Alþýðublaðið - 08.01.1947, Blaðsíða 7
'Miðviliuílagur, 8. jan. 1347.
ALÞÝÐUBLABIÐ
7
Bærinn í dag.
Næturlæknir er í Lækna-
varðstofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Reykjavík
urapóteki.
Næturakstur annast B.S.R.,
sími 1720.
Leikfélag Reykjavíkixr
sýnir gamanleikinn „Ég man
þá tíð“ í kvöld kl. 8. Aðgöngu-
miðasalá er frá ki. 2 í dag.
Pantaðir aðgöngumiðar sækist
milli kl. 1 og 2. — Næsta sýn-
ing á leikritinu verður ekki
fyrr en annan fimmtudag
vegna 50 ára afmælis Leikfé-
lagsins og hátíðasýninganna í
sambandi við afmælið.
Máifunda og fræðsluhópur
ungra Dagsbrúnarmanna,
heldUr fund í Baðstofunni í
kvöld kl. 8,30.
GuSmundur Ólafsson
bóndi í Vogatungu við Reykja
vík, andaðist að heimili sínu í
fyrrinótt.
Hjónaefni
Síðastliðinn laugardag opin-
beruðu trúlofun sína, ungfrú
Kristín Þorsteindóttir, Austur-
götu 34 Hafnarfirði og Haf-
steinn Lúthersson, Ingunnar-
stöðum í Kjós.
Hjónaefni:
Nýlega hafa opinberað trú-
lofun sína ungfrú Þórunn Sig-
urðardóttir Stefánssonar síma-
manns, Hverfisgötu 96a - og
Kristján Hjartarson, ívarsson-
ar fulltrúa, Ásvallagötu 71.
Hjónaband.
Á gamlársdag voru gefin sam
a'n í hjónaband ungfrú Hanna
Tryggvadóttir, hárgreiðslumær
og Jakob Lárusson, píanóleik-
ari.
LEIÐRÉTTING:
Sú missögn var í fréttinni
um samninga Sjómannafélags
ísfirðinga við útgerðarmenn,
sem birtist í blaðinu nýlega, að
hlutatrygging sjómanna var
sögð vera kr. 450 á mánuði,
grurfíilaun, en átti að vera kr.
420.
Kaupið Álþýðubíaðið
Viðreisnin í Horður-
Noregi
(Framh. af 5. síðu.)
að frysta fisk, en hinar
gömlu þurrkunaraðferðir
munu verða lagðar niður.
Ríkisstjórnin mun takg. að
sér útbúnað togaranna, en
það yrði of dýrt fyrir fé-
hirzlu Finnmerkur.
Starf Loekens er ekki ein-
göngu að endurreisa heimili
heldur að innleiða alla hina
flóknu tækni nútíma þjóðfé-
lags. Og það framkvæmir
hann í rökréttum áföngum.
Fýrsta verk hans var að
hreinsa hið mikla landflæmi
af milljónum jarðsprengna.
Mikill hluti af þessu undir-
búningsstarfi var fram-
kvæmdur sumarið 1945.
Næsta vetur unnu Locken
og hjálparmenn hans af
kappi að því áð skipuleggja
borgir, brýr og vegi. Þeir
önnuðust kaup á timbri,
steypuefrii, stáli, verkfær-
um, vírþráðum og fjölda ann
arra hluta víðs vegar í
Skandinaviu.
Annar þáttur áætlunar-
innar heimtaði skjóta öflun
bráðabirgða húsnæðis handa
hinum iðnlærðu verkamönn-
um, er þangað voru sendir,
og auk þess framtíðar dval-
arstaði handa því fólki, et
íyrst kom til baka og skyldi
síðan hefjast handa. Við-
fangsefnið var dálítið svipað
því, sem her hefur, er geng-
ur á land á ókunnri strönd.
Ásamt hinum vinnandi her
Loekens, er sigla: þurfti í átta
sólarhringa frá höfuðstöð
sinni, þurfti að ílytja: skála,
fæðu, læknislyf og tæki, fatn
að, flutningabifreiðir, litla
báta til flutninga og út-
varps og talsímaáhöld.
Það, sem Loeken va-nhag-
ar einna mest um til að
framkvæma endurreisnar-
starf sitt á Finnmörku, er
nægilegur fjöldi iðnlærðra
manna, en starfslið hans hef-
ur samt unnið dásamlegt af-
rek hið fyrsta sumar sitt á
Finnmörku. Menn hans hafa
ekki eingöngu fengizt við
endurreisn borganna. Mik-
ill hluti starfs þeirra hefur
verið fólginn í að endur-
reisa akuryrkjuna svo fljótt
E.s. Fjallfoss
fer héðan þriðjudaginn 14.
j-anúar vestur og norður
kringum land.
Viðkomustaðir:
Patreksfjörður
Flateyri
ísafjörður
Siglufjörður
Akureyri
Húsavík
Kópasker
Seyðisfjörður
Norðfjörður
Eskifjöi’ður
Reyðarfjörður
Fáskrúðsf j örður
Djúpivogur.
Vörumóttaka til laugar-
dags.
H.f. Eimskipafélag íslands.
Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir,
Guðmundur Öiafssoit bóndi,
Vogatungu, Reykjavík,
lézt að heimili sínu aðfaranótt 7. þ. m..
Helga Guðlaugsdóttír,
börn og tengdabörn hins látna.
Jarðarför
ValgerHar Sigríðar Magnúsdótfur
fer fram-fimmtudaginn 9. þ. m. frá dómkirkjunni kl„
1,30 s.d.
Kransar áfbeðnir.
Bömin.
sem kostur er á, svo að fólk-
ið, er snýr til baka til að setj-
,ast að og vinna, geti lifað.
Af þessari ástæðu sat endur-
reisn 6000 bændabýla í fyr-
irrúmi síðastliðið sumar.
Mestur hluti bygginganna
var hugvitssamlega reistur.
Fyrst í stað skyldu bænda-
fjölskyldurnar búa í þeim,
en er hægt verður að reisa
varanleg íbúðarhús, má
breyta þeim í gripahús og
kornhlöður. Fólk af norsk-
um uþpruna, bæði í Banda-
ríkjunúm og Kanada, hefur
styrkt Noreg fjárhagslega til
kaupa á húsdýrum og jarð-
yrkj u verkf ærum.
HANNÉR Á HORNINU.
Frh. af 4. síðu.
hverju andliti. Og mér er sagt
að gamla fólkið hlakki alltaf
til þessarar skemmtunar. —
Væri ekki rétt af hinum
ýmsu félögum, að hugsa um
þetta til næstu jóla?
Hannes á horninu.
Kvikmyndir:
GAMLA BÍÓ: „Appassionata11
(sænsk mynd). — Viveca
Lindfors og Georg Ryde-
berg. — Kl. 5, 7 og 9.
NÝJA BÍÓ: „Chaplin-syrpan“
(Fjórar gamlar Chaplin-
myndir) kl. 5 og 7. —
„Gróður í gjósti‘>‘ kl. 9.
TJARNARBÍÓ: „Lundúnaborg
í lampaljósi" Phyllis Calvert
og James Moson — KI. 5,
7 og 9.
BÆJARBÍÓ: „Sök bítur sek-
an“. — Humphrey Bogart
og Alexis Smith. — Kl. 7 og
9.
HAFNARFJARÐARBÍÖ: —
„Tökubarnið“ — Maureen
0‘Hára og John Payne. Kl.
7 og 9.
ur ekki fyrr en annan
fimmtudag.
Söfn og sýningar:
. RVÍKUR: „Ég
m þá tíð“. Sýning í kvöld
8 s.d. Næsta sýning verð-
LEIKTJALDA- OG MÁL-
VERKASÝNING Sigfúsar
Halldórssonar í Listamanna-
skálanum. Opin kl. 10—22.
Dansleikir:
BREIÐFIRÐINGABÚÐ: Dans-
að frá kl. 9—11,30. Hljóm-
sveit Björns R. Einarssonar.
HCTEL BORG: Dansað frá kl.
9—11,30. Hljómsveit Þóris
Jónssonar.
INGÓLFSCAFÉ: Opið frá kl.
9 árdegis. Hljómsveit leikur
frá kl. 9.30 síðdegis.
SJÁLFSTÆÐISHÚSIÐ: Jóla-
trésskemmtun ÍR., kl. 4. —
Dans fyrir fullorðna um
kvöldið.
TJARNARCAFÉ: Konur úr
Barðstrendingafélaginu halda
skemmtifund uppi kl. 8,30.
Úfvarpið:
8.30—9.00 Morgunútvarp.
12.10—13.15 Hádegisútvarp.-
15.30—16.30 Miðdegisútvarp.
18.25 Veðurfregnir.
18.30 íslenzkukennsla, 2. fl.
19.00 Þýzkukennsla, 1. fl.
19.25 Þingfréttir.
20.00 Fréttir.
20.30 Kvöldvaka: a) Pétur G.
Guðmundsson: Nýfundna
land. — Erindi. b) Kvæði
kvöldvökunnar. c) 21.05
Ásmundur Helgason frá
Bjargi: Jón glímukappi í
Gerði. — Frásöguþáttur
(Ragnar Jóh. flytur). d)
21.30 Valdimar Benónýs
son bóndi að Ægissíðu í
Víðidal: Stökur og kvæði.
e) 21.45 M. A. J.-tríóið
leikur á mandólín.
22.00 Fréttir.
22.05 Tónleikar: Harmóníku-
Iög (plötur).
22.30 Dagskrárlok.
Lúð
víks S. SigmnndssoBar
yfirverkstjéra, _
verður skrifsíefym veranij,
verksiæðum ög bátassmí^a-
steS lokað kl. 12 á hádegi i
áuglýsið í AlþMðublaðinu
Sendisveinn óskast.
HATT KAUP.
Upplýsin-gar í afgreiðslu þessa blaðs.
Alþýðublaðið, sími 4900.
Reykvíkingar - Suðurnesjamenn
Áætlunarferðir á leiðinni Reykjavík—Sandgerði
verða fraravegis:
Frá Reykjavík kl. 10 árd. og kl. 1 s. d.
Frá Sandgerði kl. 1 og kl. 5 s. d.
Farþegum skal sérstaklega bent á íiina bentugu
ferð frá Reykjavík kl. 10 árd.
BIFREIÐASTÖÐ STEINDÓRS.