Alþýðublaðið - 08.02.1944, Blaðsíða 7
Jbriðjudagar 8. febrúar 1§44
klÞYÐUBLAÐH)
iBœrinn í dag.í
Næturlæknir er í nótt í Lækna-
varðstofu Reykjavíkur, sími 5030.
Næturvörður er í Reykjavíkur-
apóteki.
Næturakstur annast Bifreiða-
stöð íslands, sími 1540.
ÚTVARPIÐ:
12.10—13.00 Hádegisútvarp.
15.30—16.00 Miðdegisútvarp.
18.30 Dönskukennsla, 2. fl.
19.00 Enskukennsla, 1. fl.
19Í25 Þingfréttir.
19.50 Auglýsingar.
20.00 Fréttir.
20.20 Tónleikar Tónlistarskólans:
Strengjasveit leikur undir
stjóm dr. Urbantschitsch:
Konsert í d-moll fyrir píanó
og strengjasveit eftir Joh.
Seb. Bach (Píanó: dr. Ur-
bantschitch).
20.45 Erindi: Andleg heilsuvernd,
II: Samtöl og játningar (dr.
Símon Jóh. Ágústsson).
21.10 Hljómplötur: Endurtekin
lög.
21.50 Fréttir.
Silfurbrúðkaup
eiga í dag, hjónin Kristín L. Sig-
urðardóttir og Karl Bjarnason,
brunavörður, Bjarkagötu 14.
Hjónin hafa verið virkir þátt-
takendur í félagsmálastarfsemi hér
í bæ um margra ára skeið, og þar
á meðal unnið mikið og gott starf
í þágu bindindismálsins sem fé-
lagar Góðtemplarareglunnar.
Magnús Sigurðsson, bankastjóri,
og Sveinbjörn Finnsson hag-
fræðingur, eru komnir heim.
Magnús sat á ráðstefnu hinna sam-
einuðu þjóða í Bandaríkjunum í
haust. Var Sveinbjörn fulltrúi
hans. Þeir komu hingað í flugvél
frá Englandi.
Þessi númer komu upp
í happdrætti Slysavarnafélags
íslands. — 20857 20778 10655
12450 16804 28828 13347 08885
08938 26299 20882 08767 23278
26247 4764 20287 20691 20162 7368
17213 19109 20283 17274 26976
15724 10254.
BrimatrjrgsiBgar f
bænntn.
Frh. af 2. síðu.
kveður bæ.iarstjórnin að samið
verði á þeim grundvelli að verð
gjaldaaukar verði allir feldir nið
ur.“
Aðaltillaga Helga Hermanns
Eiríkssonar var felld með 7 at-
kvæðum gegn 5, en tillaga Jóns
Axels Péturssonar samþykkt
með samhljóða atkvæðum. Enn-
fremur var viðaukatillaga H. H.
E. samþykkt með samhljóða at
kvæðum.
Þannig hefir engin endanleg
lausn fengizt enn í þessu trygg-
ingarmáli, en það er allmikið
deilumál.
Um þá aðferð, sem Helgi
Hermann vildi hafa, má segja
það, að þó að hugsanlegt væri
að hægt væri að gera útboð að
nýju, þá er það vægast sagt mjög
óvenjuleg viðskiptaaðferð.
Bjðlparstarf baraa.
Frh. af 2. síðu.
þau eru að hjálpa.
Þeim, sem þetta ritar er ekki
kunnugt hvað víða þessi starf-
semi er rekin í barnaskólum, en
vel væri að hún væri tekin upp
sem allra víðast.
K«íKHH>4K*#><>%ó4h
ÚfbreiSið Albvðublaðið.
Stjórnarkosningar í
nokkrum verkalýðs-
félögum.
AÐALFUNDIR nokkurra
verkalýðsfélaga eru nýaf-
staðnir.
Baldur á ísafirði kaus sér
stjórn eins og hér segir: Helgi
Hannesson, formaður, Hannibal
Valdimarsson, varaformaður,
Gunnlaugur Guðmundsson, rit-
ari, Halldór Ólafsson, gjaldkeri,
Ragnar G. Guðjónsson, fjár-
málaritari.
Jökull í Ólafsvík kaus sér
þessa stjórn: Kristján Jensson,
formaður, Kjartan Þorsteins-
son, varaformaður, Þorgils
Stefánsson, ritari, Ottó Árna-
son, gjaldkeri, Magnús Jónsson,
fjármálaritari.
Þvottakvennafélagið Freyja í
Reykjavík hefir kosið sér þessa
stjórn: Þuríður Friðriksdóttir,
formaður, Petra Pétursdóttir,
varaformaður, Áslaug Jóns-
dóttir, ritari, Sigríður Frið-
riksdóttir, gjaldkeri, Þóra Hall-
dórsdóttir, meðstjórnandi.
Verklýðsfélag Fáskrúðsfjarð-
ar hefir kosið þessa stjórn:
Yaldimar Bjarnason, formaður,
Ólafur Eyjólfsson, ritari, Magn-
ús Guðmundsson, gjaldkeri,
Magnús Eiríksson, varaformað-
ur, Garðar Kristjánsson vara-
ritari og Stefán Sigbjörnsson
varagjaldkeri.
Á fjórða þúsund
manns hafa séð
sýningar Ár-
manns.
Iþróttahátíða-
höldunum lauká
sunnudag.
O ÁTÍÐAHÖLDUM Glímufé-
lagsins Ármanns af tilefni
55 ára afmælis félagsins er nú
lokið, að undanskyldu sjálfu af-
mælishófinu, sem verður í Odd-
fellowhúsinu næstkomandi laug
ardagskvöld.
Hátíðahöldin hafa staðið í 8
daga, og hafa sótt þau á 4. þús-
und manna, og hafa þó mörg
hundruð orðið frá að hverfa á
hverjum degi. Sýningar félags-
ins hafa tekizt framúrskarandi
vel og borið þess ljóslega vitni,
hversu ágætum kennurum og
þjálfurum Ármann hefir yfir
að ráða — og af hve mikilli al-
úð stjórnendur Ármanns vinna
að framgangi iþróttanna í fé-
lagi sínu.
Félagslíf.
Mlnningarorð
Björn Björnsson
SKÍÐADEILDIN. — Skemmti-
kvöld fyrir allar deildir félags-
ins verður í Tjarnarkafé fimmtu
daginn 10. febr.
1. Sýnd verður kvikmynd frá
Kolviðarhóli, tekin á páskunum
1943.
2. Sýnd kvikmynd frá Skíða-
landsmóti í. S. í. 1943. Kvik-
myndirnar teknar af K. Ó. B.
3. Einsöngur: Pétur Jónsson
óperusöngvari. Aðgöngumiðar
fást í Pfaff.
Skemmtinefndi
Björn Björnsson.
IDAG er til grafar borinn
Björn Björnsson banka-
fulltrúi. Hann andaðist hinn 30.
f. m.
Björn var fæddur að Laufási
við Eyjafjörð 22. maí 1897 og
var sonur hinna gagnmerku
hjóna séra Björns Björnssonar
og konu háns Ingibjargar Magn-
úsdóttur, prests Jónssonar. Þeg-
ar hann var 14 ára gamall gekk
hann í gagnfræðaskólann á Akur
eyri og lauk þaðan burtfarar-
prófi 1914, þá 17 ára að aldri.
Að því námi loknu dvaldist hann
um 9 ára skeið á æskustöðvum
og vann við almenna sveita-
vinnu hjá foreldrum sínum, að
undanteknu lVz ári er hann
vann við verzlun á Akureyri.
Haustið 1923 fór hann utan til
frekara náms og gekk á verzl-
unarskóla í Kaupmannahöfn og
lauk þaðan fullnaðarprófi með
hárri einkunn eftir eins árs nám.
Að loknu prófi hvarf hann heim
aftur.
Á meðan hann dvaldist erlend
is hafði sú ibreyting orðið á hög-
um f jölskyldunnar að faðir hans
hafði látist og móðir hans og
systkini flutt búferlum hingað
til Reykjavíkur. Hann hafði að-
eins dvalið hér skamma hríð er
hann fékk starf við Landsbanka
íslands, starf er varð ævistarf
hans, því að þar vann hann alla
tíð þar til hann lézt, eða full 19
ár. Árið 1929 kvæntist hann eft-
irlifandi konu sinni Þórhöllu
Þórarinsdóttur frá Valþjófsstað;
þeim varð 3 barna auðið, sem
eru enn öll á bernskuskeiði.
Við Björn sál. kynntumst
fyrst 1908 þá ungir að árum.
Það var síðla dags 1 nóv., að mig
bar að garði foreldra hans að
Laufási. Eg var þreyttur og ferð
lúin eftir mánaðarferðalag. Og
eftir að hafa gengið síðasta á-
fangann frá Akureyri út í
Laufás, var , ég blautur og
hrakinn. Það mun sannast,
að æskan sé fljót að hvíl-
ast og fljót að gleyma erfið-
leikunum þegar á þeim hef-
ir verið sigrast, og jsvo var um
mig þetta kvöld. Ég var vart
kominn inn í stóru bæjargöngin
í gamla Laufásbænum, og hóp-
! ur ungra frænda höfðu slegið
hring um mig, að margra vikna
þreyta og leiðindi hurfu sem
dögg fyrir sólu. Og enn er mér
í fersku minni snarlegi ljóshærði
drengurinn, sem fljótlega, eftir
að hafa heilsað mér, tók hart
viðbragð og hljóp til mömmu
sinnar til þess að láta hana vita
hver kominn væri. Hann var
fljótur að gera sér þess grein, að
hér þurfti hún að koma, til þess
að annast framhald móttökunn-
ar. Slík voru mín fyrstu kynni
af hinum nýlátna frænda mínum
og vini. Eins og hann kom mér
fyrst fyrir, litli ljóshærði dreng
urinn i bæjardyrunum í Laufási,
átti ég oft eftir að sjá hinn þrosk
aða mann. Snarráðan og skjótan
til úrræða um allt það, er hann
sá að nauðsyn bar til að inna
af hendi. Boðinn og búinn að
leysa vanda hvers þess er leit-
Maðurinn minn
Guðmundur Bjarnason frá Stykkishólmi
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 10. febrúar.
Athöfnin hefst með húskveðju á Njálsgötu 72 kl. 1,30 e. h. Jar@-
að verður í Fossvogskirkjugarði.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna.
Hjörtfríður Elísdóttir.
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
mannsins míns, föður okkar og tengdaföður
Kistins SigurÓssonar, múrarameistara.
Laufey Jónsdóttir, böm og tengdabörn.
Þökkum hjartanlega öllum fjær og nær, sýnda samúð við
fráfall^ mannsins míns og föður
Valdimars Guðjónssonar, matsveins,
er fórst með b.v. Max Pemberton 11. janúar s. 1.
Rósa Guðmundsdóttir. Guðm. Björnsson og börn.
Jarðarför mannsins míns og sonar,
Björns Björnssonar, hankafulltrúa,
fer fram frá Fríkirkjunni í dag og hefst með húskveðju að heimiii
hans, Hringbraut 214, kl. 2. e. h.
Fyrir hönd vandamanna. '
Þórhalla Þórarinsdóttir. Ingibjörg Magnúsdóttir.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hluttekningu við
fráfall og minningarathöfn feðganna
Péturs Andrésar Maack,
skipstjóra
og
Péturs Andrésar Maack,
stýrimanns.
Eiginkonur, börn, syskini og tengdaböm.
É G Þ A K K A sýndan vinarhug á fimmtugsafmæli
mínu.
Gunnar Akselson.
aði hans, og hann sá að var hjálp
ar þurfi.
Björn var mikilli starfsmað-
ur og mátti svo segja, að hann
ynni sér vart hvildar. Ungling-
ur í föðurgarði gat hann sér
þegar orðstír fyrir dugnað og
áræðni. Það, sem öðrum þótti
lítt fært, veittist honum auð-
velt að leysa.
Það standa ekki efni til, að ég
geti um það sagt, hvernig hann
hafi leyst af hendi starf sitt sem
bankamaður, en þó geng ég
þess ekki dulinn, að þar muni
dugnaður og samvizkusemi
hafa skipað öndvegi, sem í öllu
öðru, er hann tók sér fyrir
hendur.
Frístundir sínar notaði Björn
til lesturs góðra bóka, enda var
hann maður fróður vel, og
kunni glögg skil þess, er hann
las. Hann varð að nota tímann
til einhvers. í vinahóp var hann
hrókur alls fagnaðar, svo að
með honum þótti gott að vera.
Ég átti þvi láni að fagna, að
vera oft gestur á heimili hans.
Hin íslenzka gestrisni, sem um
aldir hefir verið einn hinn
sterkasti þáttur í þjóðareðli okk
ar Islendinga, var þar í ríkum
mæli. Húsbóndi og húsfreyja
áttu þar óskilið mál. Frá þeim
fóru allir með hlýjar endur-
minningar um samhent hjón, er
það var fyrir mestu, að gera
gestinum dvölina sem ánægju-
legasta.
Það er skuld, sem vér skulun
allir gjalda, að kveðja þetti
jarðneska líf. Þrátt fyrir þai
eigum við stundum erfitt mei
að sætta oss við, hvernig hii
kalda hönd dauðans heimti:
skuld sína, að þeim, sem rét
hefir byrjað eða vart hálfnai
sitt skeið, skuli að engu þyrm
frekar en hinum, sem jafnve
hefir þegar runnið það til enda
En hér þýðir ekki um að ræða
þetta er lögmál, sem ekki verð
ur umþokað, og það sem hön<
dauðans hefir til sín heiml
gerzt, söknum'þess mjög, hv
verður ekki aftur skilað.
Við, sem þekktum Björn sál
sviplega honum hefir verii
kippt úr hópi okkar. Við höfuri
misst góðan dreng, og þjóðii
nýtan þegn, fullan áhuga og c
bilandi starfsorku. Hér er þ
mestur harmur kveðinn a
konu hans og börnum, og hinr
aldurhnignu móður, sem han:
um allt var forsjá og örygg
Gefi sá, sem um aldirnar hefi
verið huggun þeirra, sem sorg
in slær, hinni syrgjandi fjöl
skyldu styrk í sorg hennar.
Jóhann Hjörleifsson.
Gunnlaugur Pálsson, arkitekt,
hefir nýlega lokið prófi í bygg-
ingafræði við Listaháskólann í
Kaupmannahöfn.