Alþýðublaðið - 31.03.1944, Page 3
Föstíadagter 1 3l!marz ■ 1944.
3
Er innrás í vændum!
|M ALLAN HEIM, jafnt í
löndum bandamaxma sem
Þýzkalandi tala menn um
hina fyrirhUguðu innrás úr
vestri. Raunar hafa menn
rætt um innrásina um langt
skeið nú orðið, en einhvern
veginn er það svo, að menn
búast almennt við því, að
hún verði nú í vor, eða að
minnsta kosti á þessu ári.
Það er viðurkennt af öllum
þeim, sem þykja bera skyn
á hermál, að Þýzkaland
verði ekki sigrað að fullu og
öllu nema með því að ráð-
ast inn á meginland Evrópu
úr vestri. Styrjöldin á Ítalíu
mun ekki geta haft úrslita-
áhrif í styrjöldinni og hin
hraða sókn Rússa mun tæp-
ast geta rekið smiðshöggið
á lokasigur bandamanna.
Enda ákváðu leiðtogar banda
manna á Téheran-fundinum,
að sókn yrði hafin gegn
Þýzkalandi samtímis úr
: „ustri, suðri og vestri.“
HVAÐ ER ÞAÐ ÞÁ, sem eru
meginskilyrði þess, að slík
innrás megi heppnast? Ekki
Yfir moldum hermanns.
Bardagarnir á Ítalíu hafa kostað mannslíf, eins og að líkum lætur. Á mynd þessari sjást
amerískir hérmenn, sem standa hljóðir og þögulir yfir moldum félaga síns, sem fallið hefir
þar á vígstöðvunum. Hinn látni starfaði að því að nema á bnott jarðsprengjur Þjóðverja
og varð það honum að bana. Má sjá sprengjugíginn til vinstri á myndinni.
OIIUi
segir
eifga í
STALIN tilkynnti enn eina sigur fregn í gær. Hersveit-
ir Zhukovs rnarskálks tóku bæinn Czernowits (Cernauti)
í Póllandi og var þeirn sigri fagnað með skothríð í Moskva’
með skothríð 224 fallbyssna. Borg þessi er mjög mikilvæg
járnbrautarmiðstöð með um 100 þúsund íbúum. Er talið,
að taka borgarinnar, sem er höfuðborg Bukpvinuhéraðs
í Rúmeníu, sé verulegur hrekkir fyrir Þjóðverja.
■Fyrstu fregnir um atburð ar og virðast þeir hrökkva hvar
þennan bárust frá aðalbækistöð vetna undan sókn Rússa.
Hitlers, en þar var tilkynnt, að j Segja Þjóðverjar í tilkynn-
Þjóðverjar hefðu yfirgefið borg ingum sínum, að þeir hafi byrj-
ina, „samkvæmt fyrirfram
gerðum áætlunum.“ Rússar eru
nú í þann úeginn að brjótast
inn í ollíuhéruð Póllands við
Stanislawow og fá Þjóðverjar
ekki að gert. Eru tilkynningar
þeirra um þessi mál næsta ioðn
að tilflutninga hersveita sinna
við Bug og geti Rússar ekki
hindrað þá. Er helzt að skilja
á tilkynningum Þjóðverja, að
þeir eigi í miklum varnarbar-
dögum, sem Rússum hafi ekki
tekizt að sigrazt á þehn í.
vantar bandamenn herafla,
né heldur flugvélakost. Það
sem þýðingarmest verður að
telja í þessu sambandi er
skipastóll bandamanna. Það
er vitað mál, að enn hefir
flugtækninni ekki fleygt
nægilega fram til þess, að
unnt sé að flytja nógu mik-
inn herafla loftleiðis eða
þung hergögn, svo sem skrið-
dreka og stórar fallbyssur
til þess að gera innrás í stór-
um stíl. Innrásirnar á Sikil-
ey og í Norður-Afríku sanna
þetta.
MERKUSTU VIÐBURÐIR
styrjaldarinnar á árinu 1943
voru ekki sigrarnir í Afríku,
innrásin á Ítalíu né loftárás-
irnar á Ruhr-hérað, Ham-
borg og Berlín, enda þótt
mikil tíðindi séu. Það merk-
asta var, að á þessu ári náðu
bandamenn að fullu og öllu
yfirráðum á hafinu. í marz-
mánuði í fyrra sökktu Þjóð-
verpar mjög mörgum skip-
um bandamanna, enda við-
urkennt af málsmetandi
mönnum í London og New
York. En það var samt ekki
fyrr en í maí í fyrra, að
‘ Dönitz, yfirflotaforinginn
þýzki, lét hefja kafbátasókn
ina, sem var örþrfiaráð
Þjóðverja til .þess að vinna
sigur í styrjöldinni. Sú sókn
mistókst, eins og alkunna er.
KNOX flotamálaráðherra
Bandaríkjanna, tilkynnti í
nóvember síðastliðnum, að
hinar sameinuðu þjóðir
hefðu smíðað kaupskipastól,
sem væri að minnsta kosti
jafnstór þeim, sem Þjóð-
verjar hefðu sökkt síðan ó-
friðurinn hófst. Síðan hafa
skipasmíðastöðvar Banda-
ríkjamanna og Breta enn
aukið afköst sín og tiltölu-
lega fáum skipum er sökkt
um þessar mundir. Þetta
þýðir, að alvarlegustu hindr
. uninni fyrir innrás úr vestri
hefir verið rutt úr vegi. Það
þótti gífurlegt þegar það
fréttist, að bandamenn hefðu
notað 850 skip til þess að
þess að flytja innrásarher-
inn til Afríku. En það eru
smámunir einir í saman-
burði við það, sem koma
mun. Má til dæmis geta þess
að er bandamenn réðust á
land á Sikiley í júlí í fyrra,
voru samtals 3250 skip í
förum með liðsafla og her-.
gögn bandamanna.
ÞESSAR TÖLUR, eru að vísu
háar, en þær verða hærri
áður en lýkur. Þegar banda-
menn ganga á land í Frakk-
landi, en sú tilgáta þykir
sennilegust, mun mesti skipa
floti Veraldarsögunnar vera
samankominn einhversstaðar
á Ermasundi. Og yfir honum
munu sveima þúsundir flug-
véla. Það, sem mjög styrkir
gruninn um, að innrás sé
væntanleg í náinni framtíð er
það, að bandamenn hafa mjög
aukið loftárásirnar á Calais-
svæðið handan Ermarsunds
og nærliggjandi borgir.
ÞÁ MÁ EINNIG geta þess, að
í apríl er mjög erfitt um
hernaðaraðgerðir á austur-
vígstöðvunum vegna leysinga
Má gera ráð fyrir, að inn-
rásin verði gerð um leið og
Rússar hefja enn stórfelld-
ari sókn úr austri. Þess
vegna er ekki ósennilegt að
ætla, að innrásin verði gerð
á næstunni. Að öðrum kosti
eru litlar líkur til þess, að
• hún verði fyrr en í sumar.
ÞETTA ERU AÐ sjálfsögðu
bollaleggingar einar. Enginn
veit með vissu, hvað í vænd-
ur er, nema þeir, sem lagt
hafa á ráðin, bæði í Teheran
og síðar. En eitt er nokkurn
veginn víst: Á árinu 1944
fást úrslit í þessari styrjöld,
og leirbákn hinnar nazistisku
kúgunar mun hrynja til
grunna áður en árið er liðið.
Fangelsin verða opnuð og
þjáðir fá líkn áður en mjög
langur tími er liðinn. Þá
mun aftur morgna.
Þá segir Berlínarútvarpið, að
harðir bardagar geisi við Kowel
í Póllandi, en að árásum Rússa
hafi verið hrundið á þeim slóð-
um. Þá herma þýzkar fregnir,
að mikið hafi verið barizt við
Narva í Eistlandi, en að Rúss-
um verði ekkert ágen^t. Rúss-
ar sækja nú hratt fram í átt-
ina til Odessa og er búizt við
miklum átökum um þá borg nú
næstu daga. Um loftbardaga á
aUsturvígstöðvunum hefir lít-
ið frétzt, en vitað er, að Þjóð-
verjar eiga mjög í vök að verj-
ast og steypiflugvélar Rússa
hafa haft sig mikið í frammi og
Þjóðverjar eru í vörn á þeim
vettvangi sem öðrum þessa
daga.
ÞpSwpí fala sf lífi
52 föiurlandsvinl.
|\T Ú HAFA iborizt fregnir um,
að Þjóðverjar hafi enn
tekið af lífi 52 gisla eða föður-
landsvini í hernumdu löndun-
um. Var skýrt frá þessu í enska
blaðinu „Daily Herald“ nú fyrir
skemmstu. Tíu Tékkar, þar af
fjórar konur og læknir, sem var
fimmtíu ára að aldri, voru líf-
látin í Prag. Voru þau sökuð
um að hafa aðstoðað flóttamenn
og Tékka, sem ekki vildu sam-
vinnu við Þjóðverja.
Tuttugu Bélgar voru teknir
af lífi eftir að hafa gerzt sekir
um skemmdarstarfsemi, eins og
sagt er í blaðinu „Brusseler
Zeitung,“ sem Þjóðverjar
stjóma. Hefir fólk þetta að ein-
hverju leyti ráðizt á þýzka varð
stofu. Sama blað greinir frá því,
að 12 belgískir gislar hafi ver-
ið dæmdir til dauða fyrir
skemmdarstarf semi.
Þá hefir hersljórn Þjóðverja
í Liége í Belgíu tilkynnt, að
10 Belgar verði teknir af lífi
vegna þess, að 22 Þjóðverjar
fórust nýlega, þar af 2 hermenn.
Trauslsyfirlýsing lil
brezku stjórnarinnar
I GÆR samþykkti brezka
þingið traustsyfirlýsingu
til stjórnarinnar, vegna frum-
varpsins um, að enskar kennslu
konur fengju sama kaup og
karlmenn, sem gegna svipuðum
störfum. ; Samþykkt þessi var
gerð samkvæmt kröfu Chur-
chills. Traustyfirlýsingin var
samþykkt með 425 atkvæðum
gegn 23.
Innrásarótti Hitlers.
Gyðinganna verður
befnl, segir Eden.
¥J[TLER hefir skipað svo
S-J. fyrir, að allir fullvaxta
karlmenn í Þýzkalandi skuli
læra að fara með skotvopn. í
London er þetta sett í sam-
band við vaxandi ótta Þjóðverja
um yfirvofandi innrás banda-
manna á meginlandið, en syo
virðist, sem bæði bandamenn
og Þjóðverjar verði æ vissari
um það dag frá degi, að innrás
in verði gerð innan skamms
tíma. Fram til þessa hefir Hitl-
er aldrei þurft að grípa til
slíkra örþrifaráða og ber það
vott um vaxandi taugaóstyrk
hinnar ráðandi nazistklíku í
Þýzkalandi.
Anthony Eden, utanríkis-
ráðherra Breta, lét svo um
mælt í gær, að þeir, sem gerst
hafa þý nazista í hinum her-
teknu löndum, muni ekki eiga
grið að vænta, þegar reikning-
arnir verða gerðir upp að
stríðinu loknu. Hins vegar
muni þeim ekki verða gleymt,
sem orðið hafa flóttamönnum,
af Gyðingaættum að liði í
þrengingum þeirra á styrjald-
arárunum.
Verfcfall sklpasmiSa í
Breflandi.
O KIPASMÍÐALÆRLINGAR
^ við Tyne og Clyde í
Bretlandi eru nú í verkfalli.
Hefir það vakið mikla athygli
í landinu og miklar áhyggjur.
Bevin ráðherra hefir skorað á
þá að hverfa aftur til vinnu og
lýst yfir því, að verkfallið sé
hálfgerð uppreisn gegn stjórn-
inni.
MUdl loftárás á Sofsa
í gær.
í gær fóru amerískar flug-
vélar, sem bækistöð hafa á ítal-
íu til árása á Sofia, höfuðborg
Búlgaríu. Var þetta mesta á-
rás, sem gerð hefir verið á þá
borg til þessa. Tjón varð mjög
mikið.
Við Anzio hefir lítið borið til
tíðinda undangengið dægur, en
við Cassino hafa stórskotaliðs-
sveitir átzt við. Annars hafa
engar breytingar orðið á ítal-
íu-vígstöðvunum.
Ekki er vitað, hverjir þar voru
að verki, en Þjóðverjar hafa!
enn gripið til harðhentra ráð-
stafana, á svipaðan hátt og
skeði í Nantes, þegar alsaklaus-
ir menn voru teknir af lífi.