Alþýðublaðið - 03.04.1947, Qupperneq 1
Umtafsefnið
Fcrystugr&in
blaSsins í dag: Páska
hlé og stjórnarsíörf.
í dag: Kosningasigur
danska Alþýðuflokks-
ins.
XXVII. árgangur. Fimmtudagur, 3. apríi 1947
i
• Tvelr feruiíymein í dönskutn sijórnmálum:
Myndin, sem tekin er á fundi í danska fólksþinginu, sýnir Knud Kristensen forsætis-
ráðherra og formann vinstri fokksins (standandi) á tali við Hans Hedtoft, formann
Alþýðuflokksins, sigurvegarans í landsþingskosningunum. Flokkur Kristensens vann
lika ofurlítið á, en stuðnings flokkar hans aðrir stórtöpuðu.
arafélag 50 ára
Minnist afmælisins
melí héfi 12* apríl.
HIÐ ÍSLENZKA PRENT-
ARAFÉLAG, elzta stéttarfé-
iag verkalýðsins, sem starf-
andi er hér á landi, á fimm-
tíu ára afmæli á morgun,
föstudaginn langa. Það var
stofnað 4. apríl 1897.
Prentarafélagið mun halda
upp á þetta merkisafmæli í
sögu sinni með veglegu hófi
að Hótel Bcrg laugardags-
kvöldiilð .12. apríl næstkom-
andi og verður ræðuhöldum
og hátíarkantötu úr því hófi
útvarpað.
Alþýðublaðið mun minn-
ast fimmtíu ára afmælis
prentarafélagsiíns í sambandi
við afmælishátíð félagsins
sjá'lfs.
grefddra alkvæða í Kaupmannahðfn.
---------------------«.-------
Aiilr aðrir flokkar stórtöouðu, að vinstri
flokknum einum undanskildum.
--------*--------
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins.
KAUPMAiNNAHÖFN í gær.
KOSNINGAR TIL DANSKA LANDSÞINGSINS,
sem fóru fram í Kaupmannahöfn, á Fjóni og á Norður-
Jótlandi í dag, urðu glæsilegur sigur fyrir danska
Alþýðuflokkinn, sem vann mjög mikið aftur af því
atkvæðamagni, sem hann tapaði í fólksþingskosn-
inigunum 1945 og bæjarstjómarkosningunum 1946.
Fyrir stjómarflokkana urðu landsþingskosningamar
rnikill ósigur, þó að vinstri flokkurinn sjálfur ynni
lítillega á; og kommúnistar töpuðu meira eða minna
af því fylgi, sem þeir fengu við fólksþingskosnmg-
arnar 1945.
í Kaupmannahöfn. fékk Alþýðuflökkurinn nú 51%
allra greiddra atkvæða, en við bæjarstjórnarkosningarnar
1946 fékk hann ekki nema 45%. Hefir flokkurinn því aftur
hreinan meirihluta í höfuðborginni.
Þátttakan í landsþings-
kosningunum var mikil. í
Kaupmannahöfn fékk Al-
þýðuflokkurinn 170 929 at-
kvæði; en til samanburðar
Frh. á 8. síðu
MJÖG LITLAR drunur heyrðúst frá Heklu í gær-
dag og öskufall var hverfandi l’ítið'. Telur fólk, sem
býr í nágrenni eldstöðvanna, að í gær hafi verið ró-
legasti dagurinn frá því að gosið hófst. í Fljótshlíð-
inni, varð ekkert öskufall í gær, en töluvert mistur
var yfir Rangárbökfeum og víðar. Bændur kvíða nú
mjög sandbyljunum, þegar hvessir.
Blaðið átti í gær tal við*
bóndann í Múlakoti, og sagði
hann að ekkert öskufall
hefði verið þar í gær. Var
veður bjart og skyggni þar
5 til 10 kílómetrar. Logn var
og stilla qp. hefur því ekkert
sandfok orðið í Fljótshlíðinni
ennþá, en bódinn sagði, að
menn kviðu sandbyljunum,
sem óhjákvæmilega kæmu
þegar hvessti.
Þó sagði hann, að menn
hefðu yfirieitt verið bjart-
sýnni í'gær, en þeir áður
voru, og þótt margir hefðu
ákveðið að skera niður fé
sitt, þá myndu iþeir ekki
yfirgefa jarðirnar fyrr en
í síðustu lög.
Engar drunur heyrðust
í Fljptshlíðinni í gær, og
sama var að segja í Þjórsár-
dalnum. Sagði hóndinn á Ás-
ólfsstöðum i viðtáli við blaðið
í gær, að hann hefði sára
litar drunur heyrt frá fjall-
inu í gær, en í fyrrakvöld
hefði bjarmað uppi af því
og dálitlar drunur heyrzt við
og við.
Á Ásófsstöðum hefur ekk-
ert öskufall orðið ennþá, en
á tveim næstu bæjum þar,
Ásum og Haga, hefur þess
aðeins orðið var.t. Nokkurt
miistur var í gær þarna yfir,
og efsti toppur Heklu var al-
gerlega hulinn í mistrinu.
Sagði Ásólfsstaðabóndinn, að
snjóað hefði í fjallið í fyrri-
nótt, og væru hlíðar þess grá-
hvítar. •
VATNSLAUST í VET-
MANNAEYJUM
Blaðið átti í gær tal við
Vestmannaeyjar, og var
þvi sagt að þar hefði verið
algert vatnsleysi, en í gær
kom þangað skip með
neyzluvatn úr landi.
Ekkert öskufall 'hefur ver-
ið í Vestmannaeyjum frá því
á fyrsta degi gossins, en þá
varð öskullagið þar 3—4
miílimetrar. Hins vegar hef-
ur verið þar mikið mistur
undanfarna daga, en 1 gær
var þar bj,artviðri og sást til
Eyjafjallajökuls. Engar gos-
drunur heyrðust til Vest-
mannaeyja i gær.
Eins og áður var getið um,
hvarf allur fiskur af miðum
við Vestmannaeyjar daginn
sem öskufallið var þar mest,
en nú virðist fiskurinn hafa
l komið aftur, enda þótt afli
bátanna sé tregur.
Soclal-Demokrafai,
aSalbfaS danska
AlþýSnffokksins,
75 ára.
KAUPMANNAHAFNAR
BLAÐIÐ Social-Demokraten,
aðalblað danska Alþýðu-
flokksins, átti í gær 75 ára
afmæii, og er það elzta hlað
jafnaðarstefnunnar og verka
lýðshreyfingarinnar ekki að-
eins í Damnörku, heldur og
á öllum Norðurlöndum.
í tilefni af afmælinu kem-
ur í dag út sérstakt, veglegt
afmælisblað af Social-Demo-
kraten, þar rakin er saga
þess og birtur mikill fjöldi
mynda af starfsmönnum þess
og stuðningsmönnum frá
upphafi.
í Social-Demokraten í gær
voru í tilefni af afmælinu
birtar kveðjur og árnaðar-
óskir frá ritstjórum allra að-
alblaða ajlþýðrllilokkanna á
Norðurlöndum og viðar að.
ámi Jénsson frá
Múla láfinn
ÁRNI JÓNSSON frá Múla
lézt í sjúkrahúsinu Sólheim-
ar í fyrrinótt, aðeins 55 ára
að aldri. Banamein hans var
heilablóðfall.
Árni frá Múla átti um
langt skeið sæti á alþingi og
var einn af þekktustu blaða-
mönnum landsins. Hans verð
ur nánar ininnzt síðar hér í
blaðinu.
Alþýðublaðið
ÞETTA er síðasta blað-
ið, sem kemur út fyrir
páska. Næst kemur Alþýðu
blaðið út miðvikudaginn
9. apríl.