Alþýðublaðið - 17.07.1946, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 17.07.1946, Blaðsíða 5
ALÞYÐUBLAÐIÐ 3 Miðvikudagm-, 17. júlí 1946. Heimsókn í viðurstyggð yðileggingarinnar. — Þar sem manndrápsbylur Bakkusar hefur geisað. — Slitið gam- almenni í þrotlausri leit. EG SKOÐAÐI stað í gær, sem ég mun aldrei gleyma. Þetta var íbúð, sem lögreglan hafði lok- að nóttina áður og rekið út íbúana og gesti þeirra. Ég reyni ekki að lýsa útliti þessarar vistarveru, en aðra eins viðurstyggð hef ég ekki augum litið — og hélt satt að segja ekki að hún fyrirfyndist hér á landi. Og þó fannst mér ekki það verst, sem ég sá með líkamlegum augum, ef svo má að orðum kom- ast. Hitt var hryggilegra — miklu hryggilegra. Loftið var mettað af hörmunum, við veggina loddi bik- svört óhamingja. Úr hverjum krók og kima blasti við mannleg niður- læging. GÓLFIN VORU þakin brotnum flös'kum. Þau litlu húsgögn, sem immu hafa verið til þarna einhvern ififcna voru brotin og brlölmluð og klæðisdruslur gtansandi af óhrein- indum. Innanum þetta lágu brauð- sneiðar heilar og hálfar, harðfisks- bitar, smjörlíkisklínur, vindlinga- bitar. 'Þetta er hægt að pnenta — annað ekki. Og þetta var þó ekki verst, eins og ég sagði. — Ég hitti gamlan mann, sem ekki hafði ver- ið tekinn í vörzlu 'iögreglunnar. Hann riölti þarna um beygður ógæfu Binni, slitinn niður í rót, riðandi, óhreinn og fálmandi með titrandi höndum. EITT SINN var hann til fyrir- myndar í þessari sjómannaborg og. hvers manns hugljúfi og enn er hann góður drengur, sem enginn vill kasta steini að. En ógæfan 'dundi yfir hann og hans nánustu, og nú er svo komið að hann getur ekki fengið að vera frjáls og held- ekki hans nánustu. Ég sá mynd á veggnumi. Hún var það eina sem mér virtist vera hreint þarna inni. Það var mynd af konu gamla mannsins. Hann brosti til mín og sagði. „Hún var ung þegar myndin var tekin.“ Svo sýndi hann mér aðra mynd. Hún var af steinbryggj unni. ,,|Það eru margar góðar minn- ingar tengdar við þessa bryggju," sagði hann um leið og ég kvaddi1 hann og stifclaði út, en hann varð eftir einn í sorpinu, fyrir sundruð- nm gluggarúðum. Þegar ég kom út sá ég hann eigra eirðarlaust fram og aftur eins og hann væri að leita inni í þessari viðurstyggð, að ein- hverju, sem hann hefði týnt fyrir löngu og gæti ékki fundið. ÞARNA HAFÐI bölvun áfeng- ins unnið úrslitasigur yfir ætt. Lög- reglustjóri og lögregiuþjónn, sem fylgdust með mér sögðu að gamli maðuri'nn og synir hans væru eyði- lagðir, menn, sem ættu tafarlaust að fara í sjúkarhús. Hvaða sjúkrahús? Hvar er staður fyrir svona menn? Hvað þýðir að loka íbúð ef hvergi er annar staður? Ástæðan fyrir því að lögreglustjóri lokaði íbúðinni og handtök íbúana og gestina var sú, að þarna hefur ekki verið húsfrið- ur í mlörg ár. Fyrir nokkru kvikn- aði í íbúðinni en tókst að slökkva fyrir snarræði utanaðkomandi manna. Þarna hefur verið hreiður fyrir úrkast borgarinnar í nokkur ár og ekki minna gengið á um næt- ur heldur en um daga. STUNDUM HAFA vesalingarnir legið í portinu þarna fyrir utan ósjálfbjarga eða verra en það. Fólfc í nágrenninu hefur haft um orð að reyna að komast burt vegna ólifn- aðarins. Þetta hefur verið eins og gróðrarstía hins aumasta sem fylg- ir okikur mannskepnunum. Hvað á hið opinbera að gera undir svona kringumstæðum? Það á að útrýma svona stíum. Ef það er ekiki1 gert sýkja þær umhverfi sitt. Starfið á að miðast við líkn en ekki hefnd. Hefndin sem sjálfskaparvítið skap- ar er næg. EN ÞVÍ MlDUR er þetta ekki eina dæmið um niðurlæginguna, rústirnar og eyðilegginguna, sem manndrápsbylur Balkkusar skilur eftir í þessari borg. Grátandi smá- börnum er .bjargað úr mannlausum bröggum, sjö ára börn eru vega- laus á knæpum bæjarins þar, sem þau sníkja sér bita, drukknar mæð- ur reka börn sín út undir nætur og þau flækjast klæðlaus, soltin og 'köld um göturnar. Þetta er til. Og hver er sá sem getur sofið meðan hann veit af þessu við næstu dyr. Hannes á horninu. I Unglinga vantar til að bera út ALÞÝÐUBLAÐBÐ í eftirtalin hverfi: AUÐARSTRÆTI TALIÐ VH) AFGREIÐSLUNA. — SÍMI 4 9 0 0. | Alpýðublaðið. Auglýsið í Alþýðublaðinu 1 byjun fyrra mánaðar var lýðveldið endurstofnað á ítalíu, eftir að ýmsir erfiðleikar höfðu verið sigraðir og Umberto hrökklazt frá völdum. Á myndinni sést einn ráðherrann flytj,a ræðu í ræðu- stólnum til hægri, og við hlið hans öldungur með fána fyrsta ítalska lýðveldisins. Lýðveldisstofnunin á Ítalíu. Yfirnaaður h|arnorSKUifBÍraunannas William Blandy aðmíráll. O RUSTUSKIPA-AÐMÍR- ’ ÁLLINN“ er ekki lengur til i sama skilningi og áður, og meira að segja arftaki hans, „flugvélaskipa-aðmírállinn“ er að hverfa i skugga nýs manns í flotanum, , ,kjarnorku-aðmíráls- ins“. Wllliam H. P. Blandy er fyrsti kjarnorkuaðmíráll ame- ríska flotans. Það féll í hans hlut að stjórna mikilvægustu tilraun, sem um getur í sögu nýtízku sjóhernaðar, því að hann á að stýra kjarnorkutil- rauninni, sem flot'i, landher og flugher Ðandaríkjanna mun framkvæma. Þessi úrræðagóði, fljótskarpi maður, sem áður hefuir uinnið erfiðustu störf fyr- ir flotann af hinni mestu forsjá og dugnaði, veit fullkomlega hve mikilvægar ályktanir má draga af áhrifum kjarnorkusprengn- anna á herskipin. Nú er hann fulltrúi Nimitz aðmiráls og hefur umsjón með starfsemi flotans viðvíkjandi kjarnorkusprengjum og nýjustu skotvopnum. Hvatleikur er það, sem maður veitir fyrst eftirtekt í fari mannsins, þó að andlits- drættirnir séu að jafnaði í skorðum. AugUn eru þó mjög rannsakandi. Hiann verður 56 ára i júní (er ungur af jafn háttsettum sjóliðsforingja að vera) og litur út fyrir að vera tíu árum yngri. Blandy aðmíráll er fæddur í New York. Faðir hans var kaup- sýslumaður; afi hans, dr. Willi- am Henry Purnell (sem hann er heitinn eftir) var forseti Dela- were College, sem nú er Há- skólinn í Delawere; langafi hans var sjóliðsforingi og tók þátt í styrjöldinni milli Bandaríkj- anna og Mexíkó. Blandy er vel til stöðu sinnar fallinn, þvi að árið 1939 stýrði hánn einni stórfelldustu athug- un á áhrifum sprengna á her- skip, sem ‘gerð hefur verið. Hann var látinin taka við stjórn Utha (sem var eyðilagt síðar í Pearl Harbour), gamals orustu- skips, sem var breytt í skot- spón í tilraunaskyni. Utha lét í haf og næstu þrjú missiri var 10 000 sprengjum, fylltum vatni, skotið að skipinu, en 1000 GGREIN þessari skýrir Sidney Shalett frá Blandy, aðmírál, sjóhernaði hans, skoðunum og spádóm- um víðvíkjandi kjarnorkunni og minnist á, hvílíkum bylt- ingum hún kunni að valda á sviði sjóhernaðar. — Eins og greinin her með sér var hún rituð áður en tilraunin við Bikini-ey var gerð, er leiddi í Ijós, að kjarnorkusprengjan er herskipum ekki eins skæð, og álitið var. þeirra hæfðu í mark. Einnig var tundurskeytum skotið að því frá kafbátum og mannlausum flug- vélum, sem stjórnað var þráð- laust. Blandy aðmíráll varð ekki mjög uppnæmur, þegar jap- önsku flugvélarnar sveimuðu yfir skipi hans úti fyrir Oki- nawa. * „Þetta var nú allt heldur slæmt,“ segir aðmírállinn. Hann stjórnaði skipinu frá stjórn- palli, sem var varinn þykkum stálplötum. Yfir sjónopin voru lögð þung net i varúðarskyni, en hainn vissi aldrei, hvað i vænd- um varj Vatnssprengjurnar voru 54 pund, og venjulega gerðu þær holur i þilfar skips- ins, ef þeim var sleppt úr nægi- legri hæð. Við eina æfinguna komu 60 holur í þilfarið og Blandy leyfði foringjunum að hverfa hrott úr klefa sínum í hvert skipti, sem sprengja bryti þakið fyrir ofan þá. Á Utha var venja að skjóta niður mannlausu flugvélarnar, og alltaf mátti búast við því, að hrennandi flugvél steyptist niður á þilfarið. Blandy fánn, að kenningin um að kasta bæri sprengjum á :skip á siglingu úr mikilli hæð, var röng, en að rétt var að varpa sprengjunni úr lítilli hæð úr steypiflugvélum eða að sleppa lofttundurskeytum yfir skipunum. Samkvæmt þessu voru loft- varnir skipulagðar af ameriska flotanum á Kyrrahafi, og þegar Blandy varð hergagnastjóri (Chief of Ordnance) árið 1941, lét hann koma fyrir miklum fjölda iloftvarnabyssna í herskip unum, hvar sem þvi varð við komið. Þegar hann hætti hergagna- stjórninni snemma árs 1941, var almennt talið, að hann mundi takast á hendur að stýna deild orustuskipa. í stað þess varð hann stjórnandi herflokks, sem skyldi jöfnum höndum starfa á landi cg legi. Hann stóð fyrir stórskotahríð áður en gengið var á land á eyjunum og vann hið mjög svo v.anda- sama verk, að stjórna ofurhug- um þeim, sem syntu yfir til ó- vinanna og komu sprengiefni fyrir á neðansjávartundurdufl- um og hindrunum. . Þegar gengið var á land á Iwojima, hafði hann umsjón með stórskotahríðinni, sem dundi á eynni áður en herinn sté á land. Hann var sannfærð- ur um að nauðsynlegt væri að vera ekki ýkja langt frá landi, ef auðnast ætti að þagga niður i byssum óvinanna. Hanin skip- iaði þvi skipuinum i flotadeild- inni stöðugt að „close the range“ (nálgast marl|ið). Tóku menn hans þá að kalla hann „Close the Range“ Blandy. * Blandy er maður mjög hug- prúður. Við Qkinawa var hann vanur að halda ráðstefnur á stjórnpallinum. Þegar japönsku flugvélarnar flugu yfir, sást að- mírállinn lesa einkaritara sín- um fyrir, berjandi þilfarið tgremjulega með stafnum sínum eða ræða hernaðaráætlanir við formann forirugjaráðs síns. í hvert skipti, sem hann ræð- ir kjarnorkusprengjutilraunina, sem fram á að fara á Bikiniey, leggur Blandy áherzlu á sam- vinnu landhers, flughers og flota við tilraunina. Sjálfur eigi hann „að afla allna þeirra upp- lýsinga, sem Bandaríkjunum og Frh. á 6. sífu. '

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.