Alþýðublaðið - 10.05.1944, Page 3
Miðvikndagm* 10. maí 1944.
Dólgslegar árásir Rússa
r|» ■
Veruleg auknlng inn-
an sænska AlþýSu-
sambandsins árið
1943
SAMKVÆMT skýrslum Al-
þýðusambandsins sænska
hefir féiagatala sænsku verka-
lýðsfélaganna aukizt um 15700
árið 1943. Nemur tala meðlima
þeirra nú alls 1038800. Skipt-
ist félagatala þessi á 8214 ein-
stök félög ©g 46 félagasam-
bönd. 170000 meðlima þeirra
eru konur.
Af meðlimatöiu ýmissa
hínna sænsku verkalýðsfélaga
má glöggt ráða erfiðleika þá,
sem Svíar eiga við að stríða á
vettvangi iðnaðar og fjármálá.
Þannig hefir tala þeirra verka-
manna, sem vinna að pappírs-
gerð, leðuriðju og skógerð
hrapað niður í svo að segja
ekki neitt. — Svipaða sögu er
að segja um sjómannafélögin,
því að félagatala þeirra hefir
minnkað um nær fjörutíu
prósent. Aukningin reynist
verða mest meðal námuverka-
manna, og félagasamband
þeirra er enn langfjölmenn-
asta sambandið innan Alþýðu-
sambandsins, enda telur það
200000 innan yébanda sinna.
Brígzla þeim um að vera nazislísk
Sviar og Bretar vísa þesssim árásaim á sam-
tök finnska verkalýflins á
**»
VEKKALÝÐSFÉLÖGIN á Finnlandi hafa orðið fyrir
furðulegum árásum í Moskva að undanförnu. Er þeim
brígzlað um að þau séu nazistiskur félagsskapur. Árásir
þessar hafa vakið mikla athýgli einkum á Englandi og í
Svíþjóð. Sænsk blöð hafa gert mál þetta að umræðuefni,
svo og August Lindberg forseti sænska Alþýðusambands-
og Ragnar Casparsson ritstjóri og vísa eindregið á bug og
hrekja lið fyrir lið hinnar fjarstæðu árásir áróðursmanna
sovétstjórnarinnar á finnsku verkalýðsfélögin.
' : ♦ Árásir þessar hafa vakið mikla
athygli og verðskuldaða gremju
innan brezku verkalýðsfélág-
anna, og komast brezk blöð
þannig að orði, að fátt sé fjarr
sanni en verkalýðsfélögin á
Finnlandi séu nazistisk og geti
enginn með rökum efazt um
það, að þau séu lýðræðissinnað
ur félagsskapur.' Sænsku blöðin
fara hinum hörðustu orðum um
hinar hvatvíslegu árásir Rússa.
Þau komast þannig að orði,að
hver sá maður, sem kunnugur
sé viðhorfunum á Finnlandi
hljóti að fordæma hana, því að
verkalýðsfélögin finnsku hafi
slegið órjúfanlega skjaldborg
um frelsið, lýðræðið og hugsjón
ir jafnaðarstefnunnar. Sænska
blaðið Morgon-Tidningen hefir
leitað umsagna áhrifamanna
sænsku verkalýðsfélaganna í til
efni hinna rússnesku árása á
finnsku verkalýðsfélögin. •—
August liindberg, forseti sænska
Alþýðusambandsins kvaðst ekki
undra það, þótt árásir þessar
hafi vakið athygli innan verka-
lýðsfélaganna á Bretlandi, því
að sannleikurinn sé sá, að það
mætti alveg eins saka verkalýðs
félögin brezku um það, að þau
væru nazistiskur félagsskapur,
eins dg finnsku verkalýðsfélög-
in. Bretum er það eins kunnugt
og Svíum, að finnsku verkalýðs
félögin hafa slegið skjaldborg
um frelsið, lýðræðið og hug-
sjónir j afnaðarstefnunnar. Lind
berg kveðst hafa haft náin sam-
bönd við finnska Alþýðusam-
bandið og einstök verkalýðsfé-
lög þar á landi eftir að styrjöld-
in kom til sögu og átt margar
viðræður við finnska verklýðs-
leiðtoga. Hann sat meðal ann-
ars þing Alþýðusambandsins
finnska í fyrra. Hann kemst
þannig að orði, að hann hafi þar
sannfærzt um það, að einhugur-
inn og tryggðin við hinar fornu
hugsjónir hafi aldrei verið
meiri innan finnsku verkalýðs-
félaganna en einmitt nú. Ragn-
ar Casparsson ritstjóri kemst
þannig að orði, að það sé hinn
, mesti ódrengskapur og hin hvat
víslegasta getsök að bendla
finnsku verkalýðfélögin við naz-
isma, því að hugsjónir finnsku
verkalýðsfélaganna séu hinar
sömu og samherja þeirra á Bret-
landi og hinum Norðurlöndun-
um og muni ávallt verða. Hann
vísar því á bug. sem fjarstæðu
að það hafí nokkru breytt
viðhorfunum innan f ipnsku
vérkalýðsfélaganna, þótt það
hafi orðið hlutskipti finnsku
Norskir dúdentar í
Englándi.
O RÉTTIR frá Lundúnum
skýra frá því, að norskir
stúdentar, sem tóku próf í Eng-
landi, hafi verið innritaðir í há-
skóla í gær. Hákon konungur
og Ólafur ríkisarfi voru við-
staddir athöfn þessa. Holst of-
ursti, sem kom hingað til ís-
lands árið 1942 stjórnaði athöfn
þessari, en A. H- Winsnes pró-
fessor ávarpaði hina nýju stú-
denta. Hann minnti á það í ræðu
sinni, að háskólinn í Osló væri
nú lokaður og rektor hans,
prófessorar og hundruð stúdent
anna í þýzkum fangabúðum.
Flestir hinna nýju stúdenta
mættu í herbúningum, þar eð
flestir þeirra ,starfa í norska
hernum. Áður en athöfn ,þess-
ari lauk 'heilsaði konungurinn
og ríkisaríinn hverjum einstök-
um og óskaði honum til ham-
ingju.
Það eru rakettubyssur — og á myndinni sést, þegar verið er að skjóta af þeim. Það er
ekki eins árennilegt fyrir flugvélar Hitlers að ráðast á England nú, varið af þeim, eins
og á hið varnarlitla land sumarið og haustið 1940.
Barizf í návígi í úfhverfum
Sevasfopol
í»jó$verjar segja nú atí borgin sé ekki Sengasr
fiernaíSariega ijýHingarmikiS fyrir slg.
iyf IKLIIl bardagar eru nú háðir við Sevastopol, hina
• þýðingarmiklu rússnesku flotahöfn á Krímskaga.
Rússar hafa rofið yztu víggirðingar Þjóðverja, og er nú bar-
liðs síns frá Sevastopol til Rúmeníu sem mest og er talið
frá því, að Þjóðverjar freisti bess að hraða brottflutningum
liðs síns frá Ssvastopol til Rúnieníu sem mest og er talið
að þeir hafi framið miltil Ispjöll í borginni... .
Fréttir beggja aðila í gær
báru það með sér, að megin-
orrustan um Sevastopol er þeg-
ar. hafin. Eins og greint var frá í
fréttum í gær hafa Rússar rof-
ið yztu víggirðingar Þjóðverja
við borgina, og eru nú háðir
blöðugir návígiisibardagar í út-
hverfum hennar. Er talið, að
tjón sé þegar mikið orðið í borg-
inni, því að Þjóðverjár granda
jafnan öllum þeim mannvirkj-
um, sem þeir annars mega, áður
en þeir hörfa úr aðseturstöðum
sínum og einnig hafa Rússar
haldið upp harðfengilegri loft-
sókn gegn Sevastopol að undan-
förnu.
Sumar fréttir láta þess getið,
að Þjóðverjar hraði nú sem
mest þeir mega brottflutningum
liðs síns frá Seva'stopol yfir til
Rúmeníu. Þeir eiga þó örðugt
um vik í þeim efnum, því að
Svartahaf.sfloti Rússa og flug-
her vinnur þeim mifcið grand.
Fi’óttaritarar í Moskva láta þess
getið, að Rússar tefli flughern-
um mjög fram í átökunum við
þjóðarinnar að veita Þjóðverj-
um í styrjöldinni. Finnsku verka
lýðsfélögin eru skipulagður lýð-
ræðisfélagsskapur. Markmið
þeirra méð starfsemi sinni er
hið sama og verkalýðsfélaga
lýðræðisríkjanna, og þau gera
sér. þess glögga grein, að einræð
isstefnurnar eru svarnir óvinir
siðmenningarinnar. Þau eru
ahdstæð þeim og munu aldrei
ganga þeim á hönd.
Sevastopol og telja, að hlutur
hans í hinum væntanlega sigri
þeþrra muni verða mjög mikill.
Fyrirlesari í Berlínarútvarp-
inu hefir gert vopnaviðskiptin
um Sevastopol að umræðuefni
og gerði sér auðsýnilega far um
að ibúa. þýzku þjóðina undir það,
að Sevastopol myndi brátt ganga
þýzka hernum úr greipum.
Hann kvað víglínu Þjóðverja
hafa færzt svo mjög vestur á
bóginn að undanförnu, að Se-
vastopol yrði hér eftir eigi talin
hernaðarlega mikilvæg fyrir
Þjóðverja. Þjóðverjar hafa held
ur eigi dulið það, að mikilla tíð
inda kynni að mega vænta frá
Sevastopol áður en langt um
liði, og urðu þeir fyrri til þess
að tilkynna það, að Rássar hefðu
rofið víggirðingar þeirra um
borgina. Þjóðverjar munu telja
mikla hættu á því, að liði þeirra
í Sevastopol verði ekki undan-
komu auðið, ef þeir fresta brott-
flutningi þess og munu því
leggja miikla áherzlu á það að
flytja það yfir til Rúmeríu á
sem skemmstum tíma.
GHskt herEIS til Ítalíu.
¥ UNDÚNAFRÉTTIR í gær
greindu frá því, að allmik-
ið grískt lið, sem æft hefir ver-
ið í Egiptalandi, hefði verið
flutt til Ítalíu og myndi taká
þar þátt í bardögum við hlið
Ibahdamarma. Hersveitum hinna
undirokuðu.þjóða f jölgar ávallt,
Ráðtzí á stððvar Þjóð-
rerja í Frakklaudi,
Belgíu og luxemburg
í gær.
OlNNI mildu loftsókn banda
manna gegn meginlandi
Evrópu linnir hvergi. Var meg-
inþunga hennar í gær og fyrri-
nótt beint gegn stöðvum Þjóð-
verja og samgönguleiðum á
Frakklandi, Luxemburg og
Belgíu. Osnabruck varð harð-
ast úti allra þýzkra borga.
Tjón varð mikið af völdum ár-
ása þessara.
Sprengiflugvélar þær, sem
lögðu til atlögu við stöðvar
Þjóðverja í Frakklandi; Belpíu
og Luxembiurg voru um sjþl
hundruð - - og fimmtí u talsins,
og nutu þær verndar álíka
margra orrustuflugvéla. Harð-
ar árásir voru gerðar á Mons
í Belgíu og Valenciennes á
Frakklandi. Urðu þar mikil
spjöll á járnbrautarstöðvum
og ýmsum öðrum stöðvum, er
hafa hernaðarlega þýðingu. —
Mikil árás var og gerð á Osna-
bruck í Þýzkalandi, en hún
varð harðast úti allra þýzkra
borga í fyrrinótt og gær. Minni
árásir voru gerðar á Berlín og
fleiri þýzkar borgir. Tíu flug-
vélanna, sem lögðu til atlögu
við Osnabruck áttu ekki aftur-
kvæmt til stöðvá sinna.
Loftsókn bandámanna á
Ítalíu og við Miðjarðarhaf er og
hörð sem fyrr og gjalda Þjóð-
verjar mikil afhroð á þeim
slóðum, enda þótt meginþunga
loftsóknarinnar sé beint gegn
Þýzkalandi sjálfu og stöðvum
Þjóðverja á Frakklandi og
Belgíu. Leggja bandamenn
hvarvetna megináherzlu á að
granda járnbrautum, flugvöll-
um og öðrum slíkum mann-
virkjum jafnframt því, eem
þeir freista þess að lama fram-
leiðslugetu og baráttuþrek
þýzku þjóðárinnar heima fyrir.
og taka þær mikinn og virkan
þátt í baráttunni gegn ÞjóSverj