Alþýðublaðið - 04.05.1944, Page 3
Hnmtodagw 4. mtS 1444
%■
>»
Hvenær!
M
ENN HAFA SFÁÐ ÞVÍ,
að innrásin muni hefjast
núna í þessum mánuði. Nú
skuli lausnarstundin renna
upp, nú skuli þjáðar þjóðir
Evrópu fá aftur að vera hús
bændur í sínu eigin landi, nú
skuli villimennirnir hrakt-
ir úr landi. Enginn veit, nema
þeir, sem stjórna hernaðarað
gerðum bandamanna, hvað
hæft er í þessu. Það væri
sannarlega voriandi, að písl-
arsaga bræðraþjóða okkar og
annarra, sem nú eiga um
sárt að binda, væri á enda.
Það væri óskandi að sú stund
rynni bráðlega upp, að Dan-
mörk til dæmis væri aftur,
„et yndigt Land“ eins og
skrifað stendur í þjóðsöng
Dana, að það land gæti losn-
að við hina óboðnu gesti og
ráðið aftur sínum eigin hús-
um.
WlD MYNDIJM líka fagna því,
að quislingarnir norsku yrðu
gerðir óskaðlegir, að hinir
skuggalegu, gráklæddu menn
frá Potsdam hyxfu úr dölum
Noregs. En hvernig er við-
horfið í þessum löndum eftir
4 ára hernám? Hafa þessar
þjóðir breytzt að einhverju
leyti? Eru þær eins hugsandi
og áður, eða hafa þær beðið
eitthvert tjón á sálu sinni?
ÞAÐ MUN ÓHÆTT að full-
yrða, að þessar tvær þjóðir
voru umburðarlyndar og
mannúðlegar. Þær þekktu
ekki og vildu ekki þekkja ó-
drengskap, hvernig sem hann
í hann svo birtist. Nazismi og
fasismi átti ekki upp á pall-
borðið hjá þeim, þær kusu
eðlilega þróun í félagsmálum
og þær trúðu ekki á „yfir-
þjóðir“ eða slagorðið um
,hrörnandi lýðræðisskipulag*.
Quisling hinn norski og
Clausen hinn danski voru
hafðir að spotti og spé og það
var ekki fyrr en erlendur inn
rásarher kom til þessara
landa, að menn þessir hófust
til valda. Og nú er svo
komið, að þessár þjóðir hafa
lært að hata. Á því virðist
enginn vafi. En það er von-
andi stundarfyrirbrigði, því
að það er þeim ekki eðlilegt.
HÉE ER EKKI verið að halda
því fram, að Quisling, Riis-
nes og aðrir norskir quisling
ar, eða handbendi Þjóðverja
í Danmörku, skuli ekki sæta
löglegri meðferð. Má gera ráð
fyrir því, að til þeirra nái lög
og réttur eins og tíðkaðist
áður fyrr á Norðurlöndum. Á
því getur tæpast leikið neinn
vafi. En þeir menn, sem
reynst hafa ódrengir á örlaga
stundu ættarlands síns, orð-
ið þess valdandi, beint eða
óbeint, að margir meðborgar
ar þeirra hafa verið sviptir
lífi og eignum, geta ekki
vænzt neinnarvægðar.
NÚ ER KOMIÐ fram í maí-
mánuð og óðum nálgast dag-
ur reikningsskilanna. Bráð-
um ganga bandamenn á land
í Vestur-Evrópu, ef reikna
má með því, sem altalað er
í löndum bandamanna. Kúg-
Á að fafea á móll Eisenbower
Samkvæmt þýzkum fréttum er þetta þýzk fallbyssa, sem komið hefir verið fyrir ofan á járn-
brautarvagni einhversstaðar í Frakklandi Fylgir það sögunni, að hún verði notuð til þess að
granda innrásarher Eisenhowers þegar þar að kemur.
Wolfram-úfflufningur Portúgala
verður að hætfa, segja Brefar
Atverteg ábending
brezku
♦
stjórnarinnar
Tíðindalítið irá
‘T’ ILKYNNT hefur verið opinberlega í London, að
brezka stjómin hafi gert portúgölsku stjórninni skýra
grein fyrir afstöðu sinni um útflutning wolfram-málms til
Þýzkalands. Er tekið fram, að Bretar séu óánægðir með
það, að Portúgalar haldi áfram að flytja wolfram til Þýzka-
lands. Að öðm leyti hefur ekki verið látið neitt uppskátt
um þessi mál. Útvarpið í Berlín greinir frá því, að portú-
galska stjórnin hafi bannað sölu enska blaðsins „The Ob-
server“ fyrir að hafa farið „móðgandi orðum“ um dr. Sa-
lazar, einvalda þar í landi.
í sambandi við málaleitan
Breta til Portúgala um stöðv-
un á útflutningi á wolfram er
það tekið fram í London, að
svar Svía við tilmælum Breta
um að hætta útflutningi á kúlu-
legum til Þýzkalands sé með
öllu ófullnægjandi og sé málið
ekki til lykta leitt.
í London er litið svo á, að
hinar hlutlausu þjóðir verði að
gera sér ljóst, að þær geti því
aðeins haldið sjálfstæði sínu,
að bandamenn vinni sigur í
styrjöldinni. Þess vegna verði
hinar hlutlausu þjóðir, þar á
meðal Svíar og Portúgalar, að
hætta állri aðstoð við Þjóð-
verja, sem aðeins er til þess að
draga styrjöldina á langinn.
Fregnir þessar vekja mikla
athygli í löndum bandamanna
og eru. taldar öruggur vottur
þess, að áhrifavald Þjóðverja
fari mjög minnkandi, samtímis
því að óðum líður að fyrirhug-
aðri innrás bandamanna úr
vestri.
¥ ITLAR fregnir berast frá
■“-‘í austurvígstöðvunum. Rúss-
ar halda áfram að flytja fall-
byssur og skriðdreka til Sev-
astopol-vígstöðvanna. Er búizt
við, að lokaátökin um borgina
hefjist þá og þegar. Rússar hafa
enn gert skæða loftárás á borg
ina Lwow’ í Póllandi. Urðu mik
il spjöll í borginni.
Samkvæmt þýzkum fregnum
hafir komið til mikilla átaka í
grend við ána Seret í Rúmeníu.
Rússar hafa ekkert tilkynnt um
þessi mál, enn sem komið er.
Bandsmðnmim vel
ágengi í Burma
BURMA verður banda-
um vel ágengt. Á Ko-
hima- og Imphal-svæðinu hafa
Bretar sótt nokkuð fram.
í norðurhluta landsins hafa
ata |
hinar kínversku hersveitir 1 verð spjöll af
Stillwells íhrundið áhlaupum
Japana og sótt fram. Loftárásir
hafa verið gerðar á benzín-
stöðvar Japana og urðu tals-
unartímabil Evrópu er senn
á enda og bráðum fer hress-
andi andvari frelsisins um
lönd og lýði þjáðrar heims-
álfu. Innrásiri hlýtur að
kosta miklar blóðfórnir, en
þær verða ekki unnar fyrir
gýg-
landi
bardaga
á Ílalíu
Engar mikilvægar fréttir
hafa borizt af Ítalíuvígstöðvun-
urq undanfarinn sólarhring.
Könnunarflokkar hafa átzt við,
en ekki hefir komið til meiri
háttar átaka. Hins vegar fóru
flugvélar bandamanna til 1800
árása í fyrradag.
Sprengingin í Bergen:
Þjóðverjar sýndu éskaplegf gáieysl
I
og óflærgæfui
FRAMHALDSFREGNUM
af sprengingunni í Berg-
en, sem norska blaðafulltrúan-
um hafa borizt, segir meðal
annars, að nú sé kunnugt um
nöfn 70 þeirra, sem fórust.
Voru það 50 karlar og 20 kon-
ur, allt frá tvítugu til 85 ára
aldurs. Þó eru enn ekki öll kurl
komin til grafar, og er ekki
vitað um þá, sem drukknuðu
þegar flóðbylgjan gekk á land,
né heldur þá, sem urðu undir
húsarústunum.
Leynilögreglumenn Þjóð-
verja hafa fært sér slys þetta £
nyt til nýrra ofbeldisverka
feagnvart norsku þjóðinni.
Nokkrum klukkustundum eftir
slysið, þegar allir Bergensbúar
voru önnum kafnir við að að-
stoða hina særðu meðborgara
sína, gáfu Þjóðverjar út til-
kynningu, þar sem sagt var, að
sprengingin væri af völdum
Englendinga eða Norðmanna,
sem rækju erindi þeirra.
Ekki þarf að taka fram, að
Norðmenn trúðu ekki á þessar
frásagnir, enda þótt vitað væri,
að norskir föðurlandsvinir
myndu ekki hugsa sig tvisvar
um að gera Þjóðverjum hvern
þann óleik, sem unnt væri, ef
það stofnaði ekki lífi samlanda
þeirra í hættu. Það er öllum
ljóst í Noregi, segir í fréttum
norskal blaðafulltrúans, áð slys
þetta var Þjóðverjum sjáKum
að kenna.
Innrásarundirbúningur bandamanna:
Bandamenn gerðu enn heift-
arlegar loffárásir á Þýzkaland
og herfeknu löndin í gær
Skæð Koftárás var gerð á Haag í Hollandi
BANDAMENN héldu enn áfram árásum sínum á
stöðvar Þjóðverja á meginlandinu í gær. Aðalárásina
gerðu Liberator-sprengjuflugvélar, varðar fjölmörgum
orustuflugvélum af Thunderbolt-gerð. Einkum var ráðizt
á stöðvar í grennd við Calais. Samtímis fóru sprengjuflug-
vélar af meðalstærð, hinar svonefndu Mitchell- og Mos-
quito-flugvélar til árása á ýmis skotmörk í Þýzkalandi og
herteknu löndunum. Hið mesta öngþveiti er nú ríkjandi í
Frakklandi og Belgíu hvað snertir járnbrautarsamgöngur,
vegna hinna síendurteknu loftárása bandamanna undan-
farna daga. Loftárásir hafa einnig verið gerðar á Lever-
kusen í Þýzkalandi og Haag í Hollandi. Tundurdufl voru
lögð á siglingaleiðir Þjóðverja.
Telja má víst, að innrásar-
undirbúningur bandamanna sé
nú í algleymingi, og líður ekki
sá dagur, að ekki séu gerðar
'heiftarlegar árásir á stöðvar
Þjóðverja handan Ermarsunds.
Einkum veitast bandamenn að
járnbrautarmannvirkjum og er
sagt, að ekki sé hægt að afgreiða
nema fáar lestir í einu á öllu
svæðinu frá Köln til Ermar-
sunds og Biskayaflóa.
í loftárásinni á Leverkusen,
sem var mjög hörð urðu mikil
spjöll. Þar eru miklar efnaverk
smiðjur, og hafa bandamenn ráð
izt á þá borg áður. Segja flug-
menn, sem þátt tóku í árásinni,
að eldar, sem kviknuðu í borg-
inni hafi sézt úr 100 km fjar-
lægð. Loftárásin á Haag í Hol-
landi var sérstaks eðlis. Flug-
mönnum bandamanna hafði ver
ið falið aó ráðast á sérstakt hús,
þar sem vitað var, að Þjóðverj
ar geymdu skjöl, sem voru
bandamönnum mjög mikilvæg.
Höfðu flugmennirnir verið æfð-
ir um langt langt skeið sérstak-
lega vegna árásar þessarar.
Þeir flugu mjög lágt og hæfðu
hús þetta, en ekki nærliggjandi
byggingar, að því er segir í
fréttum frá Londori í gærkveldi