Alþýðublaðið - 12.09.1944, Síða 3
iÞriðjudagur 12. september 1944
A-frYDtigl-APi*
3
Bandamenn
inn i Þýzkaland norður af Trier
Innrás í Norðurlönd!
Hafa sameinast
Til vinstri er Sir Henry Maitland Wilson, er stjórnar öllum her-
afla bandamanna við Miðjarðarhaf, en hann ber ábyrgð á her-
stjórn bandamanna í Suður-Frakklandi en til hægri er Eisenhow-
er, sem stjórnað nefir hinni sigursælu sókn í Norður-Frakklandi.
Nú hafa herir Maitlands Wilsons náð sambandi við heri Eisen-
howers nálægt Dijon í Mið-Frakklandi.
Churchill oa Roosevell á ráð-
Staliii var Gat ekki komið vegna arma
-------
CHUítCHILL forsætrisáðherra Breta og Roosevelt Bandaríkja-
forseti sitja nú á ráðstefnu í Quebec í Kanada. Konru þeir
þangað í gær og munu ræða liermál, einkum styrjöldina 'gegn
Japan. McKenzie King, forsætisráðherra Kanada og jarlinn af
Athlone, landstjóri, tóku á móti þeim. Tilkynnt var, að Stalin
hefði verið boðið að sita ráðstefnuna, en hann gat ekki komið
vegna anna í sambandi við hernaðaraðgerðir þessa dagana.
AÐ ER GREINILEGT af
skrifum danskra og
norskra áhrifamanna í Lon-
do-n, að þeir álíta að brátt sé
á enda kúgunin og ógnar-
stjórnin, sem ríkt hefir í Dan
mörku og Noregi undanfarin
4% ár og atburðirnir, sem nú
-eru að gerast í Vestur-Ev-
rópu og á Balkan, benda ótví
rætt til, að þetta megi verða.
Hins vegar er lítið vitað um,
með hverjum hætti bræðra-
þjóðir okkar fá endurheimt
frelsi sitt, hvort það verði
með innrás í Danmörku og
Noreg, eða að Þjóðverjar
hörfi þaðan með herafla sinn,
meðan tími er til og þörfin að
kallandi á öðrum vígstöðvum.
í FLJÓTU bragði virðist senni-
legast og jafnframt skynsam
legast fyrir Þjóðverja að verj
ast ekki í Noregi, og margt
bendir til þess, að svo verði
ekki. Svo að segja daglega
berast fregnir um, að þýzkir
hermenn hafi verið fluttir
frú Noregi yfir Danmörku og
þaðan til Þýzkalands og ekki
alls fyrir löngu fréttist, að
þeir væru farnir að flytja á
brott strandvarnarbyssur frá
landinu til notkunar á öðrum
vígstöðvum. Óyggjandi fregn
ir greina frá því, að Þjóð-
verjar hafi stórlega fækkað
setuliði sínu í Noregi og lið
það, sem enn er í landinu, er
yfirleitt skipað rosknum
mönnum eða unglingum, sem
ekki þykja nógu harðfengir
til þess að berjast í fremstu
víglínu.
JÞÁ ER ÞAÐ og athugandi, að |
gera má ráð fyrir, að Þjóð-
verjar hverfi með öllu frá
Finnlandi og þá opnast Rúss
um greiður vegur til árásar á
Þjóðverja um Norður-Noreg,
sem Þjóðyerjar mundu fá tæp
ast rönd við reist. Brátt hefst
allsherjar innrás banda-
manna í Þýzkaland úr vestri,
samfara væntanlegum árás-
um Rússa á þýzkt land úr
austri og þá veitir Þjóðverj
um ekki af liði því, sem bund
ið er í Noregi.
UM DANMÖRKU er nokkuð
öðru máli að gegna. Ef banda
menn næðu fótfestu þar í
landi, myndu þeir fá mjög
bætt skilyrði til hatramra
loftárása á þýzkar hafnar- og
iðnaðarborgir, og greiðfæra
leið fyrir skriðdreka- og fót- >
gönguliðssveitir inn í Þýzka-
land. Þess vegna er sennilegt,
að Þjóðverjar hörfi ekki bar-
dagalaust frá Danmörku,
enda hafa borizt allýtarlegar
fregnir um virkjagerð þeirra
á Jótlandi, margendurteknar
heimsóknir Rommels og ann-
arra hershöfðingja og marg-
víslegar varúðarráðstafanir.
Á HINN BÓGINN er mjög
sennilegt, að bandamenn
reyni ekki að gera innrás í
Danmörku, bæði vegna þess,
að þangað er löng og áhættu-
söm sjóleið og eins vegna
Þeir Roosevelt og Churchill
ikomu ‘í einkalestum oig runnu
lestirnar samtímis inn á brautar
stöðiná í Quebec. Churchill
steig fýrstur út úr lest sdnni og
bauð Roosevelt velkominni. Frú
Roosevelt og frú Churchill eru'
einnig í Quebec og var tilkynnt,
að frú Churchill hefði farið yfir
Atlantshaf á herflutningaskipi,
sem flutti særða ih'ermenn til
Bandarikj a nna. Háttisettir amr
erískir hershöfðingjar mun-u
og isitja ráðstefnu þessa.
'Fréttaríiturum var tilkynnt,
að 'Stalin marsfeálki hefði verið
tilkynnt, að ráðstefna þessi ætti
að fara ffram og honum boðið
en hann hafi ekfei getað komiö
vegna þess, að miklar hernaðar
aðgerðir væru í aðsigi, en> Stal-
in er, sem kunnu,gt er, yfirmað-
ur alls herafla Rússa.
Stephen T. Early, einkaritari
Roosevelts sagði blaðamönnum,
að rædd yrðu ýmás hermál, og
mætti því ekki búast við mikl-
nnri' fréttum. Þó upplýsti Early,
að 'viðræðurnar myndu einkum
snúast ium styrjoldina gegn Jap
hins, að þess gerist tæpast
þörf, Þjóðverjar kunna að
gefast upp fyrr en menn grun
ar, vegna samræmdra átaka
Breta og Bandaríkjamanna
úr vestri og suðri og Rússa
úr austri.
önum, enda væri Roosavelt for-
iseti fyrir skömmu kominn úr
leiðangri um Kyrrahafseyjar og
kynnt, sér vígstöðuna þar.
/ ____________
Þýzkf fangaskip sekk-
ur. 50 Horðmenn
farasi
RÁ Gautaborg berast þær
fregnir, að þýzka skipið
,,Westfalen“ hafi sokkið undan
strönd Sviþjóðar, eftir að
sprenging hafi orðið í því Með
skipinu voru um 280 manns,
þar af 50 Norðmenn, sem setið
höfðu í Grini-fangabúðum og
fangelsinu á aðallögreglustöð-
inni í Oslo, Möllergatan 19. Var
verið að flytja þetta fólk til
fangabúða og fangelsa í Þýzka-
landi. Aðeins fjórir Norðmenn
björguðust og voru þeir settir
á land í Marstrand í Svíþjóð.
Norsku fangarnir höfðu ver-
ið lokaðir inni neðst í skipinu
og höfðu þeir sætt álíka svívirði
legri meðferð og hinir 50 kenn
arar, sem á sínúm tíma voru
fluttir til Kirkenes með gufu-
skipinu ,,Skjerstad“, en það hef
ir þótt eitt hryllilegasta dæmið
um mannúðarleysi og ógnar-
stjórn Þjóðverja í Noregi. Alls
fórust yfir 200 manns. Meðal
í gærkveldi voru þeir komnir 8 km. inn í
iandið frá Luxembourg
Sandamannaherinn í N.-Frakk!andi samein-
asf MiSjarSarhafshernum vesfur af Dijon
GÆR var tilkynnt frá aðalbækistöð Eisenhowers, að
fjölmennar hersveitir úr 1. ameríska hernum hefðu
brotizt frá Luxembourg yfir landamæri Þýzkalands hjá
Trier að afstaðinni mikilli stórskotahríð. Þá hafa brezkar
og hollenzkar hersveitir farið yfir landamæri Hollands suð-
ur af Eindhoven. Þá hafa bandamenn tekið borgina Verviers,
austur af Liége í Belgíu, um 15 km. frá þýzku landamær-
unum. Lokaárásin á Le Havre er hafin og eru Kanadamenn
sagðir í úthverfum hennar.
7. 'herinn ameríski, sem sótti fram Miðjarðarhafsströnd
upp Rhonedalinn norður á bóginn hefir nú náð sambandi
við 3. herinn ameríska í Nörður-Frakklandi og var það um
25 km. vestur af Dijon, sem nú er sögð á valdi franskra
hersveita. Hersveitir Pattons hafa náð á sitt vald hluta af
Maginotlínunni í grennd við
hverfum Nancy.
BARIZT Á ÞÝZKRI GRUND
Undanfarna daga hafa banda
menn unnið að því að draga að
sér lið og hergögn, áður en lagt
yrði í innrásina í Þýzkaland. í
gærkveldi bárust svo þær fregn
ir, að Bandaríkjamenn, sem
höfðu mestan hluta Luxem-
bourg á valdi sínu, hefðu ráð-
izt inn í Þýzkaland norður af
Trier, sem er mikilvæg sam-
gönguborg og hefðu þegar kom
izt um 8 km. inn í land. Sam-
tímis voru gerðar loftárásir á
ýmsar stöðvar þar í grennd, en
einkurn á stöðvar nálægt Hann
over og Leipzig. Tóku um 1800
amerískar flugvélar þátt í
þeim. Kom til mikilla loftbar-
daga og skutu Bandaríkjamenn
niður 130 flugvélar fyrir Þjóð-
verjum. Brezkar flugvélar
beindu árásum sínum gegn
olíuvinnslustöðvum í Ruhrhér-
aði.
RÁÐIZT INN f HOLLAND
Brezkar og hollenzkar sveitir
sækja nú inn í Holland og
stefna liði sínu til Eindhoven,
sem er skammt norður af belg-
ísku landamærunum. Sveitir
úr 2. brezka hernum og ame-
rískar sveitir sækja einnig að
borginni Maastricht, syðst í
Hollandi og verður vel ágengt.
LOKAÁRÁSIN HAFIN
Á LE HAVRE
Engar nýjar fregnir hafa
borizt af bardögunum við Cal-
ais, Boulogne og Dunkerque,
en lokaárásin er hafin á varn-
arvirki Þjóðverja í Le Havre,
Þjótjver;; mna voru Gestapo-
menn, 1 sforingjar og óbreytt
ir hermenn.
Samkvæmt skeyti, sem
norska blaðafulltrúanum í
Reykjavík hefir borizt, hefir
enn ekki verið unnt að birta
nöfn Norðmannanna, sem fór-
ust, né heldur hinna fjögurra,
sem komust lífs af, en aðstand
endum þeirra hafa verið birtir
málavextir. Mannskaða þessa
hefir verið minnzt í norska út-
varpinu frá London.
Thionville og barizt er í út-
! sem bandamönnum liggur mjög
á að vinna, vegna siglinga um
Signu, en borgin stendur við
fljótsmynnið. Kanadamenn
sóttu að virkjum Þjóðverja, að
afstaðinni stórskotahríð og
beittu meðal annars eldspúandi
skriðdrekum, en úti fyrir strönd
nni voru brezk herskip, þar á
meðal orrustuskipið ,,Warspite“
og skutu á þau af ' fallbyssum
sínum.
Þýzk varnarlína á
Jéflandi
JÓÐVERJAR halda áfram
að treysta varnir sínar í
Danmörku. Hafa þeir byrjað að
gera varnarlínu á Jótlandi, er
nær frá Esbjerg, með Konungs
á um Vandrup til Kolding. Þýzk
ir karlmenn, sem kvaddir höfðu
verið til vinnu þar, eru nýlega
komnir þangað, en kojþr munu
byrja að vinna þar næstu daga.
Þjóðverjar taka húsnæði handa
þessu fólki að dönskum yfir-
völdum forspurðum og er því
komið fyrir í skólum og sam-
komuhúsum.
Rússar haia tekið 43
þýzka herforingja
í sumar
"|3 ÚSSNESKAR og rúmensk-
ar hersveitir, undir stjórn
Malinovskys hershöfðingja,
halda áfram sókninni inn í Tran
sylvaníu og verður vel ágengt.
Iiafá þeir tékið þar um 200 þorp
og bæi. Her Tolbukins heldur
áfram sókninni í Búlgaríu. Með
al fanga, sem teknir hafa verið
undanfarna daga, voru tveir
þýzkir hershöfðingjar og hafa x
Rússar nú tekið alls 43 þýzka
hershöfðingja í sumar.
í Póllandi halda Rússar á-
fram að kreppa að Þjóðverjum
í Lomza við Narevfljót, skammt
suður af Austur-Prússlandi.