Alþýðublaðið Sunnudagsblað - 27.08.1939, Qupperneq 2
2
ALÞÝÐ¥BLAÐIÐ
Einhverj'u sinni orti Björg
þessa vísu:
Látra aldrei brenni bær,
blessun guðs því veldur,
allt þangað til Kristur kær
kemur og dóminn heldur.
Siðan er trú manna, að Látra-
bær muni aldrei brenna.
Einu sinni kom Björg í kaup-
stað á Akureyri. Þar var þá kaup
maður, sem hét Lynge. Hann
hafði heyrt getið um Björgu og
langaði hann til þess að sjá hana.
Björgu var sagt þetta, en hún
fór til kaupmanns og mælti:
Sælir verið þér,**) signor Friðrik
sómadjarfi.
Hér er ég komin úr Höfðahverfi,
horfið þér nú á þetta gervi.
Fleiri vísur kvað Björg um
kaupmann og Iofaði hann mjög,
en honum þótti gott lofið og gaf
henni gjafir.
Einhverju sinni kom Látra-
Björg að Möðruvöllum í Hförgár-
dal, og var Stefán Thorarensen
þar þá amtmaður. Honum var
mjög illa við alla umferð
snauðra manna. Þegar hannfrétti
að Björg var komin, hljóp hann
út og vildi hafa tal af henni, en
hún heilsaði honum eins og hverj
um óbrotnum alþýðumanni og
ságði: „Sæll vertu, Stefán minn“.
Amtmaður reiddist og tók að á-
víta Björgu bæði fyrir ókurteisi
hennar og flakk og hótaði henni
hörðu, ef hún héldi slíku fram.
Þá kvað Björg vísu þessa:
Þó að gæfan mér sé mót,
og mig í saurinn þrykki,
get óg ekki heiðrað hót
• hofmóðuga gikki.
Að svo mæltu hélt Björg leiðar
sinnar, en amtmaður kallaði til
hennar, þegar hún var komin
nokkuð út á túnið. Björg gegndi
því engu. Amtmaður hljóp þá á
eftir henni og skipaði henni að
bíða; nam hún þá staðar, og
seítust þau amtmaður niður. Þau
ræddu saman um hríð, og vissu
menn ekki, hvað fór á milli
þeirra. Loksins hljóp amtmaður
heim aftur og lét gefa Björgu
ull og smjör allríflega.
GBðtanodur s&áld Berg-
Bðrsson.
GUÐMUNDUR skáld Berg-
þórsson (t 1705) var talinn
þjóðskáld á meðan hann lifði og
Jöngu þar á eftir, en nú er kveð-
skapur hans farinn mjög að fyrn-
ast. Hann hefir ort að minnsta
kosti 14 rímnaflokka meðal ann-
**) A Aðrir: Sitjið þér heMir.
ars, og hefir hann víða lýst æfi
sinni í mansöngum fyrir þeim,
en hvergi eins greinilega og í
Ðertramsrímum. Sagt er, að
Guðmundur væri sonur séra
Hallgríms Péturssonar, og getur
það vel átt sér stað tímans vegna,
því að séra Hallgrímur dó 1674,
en Guðmundur er fæddur 1657.
Munnmæli þessi munu þó vera
á litlum rökum byggð og eiga
rót sína að rekja til þess, að
báðir þóttu afbragðs skáld.
Guðmundur var aumingi til
heilsu mestan hluta æfi sinnar
og máttlaus með öllu í fótunum.
Þó gat hann skriðið nokkuð, en
oftast lét hann bera , sig, þegar
hann þurfti að hreyfa sig eitt-
hvað. Aftur var vinstri hönd hans
heil upp að olnboga, og skrifaði
hann með henni. Sagt er, að
Friðrik konungur fjórði hafi
heyrt sagt frá Guðmundi, vaxtar-
lagi hans og gáfum, og hafi hon-
um þótt hann vera konungsger-
semi, eftir því sem sögur fóru af.
Aðrir segja, að konungur hafi
ætlað að ala önn fyrir Guðmundi
á sæmilegan hátt. Guðmurtdi var
þvernauðugt að fara af landi
burt, þótt ekki væri til kotungs
að venda, þar sem konungurinn
var sjálfur, enda fannst hann
andaður í rúmi sínu einn morg-
un, meðan mál þessi stóðu yfir,
og hugðu menn, að hann hefði
kveðið sjálfan sig í hel. '
Guðmundur tók sjúkleika sinn,.
er hann var fjögra ára gamall.
Réði þá amma hans til þess að
flytja hann til þriggja lauga og
lauga hann þrisvar sinnum upp
úr hverri laug. Þetta var gert,
og versnaði Guðmundi ekki eftir
það, en heilsulaus var hann eftir
sem áður.
Guðmundur var almennt talinn
hið mesta kraftaskáld, og eru
ýmsar sögur til um það. Hann
þótti og forspár og framsýnn,.
og til eru jafnvel sögur um, að
hann hafi farið með kukl. Annars
var Guðmundur almennt talinn
hinn vandaðasti maður og mjög;
guðrækinn.
Einhverju sinni veðjuðu tveir
kaupmenn, íslenzkur kaupmað-
ur og danskur kaupmaður, um
það 100 dölum, hvor komið gæti
með betra skáld; hélt danski
kaupma’ðurinn með dönskum
skáldum, en íslendingurinn með
þeim rsienzku. Guðmundur var
þa hjá íslenzka kaupmanninum,.
o.g ætlaði hann að bera hann
fyrir sig. Guðmundur bað kauf)-
mann að láta sig vita, þegar sæ-
ist til skipsins, sem von var á
danska skáldinu með, og hét
hann því. Jafnskjótt og sást ti)
skipsins, var Guðmundur færður
til sjávar og vel um búið. Áður
en skipsmenn vörpuðu akkerum,.
nrælti Guömundur fram vísu,
eina eða fleiri, og munu þær nú
vera týndar. Óðar en skipið var
lagzt, kom bátur frá því til lands,.
og kvað Guðmundur tvær víisur,.
meðan hann var á leiðinni. Þær
munu og vera úr minni liðnar.
Svo brá við vísur þessar, að
danska skáldið hné niður í bátn-
um og var þegar örent, en bátur-
iinn hvarf aftur til skipsins við
svo búið. Seinna fundust kaup-
mennirnir, og spurði sá íslenzki
danska kaupmanninn, hvort ekki
hefði farið svo, að hann hefði
unnið mál sitt, eins og .hann
hefði sagt. Danski kaupmaðurinn
játaði því og sagði, að sig hefði
aldrei grunað, að svona mundi
fara. Því næst greiddi hann ís-
lenzka kaupmanninum veðféð, og
er þess ekki getið, að meira yrði
úr þessu.
Það er haft eftir Guðmundi,.
að þá væru ekki eftir nema þrír
dvergar hér á landi. Einn byggi
í Stafafelli, annar í kletti þar nið-
ur við sjóinn, en sá þriðji fyrir
austan. Guðmund fýsti mjög að>
særa út dverginn í Stafafelli, því
áð hann þóttist þess fullviss, að
hann gætí læknað mein sín. Einn
góðan veðurdag bað Guðmundur
menn að bera sig upp undir fell-
ið og vitja sín aftur í 'sama
mund næsta dag. Þetta var gerl,
en þegar komið var til hans aft-
ur, var dvergurinn að eins k©m~
Ef,
(Eftir Rudyard Kipling).
Ef ráð þú kannt er útsjón aðra þrýtur.
Og öll sín slys þeir vilja kenna þér.
Ef sjálfstraust átt, og boðorð hinna brýtur,
í bróðurhug þá gegn um efann sér.
Ef biðlund hefir, þolinmæði ei þrjóti.
Ef þú ert rægður, trútt við sannleik hald.
Ef hatri mætir, hata ekki á móti,
En hafðu jafnt á orði og gjörðum vald.
Ef þú átt draum — en draum ei lætur blekkja.
Ef dýrmæt rök — en breytir ei um hug.
Ef Sigurgleði og Sorg þér vilja hnekkja,
Á sama hátt skalt vísa þeim á bug.
Ef heyrt þú getur sannleik er þú sagðir
í sölum þræla gildru fyrir þý.
Ef rifinn sér þann lífsgrunn er þú lagðir
Með lúnum kröftum reist hann við á ný.
Ef eins þú getur aleigunni þinni
í einu teningskasti fleygt á spil,
Og byrjað svo að nýju á byrjuninni
Með bros á vör, sem allt þér gangi í vil.
Ef vaknar hjarta og vöðvar tauga kreptir •'/(
Til verks með þrotið fjör og elli-halt
Og starfs á ný, þótt ekkert sýnist eftir '
Utan sá vilji er býður: „Fram þú skalt!“
Ef mælt þú getur máli þess sem leiðir
Og minst við kóng: haft traust á sjálfum þér.
Ef hvorki vin né óvin átt sem meiðir
Og alla metur rétt, sem vera ber.
Ef vinnur meðan vísir tímans bærist
Hver vinnustund þér mesta gleði ljær.
Er jörðin þín, og allt sem er og hrærist.
Þú ert þá líka maður, sonur kær.
S. E. Björnsson.