Alþýðublaðið - 13.08.1947, Blaðsíða 1
Veðurhorfur:
Hæg norðvesían átt og
víðast úrkomulaust.
Alþýðublaðið
vantar unglinga til að bera
blaðið til fastra kaupenda.
Umtalsefnið:
Yfirlýsing Bandaríkjafull-
trúans í öryggisráðinu.
Forustugrein:
Lán er engin lausn.
XXVII. árg. Miðvikudagur 13. ágúst 1947.
a—................. ... i I
178. tbl.
Myndin sýnir Andrei Gromyko, fulltrúa Rússa (I miSið), á fundi ’í öryggisráðinu. Til .liægri
sést Sir Alexander Cadogan, fulltrúi Bríta.
HERSCHEL JOHNSON, fulltrúi Bandaríkjanna
í öryggisráðinu, lýsti yfir því á fundi ráðsins í gær, að
Bandaríkin væru ráðin í að veita Grikklandi alla þá
aðstcð, sem það þyrfti og heimil væri samkvæmt sátt-
mála sameinuðu þjóðanna, til þess að verja sjálfstæði
sitt og fullveldi gegn árásum nágrannaríkja þess á
Balkanskaga.
Fulltrúinn sagði, að sá tími væri á enda, að reynt
yrði að friða árásarríkin með undanslætti, og Banda-
ríkin ætluðu sér ekki að sitja aðgerðalaus hjá meðan
verið væri að ráða niðurlögum eins þeirra ríkja, sem
væru í bandalagi hinna sameinuðu þjóða.
PFflgf nga rweriivenia n sr eiga ae geia ti
slipfseefeíi o| sýslnmðnnuni s"'
biraðir sínar á moraun
FJÁRHAGSRÁÐ hefur nú gefið út regiugerð um
skömmtun á nokkrum byggingarvörutegundum og
sett ákvæði urn birgðakönnun hjá byggingarvöru-
verzlunum landsins, en þær eiga að hafa gefið skýrsl-
ur um efnisbirgðir sínar, þær, er heyra undir skömmt-
unina, fyrir 14. þessa mánaðar, það er á morgun..
STJÓRN Síldarverksmiðja
ríkisins hefur nú ákveðið
síl'darmjölsverðið á inníend-
um markaði og verður það
kr. 82,57 pr. 100 kg.
Verðið er miðað við að
isíldarmjölið sé komið frítt
um borð í verksmiðjuhöfn,
sé það tekið úr vörzlu síldar
verksmiðjana fyrir 15. sept.
Sé mjölið hins vegar ekki
tekið og greitt fyrir þann tíma
bætast vextir og brunatrygg
ángarkostnaður við mjölverð-
ið.
Snarpur jarðskjálfia-
kippur í gær
ALLSNARPS jarðskjálfta-
kipps varð vart kl. 16.05 í
gær • í Hvolhreppi, Rangár-
völlum og Fljótshlíð. Mikill
gosmökkur og eldar sáust í
hátindi Heklu í gærmorgun
og fyrri partinn í gærdag, en
fóru minnkandi, er leið á
daginn.
Ereglugerðin um skömmt
un á nokkrum byggingar-
vörum er svo hljóðandi,
„Samkvæmt heimild í 2.
mgr. 11 gr. 1. nr. 70_ 19471
svo og 1. nr. 37 1939 og 1.
nr. 59 1940 er hér með sett
eftirfandi reglugerð:
1. gr. Frá og með 12.
ágúst 1947 er bannað að
selja hvers konar trjávið,
krossvið og hvers konar þil
plötur sement og steypu-
styrktarjárn, nema gegn
leyfum, sem út.eru gefin af
viðskiptanefnd fjárhagsráðs,
sbr. þó 6. gr.
2. gr. Allir, sem verzla
með vörutegundir þær, er
um ræðir í 1. gr., hvort
heldur er í smásölu eða
heildsölu skulu fyrir 14.
ágúst 1947 gefa viðskipta
nefnd skýrslu um birgðir
sínar af þeim í því formi,
er hún ákveður, eins og þær
voru, áður en viðskipti hóf
ust 12. ágúst 1947. Sama
gildir um iðnfyrirtæki, sem
nota þessar vörur til fram-
leiðslu sinnar, svo og um
einstaklinga, félög og opin-
gera aðila, sem hafa undir
Framhald á 2. síðu.
Dauðaþögn var í ráðssaln-
um meðan Bandaríkjafull-
trúinn flutti þessa yfirlýs-
ingu og voru þar meðal ann-
arra staddir Gromyko, full-
trúi Rússa, og talsmenn Júgó
slavíu, Búlgaríu og Albaníu
í umræðunum um Balkan-
skagamálin, en litlu áður
hafði borizt fregn af því, —
að ekkert samkomulag hefði
náðst um þau í nefnd þeirri,
er leita átti um sættir.
Herschel. Johnson sagði, í
íramhaldi af yfirlýsingu
sinni, að Bandaríkin væru
ekki lengur í neinum efa um
það, að Júgóslavía, Búlgaría
,og Albanía stæðu í sambandi
við kommúnistíska óaldar-
ílokka á Grikklandi og
styddu þá með það fyrir aug
um að koma upp ógnarstjórn
lítils minnihluta í landinu;
og hann sagði, að öryggis-
ráðið ætti ekki lengur að
þola þessum þremur ríkjum
yfirgang þeirra, því að frið-
urinn væri í alvarlegri hættu
af völdum þeirra.
Herschel Johnson veittist
einnig harðlega að Rússlandi,
sem með neitunarvaldi sínu
i öryggisráðinu hefði haldið
hlífisskildi yfir þessum
þremux xíkjum, og gaf hann
ótvírætt í skyn, að Banda-
ríkin myndu finna leið til
þess að verja Grikkland
gegn vélráðum þeirra, hvað
sem öllu neitunarvaldi liði.
Framhald á 2. síðu.
LAGAFRUMVARP ATTLEES um aukin völd fyrir stjórn
0
bans til að ráða fram úr gjaldeyrisskortinum og efnahags-
vandamálmuun var samþykkí til fullnustu í neðri málstofu
brezka þingsins í fyrrinótt með 178 atkvæðum gegn 63.
Allar breytingartillögur við
frumvarpið, sem stjórnaránd-
staðan bar fram, voru felldar,
síðast ein um það, að ekki
skyldi heimilt samkvæmt
þessum lögum, að þjóðnýta
stál- og járniðnaðinn. Var
þeirri tillögu mótmælt af
Morrison og hún felld ekki að-
eins með atkvæðum jafnaðar-
manna, heldur og ýmsra þing-
manna frjálslynda flokksins.
Frumvarpið var til umræðu
í lávarðadeildinni í gær og
sætti þar hörðum árásum, en
verður vafalítið afgreitt það-
an sem lög í dag.