Alþýðublaðið - 12.12.1944, Side 2
2
ALt»YÐUBI.AÐII>
Þríðjadagnr 12. desember 1M4
'um
.ÍJ ■/.■'.-""..á'ÆÍJíJJI.
Bokasýningin
Myndin, er úir ©ailniuiro á Hóitsl HeMu, þar seim bófeasýninigi-n er.
Á nxiðiri mvindinini sésít eislta inneniviél. sem til er á landi. Er bún
eigrn Ihins ísilemzlfca pxientiar'aifélaigis.
Alþingi:
Frumvarp um sfofnun dósentsem-
bæffis í guðfræðideild háskólans
Til handa sr. Birni IMagnússyni á Borg
Dregið í 10. flokki
happdrættis há-
skólans
Hæsti vinningur 75
þúsund krónur
féll á hálfmiða,
sem seldir voru í
Varóarhúsinu og
á Þingeyri
T GÆR var dregið í 10 og
■*- síðasta drætti happdrætti
Háskóla íslands. Voru dregnir
1 nú 2000 vinningar.
Hæstu vinningarnir féllu á
þ-essi númer: 75 þúsund krónur:
Nr. 20924. Þetta númer var á
tveim hálfmiðum. Hafði annar
hálfmiðinn verið seldur í um-
boðinu í Varðhúsinu en hinn á
Þingeyri. 25 þúsund krónur:
Nr. 1930. Þetta númer var kvart
rniðar og seldir einum manni.
Eigandi númerins í fyrra lét
það af hendi. 20 þúsund krónur;
Nr. 14357. Þetta númer var
kvartmiðar, einn var seldur frá
Jörgen Hansen, Laufásvegi,
einn hjá Dagbjarti Sigurðssyni
og tveir hjá Helga Sívertssen.
10 þúsund krónur: Nr. .3098.
Þetta voru kvartmiðar, þeir
voru séldir hjá Jörgen Hansen
og einn hjá Sívertsen. 5 þúsund
krónur: Nr. 9134, kvartmiðar,
seldir hjá Valdimár Long í
Hafnarfirði. 5 þúsund krónur:
Nr. 16396, hálfmiðar seldir hjá
Maren Pétursdótitur. Þrír auka
vinningar voru veittir og féllu
þéir á fyrsta númerið, sem dreg
ið var, þúsundasta númerið og
hið síðasta. Hver vinningur er
5 þúsund krónur og féllu þeir
á þessi númer og í þessari röð:
21952 (Einar Eyjólfsson, Norð-
fjörður), Varðarhúsið og Mar-
grét Árnadóttir, Klapparstíg)
23693 (Borgarnesi, Ákranesi,
Djúpavog og Maren Pétursdótt
ur) 231 (Varðarhúsið. — Síðar
mun heildarskrá yfir vinning-
aruna verða birit hér í bla-ðmu.
O JÓRIR þingmenn, sinn
“■ úr hverjum, flokki, þeir
Áisgeir Ásgeirsson, Svein-
björn Högnason, Sigfús Sig-
urhjartarson og Gomnar
Thoroddsen flytja í neðri
deild frumvarp um stofnun
dósentsembættis í guðfræði-
deild háskóla íslands til
handa sr. Birni Magnússyni
á Borg.
Frumvarpið er svohljóðandi:
1. gr. Þar til stofnsett verður
sérstök undirbúningsnefnd fyr
ir p.resaefn,i (Pasitorall Seminari
luim), isfculu vera twö dósenitsiem
bætti ' við guðfræðideild Há-
skóla íslands, enda verði séra
Björn Mágnússon prófastur að
Borg skipaður í annað þeirra.
2. gr. Jafnframt skal auka
kennslu í deildinni í trúar-
bragðasögu, kirkjurétti og sál-
igæzíu. Guðifræðideildin skipti
verkum milli kennaranna eftir
því, sem hagkvæmast þykir.“
Frumvarp þetta er flutt sam
kvæmt ósk Sigurgeirs Sigurðs-
sonar biskups. í greinargerð,
frumvarpsins fylgir, segir m. a.
á þessa leið:
„í öðruirn meniniingarlöndum
er talið óhjákvæmilegt, að sér-
stök framhaldsdeild fyrir
preisitiéfinia' (Pastoral Seminari-
um) sé starfrækt jafnhliða guð
fræðideildum háskólanna.
Vegna kostnaðar þykir ekki rétt
að fara fram á slíkt, en hins
vagair gterit ráð fyrir, að með
! fjölgun dósenta við deildina
um einn megi taka upp ijennslu
í ýmsum þeim greinunp sem
venja er að kenna í slíkri fram
haldsde.iid.“
mmn-
ist 45 ára afmælis síns
Flugeldar.
Nýlega er komin út kvæðabók
eftir Pétur Jakobsson, fásteigna-
sala. Nefnist bók þessi Flugeldar
og eru í henni 46 kvæSi ýmislegs
efnis. Bókin er 70 blaðsíður að
stærð, prentuð í prentsmiðju Jóns
Helgasonar og er frágángur henn
ar hinn snotarsti. Er þetta fjórða
bókin, sem Pétur sendir frá sér
frá þvi árið 1935 og má því segja
að hann sé all mikilvirkur Ijóða-
smiður.
Það er nú fjölmennasta iðnaðarmaranafélag
landsins
Æ SUNNUDAGINN varð
Trésmiðafélag Reykja-
víkur 45 ára, og héldu félags
menn upp á afmælið, með
fjölménnu samsæti að Hótel
Borg síðastliðinn laugardag.
Félagið var stofnað 10. des-
ember 1899 af 26 trésmiðum í
Eeykjavík, í veitingasalnum í
Iðnó, og hefur félaðið ætíð
beitt sér fyrir ýmsúm framfara-
málum á sviði byggingariðnað-
arins.
Trésmiðafélag Reykjavíkur
er fjölmennasta félag iðnaðar
manna í landinu og er m-eðlima
tala þess nú um 400 manns, nær
eingöngu húsaSmiðir.
Fyrstu drög að stofnun þess
voru lögð árið 1893 með nefnd
arskipun, þóitit stoifnuininn dræg
ist til 1899. Fyrstu lög félagsins
voru mjög ítarleg eftir þeirra
tíma venju. Meðal annars var
í þeim ákvæði um' að tímakaup
trósmiða skyldi vera 35 auirar
á klukkustund, og vinnutími
var þá styttur úr 11 klst. í 10,
klst. í þeim voru og ákvæði um
sveinspróf og er enn farið eftir
þeim reglum að mestu.
Félagið tók frá upphafi mik-
inn þátt í opinberum málum,
hjálpaði m. a. til að fá tvo menn
í bæjairsitjórn og 1 í þjóðháitíð-
arnefnd.
Árið 1906 stofnuðu nokkrir
félagsmenn trésmiðaverksmiðj-
una Völund, hið fyrsta vélræna
trésmiðaverkstæði hér í bæ.
Árið 1908 til 1917 olli kyrr-
staða í byggignarstarfseminni
nokkurri deyfð í félagsskapn-
um og hnignaði homrrn þá mjög
en 1917 endurreistu ýmsir tré
smiðir bæjarins félagið og varð
þá Þorlákur Ófeigsson formað
ur þéss. Var þá kaupið hækk-
að úr 65 aurum á klst. upp í
75 aura og 1918 varð kaupið aft
ur að hækka sökum aukinnar
dýrtíðar og var farið fram á að
flá 1.05 króanur á Msit. og hótað
verkfalli að öðru kosti.
Flestir húsabyggendur gengu
að þessu en margir atvinnurek
endur þverneituðu, og varð því
verkfall, sem stóð í 33 daga, en
lauk með því að trésmiðir fengu
kr. 1.10 á klst. Þetta var fyrsta
prófraunin á samheldni félags
manna í stéttarbaráttunni og
stóð-ust þeir hana prýðilega. Og
iecr þetta fyrsta og síðasta verk-
fall Trésmiðafélagsins út af
kaupgjaldi, fram til þessa dags.
Síðan hafa þeir samið taxta
sína, §em ætíð hafa fengist sam-
þykktir af atvinnurekendum.
i Félagið er bæði meistara- og
sveinafélag og hefir sú sambúð
ætíð gengið mjög vel.
Árið 1931 gekkst félagið fyr
ir stofnun Sambands byggingar
manna í Reykjavík, en með upp
lausn þess fél'agsskapar árið
1937 eigin skrifstofu, sem það
hefir rekið síðan.
Félagið hefir verið í Lands-
sambandi iðnaðarmanna frá
því að sambandið var stofnað
1932, stutt iðnráð Reykjavíkur
og prófnefndir fjárhagslega og
í fyrra gaf það 20 þúsund kr.
til iðnskólabyggingar í R,eykja
vík.
Eins qg áður getur, hélt félaig
| ið mjög myndarlegt hóf að
Hótel Borg á laugafdaginn var
í tilefni afrnælisins og var þar
samankomið um 150 marrns.
Var þangað' boðið npkkruip
Tómas Vigfússon
mönnum frá samtökum iðnað-
armanna og konum þeirra.
Hófið var undirbúið af
skemmtinefnd félagsins, en for
maður þess Tómas Vigfússon
húsasmíðameistari stýrði því.
Bauð hann gestina velkomna
með snjallri ræðu, en skrifstofu
stjóri félagsins, Ragnar Þórar
inisisotn, minnitisit fetlagsins, stafn
enda þess og helztu áfanga í
störfum félagsins. Guðmundur
H. Guðmundsson, húsgagna-
oneiist'airi mælt fyrir mknni
kvenna, og Magnús Jóns-
son, trésmíðameistari flutti
frumort kvæði. Ennfremur hélt
Helgi H. Eiríksson skólastjóri
ræðu. Þá skemmti Lárus Ing-
ólfsson, leikari með gamanvísna
söng.
Áður' en borðhaldinu lauk,
reis Ársæll Sigurðsson, húsa-
meistari úr sæti sínu og bað
menn að minnast hörmunga
frændmennanna í Noregi og
gefa fé til Noregssöfnunarinn-
ar.
Tóku allir vel undir mál hans
og söfnuðust á svipstundu
2535 krón-ur meðal veizlugest-
anna og mun þetta vera ein
myndarlegasta fjárhæð, sem
safnað er til Noregssöfnunarinn
ar í samkvæmi hér í bæ.
Þessu næst f-Iutti Sveinbjöm
Jónsson ristjóri Tímarits iðn-
aðarmanna, ræðu og talaði um
smiðsheitið og hað menn að
minnast þess og hafa í heiðri.
Milli ræðanna voru sungin ætt-
jarðarlög og hljómsveit lék und
ir. Að endingu las formaður upp
heiilaskeyti sem félaginu höfðu
Frh. á 7. síðu
mánaiar 273 sfig
Tvelmnr sflgum
iiærri era I Bióvem
ber
Kauplagsnefnd og
HAGSTOFAN hafa nú
reiknað út vísitölu fram-
færslukosnaðar 1. desember
og reyndist hún vera 273
stig, eða tveim stigum hærri
en 1. nóvember.
Þessi hækkun vísitölunn-
ar stafar aðallega af hækk-
un á rafmagni og verðhækk-
pn hjá hraðsaumastofum.
Samúðarkveðjur
vegna Goðafoss-
styssins
P ORSETA ÍSLANDS og
forsætisráðherra hafa bor-
izt margar samúðarkveðjur
vegna Goðafossslyssins m. a. fré
þessum aðiljmn:
Siendihienrum Mandis, œardi-
fuililtrúum ag ræðismönnum
euleindis, viðskipafulilitTÚa Fasr-
eyja í Reykjavák, fuilltrúum ís->
lamdB á alþjóðaikaupþintgiiou í
Bandarífejuinuim, Birni Björns-
syini í Lond'on og Porter Me
Keaver, fyrrv. blaðafuiUitrúa
Bandaríikjaama í -Reykjaivik.
Ýimisir ' erletndir meinin hafa
einnig voitifcað fuilltrúum íisdamde
isaimúð ■ siína, meðal þeirra sendiu
(bennar Dana í Waslhinigttioax ogj
Lomdon.
' Aifchurðariinis hietfir ver.ið get~
ið í fliestum blöðurn BrertJaindfí
og Baindairákj.ainba. I „T!he Scots
man“, Edinborg, er sénataMega
getið lækmisíhjómainina frú Sig-
rúnaæ og dr. Friðgieirs Ólaisonar
oig banna þeirra, sem fótnust,
svo og frú EUlanar Downey og.
barms hemmar.
Fjárlögin samþykkt til
þriðjti umræðu
Beyiingartillögur
fjárveifinganefnd
ar aörar tillögur
ar samþykktar, aðr
ar tillögur yfirleitt
felEdar eöa feknar
affur
M FGREIÐSLA um fjárlögús
fór fram í sameinuSu þingi
í gær. Voru þau samþykkt til
þriðju umræðu með 43 sam-
hljóða atkvæðum að afstaðinni
atkvæðagreiðslu um hreytingar
tillögur og einstakar greinar
frumvarpsins.
Breytingatillögur fjárveitinga
mefndar voru allar samþykktar,
en tillögur einstakra þingmamna
annaðhvort teknar aftur til 3.,
umræðu eða felldar. Aðeins ör-
fáar náðu samiþykki' þar á með
al tillaga frá Ásgeiri Ásgeirs-
syni og þremur þingmönnum
öðrum um 50 þúsund kr. fjár-
framlag til framkvæmda á
Raifmaeyri í minmingu Jóins. Sig-
urðssongr, fyrsta greiðsla af
þremur.
í sambandi við tillögu fjár-
veitinganefndar um hækkun á
styrk til skálda og listamanna
var ákvæði um það, að fjárhæð
inni skyldi skipt milli styrkþeg
.amea >af fimrn mamma mefnd, kos
inn af sameinuðu alþimgi, en
menntamálaráð úthlutar þessu
fé nú. Þetta ákvæði var fellt
út úr tillögunni við atkvæða-
greiðsluna með 20 atkvæðum
gegn 19.
Hjónaband.
iSíðastliðínn laugardag voru gef
in saman í hjónarband af séra
Friðrik Hallgrímssyni ungfrú Ás-
dís, Jóhannesdóttir frá Stykkis-
hólmi og Jens Sæmindsson, véla-
maður. Heimili brúðhjónanna er
á Bárugötu 5.