Alþýðublaðið - 16.03.1947, Side 4
*
Siumudagur, 16. marz 1847,
Útfefanði: AlþýSallokkurinn
Rltstjóri: Stefán Pjetursson.
Símar:
Bltstjórn: símar 4901, 4902.
AfgreiSsla og auglýsingar:
4900 og 4900.
ASsetur
f Alþýðuhúsinu viS Hverf-
lsgötu.
VerS í lausasölu: 50 aurar.
Sett í Alþýðuprentsmiðjunui
Prentað í Félagsprentsm.
RÍKISSTJÓENIN er ber-
sýnilega staðráðin í því að
taka húsnæðismálin föstum
tökum, enda er þess vissu-
lega full þörf. Þörfin fyrir
nýjar og betri íbúðir hefur
verið hér fyrir hendi árum,
jafhvel áratugum, saman,
þótt hún hafi verið mest og
afleiðingar húsnæðisvand-
ræðanna stórfelldastar hin
siðustu ár. Til þessa hefur
engin rikisstjórn, sem setið
hefúr að völdurn, látið ilausn
húsnæðismálanna sér í lagi
til sín taka, enda þótt sett
hafi verið merkileg ilög varð
landi byggingamálin. Núver-
jandi .ríkisstjórn ætlar hins
vegar augsýnilega að taka
húsnæðismálin öðrum og
fastari tökum, og fjöldi fólks
um allt land tengir miklar
vonir við ráðagerðir hennar
varðandi þetta aðkallandi
mál, sem snertir meginhluta
þjóðarinnar beinlinis eða ó-
íbeinlínis.
'Ailþýðuflokkurinn hefur
haft forustu um allar þær
opinberu framkvæmdir, sem
efnt hefur verið til í því
skyni að sjá alþýðustéttum
og launþegum landsins fyr-
ir húsnæði. Hann hafði á
hendi forustu um það að
ráðizt var d byggingu verka-
mannabústaðanna, en það
anál kostaði ilanga og harða
baráttu á sinum tíma. Al-
þýðuflokkurinn hafði einnig
forustu um stofnun sam-
vinnubyggingafélaganna, sem
orðið hefur til stórmikils
gagns. Merkasta afrek Aíl-
þýðuflokksins í þessum mál-
um allt tii þessa er þó tví-
xnælalaust setning löggjafar-
innar um opinbera aðstoð
við byggingu íbúðarhúsa" i j
bæjum og kaupstöðum, en!
þau lög voru sett fyrir full-
tingi Finns Jónssonar fyrr-
verandi félagsmálaráðherra.
Núverandi forsætis og félags
málaráðherra, Stefán Jóh.
Stefánsson, og stjórn 'hans ]
hefur því á traustum grund- |
velli að byggja í baráttunni;
við húsnæðisvanöamálið, en
hún hefur þégar hafizt handa
um skipulagningu þeirrar!
baráttu á 'þann hátt, sem á-
istæða er til að ætla að leiði
til góðs árangurs,
* i
Frumvarpið um fjárhags-
ráð, innflutningsverzlun og'
verðlagseftirlit hefur meðal
lan-nars stórfellda þýðin-gu:
yarðandi lausn húsnæðismál
anna, þar eð þar er itryggt,
tfyrsta sinni, að hafizt verði
é skipulagðan hátt handa um
jstórfeildar og na-uðsynlegar
Framhald á 7. síðu.
I, • .i
Frh. af 3. síðu
þvi engsan gaum, að áin vex,
og svo fer, sem fara hlýtur:
„Hann bjó ei til fleiri báta“,
.... því flóðið umkringdi. •—
Allt var í hyl.
Hann átti þó nógan pappír til...
Það verður svo næstum
því fró jað þvá að virða fyr-
:ir sér hrafnana, sem eiga sér
á hörkuvetri ekki annað
skjól en kalda klettaskoru og
ekki annan vettvang tií
bjargræðis en svell og klaka,
en:
Víkingar vetrarlanda
verjast meðan þeir anda.
Hvort mundi þá ekki rétt
að minna mennina á það, að
þeim eru alls ekki búin þau
örlög að standa vopnlausir,
þegar á að ræna þá öflu
;sem gerir Íífið þess vert, að
því sé ilifað?
En þurfi mót voða að verja
land,
þá viti menn á því skil,
að dvergurinn forni þíður með
brand
hinn bitra, —r — ef hetjan er til.
Hjá frændum okkar Norð-
mönnum, sem skáldið yrkir
um þrjú kvæði, öll hin snjöll
ustu, þurfti ekki að spyrja —
er hér nokkur, sem þekkir
sinn vitjunartíma? — en —
en svo mjög -geta hinar
vondu vættir magnast, og þá
ekki sizt fyrir sinnuleysi
þeirra, er una -leiknum við
hina hvitu pappirsbáta, að
skáldinu dimmi fyrir augum,
þrátt fyrir Ijómánn af sverði
dvergsins i höndum norsku
þjóðarinnaar:
Mun dýrið gamla andlaust yillt
og ótt
við opnar grafir dýrstu vona
standa?
Hvort eru þær ekki nokk-
uð áberandi þarna, andstæð-
urnar, andstæður veraldar,
andstæðurnar i brjósti skálds
ins sjálfs?
En þrátt fyrir all-a skugga
sjálfsblekkingarinnar, þrátt
fyrir blóð og bölþoku, þrátt
fyrir frost og frer,a, þrátt fyr
ir a-llt hið mikla misræmi thl
verunnar, 'þá er þarna ekki
að mæta nein-u örvæni. Gleð
in og Sorgin, sem hafa verið
nefndar systur — skáldið
hefur svo sem báðum kynnzt,
og gaman var á fundum Gleð
innar, og marga fágra borg-
ina hefur hún hátimbrað. En
kvöldsvæf hef-ur hún reynzt,
þótt dátt hafi 'hún -látið —
og svo er þá Sorginni opin
leið að beði skáldsins. Og
liún getur vakað — og liún
'hefur það til að hnippa við
mönnum, þ-egar þeim ætlar
að renn-a blundur á brá. En
sú er bótin,, ,að hún á það -til
að reynast gjöful, og gjafir
hennar er-u óbrotgjarnari en..
gjafír Gleðinnar — sem til
dæmis reisti skáldum hina
fögru og glæstu, en „hrör-
legu hamingjuborg, sem
hrynur við mótlætisblæinn“.
Og skáldið, sem þannig met
ur -þessar systur, mundi svo
ekki óhugsiað segja:
Og það er allt í okkar sáíir
spunnið,
sem á sér von um líf og sannan
mátt.
— — Hver ærleg kennd, —
hvert verk, sem vel er unnið
í veröld hér, er spor í rétta átt.
Vor og haust verða .skáld-
inu mjög að yrkisefni — og
er það að vonum, því að vart
ann höfundur þessara Ijóða
nokkru eins og undri vors-
ins, ekkert er honum dásam
legna en það, að -sjá helfjotra
klakans leysast í sundur og
allt í einu gægjast upp úr
bleikri jörðinni g-ræna nál —
og svo áður en varir lítið, við
kvæmt blóm, sem sólin sjálf
virðist -hafa gefið ilit sinn og
ásýnd, brosa við vorgeislum
í grænum Qækjarbiakka. En
haustið kemur með sína'
bliknun, sinn fölva .... En
þá er vissan þessi;
En vitum, þar sem virðist
fölnað allt,
og visin lauf og dáinn sumar-
ljómi
og vonlaus auðn og ömurlega
kalt
er undirbúið næsta vor og
blómi.
En samt: Einstaklingur-
inn, hann eignast aldrei sitt
vor, þegar haustað hefur. Og
þegar .svo er komið, að vor-
hugur og öryggi fylgir xnann
inum ekki lengur að haust-
dægrum, þégar hann finnur,
að fölva 'haustsins slær á hug
hans sjálfs, þá er sem húmg
ist sjónir og þyngi fyrir
brjósti:
Andvarpar alda í nausti, — •—
allt er svo dapurt hér. — —
Nú finn ég haust á hausti,
— haust í sjálfum mér.
En ennþá kemur -þó vor
eftir vetur í náttúrunni um-
hverfis — og það á alltaf
sín undur:
Og vorið skín á aídna og unga
menn
og undramáttur lífsins vekur
þrótt. :
Hinn gamli trjástofn skrauti
skrýðist enn
og skrafar sæll við fugl um
bjarta nótt.
Svo er ilíka það, að sá, er
sér sinn vetur framundan,
hann skyggnist yfir feigðar-
fjörðinn. Þórir Bergsson sræð
ir ekki. um það i þessari bók,
hvort h-ann þykist eygja þar
nckkurt land — inokkurn
roða á fjö-llum, því að ef til
vill á hún ekkert sky-lt við
skyggnið þangað, þessi visa,
e-r stendur ein sér:
Veikur bjarmi vetrarnótt
verður fyrst að. baga,
þó að bak „við bíði gnótt
blíðra sólskinsdaga. •
Ég vil svo að lokum geta
þ-ess, að í bókinni er. kvæði
um Jón skáld Magnússon
látinn. Ég ætla ekki að lýsa
því eða birta úr þ'ví svo mik-
ið .sem einá eða tvær Ijóð-
línur, en einungis leyfa mér
iað flytja skáldinu Þóri Bergs
syni fyrir það sérstakt
þakk-Iæti Irá okkur öllum
þeim, sem þekktu hið látna
skáld nánast.
Ljóðakverið er að ytra
frágangi snotur bók — eii'
þvi miður hefur ekki tekizt
svo vel ti.1 «m prófarkalest-
-ur sem sky-ldi — og þarna.
verða jafnvel hinar mihnstú
villur óþægilega áberandi.
Guðm. Gíslason Hagalín,
á
His Masters Voice — Golumbia — Parlophone
— Regal.
Vegna mikillar verðhækkunar erlendis, hefur
útsöluverð á ofangreindum plötum verið ákveð-
ið sem hér segir, frá og með 15. þ. m.
RegaJAplötur, 25 cm. (dans) kr. 8,50
Dansplötur, 25 cm. með emlitum
brúnum miða — 10,00
,,Standard“-plötur, 25 cm. — 11,50
„Standard“-plötur, 30 cm. — 15,00
„Special“-plötur, 25 cm, — 15,00
„Special“-plötur, 30 cm. — 20,00
Vér leyfum oss að benda á, að þrátt fyrir all-
mikla verðhækkun erlendis frá, er hækkunin á
klassisku plötunvim mjög lítil (aðeins 50 aura frá
því, sem áður var).
Ofangreint verð er staðfest af verðlagsstjóra.
Aðalumboð á íslandi fyrir His Masters Voice
— Columbia — Parlophone og Regal.
Verzlunin Fálkinn, Reykjavík,
Smjör
íslenzkt smjör án skömmtunarseðla selj-
um vér í heildsölu og smásölu, þar á meðal
Akureyrarsmjör í Vz kg. og 5 kg. pökkum.
Frystihúsið Herðubreið,
Sími 2678.
Karlakórs iðnaðarmanna
verður að Hótel Borg laugardaginn 22.
marz og hefst með borðhaldi kl. 7,30. —
Aðgöngumiða fyrir kór- og styrktarfé
laga sé vitjað í Húsgagnaverzlun Kristj-
áns Sígurgeirssonar, Laugavegi 13, fyrir
f immtudágsk völd.
Skemmíinefndin.
heldíjr skíðadeild Ármanns
í samkomusal Mjólkurstöðvarinnar í kvöld
sunnud. 16. marz klukkan 10 síðdegis,
Öllu íþróttafólki heimill aðgangur. — Al-
göngumiðar seldir í anddyri hússins frá kl. 6.