Alþýðublaðið - 12.12.1944, Síða 5
Þriðjudagur 12. desember 1944
ALÞYÐUBLAÐIÐ
Fjúkandi reiður maður skrifar um vatnið, heitt og kalt,
blaðamennina og bæjarstjórnarkosningar. — Ljóslaus
skrifar um ljósleysi í skammdegi.
ALFUR ÚR HÓL skrifar: „Ég
er fjúkandi reiður. Út af
hitaveitunni og út af kalda vatn-
inu. Ég er einn „háttsettur“ borg
ari þessa bæjar — bý á Skóla- i
vörðuhæðinni. Er ekki eðlilegt að
xnaður reiðist? Heita vatnið hverf
ur upp úr hádeginu, svo kynda |
þarf með kolum hálfan daginn j
eða meir. Ég má víst annars
þakka fyrir að hafa ekki fargað
miðstöðvarkatlinum mínum, eins
og margir aðrir, og get því kynt
með kolum, þegar líður á daginn.
Og kalda vatnið, sem hverfur um
hádegið kemur ekki aftur fyrr en
um kvöldið. Ég segi það satt, að
ég hef ekki möglunarlaust greitt
vatnsskattinn síðustu 20 árin, en
svo lengi er vatnsleysið búið að
standa.“
„HELGI HITAVEITUSTJÓRI
stakk upp á því um daginn, að
loka fyrir stóru skrifstofubygg-
ingamar í miðbæoium. Það var
góð tillaga, en hvers vegna er
hún ekki framkvæmd? Hann
sagði, að með því mætti spara
10% af vatninu og mér skilst að
það nægði þó nokkrum íbúðarhús
um. Hannes minn! Þið blaðamenn
irnir eigið að hjálpa okkur bæj-
arbúum, til þéss að ólagið á hita
veitunni hverfi. Ef blöðin geta
það ekki, þá hver? spyr ég (því
ég hef meiri tríj á blöðunum en
Lofti).“
„BLÖÐIN EIGA fyrst og.fremst
að vera fyrir almenning. Þegar
eitthvað þarf úrbótar með, sem
heill almennings varðar, þá eiga
blöðin að fylkja liði og linna elcki
látum fyrr en trassaskapurinn
lætur undan, hvort sem í hlut
eiga einstaklingar eða yfirvöld.
Ég er sannfærður um, að ekkert
mætti skipuleggja með eins góð-
um árangri eins og samtakamátt
dagblaðanna til áhrifa um ýmis
þjóðþrifamoál. Þið blaðamenn eig-
ið að sýna manndóm ykkar og
samtök víðar en á hinum frægu
kvöldvökum ykkar, sem þið erúð
svo innilega samhentir með. Þið
blaðakóngarnir gleymið því alltof
oft, að þið eruð mesta valdið í
okkar landi, eins og annars stað-
ar, ef því ,qr beitt. Það þyrfti
sannarlega að skamma ykkur ær-
lega ,ekki fyrir misbeitingu valds
ins, held'ur fyrir vannotkun
þess.“
„LOKS, EF ALLT ANNAÐ
BREGST, þá hef ég hér tvær til-
lögur til athugunar í 'hitaveitu-
málinu. Önnur er sú, eins og'
kunningi minn stakk upp á, að
senda alla okkar vatnsfræð\inga
til vesturvígstöðvanna, svo þeir
mættu læra þar viðbragðsflýti og
verkleg störf, en fá hins vegar í
staðinn nokkra þjálfaða verkfræð
inga, sem væntanlega þyrftu ekki
fleiri vikur en hinir ár, til þess
að lagfæra kalda vatnið að
minnsta kosti.“
„HINA TILLÖGUNA á ég sjálf
ur. Hún er sú, að strax upp úr ára
mótunum fari fram bæjarstjórnar
kosningar hér í Reykjavík. Geri
ég fastlega ráð fyrir að þá kom-
þt allt í lag í einum hvelli, eins
og vant er við þau tækifæri."
„LJÓSLAUS" skrifar í skamm-
deginu: ,,Ég er einn af þeim ó-
gæfusömu mönnum, sem hafa orð
ið vegna hinnar sáru húsnæðis-
eklu að hrökklast suður á Kópa-
vogsháls. Þar er ekkert vatn,
nema það sem setuliðið gefur okk
rur, þar er ekkert heitt vatn til
þess að hita upp þessa kofa, sem
við verðum að hírast í, en þessir
kofar eru margir hverjir næsta ó-
vistlegir. Sumt af þessum kofum
eru sumarbústaðir, sem við verð
uin að leigja, og öðrum höfum við
reynt að krækja upp yfir okkur
og krakkana til þess að eiga eitt-'
hvert makkaskjól, • en þeir eru
kaldir og óvistlggir margir hverj-
ir; og þar er ekkert rafmagn.“
„NÚ ER ÞAÐ SVO, að bæjar-
ráð Reykjavíkur er fyrir löngu
búið að leggja fyrir rafmagnsstjór
ann að láta okkur hér fá rafmagn
til þess að lýsa upp hreysi okkar
með, en „vort ferðalag gengur svo
grátlega seint“. En það er ekki
von, að þeir sem þessum málum
ráða og stjórna, skilji okkar áð-
búð hér. Þeir búa í glæstum söl-
um í höfuðborg hins íslenzka lýð
veldis, uppljómuðum af rafmagni
í skammdegismyrkrinu, og þeir
hafa gægð af heitu vatni til þess
að hita hallir sínar upp með í
skammdegiskuldanum. (Ætli það?)
Það er svo sem ekki von, að þeir
setji sig nokkuð í okkar spor. úti
á nesjunum, í köldum og rökmn
kofum með léleg eldfæri og ef til
vill kertaljós fyrir rafmagn, en við
og börnin okkar eru lika menn,
og þau spyrja oft án afláts, af
hverju getum við ekki fengið líka
rafmagnsljós? þegar þau sjá Ijósa
dýrðina svo að segja allt um
kring.“
„ÆTLI' RAFMAGNSSTJÓRINN
vildi nú ekki taka rögg á sig og
leggja hingað rafleiðslur eins og
honum ber skylda til, já, og það
meira að segja nú þegar, svo þessi
litli þáttur í rafmagnsmálum
Reykjavíkur láti sér ekki verða
eins átakanlega til skammar, eins
og rafmagnsmál Reykjavíkur hafa
verið hingað til, því nú er þó ork
an nóg, svo ekki þarf því um að
, kenna, enda er verið að vinna að
því nú, að verða af með eitthvað
af henni til Keflavíkur."
Hannes á horninu.
Fundur í F U. J. annað
kvöld
Félag ungra jafnað-
ARMANNA iheldur fund
annað kvöld kl. 8.30 síðdegis í
fundarsal félagsins, Banka-
stiræti 2.
Á fundinum verða rædd
ýmis félagsmál, ennfremur verð
ur rætt um fyrirhugaða árshá-
tíð félagsins. Þá mun hinn ný-
kjörni forseti Sambands ungra
jafnaðarmanna, Gunnar Vagns
son flytja ávarp, Ilelgi Hann-
esson, ritari Alþýðuflokksins,
mun flytja erindi, er hann
nefnir „Alþýðuflokkurinn og
unga fólkið“, og Ingólfur
Kristjánsson, blaðamaður, les
upp bókarkafla eftir Óskar Að-
alstein Guðjónssoh, rithöfund á
ísafirði.
Félagar eru sérstaklega hvatt
ir til að mæta á fundinum, því
ýmás áríðandj félagsmál verða
til umræðu.
Heilderúfgáfa Ténfisfarfélagsiitsá verkum
Hallgríms Péfurssonar
verður alls þrjú bindi og kom það fyrsta- þeirra út í fyrra, en það
voru:
með ýtarlegum inngangi eftir sr. Sigurbjörn Einarsson, docent.
í næsta bindi, sem er væntanlegt næstu daga, verða \
Veraldleg kvæði
skáldsins og þar á meðal Króka-Refsrímur, sem ekki hafa áður
verið prentaðar. — Hafa þeir Finnur Sigmundsson, landsbóka-
vörður og Steingrímur Pálsson, magister séð mn útgáfu þessa
bindis og skrifar hinn síðarnefndi formála fyrir þvi. —
Á næsta ári lýkur svo útgáfunni með þriðja bindinu, sem
hefir að geyma sálma sr. Hallgríms og önnur verk hans í bimdnu
og óbundnu máli.
Þetta er veglegasta útgáfan, sem komið hefir af verkum
noklcurs íslenzks höfundar.
Upplagið er mjög lítið, aðeins þúsund tölusett eintök. Hvert
bindi kostar 200 krónur. ,
Munið, að með því að kaupa öll hindin, haíið þér ekki aðeins
eignast merkilegt ritsafn, sem verður því verðmætara, sem stundir
líða, heldur hafið þér samtímis lagt af mörkum 4—500 krónur til
væntanlegrar Tónlistarhallar. —
Tónlistarfélagið gefur einnig út fyrir jólin til ágóða fyrir
Tónlistarhöllina:
Íslandsvísur Guðmundar Magnússonar
(Jóns Trausta)
í eitt hundrað og fimmtíu ljósprentuðum eintökum, en -allmörg
þeirra eru þegar pöntuð.
Áskriftarsísni er 2864
Virðingarfyllst
Tónlisfarfélagið
Minningarspjöld
Barnaspítalasjóðs Hrings
ins fást í verzlun frú
I
Ágústu Svendsen, Aðal
stræti 12
Kápur með silfurrefa
skinni
Höfurn aftnr fengið kápur
með astrakan, plydskápur
og dömufrakka.
■■ ■ :■'.■■ . ■ "V ' ■’
Nýkomið: Dömutöskur,
hanskar og hálsklútar í fall
egu úrvali.
G. A. M.
Verzlunin Grettisgötu 7
(horni Klapparstígs og Grett-
isgötu).
Til jólagjafa
Eldfast gler.
Stell — Silfurplett — Kertastjakar — Vasar —
Púðurdósir — Saumakassar — Myndarammar
— Festar — Nælur — Hringar — Myndaalbúm
— Lindarpennar — Spil — Leikföng — Flug-
módel — Svifflugvélar — Jólatrésskraut —
Kínverjar — o. fl.
K. Einarsson & Björnsson
Effirmiðdagskjélar
alltaf fyrirliggjandi í f jölbreyttu úrvali.
■ ■■ . . ■ ' (
Ragnar Þórðarson & (o.
AÐALSTRÆTI 9 — SÍMI 2315
\