Alþýðublaðið - 17.06.1944, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 17.06.1944, Blaðsíða 9
17. \úní 1344 ÁLÞÝÐUBLAÐIÐ Sfefán Jéb. Sfefánssons Sambandsslitin og lýðveldisstofnunin Þegar höfuðáfanganum var náð, 1918 . . . Þessi mynd af' sambandslaganefnd íslendinga og Dana árið 1918 var tekin í alþingishúsgarðinum. Á myndinni sjást, frá vinstri til hægri: Magnús Jónsson, sem var annar ritari danska nefndar- hlutans, Bjarni Jónsson frá Vogi, Christoffer Hage, F. H. J. Borgbjerg, Jóhannes Jóhannesson, I. C. Christensen, Einar Arnórsson, Erik Arup og Þorsteinn M. Jónsson, fremstur til hægri. Á milli hans og Arups sést Gísli ísleifsson, annar ritari íslenzka nefndarhlutans, en til hægri við Þorstein standa Þorsteinn Þorsteinsson, sem var hinn ritari íslenzka nefndarhlutans, og Funder, hinn ritari danska nefndarhlutans. ISLENZKA ÞJÓÐIN er vissu- lega stödd á merkilegum tíma anótum. Það stjórnarfarslega frelsi er nú fengið, er lengi var barizt fyrir af mörgum beztu son- um þjóðarinnar. Höfuðáfangan- um var náð 1918, er ísland var viðurkennt algerlega sjálfstætt ■og fullvalda ríki, er um ákveðið tímabil hafði sérstakan uppsegj- anlegan samning um ákveðna málaflokka við hina ágætu dönsku menningarþjóð. Það var ekki látið liggja í lág- inni af íslands hálfu, að hinu stjórnarfarslega sambandi við danska ríkið yrði sagt upp, þegar samningar leyfðu. Ekki átti það þó rætur sínar að rekja til van- efnda Dana né illa haldinna samn- inga frá þeirra hlið. Þvert á móti höfðu Danir í hvívetna haldið sambandslagasáttmálann, og sam búð þessara þjóða, er fyrr á Öld- um höfðu oft elt grátt silfur, var hin ákjósanlegasta. En bæði var það, að íslendingar töldu það eðlilegt og sjálfsagt og mest í sam- ræmi við þjóðernistilfinningu og sjálfstæðisþrá sína, áð þeir færu ’ sjálfir með öll sín mál, auk þess sem reynslan hafði sýnt, er ófrið bar að höndum, að íslenzka ríkið varð að bjarga sér á þann hátt, er það bezt gat, án fyrirgreiðslu danskra stjórnarvalda. Yfirlýsingar þær, er gerðar voru á alþingi Islendinga 1928, áttu rætur sínar að rekja til þessarar hyggju , hugsana og reynslu íslenzku þjóðarinnar. Og Alþýðuflokkurinn lýsti þá yfir allra flokka fyrst, að hann vildi að lýðveldi yrði stofnað á íslandi, er sambandslagasáttmálinn væri felldur úr gildi. Aðrir stjórn- málaflokkar vildu að vísu þá ekki ákveðið um það segja, en hnigu síðar ákveðið til fylgis við lýð- veldisstofnun. En allir flokkarn- ir voru því fylgjandi, þegar á al- þingi 1928, að endurnýja ekki sambandslagasáttmálann, og sama kom einnig í ljós í ályktun, er gerð var á alþingi 1937. Þegar að því kom, að hægt var að nota uppsagnarákvæði sam- bandslaganna, í árslok 1940, hafði myndazt algerlega ný aðstaða. Stórveldastyrjöld var skollin á. ísland hafði fyrir rás viðburðanna og með hertöku Danmerkur al- gerlega slitnað úr tengslum við sambandsríki sitt, og tók þá öll mál í eigin hendur. Konungur og dönsk stjórnarvöld létu sér það vel líka, enda var enginn annar kostur. Alþingi gerði síðan ályktanir 17. maí 1941, um að endurnýja ekki sambandslagasáttmálann og lét einnig í ljós vilja sinn um stofnun lýðveldis, að sambands- lögunum föllnum úr gildi. Fyrri ályktunina mátti skoða, og var svo gert af hálfu danskra stjórn- valda, sem formlega uppsögn á sambandslagasáttmálanum. Var þá heimilt, að þrem árum liðn- um, að fella sambandslögin úr gildi, í samræmi við ákvæði þeirra sjálfra. Og á alþingi tókst samkomulag allra flokka, í fe- brúar 1944, um afgreiðslu skiln- aðarmálsins. En hér verður ekki frekar rak- ið það, sem öllum er í fersku minni, aðdragandinn að þjóðarat- kvæðagreiðslunni um niðurfell- ingu sambandslagasáttmálans og lýðveldisstjórnarskrá. Aðeins þyk ir rétt að taka það hér fram, að Alþýðuflokkurinn beitti sér fyrir því, að sambandslögin væru felld úr gildi með löglegum hætti og tókst að fá því fullnægt, bæði hvað snerti tíma, er þjóðarat- kvæðagreiðslan fór fram, og einn- ig í reyndinni með því, hvað þátttakan varð mikil og jákvæð. Þjóðaratkvæðagreiðslan sjálf sýndi á glæsilegan hátt einhug þjóðarinnar um fullkomið stjórn- arfarslegt frelsi og stofnun lýð- veldis. Því verður vissulega^ ekki neit- að, að flestir góðir íslendingar hefðu kosið, að sambandsslitin og stofnun lýðveldis hefði borið að á annan veg og með öðrum aðstæðum. Ekkert hefði verið æskilegra en það, að tvær frjáls- ar norrænar þjóðir, Islendingar og Danir, hefðu með frjálsum samningum og aðgerðum, í fullri vináttu og með gagnkvæmum skilningi, fellt úr gildi sambands- lögin, og að öðru leyti um leið samið að hætti vinaþjóða um hin gagnkvæmu réttindi, og annað það, sem ennþá er óumsamið, og um leið hefði hinn aldurhnigni og ágæti konungur afsalað sér af frjálsum vilja konungdómi á Is- landi. Það hefði getað orðið góð. fyrirmynd, og sómt vel norræn- um þjóðum, er um leið hefðu eflt vináttu og góða sambúð í fram- tíðinni. Og ekkert er líklegra en að málum hefði verið skipað á þann veg, ef heimsstyrjöldin hefði ekki breytt öllum aðstæð- um og truflað eðlilega rás við- burðanna. En því varð ekki að fagna, og tjáir nú ekki um að sakazt. Draumur Islendinga um stofn- un lýðveldis hefir rætzt. Það varð með öðrum hætti en vonir stóðu til. En íslenzka lýðveldið er verið að stofna. Þess vegna er hátíð í hugum manna, en að vísu blönd- uð trega, vegna þess ógurlega ástands, er ríkir í heiminum, og grípa þjóðina þá ekki sízt þján- ingar frænda- og vinaþjóðanna á Norðurlöndum, er nú stynja undir oki harðstjórnar og marg- víslegra hörmunga. Og til dönsku þjóðarinnar og hins ágæta kon- ungs hennar berast nú hlýjar óskir margra Islendinga á þess- um hátíðlegu tímamótum í sögu Islands. T SLENZKA LÝÐVELDIÐ er eitt smæsta og umkomu- minnsta ríki heimsins. Það á sér engra varna von meðmannfjölda, vopnum né gömlum, grónum og útnýttum orkulindum. En hið hrjóstruga, tignarlega og fagra land er umgirt hafi á alla vegu og í landinu býr þjóð að heita má af f einum og sama uppruna, er talar sömu, jafnvel mállýzfcu- lausu tunguna, þjóð, er hefír byggt þetta land í hartnær ellefu aldir, hlúð að og varðveitt sér- staka menningu, er á sumum tímabilum hefir borið glæsilega ávexti. Tungan, þjóðernið, menn- ingin, mikil þrautseigja og nokk- ur dugnaður, samfara sterkri sjálfstæðisþrá, hafa verið höfuð- rök okkar, er bezt hafa enzt, upp- runalega til stofnunar sjálfstæðs ríkis, síðar til varnar og lífs undir erlendu oki, og loks til endur- heimts sjálfstæðis og stofnunar frjáls þjóðveldis á ný. Það er því vissulega nauðsynlegt að varð- veitt sé, til verndunar sjálfstæð- isins, það, sem bezt hefir dugað okkur og haldið okkur við sem sérstakri þjóð fram til þessa dags. Einangrun Islands hefir, með öllum sínum göllum og oft miklu þrengingum einnig varðveitt margt gott í fari þjóðarinnar, samtímis því, er hún hefir haldið henni á frumstæðara stigi. En sú einangrun er nú að hverfa, og kemur ekki til skjalanna á ný. Það skapar vafalaust ný við- fangsefni, nýjar áhættur, sam- fara nýjum auknum möguleik- um til meira menningarlífs. Umheimurinn er hinu nýja ís- lenzka lýðveldi vissulega ekki ó- viðkomandi. íslendingar fá ekki lifað án mikilla samskipta við aðrar þjóðir, og ekki án vin- semdar þeirra, samstarfs og við- urkenningar. Það verður því öflugur þáttur í baráttu íslenzku þjóðarinnar, til varðveizlu sjálf- stæðs lýðveldis og til nauðsyn- legrar efnahagslegrar afkomu, að hafa gott og öruggt samstarf og viðskipti við mörg erlend rxki og þjóðir. I sambandi við nauðsynlega lausn þessara mikilsverðu verk- efna lýðveldisins hlýtur hugur- inn ekki hvað sízt, og jafnvel fyrst og fremst, að beinast til Norðurlanda. Þaðan er ætt okk- ar og uppruni, þar var vagga menningar okkar, þar búa þjóð- ir, sem okkur eru skyldastar, þjóðir, er við höfum fyrr og síð- ar haft mest samskipti við, er auk þess standa á háu menningarstigi, bjuggu fyrir heimsstyrjöldina við beztu þjóðfélagshætti, er fyrir fundust, og voru á glæsilegustu leið til stofnunar fyrirmyndar þjóðfélags, þar sem menning og félagslegar framfarir skipuðu þeim, þó fámennar væru, í röð fremstu þjóða heims. Þessar þjóðir unna einnig frelsinu, ekki einungis gagnvart öðrum þjóð- Fyrsti innlendi þjóðhöfðinginn Sveinn Björnsson ríkisstjóri, sem farið hefir með æðsta valdið í umboði alþingis síðan 1941. Bessðstððir á Alftðnesi Á þessu fræga höfuðbóli og skólasetri var þjóðhöfðingjanum valinn aðsetursstaður 1941.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.