Alþýðublaðið - 24.06.1947, Side 1
Veðurhorfur:
Austan kaldi, lítilsháttar
rigning öðru hvoru.
AlþýSubiaðið
vantar börn til að bera
blaðið í' nokkur hverfi.
XXVII. árg.
Þriðjudagur 24. júní 1947
Uirftalsefnið:
Boðskapur kommúnista til
Dagsbrúnamanna í gœr-
kvöldi.
Forustugrein:
Svar verkamanna í Borg-
arnesi.
135. tbl.
M0L0T0V ÞAÐI BOD BEVINS OG BIDAULT!
Sljórn Trumans, sem slendur að iilboði Marshalls
Fundur þeirra í Par
ís sker úr um fyrir
■ - A r
segj^
Myndin sýnir Truman og ráðuneyti hans á f undi í Washington. Forsetinn situr fyrir
miðju til hægri á myndinni; en sitt hvoru megin við hann sitja þeir Marshall utanríkis-
málaráðherra og Snydder fjármálaráðherra.
Eftir hálfs mánaðar verkfall:
li 15,36
á íösiudaginn
SÆNSKI KÚLUVARP-
VARPARINN Roland Nils-
son kastaði 15,36 metra á
anóti í Örebro á föstudaginn,
eða 7 setntimetrum lengra
en Gunnar Huseby á afmæl
ismóti KR 10. júní. Þessi ár-
angur Nilssons er hinn bezti
á Norðurlöndum það, sem af
er þessu sumri, en áður hafði
hann kastað jafnlangt og
Huseby 10. júní.
Á þessu sama mgti hljóp
hinn frægi sænski hlaupari
Roland Sundin 1500 metr-
ana á 3:52,8 mín. og sigraði
glæsilega. Er þessi árangur
Sundins annar bezti árangur
í heiminum í þessari grei’n
það, sem af er þessu sumri.
Þeir Roland Nilsson og
Roland Sundin verða báðir
þátttakendur í afmælismóti
ÍR nú um helgina ásamt
sænsku Evrópumeisturunum
þremur Anton Bolinder, Olle
Læssker og Lennart Atter-
wall.
mönnum í siað abinnu
EFTIR AD HAFA haft hálfsmánaðaratvinnu af Dags-
brúnarmönnum með hinu pólitíska verkfallsbrölti sínu boð-
uðu kommúnistar til félagsfundar í Dagsbrún í gærkvöldi,
og skýrðu þeim frá bví, til bess að reyna að sætta þá við á-
framhaldandi verkfall og atvinnumissi, að nú yrði byrjað að
eyða sjóðum Dagsbrúnar í verkfallsstyrki og ennfremur
gætu félagsmenn stofnað skuldir hjá KRON, sem samið
hefði verið við, að veitti Dagsbrúnarmönnum úítekt upp
að allt að 250 000 krónum, gegn tryggingu í sparisjóðsbók-
um og skuldabréfum í eigu Dagsbrúnar.
Upp undir 500 manns
munu hafa sótt Dagsbrúnar-
fundinn, sem haldinn var í
Iðnó í gærkveldi. Var fund-
urinn stuttur, enda gerðist
þar lítið annað, en að komm-
únistar fluttu Dagsbrúnar-
mönnum þann boðskap. sem
hér að framan greinir. Skýrði
Eðvarð Sigurðsson þeim frá
því, að ákveðið hefði verið
að byrja að greiða verkfalls-
styrk úr vinnudeilusjóði fé-
lagsins 84 krónur á hjón
yfir fyrstu vikuna og 35
krónur fyrir hvert barn að
auki. En því næst skýrði
Eggert Þorbjarnarson frá
samkomulagi því, sem gert
hefði verið við KRON,‘ að
þeir mættu taka út vörur þar
fyrir allt að 250 000 krónum
samtals, gegn .tryggingu í
sparisjóðsbókum* og skulda-
bréfum Dagsbrúnar, sem
hann sagði nema um 90 þús-
und krónum.
Þessi boðskapur kommún-
ista vakti litla hrifningu
fundarmanna. enda munu
þeir vera búnir að fá nóg af
því, að vera hálfan mánuð í
verkfalli fyrir pólitískt of-
stæki kommúnista, þó að
þeim sé nú ekki boðað, að
sjóðum félagsins skuli eytt
og þeir sjálfir stofna persónu
legar verzlunarskuldir til
þess að geta haldið slíku
verkfalli áfram.
Urðu engar umræður um
þessar tilkvnningar komm-
únista, og var fundinum slit-
ið strax á ellefta tímanum,
eftir að ræðumenn kommún-
ísta höfðu talað og nokkrar
þýðingarlausar tillögur frá
þ'eim verið samþykktar; en
ÞAÐ varð kunnugt í
gær, að Molotov hefði,
þrátt fyrir a'llar svívirð-
ingar Moskvaútvarpsins
og Moskvablaðanna um
hjálpartilboð Marshalls,
þegið boð þeirra Bevins og
Bidaults á þríveldafund
til þess að ræða það. Fund-
urinn verður haldinn í
París og hefst á föstudag-
inn.
Moskvaútvarpið hefur í
sambandi við þessi tíðindi
algerlega snúið við blaðinu,
og sagði í gær, að Bandaríkin
hefðu látið mikið af hendi
rakna til hjálpar Evrópu, og
mikið gagn mætti verða af
tilboði Marshalls, ef rétt
yrði á málunum haldið.
Það vakti mikinn fögnuð
í brezka þinginu í gær, er Be-
vin skýrði frá því, að Molo-
tov hefði þegið boð þeirra
Bidaults; og í franska þing-
inu var því einnig tekið með
mikilli gleði, er Bidault
skýrði frá því sama.
Brezka útvarpið hafði það
í gærkveldi eftir fréttaritara
sinum í Washington, að í
Ameríku væri einnig látin í
Ijó^ mikil ánægja yfir því,
að Molotov skyldi hafa þegið
boð þeirra Bevins og Bi-
daults, þó að stjórnmála-
menn þar teldu enn með öllu
óvíst; hvað fyrir Rússum
vakir. Ilins vegar væru þeir
þeirrar skoðunar, að þrí-
veldafundurinn i París myndi
skera úr, hvort Rússar vildu
virkilega vera með í efna-
hagslegri viðreisn Evr.ópu,
eða hvort þeir stefndu að
auknu öngþveiti og eymd til
þess að undirbúa jarðveginn
undir kommúnistíska bylt-
ingu.
Sáftanefnd ræðir
við báða aðila
unnar í dag
SÁTTANEFNDIN í
DAGSBKÚNARDEIL-
UNNI hefur boðað báða
aðila á sinn fund í dag,
hvorn í sínu lagi. Er það
í samræmi við lögin um
stéttarfélög og vinnudeil-
ur, en þar er svo fyrir
mælt, að sáttanefnd skuli
ræða við deiluaðila ekki
síðar en hálfum mánuði
eftir að upp úr sáttatil-
raunum siitnaði, til þess
að kynna sér, hvort þeir
hafi nokkuð nýtt að bjóða
og hvaða mögúleikar séu
á sættum.
Ármenningar flognir
fil Finnlands
I GÆRKVÖLDI lagði fyrri
hópurinn af sýningarflokk-
um Ármanns af stað loftléið
is til Stokkhólms, en síðari
hópurinn leggur af stað á
miðvikudag, en eins og kunn-
ugt er, eru flokkar þessir á
leið til Finnlands og verða
þar viðstaddir íþróttahátíð
mikla. Þar mun þeir hafa
sýningar margar, en á hátíð
þessa eru boðnir flokkar og
einstaklingar frá flestum þ jóð
um álfunnar og er hátíðin fal
in einhver merkasti íþrótta-
viðburður ársins.
Flokkarnir, sem Ármann
sendir, eru þrír, úrvals leik-
fimisflokkar kvenna og karla
og glímuflokkur.
Þess ber að geta, að flokk-
ar þessir hafa meðferðis fata
bögla til gjafar nauðstödd-
um í Finnlandi. Vegna blaða
ummæla er einnig rétt að
geta þess, að eini erlendi
gjaldeyririnn, sem við þetta
ferðalag eyðist, er fargjald-
ið frá Stokkhólmi til Finn-
lands eða alls kr. 140 á hvern
þáttttákenda.
Stjórnandi flokkanna er
Jón Þorsteinsson fimleika-
kennari, en fararstjóri Jens
Guðbjörnsson, formaður Ár-
manns.
fjöldi fundarmanna sat hjá
við atkvæðagreiðslu um þær.
Aðalfundur SÍS hófsf
ö
í gærmorgun
AÐALFUNDUR Sambands
íslenzkra samvinnufélajga
hófst í gærmorgun á Þing-
velli og var settur klukkan
10 fyrir hádegi. Fumdinn
sitja 84 fulltrúar víðs vegar
að af landinu, auk sambands-
stjórnarinnar. forstjóra þess
og gesta.