Alþýðublaðið - 23.09.1944, Qupperneq 8
ALE>Yr»UgLAftnB
Lauíí-ardagur 23. s©pt. 1944L
■TJARNftSSie.1
Kvenhefjur
(„So Proudly We Hail“)
Claudette Coíbert.
Paulette Goddard.
Veronica Lake.
Sýnd kl. 7 og 9
Kvenkosfur
Rosalind Russell
Brian Aherne.
Sýning kl. 3 og 5.
Sala aðgm. hefst kl. 11.
FYRIR 70 ÁRUM
— ÚR BRÉFI frá Stranda-
sýslu 10. febr.: „Hafísinn kom.
hér fyrst mecf jólaföstu, og á
homim nokkrir hvítábjarnar-
húnar, svo sem hálfvaxnir; fjór
ir urðu unnir, nl. 1 á Kleifum
í Kaldbaksvík, 2. á Gjögri, 3.
frá Bæ í Trékyllisvík og 4. á
Homi. Hafsinn hóf frá aftur fyr
ir jól, en síðan kom hann af tur
fyrir miðjan janúar svo mikill,
að nú fyrir viku sá hvergi í
vök af Krossanesfjalli, ein~
hverju hæsta í Trékyllisvík,
þar með lagði alla firði út að
hafísnum.
Það sem af er árinu, hefir
hér eigi gengið á öðru en norð
an hvassviðrum með mikilli
snjókomu og einstökum óþrifa-
blotum, helzt wm næturtíma,
þar með hörkufrost, mest í Ár-
nesi, 21° R., og á Stað í Stein-
grímsfirði 18° R.
Hér um sveitir sést hvergi á
beran stein á fjöllum, eða dökk
an díl í byggð, og muna elztu
menn naumast slík harðindi.
Lömb eru búin að vera stöðugt
á gjöf í 18 vikur, og annar fén-
aður ásamt hrossum að því
skapi. Engin höpp heyrast að
komið hafi með þessum mikla
hafís. Heilsufar tjáist hvdrvetna
gott bæði á mönnum og skepn-
um — en aumingja rjúpumar
eru farnar að hordeyja."
Víkverji 1874.
Hann var gripinn af takmarka-
lausri örvilnun.
Þiriátt fyrir allar íihuganir
gerðist ekkert um kvöldið annað
en iþað — að hann sendi pen-
mgana. ítað var eftir mikla bar-
áttu —• eftir tveggja tíma í-
huganir með og mótá, að hann
náði 'loks í umslag, lagði upp-
hæðina þar í og innsigdaði það
með hægð.
Því næst kallaði hann á
Harry, sem var notaður í alla
snúninga á staðnum.
„Viltu skjótast með þetta
bréf“, sagði hann og rétti hon-
um umslagið, ,,og fá frú Hurst-
wood. það.“
,,Já“, svaraði drengurinn.
„Ef hún er ekki við, þá skaltu
koma með það aftur.“
„Já, herra minn.“ •
„Þú hefur séð konuna mína?“
spurði hann til öryggis, þegar
drengurinn var að leggja af
stað.
,,Já, herra minp. Ég þekki
hana.“
„Gott og vel. Flýttu þér svo j
hingað aftur.“
,,Á ég að bíða eftir svari?“
„Ekki býst ég við því.“
Drengurinn flýtti sér af stað
og Hurstwood sökkti sér aftur
niður í hugsanir sínar. Nú hafði
hann gert það. Það þýddi ekk-
ert að velt vöngum yfir því. í
kvöld hafði hann beðið lænra
hlut, ög það var bezt að reyna
að sætt sig við það. Iivílík smán
að láta neyða sig á þennan hátt!
Hann gat séð hana taka á móti
drengnum við dyrnar og brosa
háðslega. Hún tæki við bréfinu
vitandi, að hún hefði sigrað.
Næði hann í bréfið aftur, myndi
hann alls ekki senda það. Hann
andvarpaði þungt og þurrkaði
svitann af enni sér.
Til að eyða tímanum reis
hann á fætur og fór að tala við
hokkra vini sína, sem sátu
þarna og drukku. Hann reyndi
að fá áhuga á því, sem var að
gerast í kringum hann, en það
var árangurslaust. Allan tíman
snerust hugsanir 'hans um heim-
ili hans og það, sem væri að
gerast þar. Allan timmn var
hann að velta fyrir sér, hvað
hún segði, þegar drengurinn
fengi henn bréfið.
Eftir klukkutíma og þrjú
korter kom drengurinn aftur.
Hann hafði auðsjáanlega afhent
bréfið, því að hann sýndi eng-
in merki um að hann væri með
neitt í vasanum, þegar hann
gekk til hans.
„Jæja?“ sagði Hurstwood.
„Ég fékk henni það.“
„Konunni minni?“
„Já.“
„Var nokkurt Svar?“
„Hún sagði, að það væri tími
til kominn.“
Hurstwood varð skuggalegur
á svip.
Hann gat ekki gert meira
þetta kvöld. Hann hélt áfram
! að íhuga málið til miðnættis,
en þá fór hann aftur yfir í Palm-
er House. Hann velti fyrir sér,
hvað morgundagurinn myndi
bera í skauti sér, og hann svaf
allt annað en vært.
Daginn eftir fór hann aftur á
skrifstofuna og opnaði bréf
sín, tortrygginn og vongóður.
Ekkert bréf frá Carrie. Ekkert
frá konunni, en það gerði
minns.t til.
Hann hafði sent peningana,
hún hafði tekið við þeim, og
það hafði róandi áhrif á haixn.
Það var eins og gremja hans
minnkaði og hann þráði frið.
Hann sat við skrifborð sitt og
gerði sér í hugarlund, að eldc-
ert vrði gert í nokkrar vikur.
Þá fengi hann dálítinn tíma til
að hugsa.
Þessar hugsanir snerust fyrst
og fremst um Carrie og þá að-
ferð sem hann gæti beitt til
þess að ná henni frá Drouet.
Hvernig skyldi það ganga núna?
Sorg hans yfir því, að hún
skyldi hvorki hitta hann né
skrifa honum fór vaxandi því
meir sem hann hugsaði um það.
Hann ákvað að skrifa henni
með ábyrgðarpósti og biðja
hana um skýringu og mæla sér
mót við hana. Hann fylltist
gremju við tilhugsunina um
það, að hún fengi sennilega
ekki bréfið fyrr en á mánudag
inn. Hann vrði að koma því
fyrr til hennar — en hvernig?
Hann hugsaði um þetta í
hálftíma og fann sjálfur, að
það var of áhættusamt að senda
sérstakan bréfbera til bennar,
eða aka þangað í kerru. En svo
fann hann að hann var, að eyða
tímanum til ónýtis, svo að hann
skrifaði bréfið og sdkkti sér
aftur niður í hugsanir sínar.
Tíminn leið og klukkan varð
þrjú, fjögur, fimm, sex og ekk-
ert bréf kom. Veslings Hurst-
wood gekk um gólf og kvaldist
af meðvitundinni um smán
síra. Hann sá laugardagiinn líða
hjá með öllum þeim önnum og
sunnudaginn koma, og ekkert
gerðist. Drykkjustofan var lok-
uð allan sunnudaginn og hann
sat einn og hugsaði, útrekinn
frá heimili sínu, sviptur Carrie
og ekki megnugur að hnika
þessu til á neinn hátt. Þetta
var önuirlegasti sunnudagur í
öllu lifi hans.
. í seinni mánudagspóstinum
m NYJA BIÚ
Hagkvæmf
hjónaband
(,„The Lady is v/illing“)
Rómantízk gamanmynd
Aðalhlutverk:
Marlene Ðietrich
Fred MacMurray
Sýnd kl. 5, 7, og 9
Síðasta sinn.
Gættu þín,
fagra mær.
Barnasýning kl. 3:
Söngvamynd með
DEANNA DURBIN.
Sala aðgm. hefst kl. 11.
fékk hann bréí, sem leit mjög
laglega út og hélt athygli hans
fastri um stund. Á það var
stimplað merki skrifstofu lög-
fræðinganna McGregors, James
og Hay og það byrjaði mjög
hátíðlega: „Kæri herra“, og
„hér með leyfum við okkur að
tilkynna“, og það hafði inni að
halda stutta tilkynningu um, að
frá Júlía Hurstwood hefði fal-
ið þeim að sjá um og lagfæra
viss atriði varðandi framfærslu
hennar og eignum, og þeir fóru'
vinsamlegast fram á það, að
6AMLA BíÖ ™
í bófahcndum I
(Whistling in the Dark)
Red Skelton
Ann Rutherford
Conrad Veidt.
Sýnd kl. 7 og 9.
Börn innan 12 ára fá ekkij
aðgang.
fVSaisie og
Iireefageikarinn.
(Ringside Maisie).
Ann Sothern
George Murphy
Robert Sterling
Sýnd kl. 3 og 5.
Sala hefst kl. 11.
hann veitt þeim viðtal semi
fyrst.
Hann las það vandlega nokkr-
um sinnum og hristi svo höf-
uðið. Nú fannst honum sem
fjölskylduvandræðin væru fyrst
að byrja.
„Jæja“, sagði hann nokkru
seinna við sjálfan sig. ,,Ég veit
s\"ei mér ekki.“
Síðan braut hann það saman
og stakk því í vasa sinn.
Til að auka á eymd hans kom
ekkert bréf frá Carrie. Nú' var
hann þess fullviss, að hún vissi,.
Fyrsfa ævínfýrfð.
mið og væri mjög annt um velferð mína. Sérhvert laug-
ardagskvöld fór ég inn í herbergið hans til þess að sýna
honum einkunnabók mína, og væri ekkert sérstakt fram
að taka í sambandi við hana, skrifaði hann nafn sitt hana,
og rétti mér hana ásamt átta skildingum, er voru vasapen-
ingar mínir yfir vikuna og kinkaði þá jafnframt vingjarn-
lega kolli til mín. Ég held, að það hafi aðeins komið tvisvar
sinnum fyrir, að hann neitaði mér um vasapeninga fyrir
næstu viku vegna þess, að ég hafði staðið mig illa við nám-
ið. Ég átti mjög létt með að læra, og þar eð ekki var til
þess ætlazt, að ég gengi menntaveginn átti ég mjög auðvelt
með að uppfylla þær kröfur, sem til mín voru gerðar.
Móðir mín var að eðlisfari glaðlynd, mild og vingjarn-
leg, en helgaði sig alvarlega húsmóðursstörfunum, enda var
heimilið þungt sem gefur að skilja, þegar að því er gætt,
að börnin voru níu, og var ég elzt þeirra. Móðir mín lagði
alla áherzlu að sjálfsögðu á það að hugsa um yngstu börn-
in, svo að ég naut mikils frjálsræðis.
Frá því að ég var smásnáði, gaf ég mig mjög að sjó-
mönnum, og ég minntist þess hversu stoltur og glaður ég
var, þegar ég var sjö ára gamall staddur úti á skipi, sem
verið var að afferma og einn hásetnna bað mig að hlaupá
í næstu búð og kaupamunntóbak fyrir sig. Þegar ég hafði
KMA>H,SCORCHy'S LIÆLV 2I6WT,N
ME AIN'T GOT A CHANCT/ WHO
IYNDA-
SAG A
ORN: „Og svo get ég ekki bet-
ur séð en að hún itaki þennaír
North fram yfir mig.“
SAMMY: „Vitleysa! Kata varð
ákaflega glöð yfir því .er hún
frétti að þú værir heill á húfiÁ
HANK: „Vitanlega! Mikael
bölvuð vitleysa er þetta í þér,
Örn. Biddu bara rólegur. Þetta
er allt í lagi.“
SAMMY: „Ne—hei. Örn hefir
víst ó réttu að standa. Hann
getur ekki haft neina von um
að nú í Kötu. Hvað heldur þú
Hank, að hann geti í ástamál-
um — og það eru svo margir
vitlausir í Kötu. Nei, það er
bezt fyrir Örn að hugsa ekki
meira úm hana.“