Alþýðublaðið - 13.08.1947, Qupperneq 7
Miðvikudagur 13. ágúst 1947.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
7
«-------------------------1
Bærinn í dag.
-------------------------«
Næturlæknir er í læknavarð-
stofunni, sími 5030.
:: Næturvörður er í Laugavegs-
■Apóteki, sími 1618.
Næturakstur annast Litla
bílstöðin, sími 1380.
Ljósatími ökutsekja
er frá kl. 21,50 til 3,15 að
nóttu.
Trúlofun sína
hafa opinberað ungfrú Beryl
Joy-Tongue og Andrés Kol-
beinsson frá Stóra-Ási, Hálsa-
sveit, Borgarfirði.
Drengjameisiaramóf-
inu lokið
DRENGJAMEISTARA-
MÓTINU lauk á miðvikudags
kvöld. Á mótinu setti Hauk-
ur Clausen tvö ný drengja-
met og var annað þeirra jafn
framt íslandsmet.
Á þriðjudagskvöldið setti
hann drengjamet í grinda-
hlaupi en á miðvikudags-
kvöldið í 400 metra hlaupi og
var það jafnframt íslands-
met.
Úrslit í mótinu urðu þau,
að ÍR og KR hlutu f jóra meist
ara hvort félag, Héraðssam-
hand Þingeyinga 2 meistara,
en Ármann, FH, Selfoss og
íþróttabandalag Vestmanna-
eyja 1 meistara hvert.
Sigur bæjarúfgerðar-
innar
(Frh. af 3. síðu.)
sameignar- og hlutafélög og
reka þau þannig.
Áður börðust þeir gegn öll-
tum opinberum rekstri, hvort
sem það var ríkis- eða bæjar-
rekstur. Nú standa þeir að
bæjarrekstri, ásamt þeim,
sem um langa tíð hafa fyrir
því barizt, og sverja sig jafn-
framt frá fyrri mótstöðu, ef
þess væri kostur. Og svona
imætti lengi telja.
Hvað hefur skeð?
Svbj. Oddsson.
Guðm. Jónsson
barytónsöngvari
farinn til Svíþjóðar.
GUÐMUNDUR JÓNSSON
barytónsöngvar er lagður af
stað til Svíþjóðar.
Guðmundur hyggst stunda
þar söngnám um nokkurt
sk-eið. Hann hefur áður stund
að nám í Bandaríkjunum.
Þar tók hann og þátt í söng-
för Karlakórs Reykjavíkur,
sem einsöngvari, ásamt Stef
áni íslandi og rómuðu söng-
dómarar amerískra blaða
mjög framm-istöðu hans. Áð
ur en hann fór á brott héð-
an að þes-su sinni, hélt hann
söngskemmtun með Stefáni
íslandi, en áður hafði hann
sungið víðsvegar um land og
haldið margar söngskemmtan
ir hér í bænum við óvenju-
lega góða aðsókn og góða
dóma. Er óhætt að telja hann
efnilegasta listamann á því
sviði, sem við höfum lengi átt,
en auk þess er hann þegar
orðinn einhver vinsælast-i
söngvari hér, sökum látlausr
ar og stílhreinar túlkunnar
viðfangsefna sinna.
Ferðaskrifstof an:
4 ferðir um helgina
UM NÆSTU HELGI efnir
Ferðaskrifstofa ríkisins til
fjögurra eftirgi’éindra ferða:
1. 3 daga ferð austur í Skafta
fellssýslu. Lagt af stað kl.
2 á laugardag og gist í
Kirkiubæjarklaustri. Á
sunnudag skoðað umhverfi
Klausturs, Systrastapi o.
fl., enn fremur ekið austur
1 Fljótshverfi. Gist í
Klaustri. Mánudag ekið
heimleiðis um Dyrhólaeyj-
ar og Fljótshlíð.
2. Ferð til Heklu. Lagt af
stað kl. 2 á laugardag,
komið heim um nóttina.
3. Ferð til GulLfoss og Geys-
is. Lagt af stað 'á sunnudag
kl. 8. Ekið austur Heliis-
heiði til Geysis og Gullfoss.
Sápa verður látin í hver-
inn um eittleytið. Ekið
heim um Þingvelli.
4. Ferð til Heklu. Lagt af
stað kl. 8 á sunnudags-
morgun, komið til báka um
kvöldið.
Deila Egypfa og Breia
aftur fyrir
öryggisráðinu
UMRÆÐUR hófust á ný í
öryggisráðinu í fyrrad. um
dei-lumál Egipta og Bret-a og
endurtók Nokrashi Pasha,
forsætisráðherra Egipta
kröfu sínia um, að allur
brezkur her yrði þegar í stað
á burt úr Egiptalandi og -að
Súdan yrði sameinað því.
Fregnir frá London í gær
hermdu, að tvær nefndir frá
Súdan væru á leið til New
York til þess að gera grein
fyrir lafstöðu lands síns og
vær.u þær hvor upp á móti
anniarri: Önn-ur þeirra ætl-
aði að tala máli sameiningar-
innar við Egiptala-nd, en hin
myndi krefj-ast fullkomins
sj álf sákvörðun-arréttar og
sjálfstæðis fyrir Súda-n-, svo
sem Bretar telja, að landinu
beri.
Góður árangur
á B-júníórmófinu
NÝLEGA FÓR fram B-
junior-mót í frjálsum íþrótt-
um, fyrir drengi 16 ára og
yngri. Yfirleitt náð-ist mjög
góður árangur, og var þátt-
taka mikil, yfir 10 keppend-
ur í hverri grein. Helztu úr-
slit urðu þessi:
60 m. hlaup:
1. Reynir Gunnarsson, Á.
7,2 sek. 2. Guðjón Guðmunds
son, Á. 7,5 sek. 3. Rúnar
Bjarnason, ÍR. 7,7 sek.
Kúluvarp:
1. Halldór Halldórsson,
Val, 15,99 m. 2. Árni Hálf-
danarsson, UMSKr 15,13 m.
3. Hörður Þormóðsson, KR,
14,70 m. — Kastað 3,6 kg.
kúlu.
Langstökk:
1. Reynir Gunarsson, Á.,
5,87 m. 2. Guðjón Guðmunds
son, Á., 5,57 m. 3. Þorgeir
Þorgeirsson, ÍR., 5,32 m.
Hástökk:
1. Rúnar Bjarnason, ÍR.,
1,50 m. 2. Gylfi Gunnarsson,
ÍR. 1,50 m. 3. Baldur Jó-
hannesson, ÍR. 1,45 m.
5x80 m. boðhlaup:
1. Ármann 50 -sek. 2. ÍR.
51 sek. 3. KR. 55 sek.
| - Skemmtanir dagsim - |
Kvikmyndir:
GAMLA BÍÓ: „Æfintýri sjó-
Mannsins,“ sýnd kl. 9.
Dansinn dunar. Sýnd kl. 7, 9.
NÝJA BÍÓ: „Sonur refsinornar-
innar“, Tyrone Power, Gene
Tierney, George Sanders,
Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9.
,TJARNARBÍÓ: Rauður þráðar-
spotti. Sýnd kl. 5, 7 og 9.
TRÍPOLIBÍÓ: „Tryggur snýr
aftur. — Ted Donaldson.
Jolm Litel. Barbara Woodell.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
BÆJARBÍÓ: ,Árás Indíánanna'.
Dana Andrws, Brian Donemy.
ferð í Norðurlandaskákmót-
Skemmtisfaðir:
TIVOLI. Opnað kl. 7 síðdegis.
DÝRASÝNINGIN í Örfirisey.
Opinað kl. 8 árdegis.
Samkomuhúsin:
HÓTEL BORG: Danshljómsveit
frá kl. 9—11,30 síðd.
BREIÐFIRÐINGABÚÐ:
Lokað.
TJARNARCAFÉ: Dans
hljómsveit frá kl. 9—11,30.
Ötvarpið:
19.30 Tónleikar: Lög leikin á
orgel (plötur).
20.00 Fréttir.
20.30 Útvarpssagan: „Á flakki
með framliðnum“ eftir
Thorne Smith, IX. (Her-
steinn Pálsson ritstjóri).
21.00 Tónleikar: Norðurlanda
söngmenn (plötur).
21.20 Sitt af hverju (Karl ís-
feld ritstjóri).
21.45 Lög leikin á celló (pl.).
22.00 Fréttir.
22.05 Létt lög (plötur).
22.30 Dagskrárlok.
Jarðarför
frú Ingunnar Jónssdóttur
•frá Kornsá,
sem andaðist 9. þ. m., fer fram föstudagnin 15. ágúst
og hefst með húskveðju að heimili hennar, Laufásvegi
71, kl. 3V2 síðdegis. Athöfninni í kirkjunni verður
útvarpað.
Vandamenn.
Alúðarþakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og
vinarhug við andlát og jarðarför
Ólafs Þorleifssonar.
Fyrir hönd vandamanna.
Hreiðarsína Hreiðarsdóttir.
Til sölu
Oldsmobile 1947
Bifreiðin er alveg ónotuð.
BílamiSlunin
Bankastræti 7. — Sími 7324 og 6063.
Verkalýðssamlökin í Ámeríku
Framhald af 5. síðu. 1
lögun-um. En -ekki haf-a öll
fagfélög jafn sterka aðstöðu
og námuverkamennirnir.
Mörg þeirr-a horfa fram á
langvinnar deilur meðan
þau teru að sannprófa verk-
anir nýju löggjafarinnar.
Hver verða þá yfirl-eitt á-
hrif þessarar löggjaf-ar? Ég
myndi segj-a, ef atvinnu-
möguleikar verða framvegis
sem að undanförnu, munu
k-aupkröfumáttur verka-
manna vara. Eru lítil líkindi
til að verkalýðssamböndin
verði fyrir skyndilegum hrak
förum. En hins vegar geta
þau ekki vænzt -aðstoðar rík-
isv-aldsins til þess að komast
til frekari vegs og virðingar-
Að-alhættan liggur í því að
atvinnuleysi komi, og mu-ndi
það veikja -aðstöðu verkalýðs
’sambandanna allverulega.
Virðist svo sem verkalýðs-
samböndin geti haft góðan
bag af því, að styðja með
allri orku áform Marsh-alls
um Ián og leigu til viðreisn-
ar í Ev-rópu. Mundi þá verða
jafn mikil atvin-na og nú er
um 1-angan tíma enn. Einnig
mun löggjöfin þröngva
verkamönnum Bandaríkj-a-
manna til þess -að skipuleggja
betur sitt eigið lið. Hafa kom
ið fram raddir, er hvetja til
þess -að samein-a Verkalýðs-
sambandið og Samband iðn-
aðarverkamanna. Bæði sam-
böndin munu haf-a veitt þess
-ari tillögu -athygli. Og vilji
þau leggja áherzlu á að fá
nýju verkalýðsfélögin unnin
úr gildi, verða þau að koma
fram sterk og saméinuð í
þeim átökum.
Eru líkur til þess að þriðji
flokkurinn, svipaður brezka
Alþýðuflokknum, komi fram?
Það gæti hafa verið mögu-
leiki, ef Trum-an forseti hefði
ekki neitað að undirrita
verkalýðslögin- En nú eru
minni líkur til þess. Það er
sapnleikur að margir demo-
kratar gengu í lið með repu-
'blikönum, til þess að nægur
meirihluti næðist, svo að
heitunarvald forseta-ns kæmi
ekki að haldi. Þessir demo-
kratar greiddu atkvæði gegn
forsetanum, sem er flokks-
foringi þeirra. Mundi Bret-
um sýnast þett-a undarl-egt,
en slíkt kemur stundum fyr-
ir í Band-aríkjunum, þa-r sem
flokksagi er enginn. Voru
næstum allir þessir demo-
kratar frá Suðurríkjunum og
öðrum landbúnaðarsvæðum,
þar sem verkalýðshreyfingin
er lítið áberandi. Hins vegar
Igreiddu mest allir demokrat
ar frá iðn-að-arríkjunum at-
kvæði með forsetanum.
Mundi þriðji flokkurinn eiga
miklu fylgi að fagna í þess-
-um ríkjum. En með því að
stofna þriðj-a flokkinn og
kljúfa -andstöðuna gegn
trepulíkönum mundu verka-
lýðsamböndin tryggja demo-
krötum ósigur í þinginu en
republíkönum sigur við næstu
ikosningar- Þar af leiðandi er
Isennilegt að við kosningarn-
ar 1948 að minnsta kosti
helgi verkamennirnir all-a
krafta sína því áformi, að
-fella alla öldungadeildar-
rnenn og fulltrú-a frá iðnaðar
svæðunum, sem greiddu at-
kvæði gegn forset-anum, og
þar eð flestir þeirra voru
republíkanar, lítur út fyrir
að verkalýðssamböndin
m-unu verða jafn ótrauð í
baráttunni með demokrötum
um næstu kosningar og þau
voru á dögum Roosevelts.