Alþýðublaðið - 12.09.1944, Síða 2
ALÞYÐUBLAÐ9Ð
Þriðjudagur 12. september 1944
Ef sankomulag verður ekki um dýrfíðar-
ráðsfafanir fyrir 15. sepfember
FOESÆTISilÁBHERRA, dr. Bjöm Þórðarson, lýsti því
yfir í síðari ræðutíma ríkisstjórnarinnar við útvarpsum-
ræðumar um dýrtíðarmálin á alþingi í gærkvöldi, að stjórn-
in myndi biðjast lausnar, ef þingið hefði ekki komisf að
niðurstöðu fyrir 15. september um neinar ráðstafanir til
að koma í veg fyrir verðhækkunarölduna, sem þá myndi
skella á, ef ekkert væri aðgert.
Dýrtíðarlagafrumarp stjómarinnar, sem var til umræðu
sætti harðri gagnrýni af hálfu allra þeirra, sem töluðu fyr-
ir þingflokkana.
mleifanir fera
■ . t 7
fram í Hafnarfiarðardeilumii
Suðurlandsför forseians:
Verkamenii vtaa allsstaiar fyrir gömlu kj’ór
in me® Seyfi formanns Hlífar - nema vilS fyr-
tæki Hafiifiriinga
ÞNGAR samningaumleitanir hafa farið frarn út af hinni
nýju Hafnarfj arðardeilu. Félagar í Hlíf vinna ekkert
í hafnarfirði, en samkvæmt leyfi stjórnar félagsins vinna
verkamennirnir allsstaðar annarsstaðar fyrir gömlu kjörin.
Þannig vinna menn úr Hafn-
anfirði á Krísuvxkurvegi, við
Sandtöku, í flugjvelli, !í Haínar-
fjarðarvegi —og víðar — með
'leyfi Hermanns Guðmundsson-
ar. Hins vegar er verkfallið al-
;gert gegn Hafnarfjarðaribæ og
ölluim rekstri sem er í Hafnar-
firði sjiálfum.
Er jþetta ný Iína í verkalýðs-
baráttunnii, sem eldri__verka-
menn kannast ekki við. Öll hafn
firz'k skip, sem lentu í verkfall-
inu eru stöðvuð svo og annar
xekstur á Hafnaxtfirði.
Ómögulegt er að sjá fyrir úr-
slit þessarar deilu. Það er fyrsta
skdlyrðið fyrir Iþví að verkamenn
sem iberjast fyrir bættum kjör
um sínum og Iþurfa þess vegna
.að neyðast til efna til verkfalls
að það sé undirbúið af hinni
mestu kostgæfni og kröfurnar
þannig að þeír fái með sér sam
úð og stuðning alls aimennings
svo að atvinnurekendur hafi
einnig við að etja andúð hans.
En þessu er ekki að heilsa í
hinni nýju Hafnarfjarðardeiiu.
Þar héfir Hermann Guðmunds
son- farið fram af því fyrixi-
hyggjuleysi. að það er til skaða
og tjóns fyrir hafnfirzkan verka
lýð.
SÍÐASTLIBINN laugardag
fóru nokkrir verkamenn,
sem vinna við Skeiðfossvirkjun
inia á dansleik til Hofsóss. Fóru
þeir allir með „boddí“-bifreið.
Snemrna á sunnudagsmorgun
■lögðu þeir aftur á stað heim-
leiðiis, en þegar þeir höfðu ekið
nokkurn spöl út fyrir Hofsós,
bnottnaði „bodd'íið" og einn
mannanna hrökk út af bifreið-
inni. Var feonum þegar ekið til
Frh. á 7. síðu.
jðrS ®§ Gtiil-
bringusýslu í dag
Þingsáiyklunaríillaga um
I. Guðmundssynl í sam
ei
a
jHLUÐMUNDUR í. GUÐMUUNDSSON hefir borið fram
í sameinuðu aiþingi tillögu til þingsályktunar um end-
urskoðun vinnulöggjafarinnar.
Þingsályktunartillaga Guðm. í. Guðmundssonar er svo
hljóðandi:
„Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að skipa nú
þegar nefnd sjö mamia, er endurskoði og geri tillögur til
breytinga á löguin nr. 80 frá 11. júní 1938, um stéttax-félög
og vinnudeilur, og lögum nr. 33 frá 3. nóv. 1915, um verk-
fall opinberra starfsmanna, og verði nefndin skipuð einum
manni eftir tilnefningu Alþýðusambands íslands, einum eft-
■ ir tilnefningu Far- og fiskimannasambands íslands, einum
eftir tilnefningu Bandalags starfsmanna ríkis og bæja og
einum eftir tilnefningu Vinnuveitendafélags íslands. Enn
fremur eigi sæti í nefndinni forseti Félagsdóms og ríkis-
sátíasemjari.“ ..
IJM HELGINA heimsótti
^ forseti íslands Vík í
Mýrdal, Rang’árvalla- og Ár-
nessýslu. í dag mun hann
heimsækja Hafnarfjörð og
Gullbringusýslu, en á rnorg-
un mun hann ferðast um
Kjósarsýslu.
Foi-seti Islands, herra Sveinn
-Björnsson, kom til Víkur í Mýr
dal síödegis á laugardag. Sýslu-
m'aður óík á móti honum að
Klifalandi. Ekið var yfir Víkur-
lárbriú fánum skrýdda. Þar flutti
sýsluimaður ræðu og bauð for-
iseta velkominn, var þá fjöldi
fólks koimiim þangað til að fagna
forseta. Að ræðu sýslumanns
iokinni jflutti forseti ávarp. —
Kirkjú'kórinn söng undir stjórn
Sigurjóns Kjartanssonar. 'Því
næst var kalfisamsætj í sam-
komuhúsinu í Vík. Þár fluttu
ræður auk forseta, Gísld Sveins-
son sýslumaður, Jón Þorivalds-
son prófastur, lEyjólfur á Hvoli
sýslun éín darm a ður. Stefán
Hannesson kennari, Magnús
Finnhogason Reynistað, Þorlák-
ur Bjarnason Eyjarlhólum. Milli
ræðnanna söng Kjartan Sigur-
jónssön með .undirleik Báru Sig
urjónsd'óttur. Meðal ljóða sem
sunglki voru, mlá nefna Skapt-
áriþing elftir Stefán Iiannesson
Frh. á 7. síðu
I greinargerð flutningsmann-s
tillögunnar segir:
„Lögin um stéttarfélög Qg
vinnudeilur frá 1938 eru fyrstu
•heildarlögin, sem hér hafa ver-
ið sett um stéttarsamtök verka
manna og atvinnurekenda og
viðskipti þessara aðila. Fram að
gildistöku þessara laga var hér
vart um að ræða önnur laga-
fyrirmæli um þetta efni en log-
in um sáttatilraunir i vinnu-
deilum og lögin um vefkfall
opinberra starfsmanna. Flest á-
kvæði laganna um stéttarfélög
og vinnudeilur voru því algert
nýmæli í íslenzkri löggjöf,
enda bera lögin þess víða merki,
að um frumsmíð er að ræða,
sem slípa. þarf og móta nánar'
í hinni stormasömu fram-
kvæmd laganna.
Sex ár eru nú liðin, síðan
lögin um stéttarfélög og vinnu-
deilur komu til fi'amkvæmda.
Á þessum árum hefur verið all
umbrotasamt í íslenzku þjóðlífi
og mikið rót á atvinnumálum
þjóðarinnar. Mörg ágreinings-
mál hafa myndazt milli verka-
manna og atvinnurekenda, hæði
hagsmuna- og réttarlegs eðlis.
Margar vinnustöðvanir hafa
orðið og fjöldi mála komið fyr-
ir Félagsdóm. Mikil reynsla hef
ur því fengizt á einstökum at-
riðuni laganna um stéttarfélög
og vinnudeilur og gagnsemi
þeirra í heilld. Virðist því nú
tími til kominn að notfæra sér
þessa reynslu og taka lögin til
endurskoðunar og gera á þeim
þær breytingar, sem fram-
kvæmd laganna hefur leitt í
ljós, að heppilegar séu.
Lögin um verkfall opinberra
starfsmanna voru sett árið 1915.
Tilefni þeirrar lagasetningar
mun hafa verið það, að starfs-
menn Landssíma íslands hót-
uðu verkfalli, ef þeir fengju
ekki laun sín hækkuð. Voru
lögin sett í skyndi án sérlega
mikils undirhúnings. Stéttar-
samtök verkafólks og vinnu-
deilur voru þá lítt þekkt fyrir-
brigði hér og hugmyndir manna
þar um mjög 'á reiki. Á þeim
nær 30 árum, sem liðin eru frá
gildistö'ku þessara laga, hafa
orðið stórfelldar breýtingar á.
öllum þeim hlutum, sem að við
skiptum verkafólks og atvinnu
rekenda lúta. Hugmyndir manna
og afstaða til stéttarsamtaka og
verkfalla er nú allt önnur en
árið 1915, og virðist því ekki
nema eðlilegt, að lögin um verk
fall opinberra starfsmanna séu
tekin til endurSkoðunar sam-
íímis því, sem lögin um f+^ttar
félög og vinnudeilur eru end-
uirskoðuð, og þá jafnframt at-
hugað, hvort ekki sé rétt að
taka upp i þau lög þau sérá-
kvæði, sem ástæða þykir til, að
gildi um opinbera starfsmenn.
Við val manna í nefndina hef
ég lagt til, að þeir aðilar, sem
lög þessi snerta mést, tilnefni
einn fulltrúa hvert og forseti
Félagsdóms og ríkissáttasemiari
eigi þar sæti. Auk þess velji
ríkisstjórnin einn mann án til-
nefningar. Virðist mér þéftia
fvrirkomulag á skipun í nefnd
ina líklegt til, að öil sjónarmið
komi fram við endurskoðun lag
anna og að þeir aðilar taki þátt
í endurskoðuninni, sem mesta
reynslu hafa fengið um fram-
kvæmd laganna. Komi hins veg
ár fram tillögur um annað fyr-
irkomulag um skipun í nefnd-
ina, er ég. að sjálfsögðu fús til
að athuga tillögur mínar nán-
ar.“ .
Sjötín 0£t íímm ára
er í dag 'Ólafur Kristjánsson,
bakari, nú tii h'eimilis á Jaðri við
Sundlaugavég.
SíSustu fréttlr:
Kommýnístar fresla
verkfallimi hjá Nafla
O EINT í gærkvöldi, þegar
^ blaðið var að fara í press-
una, barst því tilkynning frá
Dagsbrún þess efnis, að ákveðið
hafi verið að „fresta að svo
stöddu“ . samúðarverkfalli .því
hjá Nafta h.f., sem búið var að
boða 14. þ. m.
Er lítill efi á því, að komm-
únisíarnir í stjórn Dágsbrúnar
hafa ekki þorað annað en að>
hætta við þetta verkfall vegna
þeirrar megnu andúðar, sem
boðskapurinn um það, var bú-
in að vekja meðal alls almenn-
ings í bænurn
Tilkynning stjórnar Dags-
brúnar fer hér á eftir:
Á fundi sínum í dag ákvað
trúnaðarmannaráð Dagsbrúnar
eftirfarandi:
Að fresta, að svo stöddu,
vegna breyttra aðstæðna, sam-
úðarverkfalli þvi hjá Nafta h.
f., er ákveðið var þann 6. sept-
em'ber s. 1. og koma átti til fram.
kvæmda þann 14. sépt. n. k.
Að leggja til við stjórn vinnu
deilusjóðs Dagsbrúnar, að hún
greiði vérkfallsmönnum hjá
olíufyrirtækjum fjárstyrk úr
Vinnudeilusjóði frá og með 4.
september s. 1. þar til deil-
an verður leyst.
Að beina því til stjórnar fé-
lagsins að skipuleggja almenna
fjársöfnun- á vinnustöðvum til
styrktar þeim verkfallsmönn-
um, ^sem ekki eru meðlimir
Dagsbrúnar.
Samkvæmt beiðni Alþýðu-
sambandsins hafa verkalýðs-
samtökin á Siglufirði samþykkt
samúðarvinnustöðvuri hjá úti-
búum olíufélaganna á Siglufirðl
frá og með 19. september n. k.
Tilkynningar um samúðarverík
föll hjá sömu aðilum eru yænt
anlegar frá Akureyri og v’iðar
að.
a
i gær
ÞINGSÁLYKTUNARTILLAGAN um ráðstafanir vegna hruns
Ölfusárbrúar var til fyrri umræðu í sameinuðu þingi í gær.
í umræöuimi gaf samgöngumálaráðherra, Vilhjálmur Þór, upp-
lýsingar um björgunarstarfið og kvað það sækjast allvel. Hefði
aðalburðarstrengur brúarinnar náðst upp í gærmorgun og væri
nokkur von til, að gera mætti svo við brúna, að hún yrði nothæf
til flutninga, þótt ekki væri hægt að fullyrða neitt um það að
svo stöddu.
Fyrsti flutningsmaður tillög-
unnar, Jörundur Brynjólfsson,
fylgdi henni úr hlaði með
stuttri ræðu. Hann kvað ekki
nauðsynlegt að eyða mörgum
orðum til rökstuðnings tillög-
unni. Öllum væri kunnug nauð
syn þess, að þessu mannvirki
væri komið upp hið bráðasta.
Frh. af 5. síðu.
I