Alþýðublaðið - 01.06.1943, Side 6
6
ALÞYÐU8LA&IÐ
s
s
s
\
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
Tvær kvikmyrídastjörnur.
Myndin er af kvikmyndaleikkcmunni Frances Gilford og
chimpansanum Gheta, sem einnig hefir leikið í mörgum
kvikmyndum. Chipansanum þykir vera orðið dýrt að lifa og
er að leita ráða hjá Frances, hvernig hann geti fengið hækk-
uð laun sín. Francés fræðir hann hinsvegar á því, að búið
sé að banna allar launahækkanir. En chimpansinn neitar
því — þau lög gildi aðeins fyrir menn, en ekki fyrir apa!
Félagsmálalöggjöfin á íslandi
HANNES Á HORNINU
Frh. af 5. síðu.
dróttun, sem ég hefi séð í nokkru
blaði“.
„ERL. PÁLSSON ER LÖNGU
landskunnur, og sundmaður einn
hinn snjallasti, sem við íslending-
ar höfum átt. Samviskusemi hans
og dugnaðiú löggæslumálum er við
brugðið, og leitun mun vera á vin-
sælli baráttumanni fyrir útbreiðslu
sundsins hér á landi. Hinn 21. þ.
m. las ég það í blaðinu að daginn
áður hefði Sigríður Sigurjónsdótt
ir, verið skipuð Sundhallarfor-
stjóri með samhljóða atkvæðum í
bæjarstjórn, samkvæmt tillögu
borgarstjóra. Einnig er sagt frá
því að Erlingur hafi sótt um lausn
frá forstjórastarfinu, vegna áskor
ana frá lögreglunni um að hann
tæki sína fyrri stöðu sem yfirlög-
regluþjónn.“
„BÆJARRÁÐ mun ekki heldur
hafa viljað veita Erlingi lausn úr
lögreglunni, meðan á stríðinu stend
ur. Nú er mér spurn: Hvers vegna
tók bæjarráð umsókn hans gilda
um forstjórastarf Sundhallarinn-
ar? Hvers vegna þurfti hann að
hverfa að Sundhöllinni strax eftir
veitinguna, en núverandi forstjóri
þarf ekki að taka við fyr en að
hausti.“
„GAT ERLINGUR ekki fengið
að setja mann fyrir sig í starfið
um stundarsakir, eins og Sigríður
mun þegar hafa gert. Ég veit að
fjöldam'örgum bæjarbúum, finnst
þessi framkoma gagnvart Erlingi
Pálssyni ómakleg og þokukend.
Og að lokum: Hefði ekki verið rétt
ara að auglýsa forstjórastarfið laust
til umsóknar að nýju, eftir að for
ráðamenn bæjarins höfðu gert
Erlingi Pálssyni ókleift að starfa
þar áfram“.
ÞAÐ ER EKKI rétt að forráða-
menn bæjarins hafi gert Erlingi
Pálssyni ókleift að starfa í Sund-
höllinni. Hann sótti um starfið og
fékk það, sótti um lausn frá því
í nokkra daga og fékk hana. Það
hefir yfirleitt allt verið gert fyrir
Erling Pálsson, sem hann hefir beð
ið um, nema að gefa honum frí
svo að segja um leið og hann hef-
ir tekið við störfum um óákveðinn
tíma — eða þar til í stríðslok —
en enginn getur sagt um það, hvað
stríðið stendur lengi.
ÞAÐ EFAST engin um dugnað
og áhuga Erlings Pálssonar í starf
ihu. En hvers vegna lét hann und-
an beiðni lögreglunnar og dóms-
málaráðuneytisins. Hvernig hefðu
þessir aðilar farið að ef E. P.
hefði tekið upp á því furðulega
athæfi að setja upp tærnar? —
Erlingur átti að halda áfram að
vera Sundhallarforstjóri — en hann
réði hér öllu um sjálfur.
„HAFLIÐI ÁRNASON skrifar:
,,Það er gleðilegt fyrir okkur bæj
arbúa að yfirvöld bæjarins hafa
sýnt þá rögg af sér að setja upp
ruslakörfur víðsvegar í miðbæn-
um til þrifa fyrir vegfarendur
þetta er nú gott og blessað. En mér
finnst að bæjaryfirvöldin hefðu
átt að ganga á undan með góðu for
dæmi með allt hreinlæti, saman-
ber allt hreinlæti í kringum loft-
varnabyrgin og sérstaklega í kring
um byrgin á Lækjartorgi, þar ligg
ur í kös fleiri bílhlöss af sandpok
um, pappírsrusli og lausum sandi,
þessi byrgi og það sem í kringum
þau eru, er ein af heilsulyndun-
um, sem blessuð bæjarstjórnin
skaffar okkur bæjarbúum sem
kvittun fyrir sköttum okkar, heill
sé henni í framtíðinni“.
HEIBRIGÐIS- OG HREINLÆT-
HEILBRIGÐIS- og HREINLÆT-
sinnna — og þetta er eitt af því.
Annars býst ég ekki við að þessi
sandpokabyrgi verði til þess að
auka hreinlætið í bænum — eða
bæta siðferðið.
AÐ MINNSTA KOSTI er mér
tjéð að ,,ástandið“ hafi leitað at-
hvarfs í byrgjunum — og má þá
segja að'við séum búin að fá „op-
inber hús“.
Hannes á horninu.
Hjónaband.
í dag verða gefin saman. í
hjónaband ungfrú Kristín Kjart-
ansdóttir, Brávallagötu 50, Og
Guðmundur Jónsson, Hringbraut
150. Þau fara vestur til Bíldudals
í kvöld, og verður heimili þeirra
Frh. af 4. síðu.
hefir þriggja til fimm manna
stjórn, og skipar1 ráðherra for-
mann og varaformann eftir til-
lögum tryggingarráðs, en hlut-
aðeigandi bæjar- eða sveitar-
stjórn kýs tvo eða fjóra menn
og jafnmarga varamenn. —
Samlögin eru háð yfirstjórn
Tryggingarstofnunar ríkisins.
Áður en hinar lögboðnu
sjúkratryggingar komu til sög-
unnar, var einungis lítill hluti
þjóðarinnar sjúkratryggður, en
nú er um helmingur lands-
manna sjúkratryggður. Rétt-
indi í sjúkrasamlögunum hafa
þeir, sem ekki hafa yfir 4500
króna skattskyldar tekjur á
ári En samkvæmt undanþágu,
er veitt var árið 1937, geta
sjúkrasamlögin veitt þeim, er
hærri tekjur hafa, réttindi gegn
.tvöföldu iðgjaldi.
Lögin um ellitryggingu eru
að því leyti fullkomnari en
bæði slysa- og sjúkratrygging-
arlögin, að til þess er ætlazt, að
þau nái til svo að segja allra
íslenzkra ríkisborgara. En lög
þessi koma í raun og veru ekki
til framkvæmda fyrr en eftir
allmörg ár, vegna þess að hin
eiginlega elli- og örorkutrygg-
ihg, sem lögin gera ráð fyrir,
kemur ekki til framkvæmda
j fyrr en safnazt hefir nokkurt
fé í Lífeyrissjóð íslands, sem
stofnaður var er lögin voru
sett, en tekjur þess sjóðs eru
iðgjöld hinna tryggðu. Þegar
sjóður þessi tekur til starfa, er
hlutverki hinna gömlu elli-
styrktarsjóða lokið, og renna
þeir þá inn í hann.
Svo er til ætlast, að til greina
komi við úthlutun ellilífeyris
úr Lífeyrissjóði íslands öll
gamalmenni 67 ára og eldri og
1 gamalmenni á aldrinum 60 til
67 ára, sem áður höfðu fengið
ellistyrk, , samkvæmt eldri lög-
um, en samkvæmt hinum eldri
lögum um ellistyrk var aldurs-
takmarkið 60 ár.
Öryrkjar á aldrinum 16 til
67 ára koma til greina við út-
hlutun örorkubóta úr Lífeyris-
sjóði íslands.
Úthlutun ellilauna og örorku-
bóta er í höndum sveitarstjórna
en ekki Tryggingarstofnunar
ríkisins, enda kemur hluti af *
SÆNSKUIl knattspyrnu- I
þjálfari kemur hingað \
til lands í ágústmánuði. Hann
er ráðinn hingað af knatt-
spyrnuráði Reykjavíkur, að-
allega til þess að kenna ís-
lenzkum knattspyrnuþjálfur-
um.
Að öðru leyti er óákveðið
um störf hans.
Knattspymuþjálfarinn heit-
ir Per Hánell, en engar upp-
lýsingar eru enn fyrir hendi
um hann, eða störf hans, í
sænsku íþróttalífi. Má þó fylli-
lega gera ráð fyrir því, að
mjög vel hæfur maður hafi ver
ið valinn til þessarar íslands-
ferðar af sænskum íþrótta-
mönnum og stjómarvöldum.
í samsæti, sem haldið var í
vetur að afloknu þingi knatt-
■ spyrnumanna var samþykkt til
fé því, sem úthlutað er, beint
frá sveitarsjóðunum.
Lögin um atvinnuleysistrygg
ingar eru ennþá dauður bók-
stafur, því að enginn atvinnu-
leysissjóður var stofnaður sam-
kvæmt þeim. Stéttarfélög eiga
samkvæmt lögum þessum rétt
á að fá staðfestingu ráðherra á
atvinnuleysissjóðum er þau
kunna að stofna, og er gert ráð
fyrir, að sveitarfélög og ríki
veiti nokkurt fé til þeirra.
Enda þótt lög þessi séu stqr-
felldasta framför í sögu ís-
lenzkrar félagsmálaþróunar, er
þeim enn þá harla ábótavant.
Stafa gallarnir að nokkru leyti
af vanefnum þjóðarinnar, en að
miklu leyti af skilningsleysi á
gildi slíkra laga Löggjöf þessi
er til orðin fyrir tilstilli Al-
þýðuflokksins, sem árið 1934
komst í þá aðstöðu á þingi, að
geta knúð Framsóknarflokkinn
til að samþykkja þau, með því
að gera það að skilyrði fyrir
samvinnu við hann um stjórn-
armyndun. iFramsaknarflokk-
urinn vildi þó ganga miklu
skemmra í mörgum mikilvæg-
um atriðum en Alþýðuflokkur-
inn gerði sig ánægðan með, og
urðu lögin því eins konar mála-
miðlun milli sjónarmiða þessara
stjórnmálaflokka. Hefir Al-
þýðuflokkurinn getað fetað sig
lengra áfram síðan í áttina til
umbóta á lögunum, og virðist
því í þessu efni ætla ,að fara
fyrir Framsóknarflokknum
eins og þeim, er réttir djöflin-
um litla fingurinn, að hann nái
brátt allri hendinni, því að
sjónarmið Alþýðuflokksins virð
ist vera að sigra, sem heldur
ekki er furða, því að gagnsemi
laganna verður mönnum ljósari
með hverju árinu sem líður og
reynslan sýnir, að höfuðgall-
arnir á lögunum stafa af því,
að vilji Alþýðflokksins náði
ekki nema að nokkru leyti
fram að ganga, þá er lögin voru
samin. Haraldur Guðmundsson,
þáverandi ráðherra, núverandi
forstjóri alþýðutrygginganna,
hefir allra manna rnest unnið
að setningu og framkvæmd þess
ara merkilegu laga, sem á því
sviði skipar okkur íslendingum
í flokk með mestu menningar-
þjóðum heimsins.
(Niðurlag greinarinnar birt-
ist í blaðinu á morgun.)
laga um að gera tilraun til að
fá hingað sænskan knatt-
spymuþjálfara, enda mun ó-
kleift að fá menn frá öðrum
þjóðum til þessara starfa — og
lítt mögulegt einnig frá Sví-
þjóð.
Knattspyrnumenn snéru sér
strax til Otto Johansen sendi-
fulltrúa Svía hér og báðu um
aðstoð hans, sem hann var al-
búinn að veita, enda er það
fyrir hans atbeina að maður-
inn hefir nú fengizt.
Það hefir mikla þýðingu
fyrir íslenzkt íþróttalíf að fá
erlenda, þaulæfða kennara, og
þekkjum við það bezt af þeim
árangri, sem hér hefir fengizt
af kennslu enskra og þýzkra
knattspyrnuþjálfara, sem ein-
stök íþróttafélög hafa fengið.
Það er aðeins verst að þessi
fyrsti sænski knattspyrnu-
þjálfari kemur ekki hingað fyr
en svo síðla sumars.
Sænsknr knattspyrnapjálf-
ari kemnr hinpað i snmar.
-----«. ....
AOalverkefnl hans verönr aO
kenna íslenzkum pjáfifurum.
Þriðjudagur 1. júní 1943.
„SÚðÍH“
í strandferð vestur og norður
til Þórshafnar næstk. föstudag
4. þ. m.
Vörumóttaka á hafnir milli
Sauðárkróks og Þórshafnar, að
undanskildu Akureyri og Siglu-
firði, í dag (þriðjudag) og á
Húnaflóahafnir fyrir hádegi á
morgun (miðvikudag).
Pantaðir farseðlar sækist sem
fyrst og í síðasta lagi fyrir
annað kvöld.
HVAÐ SEGJA HIN BLÖÐIN ?
(Frh. af 4. síðu.)
að kostnaðurinn var kominn tals-
vert fram úr áætlun á þessum
þrem áætlunarliðum.
Hilmar Finsen, sein þá var lands
höfðingi, var sparsamur á landsfé
og vildi ekki vamm sitt vita, fær
nú talið Baldt, byggingarmeistara
á það, að lækka grunnmúr húss-
ins og þar með alla framhlið
þess um 1,0 til 1,5 metra og
minnka þar með halla þann, sem
þegar var orðin á áætluninni.
Þegar Medahl frétti þetta, mun
honum hafa þótt mjög miður og
um of brugðið af sínu ráði og
þar með útliti hússins spillt,' svq
sagt er að hann hafi neitað Baldt
um viðtal, þegar hann að loknu
verki kom til Kaupmannahafnar.“
Loks stingur greinarhöfnd-
urinn upp á því, að ráðhúsið
verði reist á svæðinu milli
Hverfisgötu og framlengingar
Lindargötu austan við Lækjar
torg, með framhlið móti torg-
inu til vesturs.
Hatvæ!aráistelBa> í
Hot Spriogs.
Hot Springs, Virginia.
jP RÉTTARITARI „New York
Times“, Russel B. Porter,
skrifar blaði sínu héðan, að
matvæla- og landbúnaðarráð-
stefnan, sem nú er haldin hér,
hafi sérstakt gildi sem tilraun
í þá átt að koma á samstarfi
meðal þjóðanna um fram-
leiðslumál, og velti því nokkuð
á því hvernig hún tekst. Ef hún
reynist árangursrík, megi
vænta þess að samstarfið verði
áframhaldandi.
Meðal þeirra mála, sem bíða
lausnar, eru verðfesting gjald-
eyris, yfirfærsla gjaldeyris, al-
þjóðleg verzlun með skulda-
bréf og frjáls verzlun.
Ráðstefna þessi fjallar ekki
eingöngu um matvæli, heldur
um allar þær landbúnaðaraf-
urðir, sem nýttar eru til þess
að sjá rnannkyninu fyrir fæði,
klæðum og jafnvel húsnæði.
Milljónir manna skortir nú
mat, fatnað og húsaskjól í
löndum þar sem styrjöldin geis
ar eða hernumin eru. Það er
ekki hlutverk þessarar ráð-
stefnu að ræða hvernig veita
skuli þeim hjálp þegar dagur
lausnarinnar rennur upp. Það
er hlutverk nefndar þeirrar, er
Lehmann ríkisstjóri veitir for-
stöðu. Hlutverk Hot Springs
ráðstefnunnar er að komast að
niðurstöðu um hvemig skipu-
leggja skuli framleiðslustarfið
um gjörvallan hei mtil þess að
hægt sé að koma í veg fyrir aS
sumir þurfi að lfða hungur þótt
aðrir séu ofmettir.