Alþýðublaðið - 20.01.1944, Qupperneq 5
Fimmtudagur 20. janúar 1944.
ALÞYÐUBLAÐIÐ
1
Kristján konungur.
DANSKA ÞJÓÐIN dáir hinn
alþýðlega konung sinn.
Hann hefir .jafnan alþýðlegur
verið allt frá barnæsku sinni.
Á ríkisstjórnardögum föður
síns gengdi hann störfum sem
hver annar óbreyttur hermað-
ur í lífvarðarliði hans. Eftir að
hann var setztur í hásæti sem
Kristján konungur hinn tíundi,
varð hann frægur fyrir það að
aka sjálfur í bifreið sinni um
landið. Oft bar svo við á ferð-
um þessum, að hann nam stað-
ar fyrir utan eitthvert bænda-
býli til þess að spyrja eftir því,
hvort gamall kunningi sinn
væri heima. Hann hefir van-
þóknun á allri viðhöfn, og hver
óbreyttur bóndi getur talað við
hann eins og jafningja sinn.
Eigi alls fyrir löngu bar bóndi
nokkur úti á Jótlandi sig upp
við hann, vegna hinna þungu
skatta, sem sér væri gert að
greiða. Hann kvað sér óskiljan-
legt, hvers vegna sér væri gert
að greiða fyrir hitt og þetta,
sem hann taldi upp. En eftir að
konungurinn hafði skýrt skatt-
kerfið fyrir honum af kost-
gæfni og stakri þolinmæði, ját-
aði bóndinn, að sér hefði skjátl-
azt og féllzt á það, að þetta
myndi vera allt með felldu.
Hin skörulega og óbifanlega
mótspyrna Kristjáns konungs
gegn ásælni og ofríki Þjóð-
verja eftir hernám landsins,
hefir verið þjóð hans ómetanleg
hvatning. Morgun nokkurn, er
hann lagði leið sína að vanda
um stræti Kaupmannahafnar á
baki fáks síns, sá hann, að
þýzki fáninn hafði verið dreg-
inn að hún á byggingu, þar sem
því fór alls fjarri, að hann ætti
"heima. Hann gaf þýzkum liðs-
foringja, sem nærstaddur var,
merki og fór þess á leit við
hann, að fáninn yrði dreginn
niður. Liðforinginn maldaði í
móinn og skírskotaði til fyrir-
skipana frá æðri stöðum. —
Hafi fáninn ekki verið dreginn
niður að klukkustund liðinni,
þegar ég kem hingað aftur,
mælti konungurinn — mun
danskur liðsforingi draga hann
niður.
Liðsforingi sá mun verða
skotinn, gengdi nazistipn.
— Liðsforingi þessi, svaraði
konungurinn, — verður ég
sjálfur. Þegar hann kom aftur,
var fáninn horfinn.
Þegar þýzki sendiherrann
kom á framfæri þeirri mála-
leitun foringjans, að þegar í
stað yrði sett í Danmörku lög-
gjöf gegn Gyðingum og dönsk-
um Gyðingum gert að bera
armborða með gullitri stjörnu,
mælti konungurinn: — Verði
Dönum gert að bera gullita
stjörnu mun konungsfjölskyld-
an bera hana eins og aðrir.
— En — en, tafsaði sendi-
herrann. — Ég sagði ekki allir
Danir, ég sagði —
— Afsakið, mælti konungur-
inn. — Danir eru þegnar mín-
ir. Trúarbrögð þeirra eru einka
mál þeirra.
Nokkrum dögum síðar barst
konunginum frétt sú til eyrna,
að efnt yrði til sérstakrar há-
tíðar í samkomuhúsi Gyðinga
innan skamms. Hann tilkynnti
æðsta prestinum þegar í stað,
að hann myndi heiðra samkomu
þessa með návist sinni. Hann
mætti í fullum skrúða ásamt
lífverði sínum Þjóðverjum til
ólýsanlegrar vanþóknunar.
*
TT ISSULEGA má þetta heita
" einstætt og athyglisvert.
Hér var um að ræða konung lít
illar og vanmáttugrar þjóðar,
sem neitaði af skörungsskap og
festu tilmælum valdhafanna í
Berlín um að efnt yrði til Gyð-
ingaofsókna meðal þegna hans.
Vichystjórnin franska réði aft-
ur á móti víðlendu ríki og stór-
þjóð, en eigi að síður lét hún
efna til villimannlegra ofsókna
Kristján konungur tíundi.
GREIN ÞESSI er útdrátt-
ur úr bók Henry Baer-
lein „Baltic Paradise,“ sem
nýlega kom út á vegum
Federicks Mullers í Lundún-
um. Er hún hér þýdd úr jan-
úarhefti World Digest.
gegn Gyðingum, til þess að
þóknast Hitler og samherjum
hans. Þegar sendiherra páfa-
garðsins, herra Valeri, bar fram
mótmæli í tilefni þessa, greip
Pétain fram í fyrir honum og
mælti:
\,
— Þetta eru ómakleg um-
mæli. Páfinn skilur mig og
mun samþykkja gerðir mínar.
— Slíkt er hinn mesti mis-
skilningur, svaraði þá Valeri.
— Hinn heilagi faðir mun
hvorki skilja þetta né sam-
þykkja.
Pétain fól vini sínum M.
Barthélemy, sem á sæti í Vichy
stiórninni, að skrifa grein í
Ættjörðina, sorpblað, sem var
gefið út í Algier, þar sem því
var haldið fram, að Gyðingar
hefðu raunverulega aldrei gerzt
hluti hinnar frönsku þjóðar.
Eigi að síður létu þúsundir
þeirra lífið fyrir ættjörð sína
í heimsstyrjöldinni. Þessi sein-
heppna málpípa hins elliæra
marskálks lét þó svo um mælt,
að til væru undantekningar
eins og „meistarinn Bergson“,
heimsfrægur franskur rithöf-
undur og heimspekingur. Hann
hefði getað bætt því við, að
Bergson var jafnan stoltur af
uppruna sínum. Hefði franska
þjóðin notið forustu leiðtoga í
líkingu við Kristján konung í
stað Lavals, sem auðgaði sjálf-
an sig stórkostlega með því að
sölsa undir sig með ólögmætum
hætti eigur Gyðinga, hefði hlut
ur hennar orðið allt annar. En
það er fjarstæða að bera
frönsku þjóðina, sem unir
stjórn manna eins og Pétain
og Laval, samah við Kristján
konung og þjóð hans.
Dönum er það vissulega ó-
metanlegur styrkur að njóta
forustu slíks leiðtcga sem Krist
jáns konungs. Þegar þýzki
sendiherrann fór þess á leit, að
Þjóðverjar fengju átta danska
fallbyssubáta til afnota „um
stundarsakir“, var því neitað
eindregið. Fallbyssubátar þessir
voru þá teknir með valdi og
danslta útvarpinu og blöðunum
bannað stranglega að láta þessa
getið einu orði. En konungur-
inn gaf þá út dagskipun til hers
ins og flotans, þar sem hann
skýrði skýrt og skorinort frá
þessu. Nei, Kristján konungur
hefir ekki komið sér í mjúkinn
hjá Þjóðverjum. Þegar þýzki
herinn gerði innrás sína í Dan-
mörku, hafði honum verið
stranglega fyrir lagt, að koma
í hvívetna þannig fram, að aðr-
ar þjóðir myndu fúsar til að
bjóða hann velkominn í lönd
þeirra. En það, sem á skorti,
var náin samvinna af hálfu
Dana. Elzta konungsríki Evrópu
lpt það ekki henda sig, að lodd
ararnir í Berlín hefðu það að
leiksoppi.
Og höfuðpaur loddaranna',
Adolf Hitler, gezt engan veg-
inn vel að Kristjáni konungi.
Þegar Hitler óskar einhverjum
til hamingju í tilefni afmælis
hans, ætlast hann til þess, að
svarað sé með fjálgum þakkar-
orðum. Hann hefir sent Krist-
jáni konungi hlýleg heilla-
skeyti árlega á afmælisdegi
hans. Svar Kristjáns hefir jafn
an verið hið sama: — Þakkir.
Kristján konungur.
í fyrra hugðist Hitler neyða
konung til þess að orða svar
sitt á aðra lund en venja hans
hafði verið. Heillaskeyti foringj
ans var því harla loðið og tví
rætt. Og konungurinn svaraði:
— Þakkir. Kristján konungur.
i
Anglia
heldur fjórða fund sinn á þessu
starfsári, að Hótel Borg (inngang-
ur um suðuxdyr), næstkomandi
fimmtudagskvöld kl. 8.45. Björn
Bjarnason cand. mag., sem er ný-
kominn heim, eftir nám við há-
skólann í Oxford, flytur erindi
um Hamlet. — Að flutningi er-
indisins loknum, verður dansað til
kl. 1.
gruiariampa og eidhússhlóðir. — Hættu-
leg vegamót. Ræktun við heitt vatn og stökur um við-
ureign Önnu og Magnúsar.
VILL EKKI EINHVER forretn-
ingin fara að útvega og hafa
á boðstólum grútarlampa? Mér
finnst að það sé að verða full þörf
fyrir þá. Eins teldi ég mjög vel
til fundið ef húseigendur færu að
athuga möguleika yfir því að koma
upp eldhússhlóðum einhversstaðar
í kjöllurum sínum. Að minsta
kosti verður ekki hægt öllu lengur
að láta sitja við þetta ástand. Við
sitjum í myrkri og kulda og fáum
ekkert að éta nema ónýt hveiti-
brauð — með margaríni, meðan
verksmiðjurnar, sem þetta fram-
leiða, verða ekki alveg stopp —
og svo ískaldan, súran blóðmör,
sem við eigum enn er vorum svo
forsjál að taka dálítið af slátri í
haust.
ÞAÐ VAR GRÁTUR og gnístran
tanna á heimilunum í fyrradag, en
þetta hvort tveggja fer að komast
upp í vana, gráturinn þagnar og
gnístran tannanna, í þess stað fer
maður að bíta á jaxlinn og bölva í
hljóði — og yfirleitt líkar mér sú
aðferð miklu betur en hin. En
hvort blessaður ljósameistari borg-
arinnar fær ekki sinn skerf af
bölvinu læt ég alveg ósagt. Annars
hætti ég alveg að skrifa um þetta
helvíska ástand. Ég hætti yfirleitt
að minnast á hldutina, þegar þeir
hafa vaxið mér yfir höfuð. Ein-
hverntíma blöskrar manni!
„HJALTI“ SKRIFAR: „Nýlega
sá ég þess getið, að ugnur ísl. garð-
yrkjumaður við framhaldsnám í
Bandaríkjunum væri nú að ljúka
náminu með því að kynna sér
ræktun jurta í vatni. Eru þetta góð
tíðindi, enda er mál til komið að
garðyrkjumenn okkar fari að gefa
máli þessu nokkurn gaum, þar eð
hér er um að ræða stórkostlegt
fjárhagsatriði einkum fyrir Reyk-
víkinga, er geta sparað sér óþarf-
lega stór gróðurhús ef þeir taka
upp ræktun í vatni ,auk þess sem
uppskera getur orðið meiri og
tryggari jafnframt því að jurta-
sjúkdómar eru viðráðanlegri en
þegar rækta^ er í mold.“
„ÞAÐ MUNDI fljótt borga sig
fyrir bæjarfélagið okkar að ráða
þennan áhugasama garðfræðing í
þjónustu sína, og láta hann enn
dvelja um stund vestra við vatns-
ræktun og til að kynna sér ítar-
lega, heppilegri gerðir gróðurhúsa
en hér eru notaðar, þ. á. m. hin
einangruðu gróðurhús, sem hituð
eru og lýst með rafmagnsljósum,
og eru tilvalin ó stöðum sem engar
eiga hitaveitur. Slík gróðurhús
geta verið ódýr í rekstri, ef til
þess kemur að við fáum einhvern-
tíma rafmagn til hitunar og rækt-
unar við hóflegu verði. Og maður
vonar enn að staðið verði við þau
loforð, svo að allir Reykvíkingar
fái að njóta jafnréttis á þessu sviði
líf sþægindanna. “
„ÞAR SEM VITAÐ er að heita
vatnið og þá einnig rafmagnið
verður hvorutveggja dýrt næstu
áratugina, verða einstaklingarnir
að byggja gróðurskála sína af ann-
ari gerð en notuð er á hverasvæð-
um þar sem hiti er nærri því ó-
keypis. Við verðum að nota hita-
spör gróðurhús og ég tel það ráð,
að fela Halldóri að kynna sér mál-
ið meðan hann dvelst enn vestra.“
„BIFREIÐARSTJÓRI" skrifar:
„Það reynist oft vel, að leita til
þín um ýmislegt sem þarf lag-
færingar við, og nú langar mig til
að vekja athygli þeirra, sem hlui
eiga að máli, á hættuplássi hér við
einn höfuðakveginn.“
„ÉG EK NÆRRI DAGLEGA um
Suðurlandsbraut og niður Lauga-
nesveg og er því þaulkunnugur
þar sem og annars staðar í bænum.
Götulýsingunni er þannig háttað
þar við vegamót Suðurlandsbraut-
ar og Lauganesvegar að algerlega
er ófullnægjandi. Á sjálfum vega-
mótunum er kolsvarta myrkur og
þarf að gæta allrar varúðar fyrir
kunnuga bílstjóra og beigja ekki o£
snemma niður á Lauganesveginn.
því þá fer bifreiðin fram af hóum
vegkanti og getur hlotist af stór
slys.“
„ÉG HEFI ÞRÁFALDLEGA
séð bifreiðar liggja fyrir neðan
veginn vestan vegamótanna og
höfðu bílstjórarnir auðsjáanlega
álitið sig vera komna á vegamótin
og því beigt of snemma sökum
þess að dimmt var við sjálf vega-
mótin. Eitt kvöld sá ég tvær vöru-
bifreiðir hvora ofan á annari neð-
an við veginn á þessum stað.“
Viltu nú ekki Hannes minn beina
til réttra hlutaðeigenda (mér er
ekki kunnugt um hvort það er raf-
veitan eða bærinn) hvort ekki væri
hægt að lagfæra götulýsinguna á
þessum stað áður en stór slys
hlýst af, því götukanturinn er hár
og ekkert spaug að lenda niður
fyrir hann.“
UM EINVÍGI Önnu frá Mold-
núpi og Magnúsar Jónssonar hef
ég fengið þessa stöku frá hirð-
skáldi mínu:
„Þó hann væri á orðum ör,
iðki ræður fínar,
prófessorinn fýluför
fór í greipar þínar.
Aðstaðan var ólík þá,
— öllum þótti skaði —
líkt og verður ávallt á
útvarpinu og blaði. i
Það er von hjá þjóðinni
— þetta verið gétur —
eftir lokið einvígi
að hann lesi betur“,
Hannes á horninu.
Unglingar óskast
strax til að bera blaðið til kaupenda víðs vegar um
bæinn. Talið strax við afgreiðsluna.
Álþýðublaðið, sími 4900.