Alþýðublaðið - 08.09.1944, Side 3
TOsttiidagur S. september 1944
ÁLmUBLAÐIÐ
ar.
ÞESSUM DEGI fyrir ári
síðan gerðist atburður,
sem jók á raunir Hitlers og
rýrði sigurvonir Þjóðverja:
' Italía gafst upp fyrir banda-
mönnum skilyrðislaust. —
Berlín—Róm — möndullinn
brotnaði. Að vísu má segja,
að sá atburður hafi ekki
skipt sköpum í styrjöldinni.
Allar líkur bentu til, að
bandamenn ynnu styrjöld-
ina, hvað svo sem ítalir að-
hefðust, úr því, sem kómið
var. En uppgjöf ítala var
mikill álitshnekkir fyrir
Þjóðverja og mun vafalaust
hafa átt sinn þátt í að lama
siðferðisþrek hinnar stríð-
andi og aðþrengdu þýzku
þjó'ðar.
.FREGNINNI UM ÞENNAN at-
burð var hvarvetna tekið
með miklum fögnuði í lönd-
um bandamanna, en með
undarlegum tilfinningum í
Þýzkalandi. Fyrst í stað voru
undirtektir nazistaleiðtog-
anna næsta óljósar, eins og
• -oft hefur viljað brenna við,
er ný viðhorf hafa skapazt,
áður en búið var að „gefa
iínu1' frá áróðursdeild Göbb-
•els. Þýzka útvarpið beið með
að birta þýzkum hlustendum
fregnina í nokkrar klukku-
stundir, meðan forystumenn
þjóðarinnar og herforingjar
nazista réðu ráðum sínum.
Síðar létu embættismenn í
ljós skoðanir sínar með ýmsu
móti, og gætti þar bæði ofsa
reiði í garð ítala, fyrirlitn-
ingar eða þeir létu eins og
þeim stæði rétt á sama.
ADOLF HITLER f ann sig knúð-
an til að ávarpa þjóð sína í
útvarpinu og lék þá eitt upp-
áhaldshlutverk sitt: mann-
inn, sem stendur steini lost-
inn gagnvart fádæma svik-
semi og þorparahætti, sem
virðist, ekkert botna í slíkri
takmarkalausri siðspillingu.
Hann fór hinum hörðustu
orðum um „svik“ ítölsku
(Badoglio-) stjórnarinnar, en
komst strax f broslega mót-
sögn við sjálfan sig, er hann
sagði, að „hann hefði löngu
séð fyrir uppgjöf ítala.“ í
sama streng tóku ráðamenn
í Tokio.
SN HVERNIG SEM HITLER
og þýzkir hershöfðingjar
reyndu að telja sjálfum sér
og þýzku þjóðinni trú um, að
uppgjöf ítala væri hégómi
■einn, þá er full víst, að með
henni stórversnaði aðstaða
Þjóðverja að sama skapi og
sigúrvissa bandamanna óx.
Nú fengu bandamenn bæki-
stöðvar á Ítalíu miklu nær
þýzkum herstöðvum og verk-
smiðjum. Þeir gátu haldið
uppi skæðari loftárásum og
auk þess fengu þeir talsverð-
an liðsauka. En síðast en
e.kki sízt, þeir fengu mikinn
meirihluta ítalska flotans,
sesa þeir nú gátu beitt í bar-
áttunni gegn kafbátum Þjóð-
verja og í lokasennunni við
Japana. ítalski flotinn, stolt
Mussolini, stefndi til hafnar í
seluli
á
í Júaóslavíu.
Maustur-Evrépa.
Kortið sýnir Júg'óslavíu og nærliggjandi lönd, en þar er nú
búizt við miklum átökum á næstunni. Höfuðborgin, Bel-
grad, er á miðju kortinu, en nokkru ofar og til vinstri er Za-
greb, aðalborg Króatíu. Rússar eru nú við Dóná (Danube) á
landamærum Júgóslavíu.
VesturvígstöSvar nar:
Bandamenn Stafa fekið Ghenf,
Ypres og (ourfrai í Belgíu
IViótspyrua PJéöverJa er ItarSnane&ii á svæð-
3nu miEBi F%1@fz ©g ^iancy.
IBELGÍU lialda bandamemi áfrain sókninni, en fara ekki
eins hratt yfir og að undanförnu. Vinna þeir nú að því að
uppræta dreifða herflokka Þjóðverja og draga að sér birgðir og
hergögn. Þeir hafa tekið borgimar Ghent, Ypres og Courtral í
Norður-Beigíu og hafa einnig brotizt yfir Albertskurðinn, sem
liggur frá Antwerpen yfir til Meusefljóts. Montgomery marskálk-
ur kom til Brussel í gær og var ákaft fagnað. Bandaríkjamenn
eru x sókn á samfelidri 125 km. víglmu milli Metz og Nancy og
þar hafa Þjóðverjar teflt fram vélahersveitum til varnar. Að-
staða þýzku hersveitaima á Ermarsundsströnd verður æ erfiðari.
A'ðalsókn 'bandamanna frá
Belgíu til Aachen í Þýzkalandi,
sem búizt er við þá og þegar,
er ekki byrjuð enn og er talið,
að bandamenn séu nú að undir
búa sig undir hana, tryggja sam
gönguleiðir sínar og ná á sitt
vald borgum þeim, sem enn eru
á valdi Þjóðverja. Meðal þeirar
voru Ghent, fornfræg borg,
Ypres, sem mikið var barizt um
í fyrri heimsstyrjöldinni og
Courtrai, sem er mikilvæg sam
göngumiðstöð.
Malta, Gibraltar og Alex-
andríu og enn einn naglinn
hafði verið rekinn í lík-
kistu nazismans.
Á ERMARSUNDSSTRÖND
Hersveitir Þjóðverja, sem
sem enn hafast við á svæðinu
frá G-ris Ne -höfða í Frakk-
landi ti lósa Schelde hafa verið
einangraðar með öllu hver á
sínum stað. Er búizt við, að Cal
ais og Dunkerque falli banda-
mönntun. í héndur þá og þegar,
svo og Boulogne. Þýzku her-
mennirnir norðan Schelder-
fljóts reyna áð komast yfir fljót
ið við Vlissingen yfir til Zee-
landseyja, en verður látið á-
gengt.
HARÐNANDI VIÐNÁM ÞJÓÐ
VERJA
Á svæðinu milli Metz og Nan
Wilson hersbðfðngi
boðar samræmda
sékn gegn því á landi
og í loffi.
T ILKYNNT ^ar í London í
-®- gær, að nú væru hafnar
samræmdar hemaðaraðgerðir !
Breta, Bandaríkjamanna, Eússa
og hersveita Titos á hendur
Þjóðverjum í Júgóslavíu. Hafa
verið myndaðir sérstakir herir
og flotadeildir í þessu skyni, svo i
sem Adríahafsherinn, Balkan-
flugherixm svo og sérstök flota-
deild. Hafa bandamenn miðað
loftárásir sínar udanfama viku
við þessar ráðagerðir, og eink-
um beint þeim gegn samgöngu-
leiðum Þjóðverja og jámbraut-
armannvirkjum.
Hersveitir Titos hafa mjög
látið til sín taka undanfarna
daga, meðal annars hafa þær
rofið járnbrautina milli Bel-
grad og Sagreb. Víða í Serbíu
og Makedóníu hafa skæruflokk
ar valdið spjöllum á þýzkum
herstÖðvum og á einum stað
hleyptu þeir þýzkri herflutn-
ingalest af sporinu og biðu þar
um 1000 hermenn bana. Banda
menn hafa einkum beint loft-
árásum sínum gegn mikilvæg-
um j ámíbrautarborgum, svo
sem Belgrad og Nisj, brúm og
þjóðvegum.
Sir Henry Maitland Wilson
hefur flutt útvarpsræðu í
sambandi við þessi tíðindi og
sagði meðal annars, að nú væru
bandamenn í sókn á öllum víg
stöðvum og brátt myndu öll
lönd í Suðaustur-Evrópu hafa
náð aftur frelsi sínu. Hann
sagði, að enn væru til menn á
Balkanskaga, sem legðu Þjóð-
verjum lið og torvelduðu frels-
isbaráttu herja Titos og skæru
flokka, ©n þeim yrði ekki
gleymt, þegar reikningararnir
yrðu gerðir upp að fengnum
sigri.
cy fer mótspyrna Þjóðverja
harðnandi og tefla þeir þar
frarn allöflugum vélahersveit-
um, sern munu eiga að tefla
bandamenn, meðan unnið er að
virkjagerð handan landamæra
Þýzkalands. Þar vinnur nú mik
ill fjöldi verkamarma og kvenna
við að grafa skurði og setja
upp Skriðdrekatorfærur,
SUÐUR-FRAKKLAND
Franskar hersveitir eru sagð-
ar um 40 km. frá Dijon, en þang
að höfðu Þjóðverjar hörfað á
leið sinni til Belforthliðsins á
leið sinni til Þýzkalands. Ko-
enig hershöfðingi hefir tilkynnt
að borgin Poitiers suður af
Tours sé á valdi Frakka. Óstað
festar fregnir herma a,ð Besan-
con, skammt frá landamærum
Sviss, sé gengin Þjóðverjum úr
greipum.
T GÆR lýsti Duncan Sands,
•*- l'ormaður nefndar þerrrar,
sem hefir með höndum varnir
Lundúnaborgar gegn svif-
sprengjum, yfir því, að hættan
af svifsprengjunum væri liðin.
hjá, orrustan um London hefði
verið unnin.
Duncan Sands skýrði frá þvi,
að orrustan hefði hafizt í apríl
í fyrra. Þá bárust fregnir frá
leyniþjónustu Breta um, að ver
ið væri að gera tilraunir með
nýtt, langdrægt leynivopn í
Peenemunde við Eystrasalt.
Síðan veittu menn því eftirtekt
að Þjóðverjar tóku að byggja
marga steinsteypupalla með
Ermarsundsströnd, eða svif-
sprengjustöðvar. Þær voru þeg
ar eyðilagðar í loftárásum. Þjóð
verjax byggðu nýjar stöðvar,
sem voru svo vel toikenndar,
að þær sáust ekki á ljósmynd-
um úr lofti. Erfitt var að vár-
ast sprengjurnar í fyrstu, eink
um er lágskýjað var, en brátt
náðist betri árangur. Þjóðverjar
skutu rúmlega 8000 sprengjum
á Suður-England, þar af komust
um 2300 inn yfir London. 92%
þeir sem fórust eða særðust,
bjuggu í London. Bandaríkja-
flugmenn tóku mikinn þátt í
að skjóta niður svifsprengjur.
Alls var varpað niður um 100
þúsund smálestum sprengna á
svifsprengjustöðvarnar og í
þeim leiðangrum fórust 450
sprengjuflugvélar með um
2900 flugmönnum.
Fólk er nú hætt að flytja á-
brott frá London vegna svif-
sprengnanna.
Kooa Mihailovildi dó
í fangahúium.
ÞÆR fregnir hafa borizt tii
London, að frú Mihailo-
vitéh, .kona Mihailovitch hers-
höfðingi og fyrrverandi her-
málaráðherra Júgóslavíu, sem
oft hefir verið talað um i sam
bandi við skæruhernað þar í
landi, hafi látist í fangabúðum
Þjóðverja í Sowiecim í Pól-
landi. Þá hefir það einnig frétzt,
að hún hafi verið í sama fanga
klefa og frú Mikolajczyk, kona
forsætisráðherra pólsku stjórn-
arinnar í London, en hún var
handtekin af Gestapomönnum
að heimili sínu í Poznan fyrir
nokkrum mánuðum. Ekki er
vitað, hvað orðið hefir af frú
Mikolajczyk.
!SIi
m umM o? n
fi%k
iry RISTJÁN' kcnungur X. og
B-m. Alexandrína drottning
eru nú flutt aftur til Amalíu-
borgar í Kaupmannahöfn. Hefir
það vakið mikinn fögnuð með-
al borgarbúa, að sjá aftur
danska fánann dreginn að hún
á Amalíuborg, en 15 mánuðir
eru síðan danski fáninn sást yf-
ir höllinni.