Alþýðublaðið - 24.06.1947, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 24.06.1947, Blaðsíða 2
2 Ai(bÝI5IJRS A'D!ö ÞriSjudagnr 24. júní 1947 L e i k s k ó li fyrir 2ja—5 ára börn verður starfræktur í sumar 1 Málleysingaskólanum. Tekið verður á móti umsóknum í skólanum í dag (þriðjudag) og miðvikudag kl. 3—5 e. h. Fræðsluf ulltrúinn. Læknis-skoðun þeirra barna, sem sótt hefur verið um fyrir í leikskólanum í Stýrimannaskóianum, fer fram þriðjudaginn 24. þ. m. (í dag) kl. 3—5 e. h. Fræðslufulltrúinn. ÍSÍ KRR L leidur Sslandsmótsins íer fram í kvöld kl. 8,30 R.K. - Akurnesingar Mólanefnd Tilboð merkf vélskólr Vantar báða vélstjóra á 800—900 mála skip. Upplýsingar gefur Kristinn Marinósson, Þórsgötu 26 A. 1 Lögtök Samkvæmt kröfu borgarstjórans í Rekjavík og að undangengnum úrskurði, verða lögtök látin fara fram til tryggingar ógoidnum fasteigna- og lóðaleigugjöidum til bæjarsjóðs Reykjavíkur, er féllu í gjalddaga 2. janúar s. 1., að átta dögum liðnum frá birtingu þessarar auglýsingar, verði þau ekki greidd innaná þess tíma. Borgarfógetinn í Reykjavík, K. Kristjánsson. 75 ára í dag: Jón Jónsson Smyrilsvegi 29. SJÖTÍU OG FIMM ÁRA er í dag Jón Jónsson, Smyr- ilsvegi 29 í Reykjavík, gam- all og góðkunnur Reykvík- ingur. Jón er þó ekki fæddur í Reykjavík, heldur að Vet- leifsholti í Ásahreppi í Rang árvallasýslu 1872, og ólst þar upp hjá foreldrum sín- um. En tæplega tuttugu og fimm ára að aldri fluttist hann til Reykjavíkur 1896, og hefur átt heima hér alla tíð síðan, eða í rúm fimmtíu ár. Stundaði hann lengi sjó héðan, á skútum, en var síð- an nokkur ár á strandferða- skipinu Vestra. Síðan 1916 hefur Jón stundað ýmsa atvinnu í landi; um nokkur ár var hann bryggjuformaður á síldarvertíðum á Siglufirði, en vann í Reykjavík á vetr- um og lagði á margt gjörva hönd, enda hefur hann ekki aðeins ávallt verið dugnað- armaður, heldur og hagleiks- maður. Hin síðari ár hefur hann unnið ýmsa algenga vinnu í Reykjavík, en er síðan í vetur í þjónustu bæj- arins, næturvörður á Hótel Heklu. Jón hefur verið áhugasam ur þátttakandi í alþýðuhreyf ingunni í Reykjavík. Strax eftir að hann fluttist hingað gekk hann í sjómannafélagið Báruna, fyrstu stéttarsamtök íslenzkrar alþýðu, og var formaður þess síðustu árin, sem það starfaði. Síðar gekk hann í Sjómannafél. Reykja- víkur og er meðlimur þess enn í dag. Jón er tvíkvæntur. Fyrri konu sína, Jóhönnu Arn- björnsdóttur, missti hann 1916. Hafði þeim orðið átta barna auðið og eru sex þeirra á lífi. Síðari kona Jóns er Lilja Sigurjónsdótt- ir, og eiga þau fjögur börn, sem öll eru í heimahúsum. Jón á marga góðvini og kunningja, sem í dag munu hugsa hlýtt til hans eða heimsækja hann, til þess að þakka honum fyrir allt gam- alt og gott og óska honum til hamingju á afmælinu. Gamall vinur. 45 ára er í dag Jií 'r' S ■* ^ ii, - hf’ U K Þorgeir Sigurðsson. Austur- götu 3S, Hafnarfirði. Silfurbrúðkaup að Brautarholti í Dölum í DAG eiga merkishjónin Ingileif Björnsdóttir og Að- alsteinn Baldvinsson í Braut ; arholti í Dölum silfurbrúð- ■kaup. Það munu svo margir 'þekkja hið prýðilega heimili þessara hjóna, að óþarft mun að lýsa því með mörg- um orðum, en ég vil þó geta þess nokkuð. Þau giftust sem fyrr segir 24. júní 1922 að Hamraendum í Miðdölum á heimili foreldra Aðalsteins. Þau bjuggu svo á einum þriðja af jörðinni í þrjú ár, en fluttu að Brautarholti, eilfar hafði byggt. Þau sem var nýbýli, e rfaðir Ingi- keyptu svo það býli og hafa svo bætt það og stækkað bæði jörðina og byggt húsin að nýju og búið þar síðan, og hefur Aðalsteinn bæði rekið sveitaverzlun og búskap með skörungskap. Brautarholt er í þjóð- braut, og liggja því leiðir margra um garð og er því gestkoma mikil og öllum tekið með rausn og prýði að gömlum og nýjum sið. Það lætur að líkum, að þangað streymi í dag margmenni til þess að þakka allt gamalt og gott, isvo og til þess að óska þeim hamingju í framtíðinni og gleðjast með þeim á hátíð vorsins og giftingardegi þeirra. En svo munu einnig margir, sem heima sitja, vegna þess að fjötrar binda fót, senda þeim hugheilar hamingjuóskir með þökk fyr ir alla hlýju og gæði, þegar mest hefur þurft með. Þau Ingileif og Aðalsteinn eiga 8 börn, Ingólf, sem er stúdent, Guðrúnu, sem hef- ur lært í kvennaskóla, Gunn ar, útskrifaður af Verzlunar- skólanum hér, og Svövu og Svanhildi, Brynjólf ög Emil- íu, öll vel gefin og efnileg. Þessi prúði hópur er nú heima og hyllir foreldra sína á þessum hátíðisdegi, og það gerum við öll, vinir þeirra. G. G. Hin kunna spennandi skáldsaga Kapitóla er komin í bókaverzlun Guðmundar Gamalíelssonar, Lækjargötu 6. Sími 6837. Nokkrir menn verða nú þegar ráðnir til síldarvinnu á Ingólfsfirði. Upplýsingar í Vinnu- miðlunarskrifstofunni í Alþýðuhúsinu. Minningarspjöld Barna- spífalasjóðs Hringsins eru afgreidd í Verzlun Augustu Svendsen, Aðalstræti 12 og í Bókabúð Austurbæjar, Laugavegi 34. Minningarspjðld Jóns Baldvinssonar forseta fást á eftirtöldum stöÖum: Skrifstofu Alþýðuflokksins. Skrifstofu Sjómannafélags Rvíkur. Skrifst. V. K. F. Framsókn, Alþýðubrauðg., Lvg. 61 og í verzl. Valdimars Long. Hafnarfirði. Púsningasandur. Fínn og grófur skelja- sandur. Möl. GUÐMUNDUK MAGNÚSSON, Kirkjuvegi 16. Hafnar- firði. — Sími 9199. Kaupum tuskur Baldursgötu 30. Baldvin Jónsson hdl. Málflutningur. Fasteignasala. Vesturg. 17. Sími 5545. GOTT UR ER GÓÐ EIGN Gu3I. Gíslason Úrsmiður, Laugaveg 63, Síldarstúlkur: Nokkrar stúlkur óskast til Síldarsöltunar í sumar til h.f. Ásgeir Pétursson Siglufirði. Uppl. hjá Jóni Ásgeirssyni sími 7320. Lesið Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.