Alþýðublaðið - 04.11.1943, Síða 7
Fimmtudagur 4. nóv. 1943.
ALÞYÐUBLAÐIÐ
{Bœrinn í dag. I
Næturlæknir er í nótt 1 Lækna-
varðstofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Ingólfsapóteki
ÚTVARPIÐ:
20.30 Útvarpshljómsveitin (Þór-
arinn Guðmundsson stjórn-
ar): a) Forleikur: „Konung-
ungur einn dag“ eftir
Adam. b) Lagaflokkur úr
óperettunni „Geisha“ eftir
Sidney Jones.
20.50 Frá útlöndum (Axel Thor-
steinsson).
21.10 Hljómplötur: Lög leikin á
celló.
21.15 Lestur íslendingasagna (dr.
Einar Ól. Sveinsson há-
skólabókavörður).
21.40 Hljómplötur: íslenzk söng-
lög.
21.50 Fréttir.
Líkn Templarasundi 3.
Ungbarnaverndin er opin þriðju
daga, fimmtudaga og föstudaga kl.
3,15—4. Skoðun barnshafandi
kvenna kl. 1—2 á mánudögum og
miðvikudögum.
Bólusetning
barna gegn barnaveiki hefst nú
aftur og verður framvegis á föstu-
dögum kl. 5.30—6. Þeir, sem vilja
fá börn sín bólusett, hringi í síma
5967 milli 9—1-0 sama dag.
Tvö bifreiðaslys.
í fyrradag urðu tvö bifreiðaslys
hér í bænum. Ingimundur
Benediktsson Ásvallagötu 51 var á
reiðhjóli við Suðurpól, er hann
varð fyrir herbifreið. Meiddist
hann á höfði og var fluttur í her-
spítala. Lítil telpa varð fyrir ís-
lenzkri bifreið í Kirkjustræti,
meiddist hún á fæti og fékk heila-
hristing.
Félagslff.
Sálarrannsóknarfélag
íslands
heldur fund í Guðspekifélags-
húsinu í kvöld klukkan 8.30.
Fundurinn helgaður minningu
látinna.
HAUKAR f HAFNARFIRÐI:
Æfingar í fimleikahúsi barna'
skólans veturinn 1943—1944
verða sem hér segir: Þriðju-
daga: kl. 7.30—8.15, A-kven-
flokkur. Kl. 8.1g—9, B-kvenfl.
Kl. 9—10, karlar. — Mið-
vikudaga: kl. 8—9, drengir
14—16 ára. — Föstudaga: kl.
7.30—8.15, A-kvenflokkur.
Kl. 8.15—9, B-kvenflokkur.
Kl. 9—10, karlar. — Laugar-
daga: kl. 8.30—9.30, drengir
14—16 ára. <— Stúlkur, sem
vilja láta innrita sig í félag-
ið, tilkynni það Margréti
Pétursdóttur, c/o. Verzl.
Jóhannesar Gunnarssonar
Strandgötu 19, sem gefur nán-
ari upplýsingar. — Karlar og
drengir láti innrita sig í fé
lagið hjá Jóni Egilssyni, c/o
Verzlun Gísla Gunnarssonar.
Kennd er leikfimi og hand-
knattleikur og er kennari
Garðar S. Gíslason. Stjórnin
ÆFING í KVÖLD klukkan 8.30
í Austurbæjarbarnaskólanum,
Kennari: Baldur Kristjónsson
Séra Jakob Jómsson:
Fyrirspurn til bæjarráðs
og hugleiðing um setuliðið.
SÁ er drengur, sem viðgeng-
ur“, má segja um yfirlýs-
ingu borgarstjórans í gær í Al-
aýðublaðinu. Það er augljóst,
að hann vill, að aðfinnslum út
af hljóðfæraleiknum á sunnu-
daginn verði stefnt að ráða-
mönnum bæjarins, en ekki her-
stjórnarinnar, „ef (leturbreyt-
ing mín.) um einhverja sök er
að ræða“. En nú langar mig að
gera í fullri vinsemd eftirfar-
andi fyrirspumir til bæjarráðs:
1. Finnst bæjarráði, að hér
hafi ekki verið um neina sök
að ræða?
2. Á að skilja orð borgar-
stjórans svo, að hljómsveitinni
væri leyft að spila um miðjan
dag, hvernig sem á stæði í kirkj
unni?
3. Ef svo var ekki, hvernig
átti' að tryggja það, að hljóm-
sveitin vissi, að messa stæði
yfir? Var ættlast til, að hún
spyrði lögregluna í hvert sinn
eða áttu prestarnir að tilkynna
setuliðinu, að þeir hefðu í
hyggju að messa?
4. Hafði hljómsveitarstjórinn
spurst fyrir um það nefndan
sunnudag, hvort guðsþjónusta
færi fram á þessum tíma?
Eitt atriði í grein minni í
fyrradag þarf leiðréttingar við.
Ég þakkað'i amerísku herstjórn
inni það, að þjóðleikhúsinu
hefði verið skilað aftur í hend-
ur löglegra yfirráðamanna. En
nú hefi ég fengið upplýst, að
Bretar hafi aldrei látið Þjóð-
leikhúsið af hendi við Ameríku-
menn, svo að það séu Bretar,
sem eigi þakkirnar fyrir að
skila því. Hitt vissu allir, að
þeir áttu skömmina af því að
halda því óforsvaranlega lengi
í blóra við leikunnendur og list
elskandi fólk í landinu.
Ég gat um afhendingu Þjóð-
leikhússins sem dæmi um vax-
andi skílning hernaðaryfirvald-
anna á íslenzkum kröfum. Það
hefði mátt nefna ýms fleiri
dæmi um greiða hjálp, sem
setuliðið hefir veitt Islending-
um. Sjálfsagt er ekki nema
lítið af þessum atvikum gert
heyrum kunnugt, en einmitt á
þeim og ennfremur á heilbrigð-
um f járhagslegum og stjórnar-
farslegum viðskiptum byggist
vinátta Bandaríkjamanna og
íslendinga.
En það er tvennt, sem þó
má aldrei gleymast í þessu
sambandi. í fyrsta lagi það, að
með því að veita Bandaríkja-
mönnum frjálsan aðgang að ís-
lenzkri jörð og leyfa afnot
landsins í hernaðarþarfir hafa
Islendingar gert Bandaríkja-
mönnum greiða, sem þeir geta
aldrei að fullu launað, svo
framarlega sem þeir metá ein-
hvers sigur í þessu stríði. Auð-
vitað var það líka okkur í hag,
að bandamenn náðu á undan
þýzkum nazistum að berja að
dyrum. Og sigur bandamanna
er líka okkur í vil. En ég er
vantrúaður á, að jafnvel hin
frelsisunnandi Bandaríki hefðu
farið að taka langa lykkju á leið
sína með milljóna tilkostnaði
til þess eins að vernda þetta
útsker, ef þeir hefðu ekki talið
það nauðsynlegt fyrir sjálfa
sig. Þegar 'bandaríkski herinn
gerir eitthvað í raunverulega
þágu íslendinga, skoða ég það
því sem viðurkenningu þeirra
á skuld, sem þeir standi í við
ísland. En ég vil, að íslending-
ar séu menn til þess að taka
slíkum . vináttumerkjum með
fullri virðingu fyrir Banda-
ríkjamönnum, og helst sjálf-
um sér líka. Og þess vegna
krefst ég þess réttar fyrir mína
hönd og samborgara minna að
mega setja út á sitt af hverju,
sem kemur af hálfu setuliðsins,
án þess að þurfa að búast við
að nokkur verði veiklaðri á
taugum fyrir bragðið.
Hitt atriðið, sem ég tel, að
ekki megi gleymast, er það, að
þó að við höfum leyft erlendri
stórþjóð landvist um stundar-
sakir, eigum við ekki að leyfa
neitt, sem hjálpar til að sljóvga
þjóðernistilfinningu okkar
sjálfra. Sú tilfinning er okkur
líka nauðsynleg gagnvart Banda
ríkjamönnum. Við vitum, að
allar stórþjóðir halda uppi ýmis
konar áróðursstarfsemi og eru
Bandaríkjamenn engin undan-
hekning. Mér hefir oft fundizt
að sumt í áróðri þessara gesta
okkur sé barnalegt og óþarft.
Eins þykist ég geta fært rök
áð að því, að áhrif setuliðsins
á skemmtanalíf æskulýðsns hafi
orsakað ýmsa þá harmleiki,
sem þeir vita gerzt um, er vinna
að félagsíegum vandamálum.
Ef til vill má þar líka skella)
skuldinni að einhverju leyti á
íslenzk yfirvöld og eftirlits-
menn, en eitt er þó víst, — að
hér verður engu um þokað til
góðs, nema ákveðnari spor séu
stigin til umbóta. Og meðal
annars er það mín skoðun, að
viss atriði í starfsemi setuliðs-
ins þurfi að taka algerðum
stakkaskiftum. „Sá er vinur,
sem til vamms segir.“
Jakob Jónsson.
Minn hjartkæri sonur og bróðir,
Haukur Jónsson,
andaðist í Landspítalanum 2. þessa mánaðar.
Friðlín Þórðardóttir og systkini.
Hjartanlega þökkum við öllum þeim, er sýndu okkur
samúð og vináttu við andlát og jarðarför litla drengsins okkar,
Guðjóns Elíasar.
Ingibjörg Guðjónsdóttir. Sigurbjörn Elíasson.
Þökk fyrir auðsýnda hluttekningu við fráfall og jarðarför
móður minnar,
Vigdísar Einarsdóttur Maack.
Fjmir mína hönd og annarra vandamanna.
Pétur Maack.
Minn ingarorð:
Gísli Gíslason
Tvær sfúlkur
óskast til aðstoðar á bókbandsvinnustofu.
Afgreiðsla Alþýðublaðsins vísar á.
Syrgjum við þig sonur og bróðir
— Sölna blóm. —
Hljóðir vinir höfðum drjúpa.
Herrans dóm
enginn flýr, nær engill drottins
að fer rótt,
kallar’ ann til hærri heima
helga nótt.
Hlustum gegnum heljar
drungann,
hvíslar von:
Gott er æ hjá Guði að eiga
góðan son,
minningar um mæta drengsins
manndóms þrá.
Dvelja eftir dægurskiptin
drottni hjá.
M. G.
Kjötnðman.
Frh. af 2. síðu.
En það verður ekki þolað, að
ekki verði upplýst hið rétta í
þessu máli.
Hér er um svo furðulegt mál
að ræða, að þjóðin verður að fá
að vita hið rétta. Hver hefir
borgað þetta kjöt? Hver hefir
tapað á því að því var hent?
Hefir þetta kjöt verið verðupp-
bætt úr ríkissjóði?
Svör við þessum spurningum
verða að koma nú þegar.
Dppbætnrnar.
Frh. af 2. síðu.
það mikla áherzlu, að uppbætur
væru mjög yarasamar og óhugs
andi nema aðeins sem bráða-
birgðaráðstöffun. Milljónaupp-
bætur, án nokkurrar niður-
færslu á hinni raunverulegu
dýrtíðin, eru fjássóun.
Umræðunni var ekki lokið
í gær.
Alþýðusambandið, flutt af Þor-
steini Péturssyni.
. .Verkalýssamtökin. og . sam-
vinnuhreyfingin, flutt af Guð-
geiri Jónssyni forseta Alþýðu-
sambandsins.
. .Verkalýður og millistéttir*
flutt af Finni Jónssyni alþing-
ismanni.
Lýðræði og stéttaþjóðfélög,
flutt af Karli ísfeld blaða-
manni.
Stórveldastefna og styrjaldir,
flutt af Stefáni Ögmundssyni
prentara.
Alþýðan og þjóðemisbarátt-
an. flutt af Einari Olgeirssyni
alþingismanni.
Baráttuaðferðir og markmið.
flutt af Sigurði Guðmundssyni
blaðamanni.
Ennfremur mun verða flutt
erindi um stéttasamtök og
stjórnmálabaráttu, en enn er
óráðið hver flytur það.
Sálarrannsóknarfélag íslands
heldur fund í kvold kl. 8.30 í
húsi Guðspekifélagsins. Fundur-
inn er helgaður minningu látinna.
Ný bók
eftir dr. Helga Péturss, Sannýall
er komin út. Er þetta fimta bindi
Nýals, hins mikla rit hans um
framhaldslíf.
Mæðrastyrksnefndin
heldur aðalfund sinn annað
kvöld.
AIMöÐfræðsla
AlþýðBsambaDdsins.
Frh. af 2. síðu.
er Sverrir Kristjánsson sagn-
fræðingur.
A miðvikudöigum: Saga
vinnu. og . f ramleiðsluhátta,
kennarar verða Björn Franzson
og Gylfi Þ. Gíslason dósient.
A fimmtudögum: Alþýðu- og
félagsmála|löggjöf j kennarar
verða Guðmundur Kr. Guð-
mundsson tryggingarfræðingur
og Guðmundur I. Guðmunds-
son lögfræðingur.
A föstudögum: Félagsstarf-
semi og verða kennarar þeir
Jón Sigurðsson framkvæmda-
stjóri og Jón Rafnsson erind-
reki.
Akveðið hefir verið að flytja
þessi erindi á mánudögum:
. . Stéttasamtök verkalýðsins og
Tveir vitar.
Frh. af 2. síðu.
Ljósmagn 200 HK. Ljósmál 9,5
sm. fyrir hvíta Ijósið, 6,5 fyrir
rauða ljósið og 4,5 sm. fyrir
það græna.
Vitahúsið er 3 m. hátt, hvítt
með svörtum láréttum röndiun.
Lqgtími 15. júlí til 1. júní.
Awlýsingar,
sem birtast eiga í
Alþýðublaðinu,
verða að vera
komnar til Auglýs-
ingaskrifstofunnarí
Alþýðuhúsinu,
(gengið inn frá
Hverfisgötu)
fyrir hl. 7 aö kvöldi.
Sfml 4906.