Alþýðublaðið - 16.09.1944, Page 5
JLaugardagur 16. sept. 1944
AIJÞYOUBLAÐIÐ
Ummæli sem okkur þykir væní um — Ameríska leik-
konan, íslenzkar stúlkur og piltar — Ummæli hershöfð-
ingjans — Fornritaútgáfan — Götunöfn á Akureyri
ÞAÐ ER GAMAN að heyra al
munni annarra, að íslenzku
stúlkurnar séu fallegar. En við viss
um þetta samt áður. Þeir sem eitt-
hvað hafa farið út fyrir pollinn,
hafa sannarlega komizt að raun
um það, að hér á íslandi er miklu
minna af ófríðum stúlkum en ann
ars staðar, og það þýðir vitanlega
ekki að þær séu fallegastar.
ÞAÐ ER áreiðanlegt að Marlene
Dietrich hefur góðan smekk, svo
að stúlkurnar okkar mega vera
ánægðar, en það er alveg eins og
ég sjái bænina í svip kollega
minna, er þeir hlustuðu á leikkon
una segja þetta um stúlkurnar, að
hún léti eitthvert orð falla um ís-
lenzku karlmennina, því að það
Ihefði sannarlega verið að marka,
en um það mál þagði hún. Ætli
það tali ekki sínu máli. Þó mega
íslenzku stúlkurnar ekki fyllast
hofmóði út af iþessu, því að það er
reynsla, að um leið og þær trú-
lofast eða giftast erlendum manni,
þá hverfur úr svip þeirra þetta
elskulega og fagra og heiða, sem
vekur svo mikla hrifningu okkar
sem horfum á þær. Það eru nefni-
lega sannindi í því fólgin, að ís-
lendingar eiga bezt saman.
/
KEY HERSHÖFÐINGI dáist að
landinu okkar -— og mér er kunn-
ugt um það, að hann dáist líka
að fólkinu og það er ekki minna
um vert. Það hefur mikla þýðingu
fyrir framtíð okkar, að menn eins
<og hersliöfðinginn beri hlýjan hug
í brjósti til þjóðaripnar, þegar þeir
hverfa héðan. Það er erfitt að hafa
snurðulausa sambúð undir svona
kringumstæðum og flestum hefur
mistekist það. Þetta hefur tekist
betur hér en nokkur þorði að vona.
Það er að þakka þroska þjóðar-
innar, en það er einnig og jafnvel
ekki síður að þakka víðsýni og
menningu þeirra, sem stjórnað
hafa í hinum herbúðunum. * Ég
hygg að við íslendingar höfum
verið nijög heppnir með báða
bandarísku herforingjana, sem hér
hafa dvalið.
BÓKAMAÐUR skrifar: „Forn-
Titaútgáfan er heldur sein á ferð-
inni, og hafa forráðamenn hennar
hætti snígilsins. Meðan allir aðrir
bókaútgefendur juku afköst sín,
gekk Fornritaútgáfan aftur á bak
og fækkaði bindum, en fjölgaði
ekki. Áður kom eitt bindi árlega,
en nú koma tvö bindi á fimm ár-
um. Ástæða var þó til, meðan fjár
ráð almennings voru nóg, að hleypa
fjöri í | útgáfuna og drífa þrjú til
fjögur bindi á markaöinn árlega.“
„ÞETTA MÁ enn gera,' því að
eflaust verður hagur almennings
fremur rúmur framvegis ef 'umrót
heimsins leiðir til batnandi menn
félagshátta, eins og spáð er um,
spjallað og áætlað. Bindi þau, sem
Fornritaútgáfan ætlar' að koma
út, eru þrjátíu og fimm. Þar af
eru komin níu. Tuttugu og sex eru
eftir. Hvað margir unnendur þess-
arar útgáfu verða komnir undir
græna torfu, þegar hénni er lokið,
með. sama snígilsskriðinu? Og
hvað margir aðrir útgefendur verða
búnir að taka riti-n til útgáfu í
rándýrumí útgáfuformum, sem al-
menningur neyðist til að kaupa,
af því að ekkert er annað fyrir
hendi? “
„HEIMSKRINGLA, Fornaldar-
sögur Norðurlanda, Flateyjarbók,
Sturlunga saga og' Biskupasögurn-
ar eru á leiðinni í luxusútgáfum.
Menningarsjóður, sem hið unga
þjóðveldisríki ber ábyrgð á, Iiefur
nú tekið helztu íslendingasögurn-
ar. til dreifingar, að vísu í sæmi-
legum búningi, en á öndverðum
meið við Fornritaútgáfuna. Er nú
ekki koníinn tími til að leggja
Jóns Ásbjörnssonar & Nordals-út-
gáfuna bara alveg niður? Geta les
endur þá, um annað vonlausir,
snúið sér að dýru útgáfunum.“
„HANNESARMAÐUR á Akur-
eyri skrífar: „Almenningur á Alt-
ureyri hefur oft íundið ástæðu til
að hneykslast í sambandi við ým-
islegt framferði í bænum. Og þó
virðist svo sem stundum hafi þeir,
sem mest eru hneykslaðir, fleiri og
istærri syndir á samvizkunni, ef
vel er gáð á bak við tjöldin, en
þeir, sem hneykslunum valda.“
„ÞESSU ER ÞÓ EKKI svo var-
ið, þegar um er að ræða nafngiftir
bæjarstjórnar á vegum bæjarins.
Þar er hneykslunin réttmæt. Nöfn
eins og Helga-magra-stræti, Páls-
Briems-gata o. s.. frv. eru meiri ó-
nefnin. Þó er verra þegar beztu
nöfnin eru ekki rétt með farin.
Þannig er Bjarkastígur langoftast
nefndur Bjarkarstígur, c: kendur
við eina björk, sem er rangt, en
ekki við márgar, sem er rétt, því
að heill bjarkagarður liggur að
stígnum sunnanverðum. Svo er
Frúarstígur stundum afbakaður.“
*
„MÖÐRUVÁLLASTRÆTI og
Kaupvangsstræti eru harla leiðin-
leg nöfn. Réttara væri að kenna
göturnar við nærtækari hlúti t. d.
Rommstræti og Sveins-vegur, eða
Skammavísnastígur. Þá mætti
byggja einhvlers staðar Framúr-
skarandi-vitleysubraut, því að það
ætti Akureyri sannarlega skilið —
í veganafnamálum.“
Hannes á liorninu.
I
LAMPAGLOS
Lampaglös 8"'
Do 10'"
Do 14'" *
Do 15'"
Do 20T
Einnig ensk glös, belgvíð, 2 teg., fyrirliggjandi
G
R H.
Þegar bandamenn tóku Rómaborg.
Veiðarfæradeiidin
Mynd Iþessi sýnir hersveitir bandamanna, er ,þær sóttu inn f Rómaborg og sést þýzkur
skriðdreki ibrenna til vinstri á myndinni. Kom til iharðra vopnajviðskipta milli banda-
manna og Þjóðverja áður hinar þýzku her.sveitir höfðu verið hraktar út úr hinni fomu,
föigru og sögufrægu höfuðborg ítalíu.
Ameríka i þýzkum spéspegli
Þþðgar styrjöldinni
er lokið og fánar banda-
manna Iblakta yfir rústum
iBerliínariborgar, mun mikið hlut
verk ibíða 'bandamanna. Þá er
að því komið, að þeir kynnist
rtil hlítar hugsunarhætti þýzku
þj'óðarinnar.
■ Áróðurinn, sem rekinn hef-
ur 'veúið í Þýzkalandi undir
tforustu Jósefs Göbbels. hefur
haft þau áhritf á þýzku þjóð-
ina, að 'h-ún sér ekki msð aug-
um sínum og heyrir ekki með
eyr-um sínum. Hún telur ekki
einu sinni vertf að. hlýða á
hokkuð það', sem Uim|helmur-
in.n hefur henni að segja.
Ég hef dvaliz't í þrettá'n mán-
uði í hald'i í Baden-Baden í
Þýzkalandi. Ég átti ekki kost
annarra frétta en þeirra, sem
komu tfrá Þjóðiverjum. Ég var
uim. það eins settur og1 þýzka
þjóðin. iMér var aðeins leyft
að lésa blöð, s.em út voru gef-
in í Þýzkalandi og löndum þeim
©r Þjóðverjar höfðu á valdi
sínu — Frakklandi, Belgíu,
Hollandi og Stalíu. Ég hlust-
aði á útvarp, sem ætlað var
Þjóðverjum ög þjóðum þeim,
er þýzki herinn réði yfir. En
mér var leyft að skrifa atihuga-
semdir hjá imiér og ræða við
samfanga mína, sem margir
voru blaðamenn og stjórnmála-
rnenn.
Þar er ég hef lengi starfað
að Iblaðamennsku og útgáfu-
starf.se,mi, gerði ég mér mikið
far um að kynna mér áróður
Þjóðverja og rekstri lygavélar
Jósefs Göbbels.
Göibibels hefur látið þjóð
sinni í té fréttir af ölLum sigr-
um hinna þýziku hersveita, -en
hins vegar hefur hanp haldið
valdlega leyndum fyrir henni
fréttum um sigra bandamanna.
Dag eftir dag hlustaði ég á á-
róður Þjóðiverja gegn Banda-
ríkjunum og Bandaríkjamönn-
um. Og þessi áróður gegn
Bandaríkjunum hefur haft mik
il áhrif á þýzku þjóðina. Hún
hyggur, að lýðræði Bandaríkja-
anna sé skrítla ein. Og hún vill
ekkert með lýðræðishugsjónir
okkar hafa. Það hefur verið
unnið markvíst að því laga hríð
að rægja Bandaríkin við þýzku
þjóðina, og sá rógur hefur haf't
tilætluð áhref.
GREIN ÞESSI er eftir Bandaríkjamann, Thomas Kernan
að nafni, sem dvaldist í haldi í Þýzkalandi í þrettán
mánuði og er nýkominn heim til ættlands síns. Hafði hann
átt þess góðan kost, að kynnast áróðri Þjóðverja og lýsir
því, að þýzka þjóðin sjái önnur lönd í spéspegli þeim, sem
Göbbels og málaliðsmenn hans hafi brugðið fyrir sjónir
hennar. Telur Kernan, að bandamönnum muni reynast
örðugt að fá þýzku þjóðina til liðs við sig, því að tíu ára
áróður nazista hafi valdið því, að hún sjái ekki með aug-
um sínum og heyri ekki með eyrum sínúm. Greinin er
þýdd iir tímaritinu Reader’s Digest.
Göbbels hefur - átt þess kost
að vekja hatur og Ihefndarhug
í garð Bandaríkjánna meðal
þýzku þjóðarinnar með því að
minna hana látlaust á loftsókn
Breta og Bandaríkjamanna á
Þýzkaland og tjón það, er hún
'hefur valdið. Þéttbýli er mikið
á meginlandi Evrópu, isvo sem
alkunna er. Hvenær ,sem flug'-
vélar bandam-anna leggja til at-
lögu við járnbrautamiðstöð,
brú eða iðjuver, má við iþví
búast, að heimikynni margra ó-
breyttra borgara verði og hæíð
sprengjum, svo og ein >eða tivær
/kirkjur. Göbbels hefur iboðað
þjóð sinni kappsamlega þá lý,gi,
að flugvélar handamanna leggi
íyrst og fremst áherzlu á það
að hæfa staði, sem ekki hafa
hernaðarlega þýðin.gu, sprengj-
um. Hann hefur klifað á 'því, að
hlutverk flughers bandamanna
imeð loftsó'kinnji gegn. Þýzka/'-
landi væri fyrst og fremst það
að jafna .mennta- og menning-
arsetur Þýzkalands við jörðu.
Þessi lýgi hefur verið endur-
tekin hundruð sinnum., og birt-
ar hafa verið þúsundir ljós-
mynda, sem eiga að sanna það,
að Bandaríkin séu í grimmi-
legri herför gegn hinni fornu
menningu Evrópu. Og þessi
lygaboðskapur hcfur fun.dið
mikinn hljómgrunn meðal Þjóð
verja.
Hinn tólfta dag marzmánað-
ar árið 1943 flaug flugvélasveit
á leið til iStuttgart yfir Baden-
Baden. Ein flugvélin missti
sprengju yfir borginni, sem
hæfði kaþólska kirkju og olli
miklum skemmdum ó guðshús-
inu. Þetta var eina sprengjan,
sem var.pað var á Badendalinn
'hina þreitán mánuði, sem ég
divaldist þar. 'Þar eð kirkjan
var istór og stóð uppi á hæð,
verðuir aldrei unnt að sannfæra
Badeníbúa um það, að hér hafi
verið um slysni að ræða. Sjúkra
'húsið í Frankfurt, er rúmaði
sex þúsundir sjúklinga, stóð
utan við borgina o.g fjarri
öðrum húsum. Það var jafnað
við jörðu í loftárás efaláust
vegna þess, að flugmennirnir
hafa haldið, að !hér væri um
hernaðarlega þýðingarmikla
'bvggingu að ræða. Meðal þýzk-
ra bygginga, sem orðið hafa fyr
ir iskemmdiumi af völdum ioft-
sóknarinnar, eru dómkirkjurn-
ar í Œ^öln, TJiier, Acjhen ög
Múnster, svo og helztu kirkj-
urnar og safnahúsinu í Múnc-
hen.
Þegar maður skýrir Þjóðverj
um frá því, að þetta sarna hafi
þýzki flugherinn gert í árásimi
sínum á Lundúni veturinn.
1940-1941, lita þeir undrandi á
mann, því að þeir hafa aldrei
heyrt þessa getið. Þeim er alls
ókunnugt um tjón það, er þýzki
flugherinn olli á mennta- og
menningarsetrum Bretlands.
Þeir trúa því í barnslegri ein-
iægni, að það hafi verið banda
menn en ekki Þjóðverjar, sem
hófu að gera loiftárásir á staði,
sem ekki höfðu hernaðarlega
þýðingu.
Því miður hefur Þjóðverjum
tekizt að n.á dnottinvaldi yfir
föllifelL.*,* Framh. á 6. síðu.