Alþýðublaðið - 08.09.1943, Side 2
2
ALÞYÐUBLAÐIÐ
.Miðvikudagur 8. sept. 1943.»
Hneyhsianleqt skipaetíirlit:
Skip, nýkomið ir Slipp, verður
að leita hafnar vegna leka.
Gat datt á eina plötuna í byrðing
þess, án þess að það yrði fyrir
nokkru hnjaski eða höggi.
----:---4---------
UM LANGAN ALDUR hefir íslenzka skipaskoðunin legið
undir harðri og strangri gagnrýni. Hafa í þeirri gagn-
rýni komið fram mörg ljót dæmi um ástand íslenzkra skipa,
jafnvel í sama mund og þau voru að koma úr viðgerð, sem ,
skipaeftirlitið á að hafa umsjón með. Hér skal nú skýrt frá
einu dæmi:
Botnvörpungurinn „Rán“ kom hingað til hafnar í gær
kl. 2 vegna leka. Fyrir nokkrum dögum fór togarinn héðan
á veiðar, en þá var hann búinn að vera 2 daga í Slipp til at-
hugunar og viðgerðar.
Þegar skipið var komið út á sjó, datt gat á plötu milli
banda, án þess að skipið yrði fyrir nokkru hnjaski eða höggi,
enda var ekki farið að kasta trollum.
Skipverjar tóku það til bragðs í þeirri von að bjarga
skipinu til hafnar, að setja trétappa í gatið, en ekki var
hægt að stöðva lekann, því að platan þoldi ekki trétappahn
og gatið stækkaði undan honum. Skipinu tókst þó að kom-
ast til hafnar og var kafari fenginn til að athuga það. Taldi
hann að rannsókn sinni lokinni skipið alls ekki haffært,
nema að það færi aftur í Slipp til athugunar og viðgerðar.
Það er furðulegt að slíkt og þetta skuli geta komið
fyrir — og virðist eitthvað vera bogið við viðgerðirnar —
og meira en lítið athugavert við skipaeftirlitið.
Eru kröfur um verðeppbæt-
ur á hrossakjöt á leiðinni?
♦
Þrir Sjálfsíæðisþingmemi flytja þings-
ályktunartiiiögu um afsláttarhross,
ÞRÍR ÞINGMENN flytja
þingsályktunartillögu
um afsláttarhross og segja
þeir í greinargerðinni að síð-
ast liðið haust hafi verið boð
ið fram meira af hr®ssakjöti
en markaðurinn hafði getað
tekið við.
Mörgum finnst sem í þessum
upplýsingum felist tilgangurinn
með . þingsályktunartillögunni
og lað það sé feetlun þessara
þriggja þingmanna að krefjast
uppbótar einnig fyrir hrossa-
kjöt og jafn vel að skapa
hrossakjötinu einhverja for-
gangsaðstöðu á markaðinum í
þeim tilgangi að neyða það
upp á neytendurna.
Þessir þrír flutningsmenn til-
lögunnar eru Sjálfstæðisflokks-
mennirnir Jón Pálmason, Jón
Sigurðsson og Ingólfur Jónsson.
Er tillagan svohljóðandi:
„Sameinað alþingi ályktar að
skora á ríkisstjórnina að láta nú
þegar safna skýrslum í hrossa-'
héruðum landins um það, hve
mörgum hrossum bændur vilja
farga til slátrunar í haust.
Einnig sé Búnaðarfélagi íslands
falið að gera tillögur um það
fyrir 15. september 1943, á
hvern hátt hrossunum verði
komið í verð.“
í geinargerð sinni segja flutn-
ingsmenn:
Á undanförnum árum hefir
hrossum fjölgað mjög í land-
inu, einkum í þeim héruðum,
sem mæðiveikin í fénu hefir
leikið verst. Koma þar einkum
til greina Skagafjarðarsýsla,
Húnavatnssýslur, Mýrasýsla og
Borgarfjarðarsýsla. í Ráú’gár-
vallasýslu hefir hrossum einnig
fjölgað mjög, enda þótt hún hafi
eigi orðið fyrir verulegu tjóni af
völdum mæðiveiknnar. Eitt-
hva-ð hefir hrossum fjölgað í
sumum öðrum héruðum, en eigi
í stórum stíl. — Yfirleitt eru
hrossin sú tegund búfénaðar,
sem minnst fóður er ætlað. Af
þeim stafar líka mest hætta, ef
út af ber. Sú þáltill., sem hér er
flutt, er því fyst og fremst
tryggingarviðleitni gegn fóður-
skorti. Telja flutningsmenn á-
ríðandi að vita fljótt, hve mörg-
um hrossum bændur vilja farga.
Viðist sjálfsagt að fela sýslur-
mönnum og hreppsnefndum að
gera þá athugun í skyndi. Það
kom í ljós s. 1. haust, að markað-
urinn fyrir hrossakjöt fullnægir
eigi nálægt því þörfinni, og mun
það enn frekar koma í ljós á
þessu hausti. Því er áríðandi
að hagnýta hinn takmarkaða
markað svo vel sem unnt er og
gera að öðru leyti þær ráðstaf-
anir, sem hugsanlegar eru, til að
koma þessari vöru í veð og fá
því til vegar komið, að sem
flestir landsmenn noti hana.
Virðist einsætt að fela Búnað-
arfélagi íslands að rannsaka
það mál og leggja tillögur sínar
fyrir. Má gera ráð fyrír, að þing
og stjórn þurfi síðar í haust að
Frh. á 7. síöu.
ÁfengisverzlBnin lokar
vegna mikillar aösóknar
Reynt að birgja sig upp áður en
verðhækkanirnar ganga i gildi.
Nýja verðið á tébaksvöruni er
nú koiaið til frsmkvæmda.
♦
TÓBAKSVERZLUNIN hefir nú opnað aftur eftir lok-
unina í fyrradag og fyrri hluta dagsins í gær — og
er hið nýja verð á tóbaksvörum gengið í gildi. Áfengisverzl-
un rílsisins varð að loka í gær vegna taumlausrar aðsókn-
ar, svo að annað eins hefir ekki þekkzt fyrr og hún mun hafa
lokað í dag, vegna þess að hún er enn ekki búin að fá til-
kynningar frá ríkisstjórninni um verðhækkanirnar á áfeng-
inu, en hún mun fá þær í dag.
Snemma á mánudagsmorgun ♦
fóru að berast fregnir um það,
að stórkostleg hækkun væri í
þann veginn að verða á tóbaki
og áfengi, og upp úr hádeginu
fengu menn vissu sína í þessu
efni. Ríkisstjórnin fékk með af-
brigðum á alþingi samþykkta
heimild um stórkostlega hækk-
un á tóbaksvörum, — en áður
hafði hún heimild til hækkun-
ar á álagningu áfengra drykkja.
Tóbaksverzluninni var lokað
á mánudaginn og fyrri hluta
dagsins í gær. Mun þeta hafa
verið gert til þess að koma í veg
fyrir hamstur á tóbaksvörum,
áður en þær hækkuðu. Hins
vegar reyndu menn eins og þeir
gátu að birgja sig upp af tóbaks
vörum í einstökum verzlunum.
Nú hefir Tóbaksverzlunin opn-
að aftur — og með nýja verð-
inu.
Strax óg fregnirnar af verð-
hækkuninni bárust út, urðu
skrifstofur Áfengisverzlunar
ríkisins varar við það. Varð svo
mikil aðsókn til þeirra, að for-
stöðumenn þeirra sáu sér ekki
annað fært en að loka.
Alþýðublaðið sneri sér í gær
til fjármálaráðuneytisins og
spurðist fyrir um það, hvenær
verðhækkanirnar hjá Áfengis-
verzluninni kæmu til fram-
kvæmda. Fékk blaðið þau svör,
að þær myndu koma til fram-
kvæmda á miðvikudag eða
fimmtudag.
Skjölin um þetta lágu tilbú-
in í stjórnarráðinu í gær, en
ekki var gert ráð fyrir að þau
yrðu send til Áfengisverzlunar-
innar fyrr en í dag.
Mega menn því gera ráð fyr-
ir, að úthlutunarskrifstofa Á-
fengisverzlunarinnar vérði ekki
opnuð fyrr en seint í þessari
viku, því að það mun taka
nokkurn tíma að ganga frá
verði vínsins.
Sagt er, að ríkisstjórnin ætli
sér að ná í um 9 milljónir
króna með verðhækkunum á
þessum munaðarvörum báðum.
Minnismerki nm
Jón irasoB.
Avarp til þjóðarinnar frá
fjársofnnnarnefndinni.
Umferðamálin:
Gngar nndantekning-
ar frá sérleyfis-
lðgnnnm.
Einnig sérleyfisferðir til Ding
valla á sannnúognm.
RÍKISSTJÓRNIN hefir
lagt fyrir alþingi frum-
varp til laga um breytingu
á lögum um skipulag á fólks-
flutningum með bifreiðum.
Er frumvarpið á þá leið, að
síðasta málsgrein fyrstu grein-
ar laganna falli burtu, en hún
er á þá leið að eftirtaldar leið-
ir séu teknar undan sérleyfis-
löggj öf inni: Reyk j avík—Gull-
foss, Reykjavík—Geysir, Rvík
—Reykjanesviti og- á sunnu-
dögum Reykjavík—Þingvellir.
I greinargerðinni fyrir frum-
varpinu segir:
„Það hefir komið í ljós, að
óheppilegt er, að ekki megi
veita sérleyfi á einstökum leið-
um eða leiðahlutum, og hefir
því póst- og símamálastjórnin
talið rétt, að umrætt ákvæði
laganna verði numið burtu.“
Öllum mun vera ljóst hvaða
ástæður liggja til þess að þetta
frumvarp er fram komið. Á-
stæðan er áreiðanlega það öng-
þveiti, sem ríkt hefir á Þing-
vallaleiðinni á sunnudögum í
sumar. Allir höfðu jafnan rétt
til að aka þessa leið á sunnu-
dögum, en aðeins einn hafði
tekið upp sérstakar áætlunar-
ferðir. Þegar honum- þótti þær
vera orðnar of erfiðar og taldi
þær ekki svara kostnaði og
fyrirhöfn, lagði hann þær nið-
ur. Yfirstjórn þessara mála
gat ekkert gert, samkvæmt lög-
um, nema að taka sjálf upp á-
ætlunarferðirnar — og það
neyddist hún til að gera.
Hjónaband.
Nýlega voru gefin saman í
hjónaband hjá lögmanni ungfrú
Hólmfríður Þorsteinsdóttir og
Kristinn Einarsson klæðskera-
meistari. Heimili þeirra er á Hverf_
jC1 INS og kunnugt er, er nú
hafin starfsemi með \
það fyrir aujgum að koma
upp minnismerki um Jón
biskup Arason og verði það
afhiúpað að Hólum 7. nóv.
1950.
Hílfir þessi starfsemi verið
undirbúin og barst Alþýðublað-
(Frh. á 7. síðu.)
isgötu 59.
\ Gróðurrannsóknir á Flóaáveitu-
svæðinu,
heitir nýútkomin bók eftir
Steindór Steindórsson frá Hlöð-
um. Fjallar hún um rannsóknir
höfundarins á jurtaríki þessa
svæðis undanfarin sumur. Bún-
aðarfélag íslands hefir gefið bók-
ina út, en hún er prentuð í Rík-
isprentsmiðjunni Gutenberg.
fitvarpsDBiræóar
frð alþingi.
C' YRSTA .umræða. um
fjárlögin fyrir árið
1944 fer fram í sameinuðu
þingi í dag og hefst með
framsöguræðu fjármálaráð-
herra kl. 1.30. Þingflokkarn-
jr fá hálfrar klukkustundar
ræðutíma hver. Umræð-
únni verður útvarpað.
Alpiagi:
Frumvarpið did lifrenla-
stjóraou á dagsKrá oeðrl
deildar 1 gær.
UNDIR voru í báðum deild
um alþingis íi gær, en
stóðu stutt yfir. Tvö mál vorut
á dagskrá og var þeim vísað
nálega umræðulaust til 2. um*
ræðu og nefnda.
Annað málið, sem var á dag-
skrá neðri deildar, var frumvarp
þeirra Sigurðar Bjarnasonar og
Gunnars Thoroddsens um beyt-
ing á lögum um dómsmálastörf,
lögreglustjórn, gjaldheimtu o. fl
í Reykjavík. — Breytingin á um
ræddum lögum miðar að því að
fella niður þá undanþágu varð-
andi lögreglustjórann í Reykja-
vík, að hann þurfi ekki að upp-
fylla almenn dómaraskilyrði,
þar á meðal að hafa lokið laga-
prófi.
Frumvarp þetta var borið
fram á síðasta þingi og aftur á
þessu þingi með þeirri breyt-
ingu, að lögin skyldu „öðlast
gildi, þegar núverandi lögreglu-
stjóra hefir verið veittur kostur
á öðru starfi samkvæmt 3.
málsgr. 16. gr. stjórnarskrár-
innar.“
Sigurður Bjarnason fylgdi
frumvarpinu úr hlaði með
nokkrum orðum. Að því búnu
var því vísað til 2. umræðu og
allsherjarnefndar.
Breyting á bif-
reiðastæðum í
bænum.
Borgarstjöri og bæjarverkfræð-
ingur ræða við stöðvaeigendur
C* INS og kunnugt er hef-
ir bifreiðastjórafélagið
„Hreyfill“ lagt til að komið
verði upp einni allsherjar-
stöð fyrir allar fólksbifreið-
ar í bænum — og sent bæjar-
stjórn erindi um þetta máL
Málið var fyrir nokku rætt
í bæjarráði, og fól það borgar-
gera tillögur um lausn þess.
stjóra og bæjarverkfræðingi að
Borgarstjóri og bæjarverk-
fræðingur boðuðu síðan fyrir
nokkrum dögum eigendur bif-
reiðastöðvanna á sinn fund og
ræddu við þá.
Talaðist svo til á fundi þess-
um, að bifreiðastöðvaeigendur
skyldu sjálfir gera tillögur í
málinu og afhenda þær síðan
borgarstjóra og bæjarverkfræð-
ingi.
Læknablaðið,
1. tölublað þes er ny-
komið út. Efni: Digitalis. Meðferð
við organiska hjartasjúkdóma, eft-
ir Theódór Skúlason. — Ritdóm-
ar um ,,Röntgendiagnostik“, Úr er-
lendum læknaritum o. fl. Aðal-
ritstjóri er Ólafur Geirsson.