Alþýðublaðið - 04.07.1945, Side 2
1
ALÞYÐUBLAÐIÐ
Migvikndagpr 4. júlí 1945
F. U. i. ferskemmli-
ferð um Borgarfjörð
um næslu helgi
Í'Í! '
F
ÉLAG UNGRA JAFNAÐ-
MANNA efnir til skemmti
ferðar fyrir meðlimi sína næst-
komandi - laugardag og sunnu-
dag. Farið verður um Borgar-
fjörð fyrir Hvalf jörð. Á leiðinni
verður staðnæmst í Hafnarskógi
og víðar.
Gist verður um nóttina í Húsa
fellsskógi, og þurtfa þátttakend
ur í förinni að hafa með sér
viðleguútbúnað. . Á sunnudag-
inn verður ekið um hinar fögru
byggðir Borgarfjarðar og kom-
ið til Reykjavikur um kvöldið.
Þátttakendur í förinni verða
að hafa gefið sig fram við stjórn
félagsins eða skrifstofu Alþýðu
filokksins í Alþýðuhúsinu, sími
5030, ekki síðar en á mörgun,
fimmtudag, fyrir kl. 6, svo að
hægt verði að ákveða bifreiða-
kostinn, sem þarf í förina, með
nægum fyrirvara.
Skipafréttir
Togarinn Skalla'grímur kom frá
Englandi í gærmorgun. Kári kom
af veið-um í gærmorgun og fór af
stað til Englands síðdegis í gær.
Hafsteinn fór á v.eiðar í gær.
Hjónaband.
í gær voru gefin sarnan í hjóna
band Tove Pedersen og Sigurður
ÍÞór^rinsson (Guðmundssonar skip
stjóra). Heimili þeirra er Grönne
gyden, Andrup pr. Sohus — Fyn
Danmark.
Sfjórn síldarverksmiðja ríkisins hefur ákveðið
ræðslusi
Byrjáð verður að veita
síldarverksmiðjunum
STJÓRN SÍLDARVERKSMIÐJA RÍKISINS ákvað ,í
fyrradag, að bræðslusíldarverðið í sumar skyldi vera
kr. 18,50 málið og verður byrjað ,að veita bræðslusíld mót-
töku í síldarverksmiðjum ríkisins. 8. júlí n. k.
Verður síldin keypt föstu verði af þeim er þess óska fyrir
kr. 18,50 málið, en þeim sem óska heldur að leggja síldina
inn til vinnslu er það heimilt og verður þeim greitt 85% af
áætlunarverðinu, sem er einnig kr. 18,50, það er kr. 15,73
fyrir hvert má:l við afhendingu, en endanilegt uppgjör fá þeir
síðar.
Greinargerð frá
stjórn síldarverk-
snrsiSja rfkisins um
síSdarverðiS.
Nokkur ágreiningur hefur
verið um ákvörðun hræðslu-
sildarverðsins og hefur hlaðinu
bori^t um hann ítarleg greinar
gerð verksmiðjustjórnarinnar.
Fer sú greinargerð hér á eftir:
,,Á fundi verksmiðjustjórnar
S. R. þann 9. maí lagði fram-
kvæmdastjóri S. R. fram rekstr
aráætlun S. R. fyrir árið 1945,
miðað við vinnslu úr 600 þús.
málum og afurðamagn úr hrá-
efni, samkv. meðatali siðast llið
Mikil viðhöfn, þepr Esja fór frá
Hedtoft-Hansen, félagsmálará^herra var
viðstaddur og skipstjórann að færa rík-
isstjórri fslands þaE^kir dönsku 'stlórnarinnar
Skipáð kemur h'ingað á sunnudaginn
Frá fréttairitara AijþýðuWaðlsinE KAUPMANNAiHÖFN i gær.
’p’ SJA lagði af stað frá Kaupmannahöfn á sunnudaginn
kl. 1 e. h. Mikil viðhöfn var á bryggjunni um leið og
skipið lagði frá. Félagsmálaráðherra Danmerkur, Hedtoft-
Hansen, var viðstaddur og þakkaði hann skipstjóranum gjöf
fslendinga til dönsbu þjóðarinnar og bað hann að færa ís-
lenzku ríkis§tjórninni þakkir dönsku ríkisstjórnarinnar.
inna fimm ára. — Niðurslaða
áætlunarinnar var sú, að hægt
væri að gredða kr. 17,39 pr. mái
síldar. Verksmiðjustjórnin gerði.
ráð fvrir því, að fást myndi
hátl á 7. hundrað þúsund mál,
í stað 600 þús. mála og með
lilliti til þess, hækkaði hún á-
ætlunarverðið úr kr. 17,39 i kr.
18,00 pr. mál. — Óskaði stjórn
in síðan eftir heimild atvinnu-
málaráðherra til þess að kaupa
síldina föstu verði, fyrir kr.
18.00 pr. mál og taka við henni
tiit vinnslu af þeim, sem ósk-
uðu þess heldur, gegn greiðslu
á 85 % af, áætlunarverðinu og
endanlegu uppgjöri- síðar. —-
Var tillaga þessi sanfþykkt á
fundi stjórnar S. R. iþ. 9. maí
s. 1., með 4 atkvæðum, þeirra
Sveins Benediktssonar, ÍÞor-
móðs Eyjólfssonar, Jóns L.
Þórðarsonar og Erlendar Þor-
steinssonar. — Þóroddur Guð-
mundsson greiddi ekki atkvæði
og tó'k fram, að hann væri ekki.
reiðubúinn til að taka ákvörð-
un ’um áætlun verðs og áskyldi
sér frest til að athuga málið.
Þóroddur Guðmundsson sendi
atvinnumálaráðuneytinu, þann
13. júní, athugasemdir við áætl
un og tilllögur meirihluta herk-
smiðjustjórnar.
Fer bréf hans til atvinnu-
málaráðuneytisins hér á eftir:
Meðal farþega þeirra, sem
fóru með Esju frá Kaupmanna-
höfn, eru þeir Jón Helgason
prófessor, Stefanó íslandi óperu
söngvari og íslenzki risinn Jó-
hann Pétursson, sem dvalið hef
ur nú í Kaupmannahöfn í 10
ár.
Lík Guðmundar Kamiban
skálds kemur til íslands með
skipinu. Þá er einnig með skip-
inu aska Jóhanns Þórðarsonar
garðyrkjumanns, en lík hans
var brennt í Kaupmannahöfn.
Nokkru eftir að Esja lagði
frá bryggju í Kaupmannahöfn
var hún stöðvuð á ytri höfn-
inni og gögn farþeganna rann-
sökuð. Var þessari rannsókn
ekki lokið og skipinu ekki gef-
ið fararleyfi til Gautaborgar
fyrr en kl. 2 e. h. á mánudag
en til Gautaborgar kom það
seint á mánudagskvöld,
Búist er við að Esja komi til
Reykjavíkur síðdegis á sunnu
dag n. k. í Gautaborg bætast
80 farþegar við heim með skip
inu. OVE.
Sfldreiðiskipin af Suð-
urlandi eru að fara
norður.
Q ÍLDVEIÐISKIPIN eru nú
^ sem óðast að buast til
veiða héðan frá Suðurlandi, og
stenjdur skráning þeirra til síld
veiðanna yfir þessa dagana.
Héðan úr Reykjaví'k hafa
þessir bátar þegar skráð sig og
eru nú farnir norður: Jón Þor-
láksson, Þorsteinn, Freyja, Rifs
nes, Huginn og Ármann.
Frá Keflavík er móturb'átur-
inn Gyllir farinn til síldveiða,
en margir fleiri eru að búa sig
til veiða.
„Atvinn'umálaráðuneytið,
Reykjavík.
Stjórn Síldarverksmiðja rík-
isdns tók til meðferðar á fundi
sínum 9. mai s. 1. bræðslusíld-
arverð á næstu vertíð og sam-
þykkti með 4 atkvæðum að á-
æila verðið kr. 18 pr. mál (Erl.
Þ. var fjarverandi, en lýsti sig
samþykkan í sima). Ég gat ekki
fallizt á þessa tillögu og. líét
bóka eftirfarandi: ,,Ég er ekki
reiðuibúinn að taka ákvörðun
um áætlun verðs og áskil mér
frest ti.l að athuga það mál.“
Meirihluti stjórnar SR bygg
ir tillögu sína á rekstursáætlun
framkvæmdastjóra fyrir árið
1945, en í þeirri áætlun er gert
ráð fvir 600 þús. mála vinnslu
og kr. 17,39 pr. mál. Með tillili
til þess, að afli verði meiri en-
600 þús mál leggur svo meiri-
hluti stjórnar SR til, að verðið
verði kr. 18,00 pr. mál."
Ég tel að við þessa reksturs-
áætlun sé ýmislegt að athuga
) og gjöldin séu yfirleitt áætluð
mjög ríflega.
í fyrsta lagi teS ég áætlun
um afla öf lága, enda eru skip
hjá SR fleiri í sumar en upp-
'haflega var áætlað og við það
að afköst verksmiðjanna auk-
ast, aukast aflamöguleikar skip
anna, því öllum er kunugt að
flest undanfarin ár hefðu sild-
veiþiskipin fiskað mikið meira
hefðu afköst verksmiðjanna ver
ið meiri og skipin ekki þurft
að biða eftir löndun og það
stundum svo dögum s'kipti.
í öðru lagi tel ég vinnulauna
og viðhaMskostnað of hátt á-
æiMaðan.
í þriðja lagi tel ég, að afborg
anir mætti lækka, ef þörf krefði,
þar sem í áætluninni er gert
ráð fyrir að leggja 1 milljón kr.
í sjóði (varasjóð, fyrningarsjóð)
og rúm 500 þús. í afborganir.
Siðast liðin ár hefur reynsl-
an aDtaf orðið sú, að undan-
teknum tveimur árum, að verð
ið hefur verið áætlað lægra en
það revndist við endanlegt upp
gjör. Síðasta ár var verðið á-
ætlað kr. 18,00 pr. máh en
reyndist við endanlegt uppgjör
kr. 20,75 og þá voru verksmi.ðj
urnar búnar að draga frá og
greiða í sjóði sína og afborg-
anir um 1 og % milljón króna,
tekið var á móti 915 þús. smá-
lestum af síld. Að vísu var þetta
óvenjugott aflaár og sildin fitu
magnsmeiri en hún var í meðal
lagi nokkur undanfarin ár, en
útkoman segi.r samt nokkuð.
Með tilliti til þess, sem að
framan greinir, leyfi ég mér að
leggja til, að bræðslusíldarverð
ið verði áætlað kr. 19,50 pr.
mál og SR veitt heimi.ld til að
kaupa bræðslusíld í sumar föstu
verði fyrir kr. 19,50 pr. mál og
til þess að taka við sild til
vinnslu af þeim sem þess óska
heldur, gegn greiðslu á 85% af
‘áætlunarverðinu við afhend-
ingu og endanlegu uppgjöri síð
ar.
p. t. Reykjavík 13. júní 1945.
Virðingarfyllst
. Þóroddur Guðmund'son'1.
Bréf Þórodds Guðmundsson
ar sendi atvinnumálaráðherra
til verksmiðjustjórnar til um-
sagnar, og sendi meirihluti
stjórnarinnar, þéi.r Sveinn Bene
diktssonv Jón L. Þórðarson og
Þormóður Eyjólfsson atvinnu-
málaráðuneytinu umsögn sína í
bréfi dagsettu 22. júnú Finnur
Jónsson, dómsmálaráðherra,
sem á sæti í stjórn SR var fjar
verandi,' en hefur lýst sig sam-
þýkkan umsögn meirihlutans
um tillögur Þórodds.
Fer bréf verksmi.ðjustjórnar
meirihlutans hér á eftir:
„Reykjavíky 22 júní 1-945.
Atvinnumálaráðuneytið,
Reykjavík.
í framhaldi af bréfi voru,
aags. 15. þ. m., varðandi um-
sögn stjórnar Síldarverksmiðja
ríkisins' um íillögu eins af
stjórnendum. verksmiðjanna,
Þórodds Guðmundssonar, um að
hækka áætlunarverð bræðslu-
síldar úr kr. 18.00 upp í kr.
19.50 og kaupa síldina föstu
verði fyrir þetta áætlunarverð
og taka við henni til vinnslú af
þeim, sem þess óska, heldur
gegn greiðslu á 85% af áætlun-
arverði, leyfir stjórn Síldar-
verksmiðja ríkisins sér að
senda hæstvirtu . ráðuneyti
eftirfarandi umsögn um áður-
nefnda tillögu.
Þóroddur Guðmundsson
Lyggir tillögu sína á því, að
hann hefur ýmislegt að athuga
við rekstursáætlun fram-
kvæmdastjóra verksmiðjanna,
Magnúsar Blöndals, sem sam-
þykkt var á fundi verksmiðj-
stjórnar hinn 9. maí s.L með
þeirri breytingu,1 að áætlunar-
vcrðið var hækkað úr kr.
Frh. á 6. síöu
Meislaraflokkur KR
fer í kRalispyrnufðr
fil ísafjarðar í dag
IÞRÓTTABANDALAG ÍSA-
FJARÐAR hefur boðiö
meistaraflokki KR til ísafjarð
ar til að keppa í knattspyrhu
þar við félögin. Knattspyrnu-
mennirnir fljúga í dag með
Loftleiðix og fer flugvélin tvær
ferðir með þá. Dvelja þoir á ísa
firði til sunnudagskvölds og
koma aftur heim flugleiðis. Á-
kveðið er að þeir keppi tvo
kappleiki á ísafirði.
Fararstjóri er Jón Leós banka
gjald'keri. Keppendur KR í för
inni eru þessir: Óli B. Jónsson,
Sigurður Jónssön, Birgir Guð-
jónsson, Guðbjön Jónsson, Hörð
ur Óskarsson, Hafliði Guð-
mundsson, Jón Jónasson, Ólaf-
ur Hannesson, Skúli Skúlason,
Kjartan Einarsson, Einar Ein-
arsson, Ari Gíslason, Sigurður
Pétursson, Sigurjón Steindórs
son, Óskar Óskarsson.
Fyrsia færeyska skip-
ið komið beim úr Dan-
U YRSTA SKIPIÐ, sem fór
* • frá Færeyjum tD Dan-
merkur, er nú komið heim aft-
ur. Skipdð, sem leigt hafði ver
ið til fararinnar og heitir „Björg
vin“, flutti ull, lýsi og saltfisk
til Danmerkur, en til baka kom
það með marga farþega og
nokkuð af vörum.
Það var hátíðleg stund hjá
Færeyingum, sem dvalið hafa £
Danmörku, að sjá eitt af sínum
skipum sigla undir færeysku
merki til hafnar í Kaupmanna-
höfn, og ekki var fögnuður
þeirra minni yfir heimkomunniv
Aldrei hefur jafnmargt fólk ver
ið samankomið á bryggjunni
°g þegar skipið kom heim tii
Færeyja. Það var eins og allir
vildu vera viðstaddir og fagna
komumönnum.
Skemmfun Kieflféiags
Hailgrímskirkju
|Z VENFÉLAG Hallgríms-
kirkju gekkst fyrir
skemmtun í Hljómskálagarð-
inum um síðustu helgi.
Formaður félagsins, frú Þóra
Einarsdóttir, setti samikomuna.
kl 4 s. d. á laugardag, en því
næst flutti séra Óskar Þorláks
son frá Siglufirði mjög snjalla
og þróttuga ræðu.
Um kvöldið skemmti. Frið-
finnur Guðjónsson leikari með
upplestri, en síðan var stiginn
dans á palli fram að miðnætti.
Á sunnudaginn hófst samkom::
an aflur kl. 2 e. h. með útiguðs
þjónustu. Séra Sigurjón Árna-
son predikaði, en kirkjukór
Hallgrímssóknar söng, við hljóð
færið var Páll Halldórsson. Að
guðsþjónustunni lokinni lék
amerísk bljómsveit undir stjórn
dr. Corley.
Klukkan fimm s. d. hélt Guð
mundur Q. Hagalín snjallt er-
indi. Um kvöldið var dansað á
pallinum fram um miðnætti.
Allskonar veitingar voru í
fjöldum í Hljómskálagarðinum
báða dagana. Allar kökurnar,
sem þarna voru á boðstólum
voru bakaðar af félagskonum
sjálfum og gefnar af þeim £
þessu skyni. Önnuðust félags-
konur og alla framreiðslu við
veitingarnar.