Alþýðublaðið - 11.08.1943, Blaðsíða 2
I
Miðvikudagur 11. ágúst 1943.
ALÞYÐUBLA0IÐ
Þýzkir flug-
menn fangar
hér á landi.
Þjöðhátíðfn endaðl hðrmulega:
menn deyja at áfengiseitrun
þjóðhátiðina í V estmannaeyjum.
Vélbátnr úr EjrJam fann tunnu með
hlnnm eltraða vðkva og flnttl til Ejrja.
Nokkrir menn liggja mjog þungt haldnir.
ATTA MENN hafa látizt í Vestmannaeyjum af áfengis-
eitrun. Þeir höfðu drukkið einhvern áfengisvökva,
sem fluttur hafði verið til Vestmannaeyja, en fundizt hafði
í tunnu á floti út á fiskimiðum Eyjabáta.
Allmargir menn liggja sjúkir í sjúkrahúsi Vestmanna-
eyja, en aðrir liggja enn á heimilum sínum. Margir menn
voru allþungt haldnir þegar Alþýðublaðið hafði samband
við Vestmannaeyjar seint í gærkveldi og var þá tvísýnt um
líf sumra þeirra.
Meðal þessara átta manna var ein kona, gift kona í
Vestmannaeyj urn, og einn Reykvíkingur, verkamaður við
Þingmaður, sem
kjósendur vilja ekki
hlusta á!
Sigurður í Vigur á yfir-
reið um kjördæmi sift
Photo by U.S. Army Signal Corps.
Þegar ameríkskar orustuflugvélar skutu þýzka Focke-Wulf könn-
unarflugvél niður við Norðurland í síðastliðinni viku, bjargaði
áhöfn flugvélarinnar, 7 manns, sér á gúmmíbát. Brezkt varðskip
fór á vettvang og bjargaði flugmönnunum. Þeir voru fluttir til
aðalstöðva hersins hér, en þar voru þessar myndir teknar. Efri
myndin sýnir fangana 7, en einn þeirra liggur rúmfastur og ann-
ar er meiddur á fæti. Neðri myndin sýnir fimm af
Þjóðverjunum matast.
U. S. Axmy Signal Corps.
hafnarhúsið hér
Þeir, sem voru látnir, er Alþýðublaðið talaði við frétta-
ritara sinn í Vestmannaeyjum seint í gærkveldi, voru þessir:
Daníel Loftsson, verkamaður, Kirkjuvegi í Vestmannaeyjum.
Þorlákur Sverrisson, aldraður kaupm.. Hofi, Vestm.eyjum.
Jón Gestsson, smiður og verkstjóri, Heimag., Vestm.eyjum.
Guðmundur Guðmundsson, Eyri, Vestmannaeyjum.
Yngvi Sveinbjörnsson, Vestmannaeyjum.
Ámý Guðjónsdóttir, frá, Sandfelli, Vestmannaeyjum.
Þórarinn Bernódusson, vélstjóri, Stakagerð, Vestm.eyjum.
Sveinjón Ingvarsson, starfsmaður við Hafnarhúsið, Hring-
braut 146, Reykjavík.
Fjórir af þessum mönnum létust á mánudag og aðfaranótt
Jðn Bjartar meistari
í fimmtarþraot.
TC» IMMTARÞRAUT Meistara
*- mótsins fór fram í gær-
kveldi og voru 4 þátttakendur,
2 frá KR og 2 frá Ármanni.
Nokkur keppni varð á milli
Jóns Hjartar úr KR og Sig.
Norðdahl úr Ármanni, en Jón
bar þó greinilega sigur úr
býtum og hlaut þar með
meistaratign fyrir 1943. Fékk
KR þar sinn 8. meistara.
Jón Hjartar fékk 2418 stig
fyrir þessi afrek: langst. 5.96
m., spjótkast 52.32 m., 200 m.
hlaup á 26 sek., kringlukast
25.94 m. og 1500 m. á 4:57.8
mín. Jón var fyrstur í 3 grein-
um (spjótkasti, 200 m, og 1500
m.), 2. í langstökki og 3. í
kringlukasti.
Næstur Jóni varð Sig. Norð-
dahl, Á. með 2214 stig. (5.88
— 43.33 — 26.3 — Sl.78 --
5:26.2) og 3. Einar Guðjöhh-
sen, KR með 2054 <5.24 —
39.68 — 27.0 — 29.74 —
4:58.8). Oddur Helgason, Á.
hætti í 1500 m. hlaupinu, sem
ar síðasta grein þrautarinnar.
Veður var heldur kalt og
hafði það eflaust nokkur áhrif
á árangurinn.
í kvöld heldur mótið áfram
kl. 8 og verður þá keppt í
boðhlaupunum, 4x100 m. og
4x400 m. og verða þau áreið-
anlega mjög skemmtileg, því
að úrslit eru mjög vafasöm. —
Félögin drógu suma beztu
manna sinna til baka úr
fimmtarþrautinni, til að spara
þá fyrir boðhlaupin, vegna þess
hve úrúslit þar eru óviss.
í fyrra varð Anton Björns-
son, KR meistari í fimmtar-
þraut á 2466 stigum.
Trúlofun.
Nýlega hafa opinberað trúlofun
sína Steinunn Jóhannesdóttir,
Hrefnugötu 6, og Robert Foster,
U. S. Navy.
Gleðiborgin
heitir myndin, sem Gamla Bíó
sýnir núna. Aðalhlutverkin leika
Bert Wheeler og Constance Moore.
Framhaldsmyndin heitir Slunginn
náungi. Aðalhlutverkin leika Guy
Kibbee og Susan Peters.
þriðjudags, en fjórir létust í gær.
Lögreglurannsókn hófst í
málinu þegar á mánudag og
stóð hún allan daginn í gær
fram á kvöld. Var hún að ýmsu
leyti erfið vegna þess, að þeir,
sem neytt höfðu hins eitraða
vökva, voru ýmist látnir, eða
þeir voru svo veikir, að ómögu-
legt var að taka af þeim skýrslu
En rannsókn mun þó hafa
leitt í ljós, að vélbátur úr Vest-
mannaeyjum mun hafa fundið
tunnu á floti á miðum úti og
flutt hana í land. Munu báts-
verjar hafa talið, að áfengi
væri á tunnunni og neytt þess.
Við rannsóknina mun það hafa
sannazt, að hér er ekki um
venjulegan tréspíritus að ræða,
en þó mjög líkan vökva, eins
að lit og með sömu eðlisþyngd
og sama bragði og tréspíritus.
Gleðihðtiðin enðaðl með
ægilegri skelfinp.
Eins og kunnugt er, var hin
árlega þjóðhátíð Vestmanna-
eyja haldin hátíðleg um síðustu
helgi. Fór hún mjög vel fram
og sóttu hana margar þúsundir
manna, bæði úr Vestmannaeyj-
um og utan Eyjanna. Lauk há-
tíðinni seint á sunnudagskvöld.
Á mánudag var saknað gamals
manns í Vestmannaeyjum. Var
vitað, að hann hafði verið
drukkinn á laugardag, en síðan
hafði hann ekki sézt. Var farið
að leita hans, og fannst hann
loks í búðarkompu, er hann
hafði, og var þá örendur.
Um sama leyti fóru að ber-
ast fregnir Um það, að nokkrir
menn væru mikið sjúkir, og var
farið að flytja menn í sjúkra-
húsið. Fylltist það á skömmum
tíma, enda getur það ekki tekið
á móti mörgum. Kom nú í ljós,
að allir þessir sjúklingar þáru
sömu sjúkdómseinkenni: magn-
leysi, sjóndepru og kvalir inn-
vortis. Reyndist svo, að hér var
um áfenglseitrun að ræða, og
var settum bæjarfógeta, Frey-
móði Þorsteinssyni, tafarlaust
gert aðvart um það, og hóf hann
þá rannsókn sína.
Á mánudag snemma lézt
einn maður, auk gamla manns-
ins, en seint um kvöldið dóu
tveir menn til viðbótar. Á
þriðjudag veiktust fleiri og
voru jafnóðum og rúm losnuðu
fluttir í sjúkrahúsið. Dóu aðrir
fjórir í gær, en aðrir voru mjög
þungt haldnir, og var tvísýnt
um líf sumra þeirra, er Alþýðu-
blaðið hafði síðast fréttir frá
Vestmannaeyjum. Hins vegar
voru aðrir taldir úr hættu. Virð-
ist eitrið verka misjafnlega á
menn. Helzta einkenni sjúk-
dómsins er það, að sjúklingarn-
ir missa sjón, verða magnlausir
og fá miklar innvortis kvalir.
I raun og veru rennur ekki af
þeim, en hjartað bilar, og flest-
ir deyja í móki.
Tröllasögur gengu um þetta
•hörmulega mál í gær. Var með-
al annars sagt, að menn að Sel-
fossi, Stokkseyri, Eyrarbakka
lægju mjög veikir. Þetta mun
ekki hafa við nein rök að styðj-
ast. Einn Eyrbekkingur liggur
sjúkur í sjúkrahúsinu í Vest-
mannaeyjum. Annar Eyrbekk-
ingur, sem neytti svolítils af
þessum vökva, og er nú kominn
heim til sín, kennir sér einskis
meins. Ekki er kunnugt um, að
neinir menn úr Reykjavík, aðr-
ir en Sveinjón Ingvarson, hafi
orðið mikið veikir eða látizt af
völdum eitrunarinnar.
Undanfarin ár hefir það hvað
eftir annað komið fyrir, að
menn hafi neytt eitraðs áfeng-
is: tréspírituss eða einhvers
konar kælivökva. Hafa bloðin
og útvarpið hvað eftir annað
birt aðvaranir til fólks um að
neyta ekki slíks vökva, er ræki
af sjó, en þessar aðvaranir virð-:
ast ekki hafa haft tilætluð á-
hrif. Fyrir fáum dögum létust
tveir menn á Hellissandi af
EINN af þingmönnum
Sjálfstæðisflokksins, Sig-
urður Bjarnason frá Vigur
hefir nýlega verið á yfirreiS
um kjördæmi sitt og reynt að
halda fundi.
En illa hefir þingmanninum
gengið að fá kjósendurna til
að koma til að hlusta á sig. f
Snæfjallahreppi komu 4, í Ög-
urhreppi 7, en enginn í Naut-
eyrarhreppi.
Mun Sigurði líka þetta illa,
því að eins og kunnugt er, er
hann einn af málugustu mönn-
unum, sem á þingi sitja.
Tempiarar krefjast
að áfeng isverzlun innf
sé alveg lokað
Fjölmenn þáitfaka beirra
í skemmfiförinni á
sunnudaginn
Q KEMMTIFÖR Templara
að Geysi í Haukadal s.l.
sunnudag var mjög fjölmenn.
Tóku þátt í henni Templarar
héðan úr Reykjavík, af Suður-
nesjum, úr Hafnarfirði og Ár-
nes- og Rangárvallasýslum.
Ekki var hægt að leyfa meirí
þátttöku vegna skorts á far-
kosti.
Séra Eiríkur Þ. Stefáns-
son messaði í Haukadal, en að
messunni lokinni var haldima
fundur í stúkunni ,,Blá-
fell“ og var hann í fimleika-
(Frh. á 7. síðu.)
völdum eitraðs áfengisvökva,
— og nú kemur þessi harma-
fregn frá Vestmannaeyjum.
Það er mjög nauðsynlegt, að
fólki sé skýrt mjög nákvæm-
lega frá atburðum eins og þess-
um. Verður að krefjast þess
mjög ákveðið, að þeir, er hafa
í’annsókn þessa máls með hönd-
um í Vestmannaeyjum, gefi
blöðunum fullkomna skýrslu
um það, svo ’að það geti orðið
almenningí til varnaðar.
Það má segja með sanni, að
gleðihátíð Vestmannaeyinga
hafi endað að þessu; sinni með
ægilegri skelfingu.