Alþýðublaðið - 08.02.1944, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 08.02.1944, Blaðsíða 5
I’riðjuilagur 8. febrúar 1944 ALPYPUBLAPIP 5 Fljúgandi virki yfir „Evrópuvirkinu" Hin fljúgandi virki' Bandaríkja. ianna fara nú daglega frá bæki t-öðyum sínum á Bretlandi inn yfir meginland Evrópu, oftast til Þýzkaiands, til árása á hergagnaverksmiðjur og kafbáta- miðstöðvar Hitlers. Þjóðverjum stendur mikill stuggur af þein enda eru þau iþegar búin að gjera ægilegan usla. Myndin sem hér birtist er tekin af einni árásarför hinna fljúgandi virkja / til Bremen. Vetrarnótt í Leningrad. Ég vil ekki vekja upp gamlar, hvimleiðar deilur Fyrirspurnum um bréf frá börnum svarað — Fiárhættu- spiíamennska ágerist — Dómar yfir ungmennum — Sið- lausir fyrirmenn — Miskunsemi, sem getur orðið að greind — Bílaorg og íbúar í nýjum húsum. LJÓSIÐ slokknaði í loft- varnabyrginu. Hræðsluóp kváðu við, svo og skarkali í stólum og bekkjum. Þá heyrð- ist há og hvell rödd segja: — Stilltir, félagar, verið stilltir og sitjið kyrrir þar, sem þið eruð. Það enengin alvarleg hætta á ferðum, Allir sátu kyrrir og hljóðlát- it í myrkrinu. Loftárásin hafði þegar staðið yfir í nokkrar klukkustundir. Málarinn sat í strigastólnum sínum, sem hann hafði jafnan meðferðis í leið- angrum sínum, þegar hann gerði frumdrætti mynda sinna. Þessi létti, þrífætti stóll kom honum nú í góðar þarfir. Mál- arinn bjó í litlu einnar hæðar húsi. Hann var einn hinna mörgu stríðsmanma, sem enn getur að líta á hinum breiðu strætum Petrogradhéraðsins, þrátt fyrir hinar mörgu styrj- aldir og byltingar, sem þeir hafa lifað. Framan við hús hans er garður, og í garðinum gat að líta fornlegan en fallegan gosbrunn. Nú var garðurinn hulinn fönn og á þessari stundu varð málaranum um allt annað hugsað en húsið sitt, garðinn og gosbrunninn. Hann hlustaði af vakandi at- hygli á samræður nágranna sinna, sem lýstu undrun og ótta, grát barnanna og skark- alann, þegar dyrnar voru or>n- aðar og lokaðar. Myrkrið huldi hann frá hvirfli til ilja eins og þykk yfirhöfn. — Eg hefði átt að vera far- inn frá Leningrad fyrir löngu, mælti maður nokkur, og geðs- hræringin í röddinni duldist ekki. — Já, hugsaði málarinn með sjálfum sér. — Það var heimskulegt af mér að vera ekki farinn héðan fyrir löngu. Það hefði ekkert verið við það að athuga. Flann vann um þess- ar mundir að því að búa aug- lýsingaspjöld, sem nutu mikilla vinsælda. Þau voru fest upp á strætum úti, á næturskemroti- stöðum og í skotgröfum á víg- stöðvunum. Það var hverju orði sannara. En það bar alls GREIN ÞESSI, sem lýs- | ir lífinu í Leningrad eins pg það hefir verið nú um skeið, fjallar um málara, loft- árás og eplatré......... ... . .Mun mörgum þykja fróð- legt að lesa um hugsanir mál- arans og áhrif hinnar fögru borgar og dýrlegu vetrarnæt- ur á hann. Greinin er eftir Nikolai . Tikhonov . og . hér þýdd úr tímaritinu English Ðigest. enginn nauður til þess, að hann byggi þau hér í Leningrad. Aðstæðurnar voru jafnvel bann ig, að það var nær ómögulegt fyrir hann að vinna. Það var sárkalt í vinnustofu hans. Fingur hans voru svo dofnir af kulda, að það var nær ómögu- legt fyrir hann að halda á pennsli. Eldstóin veitti svo lít- inn hita, að það var illgerlegt að hafast þarna við, hvað þá að vinna. Auðvitað var ekkert loftvarnabyrgi í þessu litla húsi hans, og í hvert sinn, sem loft- varnamerki var gefið, varð hann að hlaupa út í hið stóra hús, sem var þar í grenndinni, og hafast við í loftvarnabyrginu í kjallara þess, oft tímum sam- an. Öðru hverju lék húsið á reiði skjálfi. Þá gerðust allir bögul- ir, og djúp eftirvænting ríkti tím stund. Þá var þögnin ve.nju- lega röiin að nýju. Myrkrið vérð alltaf meira og meira. Málarinn vissi ekkert hvað hvað tímanum leið. Hann hafði farið til loftvarnabvrgisins um kvöidið. Nú hlaut að vera langt liðið á nóttu. Loftám^ ~'+Iaði auðsýnilega að standa lengi yf- ir. Aftur kvað sprenging við, og aftur og aftur .... Þeir varpa spren"inm með mesta m'óti, hugsaði hann með sér. En hvað hin ástkæra borg hans. hans hafði breytzt, Það var átak anlegt að hugsa um það. Maður gat varla varizt því að tárfella. Það var hrygglegt og átakan- legt. Barn heyrðist gráta úti í einu horninu. Málarinn hvessti sjón- ir út í myrkrið til þess að reyna að koma auga á litla barn ið, sem tekið var að gráta. Ef, til vill hafði það sofið og vakn- a,ð og farið að gráta af hræðslu þarna i myrkrinu. Ætti hann að mála mynd af loftvarnabyrgi eins og þessu, sem aðeins var upplýst af kertaljósum? Flökt- andi bjarma leika um andlit fólksíns, dökka skugga á veggj- unum, gamlar konur dúðaðar hlýjum vetrarkápum, ungt fólk, sem hvíslaðist á úti í hornum loftvarnabyrgisins og ungbörn, sem þrýstu sér að brjóstum ungra mæðra sinna.., En hvað það var erfitt fyrir listamanninn, hugsaði hann, að láta mikið til sín taka á tím- um, sem þessum. Hinir miklu meistarar fortíðarinnar myndu óttalaust hafa lýst drunga og glæsileik þessa tímabils. Goya myndi hafa málað Leningrad djarfri og öruggri hendi og myndi hafa gefið myndum sin- um sama heiti og hann valdi þeim fyrir heilli öld: Þetta sá ég.... Ljósin voru kveikt og inn um dyrnar barst merkið um það, að hættan væri liðin hjá. Loftárásin var um garð gengin. Málarinn hafði engan veginn hraðan á. Hann beið unz mest- ur hluti mannfjöldans var far- inn út og varð meðal hinna síð- ustu, er kvöddu loftvarnabyrg- ið. Hann óttaðist, að rústir myndu blasa við augum hans strax og hann kæmi út p s+ýæt- ið. Honum varð um það hugs- að, hvernig hann ætti þá að komast heim í litla hús’ð sitt, þótt það væri aðeins örskammt í burtu. Þegar út á strætið kom, nam hann undrandi staðar. Allt va r sveipað Ijósflóði Frh. á 6. síðu. AÐ ER EKKI memingin að fara að vekja upp hinar hvimleiðu cleiiur um Hallgaáms- kirkju og- teikningu húsameistara ríkisins. En kunnur maður, sem vit hefur á hlutunum, skrifaði mér strax í fyrraclag langt og mergjað bréf af tilefni ummæla „Sigga á Sjónarhó!“ um Hörð arkitekt Bjarnason og Hallgríms- kirkju, sem slæddist með í pistl- inum á smmudag. Mótmælir hann mjög kröftuglega ummælum þess- um og þykir sem þau hafi verið sleggjudómur einber. ÉG GET EKKI tekið bréf um þetta gamla deilumál. Það var mér alltaf til sárra leiðinda og ég veit líka, að það getur orðið endalaust og án þess að hægt sé að kom- ast að niðurstöðu í því. Það er líka hægt að skrifa og tala um nóg annað, sem úrlausnar bíður, og við skulum því segja stopp við því. Ekki meira af svo góðu! VEGNA FYRIRSPURNA vil ég geta þessa: Eins og þið munið. fékk ég mörg bréf síðastliðið haust, sem börn höfðu skrifað foreldrum sínum. Þetta varð að svolítilli bók, sem kom út síðastliðið haust. Hún er nú nær uppseld. Hafa barnaskólarnir tekið allmikið af henni í lestrarsöfn sín. Nokkur bréf, sem ekki komu í bókinni eru enn hjá mér, þar á meðal nokkur, sem ég hefði tekið en bárust mér of seint. Sum þeirra eru alveg á- gæt. Mig langar til að halda þess- um bréfum, en ef foreldrar vilja fá þau, bið ég þau að láta mig vita. Ennfremur vildi ég gjarna fá fleiri bréf og þó öllu heldur ferða- sögur, sem börn hafa skrifað. Hef ég nokkrar nú þegar undir hönd- um. MÉR ER TJÁÐ, að fjárhættu- spilamennska sé mjög að færast í vöxt hér í bænum. Veit ekki sönn- ur á þessu, en hef þó fulla ástæðu til þess að trúa sögunni. Það er von að menn verði að hafa eitt- hvað fyrir stafni, þegar áhugamál- in þverra! Brennivínsdrykkja og peningaspil er þá ágætt að grípa til! Enda fer víst bezt á því, að við hættum alveg að hugsa um viðfangsefnin og erfiðleikana, sem eru framundan. Hins vegar eru sumir líka svo gáfaðir að þeir geta sinnt hvorutveggja — og það er meir en hægt er að segja um hina aumingjana, sem ekki eru til skiptanna! EINN AF BRÉFRITURUM mín- um skrifar mér um ungmerma- eftirlitið, ungmennadóminn og báu mál. Hann telur ekki að hægt sé að dæma ungmenni, sem leiðast á glapstigu. Hefur bréfritarinra upp raust sína og telur að fyrir- menn í þjóðfélaginu gangi á imd- an unglingunum með illu eftir- dæmi. Þeir séu Eauslátir saurlífis- menn og því hættulegir því fólki, sem þeir eigi að leiða. EKKI EFAST ÉG UM að þetta sé satt, En ég vil benda á, að ung- lingarnir, sem heimilin ráða ekki við, lögreglan ræður ekki við, og enginn ræður við, eru líka hættu- legir umhverfi sínu, æskunni, sem þeir hafa kynni af, Það er ekki meiningin með dómum yfir þeim að koma fram hegningu bein línis gagnvart þeim, sem einstakl- ingum, heldur skilst mér að til- gangurinn sé sá að skapa fordæmi, sýna hvað sé talið þolandi af þjóð- félaginu og hvað ekki. Miskunsemi er góð, en miskunsemi getur orðið að grimmd, ef hún steypir fleir- um í 'glötun en þeim, sem hún verndar. Ykkur finnst þetta ef til vill harka, en ég lít ekki svo á. ÚR BÆJARBYGGINGUNUM á Melunum er mér skrifað: ,,Það er ein plága, sem sækir okkur íbú- ana í nýju byggingunum við Hring braut mjög heim. En hún kemur þó aðeins yfir okkur að nóttu til. Ég á hér við sífelldan bílhorna- blástur um miðjar nætur. Ég og margir fleiri, verðum að þola það nótt eftir nótt, að við séum vakin með bílagargi og svo verður mað- ur oft andvaka, því að þegar einu orginu sleppir, þá kemur annað. Er ekki bannað í lögreglusam- þykktinni að þeyta slík hom um nætur. ÉG VEIT EKKI betur en að þetta sé bannað. En hvemig stendur á þessu gargi? Ef íbúar í húsunum hafa símað eftir bif- reiðum, þá er ekki ofverkið þeirra að hafa gætur á því, hvenær þær koma til þeirra. Annars er eina ráðið að reyna að ná númerum þeirra bifreiða, sem þannig láta og kæra eigendur þeirra síðan fyrir lögreglunni. Hannes á horninu. \ S * \ s s s s s s s $ ! s fI9 útsölumanna ABþýðublaðsins. Vegna áramótauppgjörs eru útsölumenn blaðsins úti á landi beðnir að senda uppgjör hið allra fyrsta. Óscld jélablöð óskast endursend sem allra fyrst, vegna þess, að blaðið er uppselt í afgreiðslunni. S | $

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.