Alþýðublaðið - 25.03.1944, Blaðsíða 2
BBH
' Alfreð Andrésson.
Skopleikarinn Alfreð
Andrésson elnir til
miSnæiurskemmiunar
REYKVÍKINGUM gefst
kostur á mjög nýstárlegri
skemmtun um miðnæturskeiðið
næstkomandi mánudag, því þá
ætlar hinn vinsæli skopleikari
Álfred Andrésson, að efna til
eigin skemmtunar í Gamla Bíó.
-r- Það er óþarfi að kynna Afreð
fyrir bæjarbúum, svo mörg
kvöldin hefir hann látið leik-
hússgesti í Iðnó gömlu veltast
um af hlátri. Alfreð hefir nú,
því nær í tug ára, eða ef til vill
meira, verið einn aðalleikari í
flestum revýum og öðrum gam-
anleikjum, sem hér hafa verið
sýndir. — Þá hefir hann og þótt
góður liður á dagskrá kvöld-
skemmtana, enda er maðurinn
fæddur skopleikari og hefir
frábæra kýmnigáfu til að bera.
Á mánudagskvöldið hefir
hann í hyggju að stofna til
sámfelldrar dagskrár í sínu
eigin útvarpi í Gamla Bíó, með
laðstoð Haralds Á. Sigurðsson-
ar, kollega síns, sem leikur þul
og Sigfús Halldórsson, sem að-
stoðar með undirleik á hljóð-
færi (hárgreiðu?)
Skemmtun þessi verður „a
la“ „útvarp Reykjavík“. Fyrir-
lestur um alvarlegt(!) efni,
nokkurskonar hugvekja, spurn-
ingar og svör um íslenzkt mál,
(ekki ástands-mál), gamanvísur
kvæðalög o. fl. o. fl.
Er ekki að efa að skemmtun
jþessari verður vel tekið, enda
er hún spor í áttina til þeirrar
tegundar skemmtana, sem okk-
ur hefir vantað hér, hinna svo-
kölluðu „kabarett“ skemmtana,
sem mjög eru vinsælar, hvar
sem uppá þær er boðið og þær
takast vel.
• •
■A*'
r*H
H—!-g-l
Tillögur fræðslumálaráðunauts bæfarins.
FYRIR bæjarráðsfundi, *
sem haldinn var í gær-
kvöldi lá erindi frá fræðslu-
málaráðunaut bæjarins, Jón-
asi B. Jónssyni um nauðsyn
á stofnun heimilis fyrir
baldna drengi, sem erfitt er
rað háfa í venjulegum skólum
eða á heimilum og nauðsyn
krefur að komið sé burt úr
Reykjavík.
Benti fræðslumálaráðunaut-
urinn á það, að heppilegasti stað
urinn, sem hann teldi, til að
reisa á slíkt heimili, væri Öxney
á Breiðafirði. Eyja þessi er svo
sem þriggja stundarfjórðunga
sigling á litliun vélbát frá Stykk
ishólmi. Þar eru landkostir góð
ir og gott til sjófangs. Gætu
piltamir því stundað margvís-
leg nauðsynleg störf, sem yrðu
þeim til andlegs og líkamlegs
þroska. Er eyjan og mátulega af-
skekkt.
Málið var nokkuð rætt á
bæjarráðsfundinum og var sam
þykkt að fela fræðslumálaráðu-
nautinum að fara vestur til
Öxneyjar til að athuga alla
staðhætti og gefa síðan bæjar-
ráði skýrslu um athuganir sín-
ar.
Sigurgeir biskup heið-
ursdoklor háskólans
í Norður-Dakota.
HÁSKÓLINN í Norður-Da-
kota hefur ákveðið að
veita biskupi íslands doktors-
nafnbót á sérstakri samkomu,
sem haldin verður honum til
heiðurs í háskólaborginni Grand
Forks í Norður-Dakota.
Nýlega barst biskupnum sím-
skeyti, undirritað af forseta há-
skólans, Dr. John C. West, Dr.
Richard Bech og öðrum starfs-
mönnum háskólans, þar sem
honum var boðið að taka á móti
þessari heiðursnafnbót. Það á
sérstaklega vel við, að háskól-
Frh. á 7. síðu.
Slórkostlegf veiðarfærafjón
í versföðvum við Faxaflóa.
2 hæstaréttardómar:
Út af landamerkjum
og bifreiðasölu.
HÆSTIRÉTTUR hefir kveð-
ið upp dóm í deilumáli
um landamerki, sem reis milli
Guðmundar Gíslasonar og hak-
aranna Jóns Símonarsonar og
Óskars Th. Jónssonar.
Dómur og niðurstöður hæsta
réttar eru svohljóðandi:
, Jlinn áfrýjaða dóm hafa upp
kveðið dómendur merkjadóms
Reykjavíkur, þeir Lárus Fjeld-
sted hæstaréttarlögmaður, Ólaf
ur Lárusson prófessor og Sig-
urður Thoroddsen yfirkennari.
Áfrýjandi, sem skotið hefir
máli þessu til hæstréttar með
stefnu 13. desemiber f. á. krefst
sýknu af kröfum stef ndu og máls
•kostnaðar úr hendi þeirra bæði
'í héraði og fyrir hæstarétti.
Stefndu krefjast staðfesting-
ar merkjadóms og málskostnað
ar hendi áfrýjanda fyrir hæsta-
rétti.
Með iþví að fallast má á for-
sendur og niðurstöður hins á-
frýjaða dóms, ber að staðfesta
hann.
Samkvæmt þessum úrslitum
ber að dæma áfrýjanda til að
greiða stefnda málskostnað fyr-
ir hæstarétti, og þykir hann hæfi
lega ákveðinn kr. 500.00.
Því dæmist rétt vera:
Hinn áfrýjaði dómur á að vera
óraskaður.
Áfrýjandi, Guðmundur Gísla-
son, greiði stefndu, Jóni Símon
arsyni og Óskari Thorberg Jóns
syni, 500 krónur í málskostnað
fyrir hæstarétti.
Dóminum ber að fullnægja að
viðlagðri aðför að lögum.“
Þá kvað hæstiréttur í gær upp
dóm í bifreiðamálinu Jóhann
Indriðason gegn Ingimar Jóns-
syni.
Segir svo í niðurstöðu og dómi
hæstaréttar:
„Áfrýjandi, sem skotið hefir
máli þessu til hæstaréttar með
stefnu 9. júní f. á., gerir þær
kröfur: Aðallega að hann verði
sýknaður af kröfum stefnda, en
til vara að dæmd fjárhæð verði
lækkuð. Svo krefst hann og máls
kostnaðar fyrir báðum dómum
eftir mati hæstaréttar.
Stefndi krefst staðfestingar
héraðsdóms og málskostnaðar
fyrir hæstarétti eftir mati dóms
ins.
Í RI efnir lil hnéfa^
leikamólsámorgun.
Wm
E'INS og kunnugt er hafa
ÍR-ingar æft hnefaleik síð-
astliðinn vetur. Hefir Þorsteinn
Gíslason verið kennari þeirra.
Á morgun efnir félagið til inn-
anfélags móts í hnefaleikum.
Þátttakendur eru seytján og
verður keppt í fimm þyngdar-
flokkum. Þáttakendur eru allir
ÍR-ingar, að undanskildum þrem
ur KR-ingum, sem hafa æft í
hnefaleikaskóla Þorsteins Gísla-
sonar, en keppa þama sem gest-
ir. Mótið fer fram í húsi Jóns
Þorsteinssonar.
Vafalaust mun mörgum verða
forvitni á að fylgjast með þessu
móti. Til þessa hafa Ármenning-
ar einir æft hnefaleik. En meist-
aramót í hnefaleikum fer fram
um mánaðamótin apríl—maí
n. k.
Eitthvað mun verða selt inn
á þetta mót, og verða aðgöngu
miðar til sölu í bókaverzlun
Isafoldar í dag.
Samsöngur Ténlisfar-
félagsins í Gamla Bíó
Verk eftlr Brahms og
Schubert.
C AMKÓR Tónlistarfélags
ins efnir til hljómleika
undir stjórn Dr. Victor Ur-
bantschitschs í Gamla Bíó á
morgun kl. 1,15. — Undirleik
inn annast Fritz Weisshapp-
el.
Efnisskrá hljómleikanna er
eftir Joh. Brahms og Franz
Schubert. Eftir Brahms eru:
Harmljóð (Nánier) op. 82 fyrir
blandaðan kór, fimm þýzk þjóð
lög, útsett fyrir lítinn kór með
forsöngvurum og ástarvalsar
(Leibesleideinalver) op. 52 fyr-
fjórhendan píanóleik og.söng-
raddir.
Eftir Sohubert eru þessi yerk:
Mánsöngvar (Stándchen) op
153 fyrir kvennakór og einsöng
og sigurhrós Mirjan (Mirjams
Seigesgresng op 136.
Jakob Joh. Smári hefir þýtt
alla söngtextana.
Hellisheiði
er nú mjög sæmilega fær bif-
reiðum. Var allur snjór hreins-
aður af veginum fyrir skömmu.
Hins vegar ei þess að sjálfsögðu
enginn kostur nú, að endurbæta
slitlag vegarins, og má búast við
að hann versni nokkuð, því að um-
ferð er að sjálfsögðu mikil um
Vélbátar lenda í hrakningum, en bjargast,
‘P JÖLDA margir vélbát-
ar úr verstöðvum við
Faxaflóa lentu í hrakningum
í fyrri nótt. Allir eru bátam
ir þó komnir fram, en þeir
urðu fyrir mjög miklu veið-
larfæratjóni.
Nær allir bátar á Ákranesi
og úr verstöðvunum á Suður-
nesjum fóru í róður í fyrra
morgun en rétt eftir miðjan dag
gerði hið versta veður mjög
skyndilega. Bátamir reyndu í
femstu lög að ná veiðarfærum
sínum og nokkrir þeirra yfir-
gáfu þau ekki fyrr en í fulla
ímefana. Misstu þó fjölda marg-
ir bátar mikið af þeim og er það
sár missir, eins og á stendur,
því að alla báta vantar veiðar-
færi. Virðist nú muni draga enn
mjög úr sjósókninni vegna
þessa tjóns, en áður hafði
skortur á veiðarfærum valdið
því, að ekki var hægt að sækja
sjóinn af jafn miklu kappi og
annars vom ástæður til.
Þrjá vélbáta vantaði í fyrra-
kvöld. Einn af Akranesi „Ald-
an“, en hann hafði orðið fyrir
vélarbilun. Bjargaði Sæbjörg
honum og kom með hann hing-
að til Reykjavíkur klukkan
1 Yz í fyrri nótt. „Njáll“ frá
Keflavík hélt sig við veiðar-
færi sín og var farið að óttast
um hann, en hann kom síðdegis
í gær og í gærmorgun fréttist
af honum.
Ekkert spurðist hins vegar
um „Ásæl Sigurðsson“ frá Sand
gerði fyrr en eftir miðjan dag
í gær, en um klukkan 5 komst
hann heilu og höldnu heim.
Það kom bráðlega í ljós eftir
að áfrýjandi keypti bifreið þá
sem í málinu greinir, að hún
reyndist illa og varð oft að koma
henni til viðgerðar. Með bréfi
dags. 20. okt. 1942 kvartaði á-
frýjandi undan þessu, taldi bif-
reiðina ónýta og að sér hefði
verið, gefnar rangar og villandi
upplýsingar við kaupin. í bréfi
þessu var ekki að því vikið, að
bifreiðin væri eldri og minni en
greint var í skoðunarvottorði
því, sem áfrýjanda var afhent
með henni við kaupin og bendir
það til þess, að áfrýjanda hafi
iþá ekki verið um þetta kunnugt.
Nokkru síðar snéri áfrýjandi sér
tíl bifreiðaeftirlits ríkisins og
kom þá upp, að skoðunarvottorð
ið hafði verið falsað á þann hátt,
að aldur bifreiðarinnar var tal-
inn frá 1935, í stað 1932, og hún
var talin bera 3000 kg. Áfrýj-
andi sendi þann 17. nóv. s. á.
kæru um fölsunina til sakadóm
ara, en við réttarrannsókn hef
Frh.« 7. itíðú
hann.
Nýr iisfmálari opnar
sýningu í dag.
Benediki Guðmunds-
son sýnir 35 myndir í
Safnahúsinu.
NÝ MÁLVERKASÝNING
verður opnuð í Safnahús-
inu í dag, og á hún að standa til
pálmasunnudags, eða í eina
viku.
Það er Benedikt Guðmunds-
son, sem sýnir myndir sínar á
þessari sýningu. Eru 35 myndir
á þessari sýningu.
Hér er um nýjan — og nokk-
uð sérkennilegan málara að
ræða.
RÍKISSTJÖRI ÍSLAlíDfS
staðfesti 16 ný lög í gter,
j en 9. iþ» m. staðfesti harinl •
| ný lög. Þessi lög hafa ▼eriR
staðfest: ,
' Lög um breyting á lögum nr.
95, 23. júni 1936, um meðfer®
einkamála í héraði.
Lög um breyting á lögum nr.
42/1943, um dýrtíðarráðstaf-
anir.
Lög um breyting á lögum nr.
44, 23. júní 1943, um skipu®
læknishéraða, verksvið land-
laeknis og störf héraðslækna, og
lög um breyting á þeim lögumi,
nr. 58, 7. maí 1940 og nr. 52, 20-
júní 1942.
Lög um stuðning við nýbygg-
ingu fiskiskipa.
Hafnarlög fyrir Siglufjarðar-
kaupstað.
Hafnarlög fyrir Bolungavík.
Lög um breyting á hafnar-
lögum fyrir ísafjörð, nr. 34 frá
19. júní 1922.
Lög um lendingarbætur í
Breiðdalsvík.
Lög um lendingarbætur í
Höfnum í Gullbringusýslu.
Lög um breyting á lögum nr.
32, 11. júni 1942, um vátrygg-
ingarfélög fyrir vélbáta.
Lög um breyting á lögum rir.
88, frá 1941, um girðingar tii
varnar gegn útbreiðslu næmra
sauðfjársjúkdóma og heimild
til samþykkta um fjárskipti.
Lög um tilhögun atkvæða-
greiðslu um þingsályktun um
niðurfelling dansk-íslenzka sam
bandslagasamningsins frá 1918
og lýðveldisstjómarskrá íslands.
Lög um réttindi danskra rík-
isborgara á íslandi.
Lög um breyting á lögum hr.
32, 19. maí 1930, um Mennta-
skóla á Akureyri.
Lög um breyting á lögum nr.
98, 9. júlí 1941 um heimild fyr-
ir ríkisstjómina til ráðstáfana
og tekjuöflunar vegna dýrtíðar
og erfiðleika atvinnuveganna.
Lög um að gjafir til bama-
spítala skuli dregnar frá skatt-
skyldum tekjum gefenda við á-
lagningu skatts til ríkis og bæj-i,
ar eða sveitar.
Lög um breyting á lögúm nr.
69, 27. júní 1941, um sparisjóði.
Námsfólh efnir fil
handknaHleiks- ■
heppni.
t»áftfakeBidyr eru úr
5 skólum bæjarins.
SAMBAND bindindisfélaga í
skólum efnir til handknatt
leiksmóts, sem hefst kl. 4 í dag
í íþróttahúsi Jóns Þorsteinsson-
ar.
Þátttakendurnir em frá 5
skólum: Háskólanum, Gagn-
fræðaskóla R.víkinga, Mennta-
skólanum, Samvinnuskólanum
og Verzlunarskólanum.
Keppt mun verða x fjórum
flokkum A, B, C og kvenna-
flokki. Verzlunarskólinn eihn,
sendir kvennaflokk til keppn-
innar og vinnur því verðlauna-
grip þann, sem keppa átti um,
án keppni. í fyrra vann Sam-
vinnuskólinn þann grip.
Búizt er við mjög harðri
keppni í hinum flokkunum og
þá sértaklega í A-flokki milli
Háskólans og Samvinnuskólans..
Nesprestakall.
Messað á morgun í Mýrarhú*«-
skóla kl. 5. Fólk í allri sókninni
er minnt á fundinn, sem hefst £
Tjarnarbíó kl. 1.15 ámorgun.' —