. Gnðlaugur Þorláksson, $
^ Austurstræti 7. Sími 2002. $
Saumastfúlka
vöh í 1. ilokks karlmannavestasaum og önnur í
pressun og viðgerðir. geta fengið atvinnu nú þegar.
Hans Andersen,
Aðalstræti 12.
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
Sími 2783. $
s
HANNES Á HORNINU
HVAÐ SEGJA HIN BLÖÐIN?
Frh. af 5. síð<u.
araðgerðir hefði verið að ræða?
Ég hefi oft hugsað um þetta síð-
an landið var hernumið. Og ég er
viss um, að fólkið myndi ekki
geta sétið hjá með hjálp og að-
stoð, hvað sem hlutleysi líður, —
hlédrægni og vankunnáttú þess í
hérnaði. Tilfinningarnar myndu
reka það af stað, það myndi biðja
um að fá að hjálpa, það myndi
ekki draga sig í hlé, það myndi
gera málstað varnarliðsins að sín-
um. Þá myndi ekki vera staðið á
götuhornum og sagt: Það var eng
in nauðsyn að hernema landið.
Óvinimir hefðu aldrei komið.
ÍÞETTA VAR EG að hugsa um
í fyrrakvöld í bjarmanum og
steikjandi hitanum frá hinu
brennandi sjúkrahúsi. Þetta er
ægilegasti eldsvoði, sem ég hef
séð. Það var ekki mikið um reyk
■— heldur aðeins eitt skíðlogandi
eldhaf, sem gnæfði við himin —
og snjórinn bráðnaði á stóru
svæði allt um kring. Þessi atburð-
ur greip fólkið heljartökum. —
Þarna stóðu menn og konur í
þúsundatali náfölt með titrandi
varir, ekki að því er ég hygg
vegna þess, að þetta gamla sjúkra
hús var að brenna, heldur vegna
hins, að það þóttist vita, að þar
inni hefðu verið margir sjúkir
menn. Það var kvíðinn um örlög
þeirra, sem nísti hjörtun.
Fnh. af 4. afðu.
undar bónda fullgóða vistarveru
fyrir nemendur menntaskólans,
sem eru að mestu Grímsbæjarlýð-
ur, og úr því fjósið í Reykholti
forðum daga rann inn í skólann
hjá húsameistara ríkisins, þá hefði
honum og Jónasi ekki orðið skota-
skuld úr því að láta skólann renna
inn í fjósið í Skálholti. Hitt efuð-
ust góðgjarnir menn um, hvað
viljugur Pálmi hefði flutt þetta
frumvarp, en treysti því að það
næði adrei samþykki. Nú er Jón-
as enn kominn af stað, og nú á
að flytja skólann að Laugarvatni.
Næsta skref yrði að sameina skól-
ana þar, veita Pálma aðra stöðu og
gera Bjarna að rektor hinnar nýju
menntastofnunar.
En það er einn skóli, sem Fram-
sóknarmenn ráða yfir, og það er
Samvinnuskólinn. Hvers vegna er
hann ekki fluttur í sveit, t. d. að
Hriflu, sem nú er orðin opinber
eign? Þar gæti verið heimavist
með hollum áhrifum. Og ef flokk-
að núverandi skólastjóri skyldi
líka fluttur í sveit með skólanum,
þá yrði það frumvarp áreiðanlega
samþykkt af öllum þingheimi, að
einu atkvæði ef til vill undan-
urinn kæmi með frumvarp um það,
skildu.“
EG HEF verið beðinn að vekja
athygli fólks á því að aðeins verð
ur hægt að halda uppi reglunum
um verðlag, að almenningur að-
stoði verðlagseftirlitið. Þegar
fólk kaupir eitthvað í búðum, á
það að biðja um „nótur“ og ekki
síður, ef það fær iðnaðinn til að
búa eitthvað til fyrir sig. Eg
hygg, að þar hafi álagningin líka
verið taumlaus. Takið „nótur“ fyr
ir allt slíkt, sem þið kaupið, og
ef þið teljið, að varan sé seld
langt fyrir ofan leyfilegt verð, þá
skuluð þið fara með ,,nótuna“ til
verðlagseftirlitsins.
MÓÐIR SKRIFAR MÉR: „Þér
er ef til vill ekki kunnugt um
það, að ógemingur er að fá barna-
kerrur. Við erum alveg í vand-
ræðum með þetta. Einhverjir mögu
leikar munu vera á því að fá slík
ar kerrur smíðaðar, en þær eiga
að kosta 450 krónur. Þetta er svo
ægilegt verð, að engu tali tekur,
svívirðilegasta okur af allra verstu
tegund. Svo er mér sagt, að sömu
menn vilji fá barnavagnana upp í
kerrurnar, síðan dubba þeir upp á
vagnana og setja þá fyrir 800 kr.
Hvernig lýst þér á slíkan verzl-
unarmáta?“
MÉR LÝST ILLA Á HANN______________
Einhver þarf að kaupa svona
kerru, taka „nótu“ og afhenda
hana svo verðlagseftirlitinu. Það
þarf að taka í hnakkadrambið á
herrum, sem þannig nota sér neýð
almennings!
Hannes á horninu;
Avarp til Hafii'
firðinga.
ÞRÓTTASTARFSEMINNI í
Hafnarfirði hefir löngum
verið lítill gaumur gefinn, þar
til nú á síðasta ári, að hafnfirzk-
ir íþróttamenn unnu sína glæsi-
legu sigra, þrátt fyrir erfið
skilyrði. Þess vegna er ekki
hægt að sjá annað en að Hafn-
firðingar eigi marga góða og
efnilega íþróttamenn.
En til þess að hægt sé að
halda áfram á sömu braut og nú
er hafin, þá verður að bæta skil-
yrði hafnfirzkra íþróttamanna í
þessum málum, og eitt af því,
sem við teljum að fyrst þurfi
að gera, er að koma upp full-
komnu íþróttahúsi hér í bæ.
Knattspyrnufélagið „Hauk-
ar“ hefir nú hafið baráttu fyrir
þessu áhugamáli hafnfirzkra í-
þróttamanna og hefir ákveðið
að halda hlutaveltu n.k. sunnud.
til styrktar þessu málefni og
vonum við, góðir Hafnfirðingar,
að þið bregizt fljótt og vel við
og gefið á hlutaveltuna.
Munum verður veitt móttaka
í verzl. Sigurðar Árnasonar og
verzl. Gísla Gunnarssonar.
Munið, að margt smátt gerir
eitt stórt.
Hlutaveltunefndin.
Búbln um afa og ommn.
Frh. af 4. síðu.
dyrum.- Þilið milli herbergj-
anna þótti hin mesta gersemi;
var það bogamyndað af rennd-
um pílárum og hin vandaðasta
smíð á öllnm bænum. Ekki
kann ég að nefna smið þann,
sem þarna var að verki, en eitt
er víst, að það var hvorki Ól-
afur Högnason né heimamenn
hans. ,
Sigurði Péturssyni hefir víst
aldrei vei.tt af stofu sinni, þvi
að til hans leituðu jafnan gestir
þeir, er langt að voru komnir
og á góðum heina þurftu að
halda. í Nykhól var bæði
hægt að veita þeiin húsaskjól
og mat. Var jafnan nægur mat-
ur til í Nykhól. Mundi amma
mín aldrei eftir neinum skorti
meðan hún var ,.i foreldrahús-
um,“ eins og hún orðaði það.
Til dæmis um, hvað Nykhóls
heimilið hefur þótt ómyndar-
legt, eða hitt þó heldur, má geta
þess, að Árni Gíslason sýslumð-
ur valdi það til aðseturs, fyrst
þegar hann var settur sýslu-
maður í Skaftafellssýslu. Var
amma mín þá orðin stálpuð vel,
og mundi hún vel eftir honúm
og kunni margab vísur eftir
hann; taldi hún hann hafa ort
vísuna, sem Eyjólfur getur í
„A.fa og ömmu“: „Brennivín og
blþð úr sel, blandað saman í
Eýjarhólum, gestum síðan gef-
ið í skel; gleðilegt er það á jól-
um“. Var Árni gleðimaður mik-
ill og kaus hann heldur, að
mega sitja í baðstofu og rabba
við fólkið, heldur en gista í stof-
unni, sem hönum var þó ættluð.
Hefur Vilborg Jónsdóttir, þótt
kvenna færust um að ganga um
beina, þar sem tignir gestir áttu
í hlut, því hún var kvemia þrifn-
ust og háttprúð um alla hluti
eins og hún átti kyn til. Þótti
hún vist nokkuð skartgjörn, átti
uijög vönduð föt, og minntist
amma oft á kistu þá, er mamma
liennar eins og hún kallaði Vil-
Jjorgu, geymdi skart sitt í. Þótti
þess vegna mörgum furðu
gegna þegar Sigurði Péturssyni
varð það á að taka fram hjá
henni. með Salgerði Einarsdótt-
ur, sem þá var aðeins fátæk og
umkonuilaus vinnukona,, hafði
hún um tvítugs aldur gerzt
vinnukona í Nykhól, en fór það-
an burtu til foreldra sinna, sem
þá bjuggu í Álftagróf. Hinn 16.
nóvember 1845 skeði það, ð Sal-
gerður Einarsdóttir tók létta-
sótt. öllum óvörum, fæddi hún
þá sitt fyrsta barn, það var
stúlka, og kend Sigurði Péturs-
syni i Nykliól. Brá Vilborg við
skjótt og lét sækja barnið, var
það sldrt Gunnvör, eftir fóstru
Sigurðar. Gekk Vilborg henni
algjörlega í móðurstað og það
með þeim ágætum, að oft heyrði
ég ömmu mína segja þessi orð,
sem ég ætla að taka orðrétt eft-
ir henni: „Ég' elska beinin af
henni í gröfinni, því að hún
hefði ekki getað verið betri við
mig, þó hún hefði átt mig“.
En sjaldan er ein báran stök,
svo fór líka hér, því að 1849
fæðir Salgerður annað stúlku-
barn, var hún þá á Felli, hefur
að líkindum farið vimiukona
til séra Gísla, því hann mun
hafa komið að Felli um sama
leyti,,er Einar faðir Salgerðar
hætti búskap í Álftagróf, eða
um 1848.
Stúlka þessi var einnig kend
Sigurði og var hún nefnd Sig-
ríður eftir móður lians. Dvaldi
hún með móður sinni í 3 ár. en
þá lét Salgerður tilleiðast fyrir
þrábeiðni Vilborgar, að láta
einnig þessa dóttur sína af
hendi, ólst hún eftir það upp
með Gunnvöru systur sinni í
Nykhól, með liinum mestu dá-
leikum. Hafa þær systur verið
hin mesta híbýlaprýði, því þær
voru hinium beztu gáfum gædd-
ar og vænar og vel að sér um
alla hluti. Hefir þetta samstarf
hjónanna um uppeldi dætra
Sigriðar, eflaust orðið mjög til
þess, að treysta kærleiksbönd
þeirra hjóna, þótt að syrt hafi
að á tímabili.
Ekki er mér kunnugt um, að
}>au Sigurður og Salgerður eign-
uðust fleiri börn; heyrði ég
ömmu mína aldei minnast á
það. og tel ég hana þó hafa vit-
að það, sem öðruvisi var, en
það, hvað hún ætti mörg syst-
kini.
Eftir þessi erfiðu spor sin,
komst Salgerður ráðskoma til
Jóns Steinssonar i Hryggjum
og giftist honum 1861; var hún
þá 38 ára gömul. Af þessu má
sjá, að Salgerður hefir ekki ver-
ið eldri en 22 ára, þegar hún
fæddi ömmu mina, og í annan
stað er Salgerður ekki farin að
koma að Hryggjum. í þriðja lagi
er hún ung og óreynd stúlka,
þegar hún ratar í ástarraunir
sínar.
Gæti nú almenningur séð,
hve nákvæmar og sannar lýs-
ingar Eyjólfs eru af ástæðum
Salgerðar hið ytra.
Er nærri skapi að hugsa mér
Salgerði heldur kalda og fasta
i lund, kjarkmikla og greindar-
góða, hefur það mjög einkennt
föðurætt Salgerðar, það sem ég
þekki til; vár og Einar faðir
hennar orðlagður fyrir harð-
fengi og karlmennsku.
Veit ég gjörla að Sigurður
Pétursson var harla ólikur hálf-
vita þeim, sem Eyjólfur bregður
upp mynd af. Veit ég eftir sögu
ömmu minnar, að hann var
maður trúrækinn, gestrisinn og
gjafmildur, gat hann aldrei
aumt vitað og bar þeiin nokkuð
á milli. um það fóstra hans og
honum i uppvexti hans, þvi
Sigurður Sigurðsson var maður
féfastur.
Varla liefur það verið fyrir
tóma fólsku að Sigurður Pét-
ursson var kosinn lireppstjóri,
og hafði hann ýms smærri trún-
aðarmál á hendi. Formaður var
liarin líka og hélt skipi sínu út
við Dyrhólaey. Aldrei hefi
ég fyrr heyrt um það,
að Sigurður væri ofdrykkju-
maður, en jafnan átti hann
vín að veita gestum sínurri,
var alltaf keypt heilanker, sem
kallað var á lestum og átti það
að endast árið,' man ég ekki
eftir að ég heyrði ömmu nokk-
urntíma minnast á drykkju-
skap á Nykhólsheimilinu.
Fæ ég ekki séð að Eyólfur
geri ömmU sinni .nokkurn
greiða, með óhróðurs' sögum af
heimili systur hennar og
frænda. Er heldur alls elcki trú-
legt að Ingveldur hafi ekki
munað betur en þetta um hagi
Salgerðar, og mætti þá álykta
að fleira væri skolað af sögum
þessum. Kalla ég dr. Einari
Ólafi Sveinssyni mislagðar
hendur, þar sem hann getur
rakið sundur fornsagnir vorar,
og sagt okkur livað er rétt ag
hvað er rangt, að liann skuli
standa við útvarpið að halda
að almenningi márklausu kjaft-
æði og óhróðri um mæta menn
frá síðasta mannsaldri!
Reykjavík, 4. apríl 1943.
.. .... Anna frá Moldnúpi. .
Happdr^etti Háskólans.
í dag er síðasti söludagur í 2.
flokki. Dregið verður á morgun og
eru því síðustu forvöð að endur-
nýja í dag.
U4 kar.gullhringar s
s s
^ með ekta steinum fyrir döm- ^
S ur og herra, handunnir — S
S vandaðir. Fjölbreytt úrval. i
S Aðalbjörn Pétursson S
S gullsmiður S
^ TTA CT'f'Ív fV/ \ I 71 QO '
Nýkomið
Sandcrepe i mörg-
ura litum. Kápu-
og dragtaefni.
Unnur
(horni Grettisgötu og
Barónsstígs).
Cellnlose-lakk [
og pyniirlai i
komið. S
7*
snsi&ikui
Laugavegi 4.
I Vinnuföt
^ Samfestingar,
S Sloppar,
^ Jakkar,
S Buxur, (Amerískar),
^ Blússur (Dunlop)
S Skyrtur flestar atærðir.
WRZL.
Ameriskir
náttkjólar,
undirkjólar og
dúnhelt
léreff.
H. TOFT
SkólaiðrðnstÍD 5 Siml 1035
fillíi!
Fengum í gær
Amerísku
„VINYLITE11
svnntnrnar
gegnsæjar. — vatnsheld-
-im
ar margar gerðir og litir
Skímandi fallegar
Grettisgötu 57.