Alþýðublaðið - 03.04.1947, Síða 6
6
ALÞYÐUBLA&fÐ
Fimmtudagur, 3. apríl 1947.
NYJA BfÓ
(„Because of Him“)
Skemmtileg og vel leikin
söngvamynd.
Aöalhlutverk:
Deanna Durbin
Franchot Tone
Charles Laughton
í myndinni syngur Deanna
m. a. hin undurfögru lög
„Goodbye“ (eftir Toste)
og „Danny Boy)).
Sýnd annan páskadag
kl. 3, 5, 7 og 9.
Sala hefst kl. 11.
3 BÆJARBIÖ 8
Hafnarfirði
• ■■
Orlög ráða
(Jað ár eld och luft)
Stórfengleg mynd eftir
skáldsögu Fritz Thorén.
Aðalhlutverk:
Viveca Lindfors
Stig Járrel
Anders Henrikson
Olof Widgren
Hasse Ekman
Sýnd annan í páskum kl.
3, 5, 7 og 9.
Myndin hefur ekki verið
sýnd í Reykjavík.
Sími 9184.
3 GAMLA BIO ð
Ævinfýri á fjöllum
(Thrill of a Romance)
Bráðskemmtileg og hríf-
andi fögur söngvamynd,
tekin af Metro Goldwyn
Mayer í eðlilegum llitum.
Aðalhlutverkin leika:
sundmærin
Esther Williams
Van Johnson
og óperusöngvarinn frægi
Lauritz Melchior
Sýnd á annan í páskum
kl. 3, 5, 7 og 9.
Sala hefst kl. 11 f. h.
8 TJARNARBIO 3
Sesar og Kfeopafra
Stórfengleg mynd í eðli-
legum litum eftir hinu
fræga leikriti Bernhard
Shaws.
Vivien Leigh
Glaude Rains
Stevart Granger
Leikstjóri:
Gahriel Paseal
Sýniilng 2. páskadag kl. 3,
6 og 9; þriðjudag kl. 5 og 9
ÞORS-CAFE
imlu dans
2. páskadag klukkan 10 síðdegis.
Aðgöngumiðar í síma 6497 og 4727.
afhentir frá kl. 4—7.
Ölvuðum mönnum bannaður aðgangur.
'■%ám
Miðar
r
Svifflugfélag Islands.
heldur
< %
sitt að Tjarnarlundi 2. páskadag og' hefst kl. 9
síðdegis. — Dökk föt.
Stjórnin.
Auglýsið í Alþýðublaðinu
fyrirliggjandi.
DAVÍÐ S. JÓNSSON & €0., heildverzlun.
Sími 5932.
Gina Kaus:
ÞÉR ALDRE
Því meir undrandi varð
hann þegar Melanía svaraði:
„Eftir eitt ár eða tvö, verð
ég ef til viill komin svo vel
á veg. Ég hafði dásamlegan
kennara — maestro Scossi,
sem þér hafið kannske heyrt
um — en veslings maðutrinn
minn gmnaði hann um að
líta mig hýru auga, svo að
ég varð að hætta hjá honum
að lokum. Hefði ég haldið á-
fram, þá hefði ég kannske
vertið komin að Metropolitan
óperunni núna. Svo fékk ég
kennslukonu, og hún eyði-
lagði í mér röddina.“
„Já, en maðurinn yðar er
dáinn fyrir ári síðan. Hvers
vegna farið þétr ekki aftur til
Scossi?“
Melanía hristii höfuðið
hrygg í bragði. „Hann varð
mér svo reiður, þegar ég
hætti. — En nú er ég byrjuð
hjá prófessor við tónlistar-
skólann, og hann fullyrðiir
daglega, að ég muni að
minnsta kosti geta komið
opinberlega fram eftir hálft
'annað ár.“
Þrátt fyrir hljómlistiha
var tíminn lengi að líða. Al-
bert og Melanía fóru fyrir
miðnætti.
„Tuttugasta og annan
verðið þið að koma til mín“,
sagði Melanía, „það kemur
yndislegt fólk til mín þá,
Scholl forstjóri Anglo-Medi-
terrans-bankans meðal ann-
anra. Ég veit að hann er að
hugsa um að byggja sér
sumarbústað! —“
Albert náði í bíl og ók
Melaníu hei'm. „Þú átt ihdælt
skyldfólk,“ sagði hún, „og ég
vona að ég geti útvegað
frænda þínum heilmikið af
húsum til að teikna.“
Hann tók þakklátur í
hendliha á henni.
„En samkvæmið held ég
þín vegna,“ hélt hún áfram.
„Eftir nokkra mánuði verð-
ur þú doktor, og þá ríður á-
að fá stöðu handa þér.“
„Ég geri ekki miklar kröf-
ur,“ sagði hann. „Litla stöðu
við menntaskóla, til dæm-
is —“.
Hún hló hljóðlega. „Litla
stöðu við menntaskóla —!
Nei, það getur ekl4i verið
meining þín! Ég skal víst
finna eitthvað betra handa
þér. Láttu mig um það! En
þú þarft að komast undlir
verndarvæng einhvers, og
þess vegna hef ég boðið dá-
litlu af mikilsmegandi fólki
í samkvæmli þitt.“
,,Ég vil helzt sjá um fram-
tíð mína sjálfur,“ sagði hann
tregur. „Ég kæri mig ekki
um að verða skjólstæðingur
neins.“
„Vliitleysa! Þú hefur alltaf
not fyrir það jafnvel þótt þú
sækir aðeins um stöðu við
menntaskóla! Það getur þú
talað um við kennslumála-
ráðherrann; hann kemur
sjálfur í boðið.“
Hún strauk hoiium um
háirið. „Vertu ekki órólegur,
ég skal hressa þig upp! Ég
veit hvaða umræðuefni fá
þig ræðinn og andríkan.
Láttu mig um það allt. Það
er bara eitt — þú verður að
fá þér nýjan smoking.“
„En Melly það alveg ó-
mögulegt11, sagði hann skelfd
ur. „Ég* — þú veizt það
kannske ekki, að ég er blá-
fátækur. Ég get ekl^i eytt
einum einasta eyri í hluti,
sem ekki eru bráðnauðsyn-
legir.“
„Það veit ég vel,“ sagði
hún léttilega. „En láttu rrrng
bara um það allt.“ Bíllinn
nam staðar fyrir utan hús
hennar. „Við getum talað bet
ur um það á rnorgun."
Hún hvarf lilnn um dyrnar,
hann- fór út, borgaði bílinn
og fór fótgangandi heim.
Stefán var ennþá vakandi.
Albert var ekki fyrr búinn
að kvdikja fyrir ofan rúmið
sitt, en hann heyrðli barið
eins og venjulega í þilið.
Hann fór inn til Stefáns.
Hann var uppí með stærðar
doðrant úr háskólabókasafn-
inu fyrir framan sig.
„Af hverju ertu alveg
hættur að koma í Café Vikt-
oríu?“ spuirði hann, „Fransí
hefur þrisvar spurt um þig
og Emmy Iíka.“
„Ég skal koma næst,“
sagðl Albert.
„Nei, ég held nú síður,
það gerirðu nú einmitt alls
ekki. Nú jæja það er nú ann-
ars heldur enginn heimssögu
legur viilðburður. En segðu
mér aðeins eitt, hvernig lík-
ar þér að vera bergnuminn?“
„Hvað?“
„Að vera bergnuminn! Þú
hefur svei mér ýmislegt við
þig, sem ég hef ekki haft
grun um.“
Albert sat á rúmstokknum
og fór hjá sér.
„Og ég, sem hélt að þú
hefðiæ engan áhuga á kven-
fólki! Þegar þú sagðir þarna
um dagjiínn að þér geðjaðist
ekki að Melaníu, þá hélt ég
að þú — hvernig á ég að
koma orðum að því — að þú
værir næstum því eitthvað
óheilbrigður á því sviði, af
því að þú hafðir svo ákaf-
lega mikið á mótii því að
eiilga mök við ,fallega konu í
eitt eða tvö skipti. Og núna.
— En svona er það alltaf í
rauninnii,“ sagði hann, „sá,
sem reynir að standa í móti
ástinni, er áður en hann veit
af orðinn altekilnn af henni.“
„Þér skjátlast,“ sagði Al-
bert, en Stefán greip strax
fram í.
„Nei, mér skjátlast ekki,
Þegar maðuir af þinnil gerð
er allar sínar frístundir með
sömu konunnd s og getur alls
ekki hugsað sér þann mögu-
leika, að vera einn eða með
öðru fólkli éitt einasta kvöld
-— já, þá hefur hann tekið
sóttina minn kæri. .. .!“
Hann lagðist á hliðina og
studdi ljósa kollinn í hönd-
um sér. „Ætlarðu að ganga
að eiga hana?“ spurði hann.
„Ertu orðinn geggjaður?“
spurði Albert af hreinustu
skelfingu.
„Það væri nú óðs manns
æði!“
„Hvers vegna þá? Melanía
er í mesta lagi, fjórum, fimm
árum eldri en þú, og það hef-
ur ekká! mikla þýðingu nú á
tímum —.“
Tjarnarkaffi.
DANSL
annan í páskum klukkan 10 e. h.
Aðgöngumiðar seídir í Tjarnarkaffi frá kl. 5—7
sama dag.
Utbreiðið ALÞYÐU6LAÐIÐ
Þjóðræknisfélag íslendinga.
félagsins verður haldinn í Oddfellöw-
húsinu miðvikudaginn 9. apríl næst-
komandi klukkan 4 síðdegis.
Síjórnm.