Alþýðublaðið - 25.03.1944, Blaðsíða 6
5ö-':1S44í
Nýr knéfiðlusmiður í Boston í Ameríku, Enrico Fabrizio,
ítalskur að ætt, er farinn að vekja á sér mikla eftirtekt.
Hann hefur smíðað knéfiðlu, sem hægt er að hafa þvílíka
tóna úr, að jafnvel hinn frægi knéfiðlusnillingur Gregor
Piatigorsky hefur lokið lofsorði á þær.
Tvö ár í Þýzkalandi.
(Frh. af 5. síðu.)
í þessum efnum og lagt á það
nlla áherzlu að ná til allra
þýzkra æskumanna, enda hafa
þeir tekið útvarpið, kvikmynd-
imar, fjöldafundina og flug-
ritin óspart í þjónustu sína í
því skyni. Að loknu dagsverki
mættu æskumenn Þýzkalands á
stjórnmálafundum og nám-
skeiðum þar sem þeim var flutt-
ur boðskapurinn um hið mikil-
væga hlutverk þeirra og alið á
hinu brjálæðislega drambi
þeirra og þjóðarstolti. — Gnýr
sprengjuflugvélanna og lúðra-
þyturinn hljómaði sífellt fyrir
eyrum þeirra. Þeir voru viti
sínu fjær af drembilæti yfir því
að vera synir hinnar sigursælu
þjóðar, sem borin væri til yfir-
ráða og drottnunar undir for-
ustu „óskmögursins“, eins og
við fangarnir nefndum Hitler í
skopi.
Sérhverju sinni, er nýr þýzk-
ur sigur var tilkynntur, lét
piltur þessi hið dólgslegasta.
Hann lét öll umyrði okkar um
fánýti stríðsins sem vind um
eyru þjóta. Áróður nazistanna
hafði haft þau áhrif á hann,
að hann var sem trylltur. Við
höfðum skemmtan af honum,
þrátt fyrir annir og erfiðleika
þá, sem við áttum við að strioa.
En þegar Þjóðverjum fór að
veita miður á austurvíðstöðv-
unum og þeir guldu hvert af-
hroðið öðru meira, tók drambið
í stráksa nokkuð að lækka.
Loks kom að því, að'hann var
kvaddur til herþjónustu. Hann
lét lítið yfir sér, er hann
kvaddi okkur, og það duldist
ekki, að honum bjó uggur í
brjósti. Ég er sannfærður um
það, að hann muni aldrei eiga
afturkvæmt heim. Hann verður
efalaust í tölu þeirra þýzkra
hermanna, sem liggja eftir í
valnum, en áróðursmenn naz-
ista hafa talið honum og öðr-
um æskumönnum þjóðar sinn-
ar trú um það, að dýrlegra hlut
skipti gæti eigi en að láta lífið
í baráttunni fyrir ættlandið og
foringjann.
Saga þessa pilts á að méira
eða minna leyti við megin-
hluta þýzkra æskumánna. Þeir
hafa látið glepjast af einkehnis-
búningum og tignarmerkjum.
Þeim hefir verið talin trú um
það, að líf hermannanna væri
hið eftirsóknarverðasta ævin-
týri. „Þeir hafa ekki kennt
æskumönnum okkar hvernig
þeir eiga að lifa og starfa“,
kvað þýzkur faðir að orði. „Ég
óttast, að þeir verði skiphrots-
menn í lífinu“.
FANGAR, sem eru staðráðn-
ir í að flýja, eru næsta
hugvitssamir og ráðsnjallir.
Dag nokkurn skýrði Þjóðverji
mér frá því, sem gerzt hafði í
næstu fangabúð, haldinn mikilli
gremju. Varðmönnum var fyrir
lagt að hafa strangar gætur á
öllum, er færu út og inn um
hlið girðingarinnar, sem um-
lukti fangabúðina. Föngum var
leyft að fara út úr fangabúð-
inni, ef þeir voru í fylgd með
þýzkum liðsforingjum og gátu
sýnt vegabréf. Dag nokkurn
komu tveir þýzkir liðsforingj-
ar til fangabáðarinnar um
klukkan 11.40 árdegis. Klukkan
4.40 síðdegis fóru þeir brott og
tveir franskir liðsforingjar í
fylgd með þeim. Varðmennirnir
töldu ástæðulaust að krefjast
þess, að Frakkarnir sýndu vega-
bréf sín, þar eð þeir voru í
fylgd með Þjóðverjunum. En
um kvöldið kom í ljós, að
fjórir franskir liðsforingjar
voru á braut.
Algengasta refsingin við
flóttatilraunum er sú, að fang-
arnir eru sviptir bréfum þeim
og bögglum, er þeim berast
næstu þrjár vikur. Föngunum
er það mikils virði að fá bréf
að heiman sem gefur að skilja.
Mér hafa engar fréttir borizt
að heiman eftir að ég fór frá
Póllandi, enda hefði það komið
sér illa fyrir mig að fá bréf
þaðan, þar eð ég lézt vera
Frakki. Hefði mér borizt bréf
frá Póllandi, myndi ég hafa
orðið uppvís að brellibrögðum
mínum. Hins vegar bar nauðsyn
til þess, að mér bærust bréf frá
Frakklandi, ef ekki átti að falla
grunur á mig. En til allrar ham-
ingju átti ég góða menn að á
Frakklandi. Eg skrifaði þeim og
MT IKILL meirihluti af þegn-
um þjöðfélagsins eru
i menn, sem lítið láta á sér ber;a.
■ Vinna sín skyldustörf með
miklum þegnsskap og afreka
þýðingarmikil störf í lífinu,
með þeim ágætuin, að allir,
sen til hekkjii og þá fyrst og
freinst þeir. sem ávaxtanna
njóta. virða þá og meta að verð
leilmir
Hjörtur Guðbrandsson, bif-
reiðastjóri er einn þessara
manna. Hann hefir nú ekið bif-
reið nær því 25 ár og mestan
þann tíma verið í föstum ferð-
um milli Rangárvaíla og Reykja
víkur og lengst af á leiðinni
OÞykkvabær — Reykjavík með
fólk og flutning allan þann
tíma ársins, sem bílfært er. í
þessum ferðum, sem hann hef-
ir stundað af árvekni og dugn-
aði, hefir hann aflað sér trausts
og vináttu þeirra Rangæing-
anna, sem raun ber vitni; því
ógjarnan vilja þeir skipta um
ökumann svö lengi, sem hans
nýtur við.
Á unglingsárum byrjaði hann
sjósókn á þilskipum og síðar á
togurum, og var það hans aðal-
lífsstarf fram til áxisins 1919, að
hann hóf ökustarfið með eigin
bifreið.
Á sjónum var harm talinn,
einn með hinum beztu starfs-
mönnum; fór hvorutveggja
samán, þrek og kapp til allra
starfa. Á þeim árum þekkti
hann þau óblíðu kjör, sem sjó-
mannastéttinni voru búin og
hið mikla öryggisleysi í einu og
öllu, sem laut að aðbúnaði,
slysa- og líftryggingum, svo og
hinum takmarkalausa vinnu-
tíma og þrælkun á fiskveiðim-
um, sem gerði margan hraust-
an ungan mann að útslitnum
mánni um aldur fram. Fyrir
mörgum ungum manni fór eins
og fyrir Hirti, að þeir yfirgáfu
þenna atvinnuveg, sem áttu
nokkurs úrkosta um önnur betri
lífskjör.
Hjörtur var einn meðal
þeirra fyrstu, sem skipuðu sér
í raðir sjómannasamtakanna, er
Sjómannafélag Reykjavíkur var
stofnað 1915 (er þá hét Háseta-
félag Reykjavíkur). Hann var
stofnfélagi og ávallt áhugasam-
ur félagsmaður rneðan hann
stundaði sjóinn. Tryggð hans
og vinsemd til félagsins má bezt
marka af því,að hann hefir á-
vallt verið áhugasamur félags-
maður fram á þenna dag, þótt
störfin hafi verið á annan veg
en sjómennska. Hann er nú
heiðursfélagi; var einn meðál
þeirra, er félagið sýndi þann
þakklætis- og virðingarvott, á
25 ára afmæli síniu 1940 fyrir
órofna félagsþátttöku og starf
öll þessi ár.
Hjörtur hefir ávallt látið fé-
lagsmálin og stjórnmálin fylgj-
ast að. Alþýðuflokknum hefir
hann fylgt að málum frá fyrstu
Hjörtur Guðbrandisson.
tíð og mun sennilega gera, svo
lengi, sem hann lifir. Ekkert er
honum fjær skapi, en að
hringla frá einini stefnu til ann-
arrar; og niðurrifs og sundr-
ungaröflin innan verkalýðshreyf
ingarínnar, hefir hann sem aðr-
ir sannir verklýðssinnar, for-
dæmt með öllu.
Hjörtur er karlmenni í sjón
og raun, og hinn gjörfulegasti,
trýggur og traustur vinum og
málefnum. Hjörtur er Rang-
vellingur að ætt og uppruna,
fæddur að Tjörfastöðum 24.
marz 1884. Hann hefir búið hér
í bæ öll sín manndómsár, og
lifað farsælu hjúshaparlífi með
konu sinni, Ólaf* Þorvalds-
dóttur. Heimili þeirra er á Ás-
vallagötu 63.
I mínu nafni og félaga
minna, flyt ég Hirti innileg-
ustu ámaðaróskir á þessum
merku tímamótum í æfi hans,
og vonum við, að honum megi
auðnast að lifa og starfa að
framgangi góðra mála með
gömlum og nýjum samherjum,
með sömu skapfestunni og ein-
kennt hefir hann alla tíð.
S. Á. Ö.
Reykvískir skíðamenn
á landsmotið á
Siglufirði.
ENN er ekki að fullu ákveð-
ið, hve margir reykvískir
skíðamenn fara á skíðalands-
mótið, sem háð verður á Siglu-
firði um páskana og hefst á
skírdag. Þó mun K. R. hafa á-
kveðið að senda þangað 8 kepp-
endur, pilta og stúlkur, og Ár-
mann 6. En hverjir það eru,
sem sendir verða til þess að
keppa við Norðlendingana, er
enn ekki vitað til fullnustu.
Skíðafólkið mun fara héðan
á laugardaginn kemur, 1. apríl.
spurðist fyrir um konu mína og
börn, sem ég kvaðst ekkert
Jhafa af frétt. Ég ritaði dul-
nefni mitt undir bréfið, en vin-
ir mínir þekktu rithönd mína
og skildu, hvað fyrir mér vakti.
Þeim var vel um það kunnugt,
að ég átti hvorki konu né börn.
En þeir sendu mér þegar um
hæl bréf „frá konu minni“. Um
tveggja ára skeið héldu svo
þessi séstæðu bréfaskipti áfram.
Bréf mín lýstu slíku ástríki um
hyggjusemi, að Þjóðverjana
grunaði ekki hið minnsta, að
hér væru brögð í tafli
FERNS KONAR hættur ægja
nú Þjóðverjum — hættan
af sókn R,ússa, hættan af sókn
flughers bandamanna, hættan
af hefnd hinna kúguðu þjóða
og loks hættan af Himler og
málaliði hans. Meðan óttanum
við hin utan að komandi ógna-
' öfl tekst að sigrast á óttanum
við ógnaöflin innan lands, eiga
Þjóðverjar engrar undankomu
auðið. Áður fyrr var talið, að
jafnvægi stórveldanna myndi
tryggja friðinn í Evrópu. Nú er
það þetta jafnvægi óttans, sem
heldur uppi viðnámi Þjóð-
verja. Þessu til sönnunar ætla
ég að segja hér skrítlu, sem
gekk manna milli í Þýzkalandi
og ég heyrði skömmu áður en
ég hvarf þaðan brott og lýsir
þessu glögglega. Þýzk kona
spurði Göring þess, hvenær
styrjöldinni myndi ljúka.
— Þegar Englendingar hafa
rétt upp báðar hendur, svaraði
hann.
— Guð minn góður, svaraði
þá konan, skelfd í bragði. —-
Og það hefir tekið tíu ár að
kenna okkur Þjóðverúim að
rétta upp aðra höndina!
HVÁ® SBGsIA HIH BLÖÐm
'VA. tát 1 ritfa I
en núlifandi kynslóðir og þcer, aem
:á eftir henni feta, eiga að yél}»
landi sínu hið bezta og annað ekki.
J»að eitt sæmir sannri menningu."
Hér er réttilega tæpt á þvf,
sem okkur vantar, ef við eigum
nokkum tíma að geta vænzt
þess, að draumurinn tmi ísland
sem ferðamannaland rætist.
Ekkert land hefir orðið ferða-
mannaland af völdum náttúr-
unnar einnar. Það eru ekki lítil
mannvirki, sem Norðmenn og
Svisslendingar hafa ráðizt í til
að laða ferðamenn frá útlönd-
um að löndum sínum.
■■ * .■ y-'M ■■'■, . : "
Eftirfarandi klausu gat aö
lesa í tilkynningadálki um
„flokksstarfið“ í Þjóðviljanum
í gær:
„Þeir, sem hafa pantað brjóst-
líkneski af Stalin eru beðnir að
vitja þeirra í skrifstofu félagsins
næstu daga.“
Sagt er að þessi tilkynning
standi í sambandi við undir-
búning kommúnista undir fyr-
irhugaða stofnun lýðveldisins
17. júnl
Ný sókn Japana.
BURMA ER auðugt land af
ýmsu því, sem hemaðarþjóð
má í hag koma, og Japnair
hafa vafalaust ekki legið á
liði sínu við að hagnýta sér
gæði þess. Það er yfir 600
þúsimd ferkm. að stærð, og í-
búar þess munu vera um 16
milljónir að tölu. Aðalútflutn
ingsvörur landsins eru hrís-
grjón og teakviður. Þar ér
mikil olía í jörð, svo og hinn
mikilyægi wolframmálmur.
Mikil gúmmírækt er og í land-
inu. Aðalborg landsins er
Rangoon við Bengalflóa, en
hún var ein þýðingarmesta
hafnarborg þar eystra, enda í
þjóðbraut skipa, sem komu
um Suezskurðinn á austur-
: leið. Hún hefur orðið fyrir
miklum loftárásum í styrjöld-
inni, fyrst af hálfu Japana
; og síðan Breta, og/^3|m
líklegt, að mikil spjöll hafi;
orðið á hafnarmannvirkjum
þar.
HVORT SEM JAPÖNUM tekst
að ná verulegum árangri í
Indlandi eða ekki, má öruggt
télja, að þeir freisti þess að
halda Burma þegar þar að
kemur, bæði vegna náttúru-
gæða landsins og svtbiyegna
hins, að um landið liggur
Burmabrautin til Kfnq,; !; ep
um hana voru flutþiógrynniv
hergagna og birgða 4® hiniia-
aðþrengdu hersveitá ,:íCMárftg 1
Kai Sheks. . nifl'*a ^ "
"' ■' i ýeamsjjþe.:
» .. ... _ .... tú?.a aM
Leikfelag Reykjavikur
sýnir leikritið „Ég hef komið
hér áður“, ahnað kvöld, í síðasta
sinn. — Aðgöngumiðasala hefst kl.
4 í dag.
Kaupum tuskur
hæsta verði.
Baldursgofu 30.
Hafnarfjarðarkirkja.
Messa á morgun kl. Z, «éra
Garðar Þorsteinsson.