Alþýðublaðið - 01.10.1947, Blaðsíða 3
IVIxðvikydagur
alþýðmblaðið
Samþykktir kvenna um fæð-
mgadeildina og heimilisþarfir
BANDALAG^KVENNA í
Reykjavík og Áíengisvarna-
nefnd kvenfélaga í Reykja-
vík og Hafnarfirði boðuðu til
almenns fundar#í Iðnó síðast
liðið fimmtudagskvöld, og
var hann yel sóttur, þrátt
fyrir óveður. Undirbúnings-
nefnd beggja aðila lagði
fram eftirfarandi tillögur,
sem allar voru samþykktar í
einu hljóði:
Um hina nýju fæðingardeild
Landsspítalans:
„1. Vegna undangenginna
blaðaskrifa um hiria nýju
fæðingardeild Landsspítal-
ans og ítrekaðrar yfirlýsing-
ar landlæknis um það, að
deildin muni ekki geta tekið
til starfa fyrst um sinn, lýsir
fundurinn yfir megnri óá-
nægju yfir hinum óskiljan-
lega seinagangi þessa máls.
Jafnframt skorar f.undurinn
á heilbrigðisstiórn landsins
að sjá um að deildin taki til
starfa sem allra fyrst, enda
þótt eitthvað kunni ef til vill
að vanta af hinum fullkomn-
ustu tækjum, sem ætluð
hafa verið til hennar.
Er hvort tveggja jafn ó-
verjandi, að láta fullgert hús
ið standa ónotað og að gera
ekki allt, sem Unnt er. til
þess að leysa vanda þeirra
fjölda kvenna, sem árlega
verður að neita um inntöku
í núverandi .fæðingardeild
Landsspítalans.“
,,2. Fundurinn skorar á
heilbrigðisstjórn ríkisins að
fela fyrrhuguðu forustufólki
hinnar nýju fæðingardeildar
Landsspítalans að hef ja þeg-
ar í stað allan nauðsvnlegan
undirbúning til þess, að
deildin geti sem fyrst tekið
til starfa.“
,,3. Fundurinn skorar á
Læknafélag Reykjavíkur að
beita sér fyrir bvi að starf-
ræksla hinnar nýju fæðingar-
deildar Landsspítalans verði
hafin án frekari tafar.“
Um framkvæmd heilbrigðis-
samþykktar Reykjavíkur:
,,'Fundurinn lætur í ljós
undrun og óánægju yfir því,
að enn skuli engin merki
sjást þeirra miklu umbóta,
sem hefjast áttu á síðast liðnu
ári á hreinlætis- og hgjlbrigð-
ismálum bæjarns.
Fundurinn skorar á bæjar-
stjórn Reykjavíkur að ganga
nú þegar frá heilbrigðissam-
þykkt bæjarins og hlutast til J
um, að hinn læknisfróði heil-
brigðisfulltrúi, sem bæjar-
stjórnin skipaði fyrr 13 mán-
uðum, geti þegar tekið til
starfa.“
Um skömmtun áfengis og
tóbaks:
„Fundurinn mótmælir því
harðlega. að haldið verði á-
fram hömlulausri sölu áfeng-
is og tóbaks, á meðan nauð-
synjavörur eru skammtaðar
naumt.
Þó að vitað sé að vísu, að
minni erlendur gjaldeyrir fer
til áfengiskaupa en ætla
mætti af hinu háa útsölu-
verði. þá er upphæðin ósæmi-
lega há, þegar þess er gætt,
að henni er varið til þess að
kaupa þjóðinni og einstak-
lingum hennar vanmátt til
að halda velli í þeirri baráttu
fyrir afkomu og frelsi, sem
nú stendur fyrir dyrum.-
Fundurinn telur óhætt að
fullyrða, að yfirgnæfandi
meiri hluti islenzkra kvenna,
en það er meiri hluti kjós-
enda landsins. stendur fast
með þessari tillögu.“
hafa verið tvær umferðir. í
Um heimilin og innflutning-
inn:
„1. Þrátt fyrir endurteknar
áskoranir undanfarin ár frá
kvenfélögum og kvenfélaga-
samböndum landsins um að
fá fluttar inn heimilisvélar til
þess að létta.störf á heimil-
unum, hafa þeir, sem ráð-
stafað hafa gjaldeyrinum
þessi ár, lítið sinnt þessu.
Þess vegna lýsir fundurinn
óánægju sinni yfir ráðstöfun-
um gjaldeyris að því er nauð
synjum heimilanna við kem-
ur í þessu efni.
Auk þess er nú svo komið,
að um langan- tíma hefur
fengizt efni í fatnað á ung-
börn né í almennan vinnu-
fatnað handa konum og sæng
urfatnað. Enn fremur skort-
ir tilfinnanlega diska-og bolla
pör til almennrar notkunar,
— þótt ekki hafi skort dýran
krystal og postulínsvarning.
Eins og málum er nú kom-
ið, fer fundurinn ekki fram
á að annað sé flutt til lands-
ins en það, sem þrýnust þörf
er á. svo sem efni á föt á
ungbörn, vinnþfatnað, rúm-
fatnað og nauðsynlegustu
búsáhöld.
Skorar fundurinn á fjár-
hagsráð að afla þessa varn-
ings næst á éftir nauðsynleg-
ustu matvörum og því, er
nauðsynlega þarf til útgerð-
ar.
Enn fremur lýsir fundur-
inn sig algerlega mótfallinn
erlendum iántökum og vill
styðja alla skynsamlega við-
leitni til sparnaðar, svo að
landið geti haldið áfram að
vera efnalega sjálfstæ.tt."
„2. Fundurinn telur það
mjög misráðið, að konur
skuli eigi hafa verið kvaddar
til samstarfs við karla um
innflutnings- og gjaldeyris-
verzlun landsins né um vöru
skömmtun, og skprar því á
ríkisstjórnina að kveðja kon-
ur sem fyrst til starfa og í-
hlutunar um þessi mál og
nota sér þann veg þá þekk-
ingu, sem konur hafa á þörf-
um heimil-anna.“
Loks var samþykkt tillaga
frá Karólínu Zixnsen, Katrínu
Pálsdóttur og Rósu Vigfúss-
dóttur um áskorun til alþing-
is um að láta fara fram þjóð-
aratkvæðagreiðslu um að-
flutningsbann áfengis.
Að bandalagi kvenna
standa 16 fjölmenn félög og
að Áfengisvarnanefndinni 26
félö£ í Reykjavík og Hafnar-
firði.
BÓKAÚTGÁFAN
NORÐRI hefur nýlega gefið
út skáldsöguna Rússneska
hljómkviðan, en hún hlaut
verðlaunin í bókmenntasam- i
keppni Sameinuðu þjóðanna 1
og náði mikilli útbreiðslu og I
fékk miklar vinsældir, þeg-
ar hún kom út á Bretlandi.
Efni skáldsögunnar er
sótit í ævi rússneska tónskálds
ins Alexis Serkins og er þar
getið margra af frægustu
Korsafkoffs og Mursergskys.
Meðferð efnisins og form þess
er nýstárlegt,, sniðið eftir
'tónverki Serkins, symfonáu
í c-moll, eina tónverki hans,
sem umheimurinn þekkir að
ráði.
í lífi Serkins er örlagavald-
urinn franska leikkonan
Janina Loraene. Um sambúð
þeirra hefur höfundurinn
skapað stórbrotna ástarsögu,
fíngerða og djarflega í senn.
íslenzka þýðingin er gerð
af Hersteini Pálssyni, rit-
stjóra.
íþróttafélag' stúdenta.
Handknattleiksæfingar félags
I
ins hefjast fimmtudaginn 2.
okt. kl. 10 e. h. í íþróttahúsi
Jóns Þorsteinssónar.
til veiðirétiareigenda og veíðimanna.
um
land a'llt skal vakin á því að samkvæmt lögum
nr. 112 1941 um lax- og sihingsveiði, er vatna-
silungur, annar en murta, friðaður fyrir allri veiði
nema dorgar- og stangarveiði frá 27. sept til 31-
janúar ár hvert. — Samkvæmt sömu lögum er
gön'gusilungsveiði aðeins leyfð á tíma'bilinu frá
1. apríl til 1. septernber og laxveiði um þriggja
mánaða t'íma á tímabilinu frá 20. maí til 15. sept-
ember- Mönnum er óheimilt að gefa, selja, kaupa,
þiggja eða taka við eða láta af hendi lax og göngu
silung á tímbilinu frá 20. september til 20. maí
ár hvert, nema að sannanlegt sé, að fiskurinn
hafi verið veiddur á lögl'eyfðum tima. Brot gegn
umræddum ákvæðum varða sektum.
Veiðimálasijóri.
listamönnum Rússa á 19.
öldinni, svo sem Rimskys
A u g I ý s i n g
Nr. 8,1947 frá skömmiunarsljóra.
Samkvæmt heimild í 3. gr. reglugerð-
ar frá 23- september 1947 um vöru-
skömmtun, takmörkun á sölu, dreifingu
og afhendingu vara, hefur viðskiptanefnd
ákveðið þessa skainmta af eftirtöldum
skömmtunarvörum handa hverjum ein-
staklingi á tímaþilinu frá 1. október til
31 des. 1947, og að reitir þeir af hinum
nýja skömmtunarseðli skuli á þessu tíma-
bili gilda sem lögleg innkaupaheimild
samkvæmt því, sem hér greinir:
Reitirnir merktir A 1 til A 10 (báðir
meðtaldir) gildi hver reitur fyrir 1 kg.
af kornvörum. Reitirnir merktir A 11 til
15 (báðir meðtaldir) gildi á sama hátt fyr-
ir 1 kg af kornvörum, en hver hinna af-
mörkuðu hluta þessara reita fyrir 200 g
af kornvörum.
Reitirnir merktir B 1 til B 50 (báðir
meðtaldir) gildi hver fyrir 2 króna verð-
mæti í smásölu af skömmtuðum vefnað-
arvörum (öðrum en tilbúnum ytri fatnaði)
og/eða skömmtuðum búsáhöldum, eftir
frjálsu vali kaupanda.
Reitrnir merktir K 1 til K 9 (báðir
meðtaldir) gildi hver fyrir V2 kg af sykri-
Reitirnir merktir M 1 til M 4 (báðir
meðtaldir) gildi hver fyrir hreinlætisvör-
um þannig, að gegn hverjum slíkum reit
fáist afhent V2 kg. afV blautsápu eða 2
pakkar af þvottaefni eða 1 stykki af hand-
sápu eða 1 stykki af stangasápu.
Reitirnir J 1 til J 8 (báðir meðtaldir)
gildi hver fyrir 125 g af brenndu og/eða
möluðu kaffi eða 150 g af óbrendu kaffi.
— %
Stofnauki nr. 14 gildi fyrir 1 kg af er-
lendu smjöri-
Ennfremur hefur viðskiptanefndin á-
kveðið að stofnauki nr. 13 gildi fyrir til-
búnum ytri fatnaði fram til ársloka 1948
þannig, að gegn þeim stofnauka fáist af-
■ hent á þessu tímabili einn alklæðnaður
karla, eða ein yfirhöfn karla eða kvenna
eða tveir ytri kjólar kvenna eða einn al-
klæðnaður og ein yfirhöfn á börn undir
tíu ára aidri.
Reykjavík, 30. september 1947.
Skömmtunarstjórinn.