Alþýðublaðið - 16.06.1943, Page 8

Alþýðublaðið - 16.06.1943, Page 8
8 ALÞYÐUBL'*>IÐ Miðvikudagur 16. júní 1943. CkdémM os) líotta hatsA ' efbriudwig Leuisohjb. ■TJARNARBlðB Elisabet «g Essex (The Private Lives of Elizabeth and Essex). Amerísk stórmynd í eðli- legum litum um ástir Elísa- Ibetar Englandsdrotningar og Jarlsins af Essex. Bette Davis Errol Flynn Olivia de Havilland. Sýnd kl. 5, 7 og 9.. W TROSIÐ OG GÁFURNAR. ERÐAMAÐUR kom í sjáv- arþorp og spurði prestinn það á hvaða fæðutegundum þorpsbúar lifðu aðallega. „Mest er það nú fiskur,“ svaraði prestur. „Nú, en ég hélt, að menn yrðu gáfaðir á því, að borða fisk, . en . hér er . heimskasta fólk, sem ég hefi komizt í kynni við“ sagði ferðamaðurinn. „0-já,“ sagði klerkur, „en hvernig heldurðu þá, að það væri, ef það hefði aldrei borð- að fisk!“ BÓNDI nokkur átti hryssu, er hann kalldði Stjörnu. Eitt sinn hvarf hún karli og fannst hvergi, hvernig sem hennar var leitað. Næsta jóladag eftir hvarf hryssunnar fór bóndi til kirkju. Þegar hann kemur heim frá messu, er hann hinn glaðasti og segir við konu sína, að nú haii hann loksins frétt til Stjör <u sinnar. „Presturinn lýsti því yfir í dag á stólnum, að stjarna hafi sézt í austurvegi, og það getur ekki önnur verið en hún Stjarna mín.“ (Gráskinna). * * * ESSI saga gerðist á þeim góðu, gömlu dögum, þég- ar húseigendur vildu um fram allt hálda fólki í íbúðum sín- um og klippingarnar voru miklu ódýrari. Leigjandinn kom til húseig- andans og fór að bera fram kvartanir sínar: „Það er svo mikíll dragsúg- ur í íbúðinni, að hárið á manni aflagast, þegar maður situr inni, þótt allir gluggar og dyr séu lokaðir. Getið þér ekki gert neitt við þessu?“ „Jú, ég er nú hræddur um mig um, að Harry Vilas dæi? Óskaði ég þess, að þetta kæmi fyrir veslings barnið mitt? Dæmalaust kvikindi geturðu verið! Hann leit undan. Hann vissi ekki, hvað til bragðs skyldi taka. Var það satt. að í raun og veru væri hann eigingjarn og ruddafenginn maður? Gátu ekki þessi þungu örlög gert hvern sem var kalinn á hjarta? Hann lagði helmingi fastar að sér en áður og gerði það «em hann gat. Hann meira að segja fór með Önnu til geðveikrahælis- ins, til þess að heimsækja barn- ið með litla nefið, en stóra ennið. Lúella var náföl í and- liti. og augun í henni voru eins og í hræddri kanínu. Sjáöldrin voru eins og tveir örlitlir depl- ar. Hún var í grófgerðri bað- kápu, sem hafði að hálfu leyti runnið út af grönnum öxlunum. Hún fleygði matnum sínum í vegginn og raulaði einhverja rímleysu. Anna reyndi að tala Við hana. eins og talað er við lítið barn eða eftirlætishúsdýr. Lúella flýði út í horn herberg- isins, hnipraði sig þar saman og glotti ánalega framan í þau. Herbert fann, að nú var al- veg komið að takmörkum þess, sem hann þoldi. Veröld hans var í rústum, og sál hans einsk- is virði. Anna talaði ekki um annað en Lúellu. Skyldi hún nokkurn tíma verða heilbrigð aftur, og hvað átti að gera? Tíminn stóð kyrr. Þessi geð- veika stúlkukind fyllti út alla veröldina. Herbert flýði til Joffe og trúði honum fyrir raunum sínum. — Taktu þér ferð á hendur til Evrópu! Herbert hristi höfuðið. — Ég get ekki farið frá Önnu í öllum raunum hennar. Það væri níðingslega gert. Joffe kinkaði kolli. — Mjög heiðarlega hugsað, en afar heimskulega. Erí það er ekki mín sök. Ef til vill getur þetta orðið þér til hjálpar. í Central City í Ohio er fram- sagnar- og tónlistarskóli, sem vantar kennara í söngfræði og byggingu tónverka. Launin eru tvö þúsund dalir á ári. og starf- ið er létt. Ég á bróður í Ohio, og þeir snéru sér til hans. Þeir vilja fá Ameríkumann, háskóla- genginn með blettlausa fortíð. og þar eð níu tíundu nemend- anna eru ungar stúlkur. vilja þeir, að hann sé kvæntur. Þú uppfyllir öll þessi skilyrði. — Hvað segirðu um þetta? spurði Joffe og hló. Herbert hugsaði sig um. það!“ Svo dró hann upp pyngj una sína: „Gerið þér svo vel, þarna hafið þér 1 kr. 65 aura til að láta lclippa yður fyrir!“ — Er ódýrt að lifa þar? — Já, mjög ódýrt. — Hvað finnst þér um þetta, Nat? — Ég myndi taka því í þín- um sporum. Þar geturðu samið tónverk eftir því sem frístundir leyfa. Samkvæmt minni skoðun er sennilegast að þú vinnir frægð smám saman með því að gefa nógu mikið út. Eins og stendur eyðirðu bara tíma. Herbert var honum sammála. Joffe símaði til Ohio. Eftir tíu daga kom svarið. Herbert átti að taka við störfum- í október. Anna hlustaði naumast á hann. Lúella var betri til heilsunnar. Henni var sama, hvar hún bjó. Aðalatriðið var, að Lúellu batn- aði. Hún mótmælti ekki, þegar hann sagðist þurfa að fara til Queenshaven og heimsækja for- eldra sína, sem hann hafði ekki séð í þrjú ár, áður en hann tæki við starfinu í Ohio, en samt gat hún ekki neitað sér um að segja: — Það var þér líkt að yfir- gefa mig, þegar ég þurfti þín mest við. En reyndar fólst eng- in alvara á bak við þessi orð. Hún las samninginn, sem hann hafði gert við skólanefndina, tók alla þá peninga. sem Her- bert gat við sig losað, og það varð að samkomulagi. að hún kæmi tíu vikum seinna til Ohio, ef Lúella yrði betri. Þegar Herbert var kominn inn í járnbrautarvagninn, fannst honum hann vera allur annar maður, eins og hann væri ný- stiginn upp úr löngum og kvala- fullum veikindum. Þao var styrkjandi að vera einn og dá- samleg ró yfir honum. En hve trén voru græn og himininn blár! En hve honum fannst maturinn mikið betri á bragðið, og líkami hans ungur og sterk- ur! Hvílíkur heimskingi hafði hann ekki verið, að vera búinn að missa alla von! Vissulega hafði lífið enn þá mikið að bjóða, og en hve guð var góður, eins og afi hans var vanur að segja. Bráðum myndi hann fá að þrýsta hönd föður síns, finna kossa móður sinnar og hlusta á öldugjálfrið við klett- ana í víkinni. FIMMTÁ BÓK Kroníka. I. í byrjun septembermánaðar 1911 fór Herbert Crump frá Qúeenshaven, til þess að setj- ast að í Central City í Ohio. Margvíslegar kenndir og til- finningar vöknuðu hjá honum við þetta atvik í lífi hans. Hann hafði ekki verið heima hjá sér í þrjú ár, en gert ráð fyrir, að lífið hefði tekið væg- um höndum á foreldrum hans þessi þrjú ár. Fyrsta kvöldið, sem hann var heima, var hann B NÝJA BIÖ S ■ GAMLA BIÖ B Söngvaeyjan (Song of The Islands) RMd hjartans (Hold Back the Dawn) Amerísk stórmynd Söngvamynd í eðlilegum Charles Boyer Oliviade Havilland litum. Paulette Goddard Betty Grable Kl. 3V>—6V2: Victor Mature KÆNINGJARNIR Jack Oakie með Willia mBoyd. *" Bönnuð fyrir börn innan 5, 7 og 9. 16 ára. heldur ekki var við annað, en að móðirin var ofurlíttið hærð- ari og faðirinn dálítið meira sköllóttur en þegar hann fór. En smásaman varð hann þess var, að faðir hans var orðinn uppstökkur, og móðir hans angursöm. Ennfremur fór það ekki fram hjá honum, að þau hittu naumast framar kunn- ingja þeirra, fóru aldrei út og sátu oft þögul, eins og þau byggju yfir einhverju. Dag nokkurn, þegar Herbert var að gamna sér við föður sinn vegna þess, hve strangur hann var í tónlistargagnrýni sinni, sneri móðir hans sér að honum bros- andi og sagði: -— Þú ert nákvæmlega eins og þú varst, en svo áttaði hún sig, brosið hvarf af vörum hennar, og hún hélt áfrom: — En að hvaða gagni kemur það- okkur? Þú heyrir öðrum til. — Þei, þei, Meta, sagði fað- ir hans og hnyklaði brúnirnar. — En mamma, sagði Herbert. — fEg tilheyri engum. Engum. Og það, að ,ég hefi ekki komið heim svona lengi, stafar ein- göngu af því, að ég hefi ekki haft efni á að ferðast. En nú aukast tekjur mínar og þá skal ég láta verða skemmra á milli heimsókna. Og þú verður líka að koma til Central City. — Já, ég skal koma til Cent- HELMRSTÖKKIÐ ' samt fór það ekki svo, að Jói renpdi grun í hið sanna í málinu, — að Torzó hefði haft skipti á kökunum og ávöxt- unum. ,.Þetta er skrýtið. Einhver hefur tekið eplin úr pokan- um og sett kökur í staðinn," sagði hann, vandræðalegur á svipinn „Torzó! Það er áreiðanlegt, að við eigum óvini, sem vilja fyrir alla muni draga úr líkamsþrótti þínum. Veiztu, hvað ég ætla að gera við kökumar ? Eg ætla að henda þeim. Það er bezta meðferð, sem þær eiga skilið.“ Að svo mæltu hóf hann pokann á loft og þeytti honum út yfir gjárbarminn. Hann hafði krafta í kögglum og henti miklu lengra en hann varði. Pokinn fór alls ekki í ána, eins og til var ætlazt, heldur sveif hann yfir gljúfrið og féll niður rúma alin frá bakkanum hinum megin. „Allar farnar!“ sagði Torzó bljúgur og hristi höfuðið. „Já, fari þær' vel,“ sagði Feiti Jói glaðklakkalegur. „Og ef einhvern langar í kökurnar, þá verður hann að stökkva yfir gljúfrið eins og sjómaðurinn gerði.“ Feiti Jói bjóst til að fara, en Torzó staldraði við. „Fær sá kökurnar, sem stekkur yfir?“ spurði hanri. „Já, hann er vel að þeim kominn,“ sagði Jói hlæjandi. í sama mund heyrðist hávaði ekki langt í burtu. Stór bíll kom þjótandi eftir veginum. Fjórir menn, háværir og óðamála, stigu út úr honum. „Líttu nú á, Torzó“, sagði Feiti Jói og horfði rannsak- andi á komumennina „Sjáðu, hver kominn er. Eysteinn Örn, langstökkskappinn víðfrægi. Það er eitthvað meira en lítið á seyði. í fylgd með honum er blaðamaður, Vilmúndur MYNDA- SAG A. j §)COO.CCy l.EACn* -N ; THAT THENAiS. - j INTSND TC' ma<e U'SE OF HIS BCVNBEÍ2 | ,..|V' A BUCPís>SE * , MCVE. HE CST% TO AN ! AUTOMATlC C'iFLE ANP FlCiC THCOUCH r>-iB VVINPOV OF TODT'B OFFCE AT A CASOLINS TCUCK VvHICH IS REFUEUNC THS PLANg . . . Örn sér að nazistarnir ætla sér að nota flugvél hans . . . hann reynir að hindra það og tekst að ná í hríðskotabyssu og kveikja í benzínbifreið, sem verið að dæla benzíni úr í flugvélina . . . En meðan Örn lætur skothríð- ina dynja á bifreiðina, þá raknar Fodt úr rotinu og þrífur skamm- byssu sína og skýtur á Örn. .

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.