Alþýðublaðið - 12.03.1944, Side 3
#nmradagur 12. marz 1944
AIMÐUBLAÐIÐ
K AÐ VAKTI feykilega at-
athygli, er það fréttist á
dögunum, áð Bandaríkja-
stjórn hefði beint tilmælum
til írskra stjórnarvalda, að
þau vísuðu úr landi fulltrúum
Þjóðverja og Japana þar í
landí, en svo sem kunnugt er,
hafa írar verið hlutlausir og
eru í þssari styrjöld. Hafa
bandamenn látið í ljós þá
skoðun sína, að Þjóðvérjar
reki miklar njósnir þar í
landi og séu mjög hættulegir
öllum áformum bandamanna,
ekki sízt með tilliti til vænt-
anlegrar innrásar.
jMÚ HAFA ÍRAR vísað þessum
tilmælum á bug og er þetta
etit aðal-umræðuefni heims-
blaðanna nú.
Ef þetta mál er skoðað af
sanngirni, má segja, að það
sé skiljanlegt, að bandamönn
um sé meinilla við að hafa
þauæfða njónsara við bæjar
dyr sínar, sem vafalaust vita
undan og ofanaf öllu því, sem
gerist í Bretlandi. Á hinn bóg
inn er það jafnskiljanlegt, að
írar, sem sjálfstæð þjóð,
kunni ekki við að láta segja
sér fyrir verkum og er því
út af fyrir sig ekkert við neit-
un þeirra að athuga, enda hef
ir sennilega verið við henni
búizt.
JEITT New York-blaðanna sagði
um þetta mál í gær, að því
er sagt var í útvarpi frá
Bandaríkjunum í gær, að írar
hefðu fullkominn lagale^an
rétt til þess að hafna tilmæl-
um Cordell Huil, en hins veg
ar yrðu að athuga, hvað í
húfi væri, og því væri miður,
hvernig farið hefði. Þá sagði
kunnur amerískur útvarpsfyr
irlesari, að þarna kæmi fram
munurinn á starfsháttum
bandamanna og Þjóðverja:
Bandamenn sendu tilmæli, en
Þjóðverjar hefðu undir sömu
kringumstæðum, sent her-
afla. — Væntanlega verður
úr því skorið næstu daga,
hvort nokkuð frekar gerist í
þessum málum.
ÍRLAND ER, þrátt fyrir afskipti
norrænna víkinga og dvöl íra
hér á landi endur fyrir
löngu næsta lítið þekkt hér.
Að minnsta kosti sagði maður
nokkur eitt sinn við þann, er
línur þessar ritar, að írar
væru undarlegir menn, flestir
hétu nöfnum, sem byrjuðu á
O’, svo sem O’Connor,
O’Brian, þeir syngju tenór,
væru rauðhærðir, færu flestir
til Vesturheims og gerðust
lögregluþjónar í New York.
Þeir, sem lieima sætu, gengju
í félagsskapinn í. R. A. sem
gerði sér það til dundurs að
sprengja í loft upp salerni og
fatabyrgi á enskum járn-
bráútarstöðvum.
ÍRSKA FRÍRÍKIÚ, EIRE, var
stofnsett fyrir rúmum tveim
áratugum að afstöðnum blóð-
ugum bardögum og innbyrðis
deilum.
Landið er frekar fátækt að
gæðum. Aðalatvinnuvegurinn
er landbúnaður. Þar eru rækt
aðar kartöflur, hveiti, hafrar,
bygg, rúgur og ýmislegt kál-
meti. Þegar uppskerubrestur
Yfir Þýzfealandi.
Myndin sýnir amerísk flugvirki í árásarferð einhvers staðar yfir Þýzkalandi. Til 'hægri sjást
tvær Messerschmittflugvélar þar sem hringirnir eru, hrapa til jarðar eftir skothríð flugvikj-
anna.
Samtímis var ráðist á Calais-svæðið,
í Frakkiandi.
HIN STÓRXJ flugvirki Bandaríkjamanna fóru enn til árása á
Þýzkaland í björtu í gær. AS þessu sinni var ráðizt á borg-
ina Miinster í Norðvestur-Þýzkalandi. Samtímis réðust amerískar
Liberator-flugvélar á ýmsa staði í Norður-Frakklandi, einkum á
Calais-svæðinu. Langfleygar orrustuflugvélar voru með í árásar-
ferðum þessum. Allar sprengjuflugvélarnar komu aftur, en 4
orustuflugvélanna týndust.
Borgin Munster er mjög mik^
ilvægsamgöngumiðstöð í Norð-
ur-Þýzkalandi. Er þetta önnur
dagárásin á borgina á einni
viku. Skýjaþykkni var yfir
borginni, er flugvélarnar komu
á vettvang, en þeim tókst þó
að hæfa skotmörkin, enda hafa
flugmennirnir sérstök miðun-
unartæki undir slíkum kring-
umstæðum, að því er segir í
Lundúnafregnum. Brezkar flug
vélar af Mosquito- og Typhoon
gerð voru einig á sveimi yfir
Þýzkalandi og herteknu lönd-
unum.
í fyrrinótt fórú hinar stóru
Lancasterflugvélar Breta til á-
rása á Mið- og Suður-Frakk-
landi. Lítið varð um viðnám af
hálfu Þjóðverja. Yfir Biskaya-
flóa kom til átaka við þýzkar
sprengjuflugvélar og voru fjór-
ar þeirra skotnar niður.
Pucheu, fyrrum ráðherra í Vi-
chy hefir nú verið dæmdur til
dauða í Algier. Honum var
veittur 24 kl. frestur til þess að
áfrýja dómnum.
Péfur Júgéslavakon-
ungur í London.
✓
ÉTUR Júgóslavakonungur
er nú kominn til London,
ásamt nokkrum ráðherrum sín-
um til viðræðna við banda-
menn um afstöðuna til Titos og
reyna að ná samkomulagi.
Sendiherra Júgóslav aog her-
málaráðunautur hans í Moskva
hafa látið af embættum sínum
hjá júgóslavnesku stjórninni og
lýst yfir því, að þeir muni
starfa fyrir Tito og þjóðfrelsis-
her hans.
TILKYNNT er í London, að
norski kafbáturinn ,,Ula“
hafi nýlega sökkt tveim birgða
skipum Þjóðverja, sem voru
samtals 5000 smálestir að
stærð. Önnur skip urðu fyrir
tundurskeytum, en ekki var
unnt að sjá, hver afdrif þeirra
urðu, þar eð kafbáturinn varð
strax að fara í kaf.
segir „Norsk Ticiend6*
f BLAÐINU „Norsk Tidend“,
* sem út kemur í London birt
ist í gær athyglisverð grein um
vandamál Finnlands eftir
Finn Moe ritstjóra, -sem annast
utanríkismál blaðsins, en starf
ar annars hjá utanríkisráðu-
neytinu norska. Bendir Moe á,
að ekki sé einhlítt að skoða að
stöðu Finna í Ijósi þeirra at-
burða, sem nú eru að gerast,
heidur verði líka að taka tillit
til þess, sem framtíðin kann að
bera í skauti sínu og hverjar
afleiðingar stjórnmálastefna
Finna kunni að hafa í fram-
tíðinni.
Það, sem hér fer á eftir, er
útdráttur úr þessari grein.
Finn Moe bendir á, að eitt
af því, sem mest áhrif hljóti
að hafa á stefnu Finna sé land
fræðileg lega landsins, þ. e. a.
s. nábýlið við stórveldið Rúss-
land, en hihs vegar sé það
eitt ekki nægilegt til þess, að
deilur rísi upp. Það var út-
þenslustefna rússnesku zaranna,
sem í lok síðustu aldar skóp
óttann og hatrið í garð Rússa,
sem enn ber allmikið á í Finn
landi. Hins vegar bendir Moe
á, að Sovétríkin hafi strax við
urkennt sjálfstæði Finnlands
og að borgarastyrjöldin hafi
einkum átt rætur sínar að rekja
til félagslegra mótsetninga í
innanríkismálum, en vegna
þess, að báðir aðilar fengu
hjálp annarra stórvelda breytt
ist þetta og varð að baráttu um
utanríkisstefnu Finnlands.
Borgarastyrjöldin gerði Finna
tortryggna í garð Rússa og það
hefir markað utanríkismála-
stefnu þeirra. En hins vegar er
það ljóst ,að lítil þjóð getur
ekki, þegar til lengdar lætur,
annað en haft vdnsamleg mök
við volduga nágranna.
Fyrst í stað nálgaðist Finn-
land allmjög Þýzkaland sem
mótvægi gegn Rússlandi, en síð
ar, þegar lýðræðis- og frjáls-
lyndisstefnan í landinu varð
sterkari, lögðu þeir kapp á
norræna samvinnu. Jafnframt
því reyndu þeir að komast í
nánari samband við vesturveld
in, en varð lítið ágengt, að
minnsta kosti ekki þannig, að
öryggi fengizt, ef til átaka við
Rússland kæmi. í þessari styrj
öld virðist allt ætla á sömu leið,
hefir komið fyrir, hefir oft
orðið hungursneyð í landinu
og af þeim sökum hefir fjöldi
íra flúið land. íbúar eru tæp
ar 3 milljónir og hefir þeim
heldur farið fækkandi síðustu
áratugina.
LANDIÐ ER LÝÐVELDI og
heitir forsetinn Douglas
Hyde, þjóðkjörinn til 7 ára,
4. maí 1938. Forsætisráðherr
ann er Eamon de Valera, sem
er áhrifamesti maður landsins
Flann hefir jafnan staðið
fremst í fylkingarbrjósti er
um var að ræða sjálfstæði
landsins og mun hann njóta
mikils trausts í landinu. Þing
ið skiptist í tvær deildir, full
trúa deild, Dail Eireann og \
öldungadeild, Seanad Eire-
ann. Þingmenn fulltrúadeild-
arinnar eru 138, en 60 í öld-
ungadeildinni. Þingmenn full
trúadeildarinnar eru kjörnir
beinum kosningum. Forsætis
ráðherra skipár 11 öldunga-
deildarþingmenn, háskólarnir
kjósa 6, en hinir eru kosnir
af fulltrúum hinna ýmsu
stétta.
ÍRAR eiga sér langa raunasögu,
og hafa jafnan reynzt harðir í
horn að taka, ef á þurfti að
halda. Hvernig sem málin
fara, sem nú eru efst á baugi,
er vonandi, að landið verði
ekki aftur vettvangur styrj-
aldarátaka og bræðravíga,
eins og áður fyrr.
S
Rússar eiga 30 km. Ö-
farna tjl Nikolaev.
O ÚSSAR halda enn áfram
sókn sinni og verður víð-
ast vel ágengt. Á eini viku
hafa Rússar sigrazt á 35 her-
fylkjum, þar af 13 brynfylkj-
um (Panzerdivision). Það er nu
upplýst, að þegar Uman féll í
hendur Rússum, beittu þeir
fyrst stórskotaliði, en síðan
ruddust skriðdrekar þeirra
fram, en skelfing mikil greip
Þjóðverja og brast brátt flótti
í lið þeirra. Rússar eru nú að-
eins 30 km. frá borginni Nik-
olaev við Svartahaf, sem er
Þjóðverjum afarmikilvæg. Þá
hefir og borgin Berislav fallið
í hendur Rússum.
Hersveitir Zukovs berjast á
götum Tarnopol og ná hverju
strætinu af öSru á sitt vald.
Sagt er. ao Manstein hershöfð
ingi, yfirmaður þýzku herj-
anna, muni ætla áð flytja bæki
stöðvar sínar til Iasi (Jassy) í
Rúmeníu. Ríkir mikill uggur
þar í landi út af hinum síðustu
hrakförum Þjóðverja í Rúss-
landi. Enn fremur hefir verið
frá því skýrt, að í bardögunum
á Uman-svæðinu, hafi verið
geypilegt mannfall og hafi marg
ir tugir þúsunda Þjóðverja fall
ið, en um 20 þúsund særzt.
Finnar gerðust bandamenn
Þjóðverja, en þegar ljóst varð,
að bezt var að hætta styrjöld-
inni, reyndu þeir að tryggja
sér stuðning Breta og Banda-
ríkjamanna ef til friðarumleit
ana kæmi. Þetta hefir ekki
tekizt, heldur má segja, að
Finnlqnd sé nú í þeirri klípu,
að bjarga beri því, sem bjargað
verður, eftir að utanríkismála-
stefna þeirra hefir mistekizt.
Þess vegna verður Finnland að
sætta sig við breytt viðhorf.
Rússland er nú eitt áhrifa-
mesta ríkið í Evrópu og hlýtur
að ráða miklu um framtíðarúr-
Iausnarefni álfunnar, alveg
eins og fyrr á öldum.
Ef Finnland ætlar að halda
áfram óvinsamlegri stefnu í
garð Rússlands verða þeir að
fá aðstoð einhvers stórveldis,
en hvar? Ekki hjá Þýzkalandi,
sem tapar stríðinu og ekki hjá
vesturveldunum, sem munu
halda áfram samvinnunni við
Rússa. Og allra sízt er slíkrar
aðstoðar að vænta hjá hinum
Norðurlandaþjóðunum, ekki að
eins vegna þess, að þau hafa
ekki bolmagn til þess að heyja
stríð við stórveldi, heldur og
vegna þess, að Norðmenn munu
ekki taka þátt í norrænni sam-
vinnu, sem beint er gegn Rúss
landi. Skilyrði fyrir því, að
Norðmenn taki þátt í norræni
samvinnu er það, að Finnland
hafi vinsamlega sambúð við
Rússland, vegna þess, að í víð
ari merkingu eru öll Norður-
lönd Nágrannar Rússlands.
Af þessu leiðir, að Finnland
verður ekki einungis að semja
frið við Rússland heldur breyta
um stefnu í utanríkismálum.
Finnland verður að ráða fram
úr því sjálft, hvort það vill
íylgja Hitler og Himmler út í
ógæfuna eða komast að sann-
gjörnu samkomulagi við Rúss-
land. (Eftir frétt frá norska
blaðaf ulltrúanum).