Alþýðublaðið - 17.06.1944, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 17.06.1944, Blaðsíða 3
 r Bróðurlegt orð Snorra land Saxa grund sendir, samskipta vorra sé endir bróðurlegt orð. (Mattiúas Joehumssoa.) AlþúðubLMb XXV. árgangur. 17. júní 1944 132. tölublað. Starfið er margt, en eitt er bræðrabandið, boðorðið, hvar, sem þér í fylking standið, iivernig, sem stríðið þá og þá. er blandið, það er að elska, byggja og treysta á landið. (Hannes Hafstein.) VERÐLAUNAKVÆÐI ÞJÓÐHÁTÍÐARNEFNDAR 17. JÚNI 1944 HEILL, feginsdagur, heill frelsishagur. Heil, íslenzka ættargrund. Heil, norræn tunga með tignarþunga, hér töluð frá landnámsstund. Heil, öldin forna með höfðingja horfna og heilir, þér góðu menn, er harmaldir báruð, sem svanir í sárum og sunguð, svo hljómar enn. Skín, blessaða frelsi, um fjörð og dal. Við fögnum þér, ljósið hreina, sem allt gerir bjart í bæ og sal og brauð gefur fyrir steina. Við unnum þér heitt frá ómunatíð gegnum allt, sem við hlutum að reyna. í úthafi bláu lá ónumið land, vþar alfrjálsir straumar sungu. Einn dag lentu hugdjarfar hetjur við sand með hrundir og börnin sín ungu. Þeir námu héruð og nefndu allt á norrænni skáldatungu. Og eylandið fagra varð ættjörð góð þeim unga og týhrausta lýði, EF.TIR HULDU Heil, nútíð fögur, með söng og sögur og sumar um dal og strönd, með ættstofn vænan- óg gróður grænan og hróður um höf og lönd. Heil göfgum fræðum og fögrum kvæðum, heill framtaki, útsjón og dug. Heill bóndans garði og úthafsins arði og sjómannsins hetjuhug. sem gaf á móti sinn ásthug og óð og örlög — í friði sem stríði. Þeir hófu upp Alþing við hásumarsdýrð í hraunsalar fagurprýði. Þó háfossar tímans hrynji í sæ af heimi ei gleymist sú tíðin. Það eyland varð sælt, við eld og snæ og alfrjálsan hetjulýðinn. Það land er Island — er okkar land. Og enn þá er fegurst „Hlíðin“. Þú heilaga jörð með sögu, söng og sólstafi frelsis bjarta. Hve örlög þín síðar urðu ströng við ánauðarmyrkvann svarta. Kom blessuð, stund, þegar björg og grundir bergmála fagnaðarsöng. í öllu landi að sjávarsandi er sungið af barnanna þröng: Heil, móðir góða! Þú landið ljóða og laga — nú ertu frjáls. Syng, foss og lind, syngið sumarvindar og svanur með hvítan háls. Sem djúpsærð hetja þú varðist varg, með vordraumsins ljós í hjarta. Og aldir liðu með álög mörg. — En eilíf er frelsisþráin, sem nam ókkar land við brim og björg og blessaði skipgengan sjáinn. Hún geymdi sín vé og hof og hörg unz harðstjórn og fals voru dáin. Skín, blessaða frelsi, um ísland enn. Við elskum þig, morgunstjarna. Þér heilsa fagnandi frjálsir menn og fagurskær söngur barna. Við heitum að vernda þig ókomin ár og örlagaslysum varna. Hver á sér fegra föðurland, með fjöll og dal og bláan sand, með norðurljósa bjarmaband og björk og lind í hlíð? Með friðsæl býli, ljós og ljóð, svo langt frá heimsins vígaslóð. Geym, drottinn, okkar dýra land, er duna jarðarstríð. Hver á sér meðal þjóða þjóð, er þekkir hvorki sverð né blóð, en lifir sæl við ást og óð og auð, sem friðsæld gaf? Við heita brunna, hreinan blæ og hátign jökla, bláan sæ hún unir grandvör, farsæl, fróð og frjáls — við yzta haf. Ó, ísland, fagra ættarbyggð, um eilífð sé þín gæfa tryggð, öll grimmd frá þinni ströndu styggð og stöðugt allt þitt ráð. Hver dagur líti dáð á ný. Hver draumur rætist verkum í, svo verði íslands ástkær byggð ei öðrum þjóðum háð. Svo aldrei framar íslands byggð sé öðrum þjóðum háð. Syng, frjálsa land, þinn frelsissöng. Syng unaðssöngva, íslenzk þjóð, Syng íslands þjóð — og þakka afl Syng frelsissöngva, frjálsa þjóð, Syng, fagra land, þinn brag syng um þitt föðurland, í þúsund ára raun. við fánans bjarta þyt. um gæfusumur, ljós og löng, með fornar sögur, frægan óð, Við ólög þung og ölduskafl Lát aldrei fölskvast æskuglóð, um laufga stofna, skógargöng hið frjálsa Alþing, mennta sjóð var unnið þinnar gæfu tafl ver öllu þjáðu mild og góð. \ og bættan barna hag. og norrænt bræðraband. og langþreyð sigurlaun. Lát ríkja ró og vit. S s s * s * s s s s * s s * s s s s s s s s < * s s * * s s s s s s s s s s s $ s s * l s s s s s \ s s s s s s s s s s s « s s s s sS s s s s V s s s s s s s s s s s * s s s * s s s $ I ■*✓*✓*✓*✓•*✓•*✓«✓*✓

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.