Alþýðublaðið - 22.09.1944, Blaðsíða 7
Föstudagur 22. sept. 1M4.
ALöYmiRlAfóm
7
1 Bœrinn í dag.
| Næturlæknir er í Læknavarð-
ötofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Reykjavíkur-
apóteki.
Næturakstur anna'st Bifröst,
gími 1508.
ÚTVARPIÐ:
12.10—13.00 Hádegisútvarp.
15.30—16.00 Miðdegisútvarp.
19.25 Þingfréttir.
20.00 Fréttir.
20.30 íþróttaþáttur í. S. í.
20.50 Píanókvintett útvarpsins:
ÍKvintett í es-moll, eftir
Hummel.
21.10 Erindi: Uppeldismál barn-
imörgu heimilanna. (Am-
grímur Eristjánsson skóla-
stjóri).
21.35 Hljómplötur: Gigii syngur,
21.50 Fréttir.
22.00 Symfóníutónleikar (plötur):
Tvær sónötur eftir Beet-
hoven: a) Kreutzer-sónat-
an. b) Wa Idstein-sónatan.
23.00 Dagskrárlok.
Hjónaband.
í gær voru gefin í hjónaband
af séra Jóni Tliorarensen Hanna
Karlsdóttir, kennari og séra Sig-
urður Einarsson, skrifstofustjóri.
Heimili þeirra er á Reynimel 40.
Pálína Eyjólfsdóttir,
ekkja, Öldugötu 8 í Hafnarfirði
er 80 ára í dag.
Alþingi:
Hækkun styrkveitlnga
fyrir ræktonarfram-
kvæmdir.
Frv. flutt í neðri deiid
FRUMVARP til laaga um
breytingu á jarðræktarlög-
unum hefur verið flutt í neðri
deild. Flutningsmenn eru
Bjarni Ásgeirsso'n, Jón Sigurðs-
son og Pétur Ottesen.
Samkvæmt frumvarpi þessu
skulu styrkveitingar fyrir
þúfnasléttun í túni, venjulega
nýrækt og sléttun engjalanda
vera sem hér segir næstu tíu
ár frá gildistöku laganna:
„a. Þúfnasléttun í túni styrkt
með 100% hækkun frá því,
sem ákveðið er í 9 gr. laganna
að viðbættri verðlagsuppbót
samkv. ákvæðum 10. gr. lag-'
anna.
b. Venjuleg nýrækt styrkt
með 100% álagi frá því, sem i
ákveðið er í 9. gr. laganna, á-
samt verðlagsuppbót (sbr. 10.
grj, þar til býli það, er styrks
nýtur,*hefur 600 hesta (100 kg.)
heyskap á véltæku landi í með-
"alári.
c. Greiða 50 kr. á hektara á-
samt verðlagsuppbót fyrir
sléttun engjalanda á b’eim býl-
um, sem ’nafa ekki 600 hesta
heyskap á véltæku landi.“
Félagslff.
Í.R.-ingar!
Skemmtikvöld heldur félagið
fyrir félaga og gesti 1 Tjarnar-
Café, í kvöld kl. 9 e. h. Þátt-
takendum úr innanfélagsmóti
félagsins og þeim, sem unnu að
hlutaveltunni, er boðið.
Stjórnin.
Sýningar á Péfri Gauf
affur á sunnudði
Skípissi klytverka í leiksíym allmikið
Lárus Pálsson í Pétri Gaut.
i
Starfar fyrir Seikfé-
Sagitl þar aS upp-
setningu
,Et Ðukkeiileifi^
"E1 INS og skýrt er frá á öðr-
um stað hér í blaðinu er
frá Gerd Grieg nýkomin hing-
að til Iandsins aftur eftir för
sína til London. Áður en hún
fór, var hún sæmd einu virðu-
legasta heiðursmerki Norð-
manna, Kommandör af St. Ol-
avs-orðunni. Gerd Grieg kem-
ur hingað til þess að starfa á-
fram með íslenzkri leiklist.
Samkvæmt því, sem hún
skýrði Alþýðublaðinu frá í
gær, fer hún nú að afloknu
starfi við enduruppsetningu á
Pétri Gaut, til Akureyrar til
að starfa með Leikfélagi Akur-
eyrar að uppsetningu á „Et
Dukkehjem,“ eftir Ibsen. Alda
Möller fer og norður og tekur
að sér aðalhíutverkið í leikn-
um.
Alþýðublaðið spurði frá Grieg
að því í gær, hvort hún myndi
setja fleiri leikrit á svið hér
að þessu sinni.
Hún kvað ekki mikil líkinfli
til þess, þar sem hún myndi
fara utan, þegar þessu starfi
væri lokið.
Starf frú .Grieg hér hefur
orðið mjög þýðingarmikið fyr-
ir íslenzka leiklist og stönd-
um við íslendingar í mikilli
þakklætisskuld við hana.
ly' ÝLEGA hóf klæðskera-
sveinafélagið Skjaldborg
verkfall.
Samningar þeir, sem klæð-
skerasveinar hafa búið við að
undanförnu, voru gerðir til
hálfs árs. Þegar þeir samning-
ar voru. gerðir s.l. vetur, vildu
klæðskerameistarar ekki semja
til lengri tíma, þar sem þeir
töldu sig ekki geta bundið sig
þeim fyrir langan tíma, sökum
verðlagseftirlitsins, en nú vildu
þeir hins vegar framlengja
samninginn óbreyttan, en það
féllst Skjaldborg ekki á og gerði
nýjar kröfur, sem klæðskera-
meistarar vildu ekki ganga að
¥ EIKSTAKFSEMIN hér í
Keykjavík er nú að hefj-
ast. Verður fyrsta Ieiksýning
haustsins á sunnudagskvöld og
verður þá sýnt ieikrit Ibsens,
Pétur Gautur, en hlutverkaskip
un hefur verið nokkuð breytí
af óhjákvæmilegri naúðsyn.
Frú Gerd Grieg er nýkom-
in hingáð til lands frá London
og hefur hún unnið að endur-
uppsetningu Péturs Gau.ts og
æfingu nýrra leikenda. Hefur *■
frúin nú lokið því að mestu.-'
Breytingarnar á hlutverkaskip-
an eru þessar: Dóra Haralds-
dóttir leikur nú Sólveigu í
stað Eddu Bjarnadóttur, sem
farin er vestur um haf. Er
þetta fyrsta stóra hlutverkið,
sem Dóra fær, en hún er þegar
kunn R,eykvíkingum af mörg-
um smáhlutverkum. Regína
Þórðardóttir tekur við hlut-
verki „grænklæddu konunn-
ar“ í stað Öldu Möller. Þó að
frú Regína sé kunn sem af-
bragðsleikkona, er hún ekki öf-
undsverð áf því að taka við
þessu hlutverki, svo vel leysti
Alda Möller það af hendi. Jón
Leós tekur við hlutverki
,,frammistöðumannsins“ af
Vilhelm Norðfjörð og Svava
Einarsdóttir tekur við hlutverki
þriðju selsstúlkunnar af Helgu
Mölier.
Pétur Gautur var leikinn 20
sinnum s.l. vetur hér í Rvík.
Varð þá að hætta sýningum
vegna anna margra leikaranna
og var acýsóknin þó alltaf jafn
mikil.
Illa goEdinn greiði.
Frh. af 2. síðu
reiðarstjóranum nú- hjálp sína
við að reyna að ýta bifreiðinni
upp úr forinni, og fór einn-
mannanna úr jakka sinum til
þess að verðá liðtækari við starf
ið, og iagði hann jakkann inn
í bifreiðina; annar fór úr frakk
anum og lagði hann á aurvör
bifreiðarinnar. Tóku mennirnir
riú til við að ýta bifreiðnni og
tókst að lokum að losa hana upp
úr forinni, en um leið ók bif-
reiðarstjórinn í burtu í skyndi
með jakka mannsins, sem hafði
lagt, 'hann af sér inn í bifreið-
ina. í jakkanum var eitthvað
af peningum og h«fir maðurinn
hvorki fengið jakkann eða pen
ingana aftun.
Maðurinn, sem lagði frakka
sinn á aurvör bifreiðarinnar
varð líka fyrir tjóni, því um
leið og bifreiðarstjórinn ók af
stað, datt frakkínn undir bif-
reiðina og gereyðilagðist í for
inni, þar sem biíreiðarstjórinn
ók yfir hann.
Má segja að bifreiðarstjóri
þessi hafi illa lannað þeim fé-
löguin hjálpsemi þeirra.
Mennirnir gættu þess ekki að
setja á sig númer bifreiðarinn
ar, en telja hins vegar líklegt
að þeir muni þekkja hana aft-
ur ef þeir sjá hana og sömu-
leiðis bifeiðastj. En rann-
sóknarlögreglan biður stúlkurn
ar sem í bifreiðinni voru, þessa
nótt er mennirnir komu bifreið
arstjóranum til hjálpar, að
koma til viðtals, sem allra fyrst
á skrifstofu Rannáóknarlögregl
unnar Fríkirkjuvegi 11.
og hófst því verkfall hjá svein-
unum í iðninni 13. þ. m.
■
liliJÉÍ
íslenzkir kvikmyndahússgestir munu ef til vill ekki strax
átta -sig á, hver konan er hér á myndinni, en það er Greer
Garson, leikkonan fræga, sem menn muna úr „Mrs. Mini-
ver“ og fleiri myndum. Með henni er Walter Pidgeon, sem
oft hefur leikið á móti henni í stórmyndum. Hér er Greer
Garson í gervi 83 ára gamallar konu.
Stlérnarfrurrsvarp ,sjm aH þaS ©Sgugst h©lm«
insg hlutafjárins og fái helEnild til veita
ts œ -WB B ho apn ff.’ ví
Ð ÍKISSTJÓRNIN hefur lagt
■*■'• fram á aíþingi frumvarp
til laga um viðauka við lög um
loftferðir. Samkvæmt frurav.
þessu heimilast ríkisstjórninni
að leggja fram fé úr ríkissjóði
tiii aukningHr lilutafjár Flug-
félags íslands h.f„ þannig, að
ríkissjóður eigi 50% af öllu
hlutafénu.
Þegar ríkissjóður hefði þann-
ig eignazt helming hlutafjár-
ins og samþykktum félagsins
verið breytt samkvæmt ákvæð-
um þessa frumvarps, er svo
ráð fyrir gert, að atvinnumála-
ráðuneytið geti veitt Flugfél.
íslands einkarélt til flugferða
hér á landi og til útlanda með
farþega, póst og farangur.
í athugasemd við frumvarpið
segir á þessa leið:
„Flugsamgöngur eru nú orðn
ar svo verulegur þáttur i sam-
gögumálum vorum, að nauðsyn
ber til, að ríkisvaldið hafi vefu
leg afskipti af rekstri þeirra og
styrki þær eftir því, sem föng
eru á. í þessu augnamiði er lagt
til í frumvarpi þessu, að ríkis-
sjóður efli Flugfélag íslands h.
f. > .eð verulegum fjárframlog-
um. Hlutafé Flugfélagsins er nú
um 10@0000 kr., en heimilt er
samkvæmt samþykktum þess að
auka það upp í 1500000 kr. Eram
lag ríkissjóðs gæti þá orðið sam
kvæmt frumvarpinu um
1500000 kr.
Ef þessi leið yrði farin, verð-
ur að. teljast eðlilegt, að Flug-
félag íslands h. f. vrði veittur
einkaréttur til flugferða hér á
landi og til útlanda með far-
þega, póst og farangur. Með
þessu fyrirkomulagi yrði stjórn
þessara mála einfaldari, rekstur
in öruggari og ódýrari.
Skipulag það, sem frumvarp
ið gerir ráð fyrir, er sniðið eftir
því fýrirkomulagi, sem haft var
á flUigsamgöngum' flestra Ev-
rópulanda fyrir núverandi styxj
öld.‘
Frh. af 2. síðu.
desember 1933. Hann er þekkt-
ur sérfræðingur í taugasjúk-
dómum. Hér er oft til hans
leitað um lækningar, en hann
hefir orðið að vísa siúklingum
frá sér, vegna þess, að hann
hefur ekki íslenzkt lækninga-
leyfi. En samkv. gildandi lög-
um er íslenzkur ríkisborgara-
réttur skilyrði læknisleyfis.
Dr. Ivroner hefur hins vegar
ekki dvalizt hér ,þau 10 ár, —
sem krafizt hefur verið und-
anfarið til að veita ríkisborg-
ararétt.
Dr. Kroner og frú hans eru
góðkunnir íslandsvinir, og stóð
heimili þeirra í Berlín jafnan
opið íslenzkum námsmönnum
og öðrum íslendingum, er
þangað komu.
Dr. Kroner, er nú 66 ára að
aldri. Er það ekki vansalaust,
að svp þaulreyndur og ágætur
læknir hafi ekki leyfi til að
liðsinna íslenzkum sjúklingum,
er til hans leita, og neyðist til
að stunda erfiðisvinnu sér til
framfærslu.“